Alþýðublaðið - 15.07.1942, Blaðsíða 2
jy»HgmA|w
/
• •••'.• .i *>jt>>» • ••■ •
Miðvikudagur 15. júií 1042.
Samkotnulag milll
DaisMarogríkis
FUNDUR var haldinu í
Trúnaðarráði Dagsbrúnar
f gærkveldi og var lagt fyrir
hann samningsuppkast, sem er
árangurinn af viðræðum þeim,
sem undanfarið hafa farið fram
milli Dagsbrúnarstjórínarinnar
og ríkisstjómarinnar og frá var
skýrt af Jakab Möller á bæjar-
ráðsfundi síðastliðinn föstudag.
Ekkert var látið opinberlega
uppi um ,það í gærkveldi, hvað
samningsuppkast þetta hefir
inni að halda. En eftir því sem
blaðið frétti var eftirfarandi i
ályktun samþykkt í einu hljóði j
á Trúnaðarráðsfundinum:
„Fundur í Trúnaðarráði
Dagsbrúnar, 14. júlí 1942, gef-
upfí stjólm félagsins fullt um-
boð til þess að gera samninga
við vinnuveitendur á grxmd-
velli samningsuppkasts þess er
fundurinn hefir samþykkt.“
Skipin koma hlaðin inn
eftir sex tíma útivist.
TIL SÍLDARVERKSMIÐJA RÍKISINS á Siglufirði eru
nú komin um 94 þúsund mál sfldar, og til Rauðku
um 7600 mál, en alls eru komin til Siglufjarðar rúm hundr-
að þúsund mál.
Síldin veiðist aðallega úti á Grímseyjarsundi og rétt
út af Siglufirði. Hefir það komið fyrir, að aðeins sex klukku-
tímar hafa liðið frá því skip fóru út frá Siglufirði og þar
til þau komu inn aftur með fullfermi.
Veiðiveður var fekki gott Gunnbjörn 650, Huginn I. 850,
fyrir norðan í gær og var rign-
ing á Siglufirði. Sex skip biðu
þar löndunar.
Frá 12 þ.m. og þar til í gær-
kveldi höfðu eftirfarandi skip
komið inn til Siglufjarðar með
afla og hafa sum komið oftar
en einu sinni:
Muninn 250, Glaður 700.
Starfsmein ríkis og bæja
kretjast 20% laanabita.
— — »
Bandalag þeirra skrifar ríkisstjórninni.
—............... --------
BANDALAG STARFSMANNA ríkisins og bæja fór
fram á 20% launabætur við síðasta alþingi. Var þetta
mál tekið upp af þingmönnum Alþýðuflokksins í báðum
deildum alþingis sem breytingartillaga við lög um verð-
lagsuppbót til handa opinberum starfsmönnum.
isins verði tryggð fyrst um sinn
20% launabót (á útborguð
laun), og stofnunum ríkis og
bæja jafnframt veitt heimild til
hins sama gagnvart starfs-
En tillögurnar voru felldar.
Hins vegar fékkst þá samþykkt
ómagauppbót, 300 krónur á
bam innan 14 ára.
Eins og kunnugt er, er nú
vakandi hreyfing meðal laun-
þega, um að fá launabætur og
hafa ýmsir fengið þær í mis-
munándi myndum. — Stjórn
bandalagsins hefir því ákveðið
að ítreka málaleitun sína við
ríkisstjórnina og sent henni eft-
irfarandi bréf:
„Þar sem fyrirsjáanlegt er,
að ekki mun takast að sinni að
bæta með nýjum launalögum
úr alviðurkenndu misrétti og ó-
samræmi á starfskjörum opin-
berra starfsmanna, vill stjórn
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja leyfa sér virðingarfyllst
að fara þess á leit við hið háa
Alþingi, að starfsmönnum rík-
óvarkárn víð loft-
æfiagar.
HAFNFIRÐINGAR kvarta
mjög undan því, að flug-
vélar setuliðsins sýni óvarkámi
við æfingar yfir Hafnarfjarðar-
bæ.
Nýlega hafði flugvél stungið
sér svo langt niður inni yfir
bænum, að hún sleit símaþráð
við eina götuna. Nýlega hafði
það einnig komið fyrir suður í
Æandgerði, að flugvél sleit loft-
net í Sandgerðl
mönnum sinum.--
Alþingi sá sér ekki fært að
fallast á þessa málaleitun vora,
en samþykkti hins vegar heim-
ild til fíkisstj ómarinnar um ó-
magauppbót, sem hæstv. fjár-
málaráðherra hefir tjáð oss, að
myndi verða notuð.
Þar, sem stjórn B.S.R.B. lít-
ur svo á, að starfsmenn hins op
inbera séu enn mjög afskiptir
um launabætur, samþykkti hún
á fundi sínum í dag að fara
þess á leit við hæstv. ríkisstjóm
að hún taki þessa málaleitun
vora til vinsamlegrar athugun-
ar og afgreiðslu.
Jafnframt viljum vér leyfa
oss að ítreka þá áskorun stofn-
þings B.S.R.B., að launalög
starfsmanna ríkisins verði tek-
in til gagngerðar endurskoðun-
ar hið allra fyrsta, og ríkis-
stjórnin gefi oss kost á að eiga
hlutdeild í undirbúningi þeirr-
ar endurskoðunar.
í trausti þess, að hæstvirt rík-
isstjórn skilji hina brýnu nauð
syn starfsmannanna og þjóð-
félagsins í þessu máli, leyfum
vér oss að vænta þess, að hún
sjái sér fært að verða við til-
mælum vorum.“
Má segja, að starfsmenn ríkis
og bæja séu hinir einu, sem
búa við sömu launakjör og
voru fyrir stríð.
Huginn II. 850, Ægir 300, Nói
300, Jón Stefánsson 300, Hrefna
700, Kristjana 350, Ingólfur
450, Geir goði 500, Ásbjörn
600, Austri 700, Kári Sölmund-
arson og Brynja 500, Keilir
1050, Grótta 600, Gylfi 600,
Sjöstjarnan 700, Bára 550, Vís-
ir og Barði 300, Björn Jörunds-
son 400, Olav 700, Leifur 350,
Otto 600, Minnie 800,- Harald-
ur 400, Helga 800, Erlingur II,
550, Hafþór 350, Sturla 300,
Heimir 700, Þorsteinn 900, Vé-
bjöm 650, Fylkir 600, Beta
600, Hermóður 600, Árni Árna-
son 600, Sæbjörn 550, Gulltopp
ur og Ófeigur 600, Stathav 350,
Már 600, Auðbjörn 250, Guð-
ný 450, Gunnbjörn 300, Þorgeir
goði 300, Sæfari 750, Hrefna
500, Sæunn 300, Björn Jör-
undsson 400, Gautur 550, Auð-
bjöm 500, Hannes 250, Leifur
300, Bjöm austræni 650, Ás-
björn 600, Huginn II. 600, Her-
móður 600, Kristjana 300, Vé-
björn 450, Gylfi 650, Richard
1200, Erlingur I 400, Ingólfur
400, 'Sæbjörn 480, Már 250,
Sjöstjaman 700, Sjöfn 500, Nói
250, Otto 700, Gulltoppur 350,
Geir goði 500, Vísir og Barði
500, Hannes 250, Þorgeir goði
270, Bjöm 550, Hrafnkell goði
650, Gunnar Pálsson 300, Min-
nei 300, Halldór og Sturla 450,
Glaður 650, Ámi Árnason 550.
Síldarafllnn á ðllu
landlnn.
Síðastliðið laugardagskvöld
var síldaraflinn á öllu landinu
orðinn 105,913 hektólítrar, en
sama dag í fyrra var hann
23,191 hl.
Skýrsla Fiskifélagsins um
afla hinna einstöku skipa til
miðnættis s.l. laugardagskvöld
fer hér á eftir:
Linuskip:
Fjölnir 2050, Ólaf 957, Ólaf-
ur Bjarnason 2564. Rúna 1145.
Sigríður 1883. Sæfari 887.
Mótorsláp:
Aldan 387. Andey 638. Ámi
Árnason 625. Ásbjöm 1003.
Auðbjöm 770. Austri 692. Birk-
ir 1088. Bjöm II. 880. Bjöm
austræni 300. Bris 908. Búða-
klettur 1967. Dagný 2099.
Fiskaklettur 800. Freyja 1481.
Fylkir 1039. Garðar 857. Gaut-
ur 462. Geir 2234. Geir goði 445.
framhald á 7. sfðu.
3 konur og 2
karlmenn slas-
ast í bílslysi.
ÁætlDnarbill fór út af veg-
inum skammt frá Hnsavik.
Þ Aí) SLYS varð í gærmorg-
un norður í Suður-Þing-
eyjarsýslu, að stór áætlun-
arbíll frá bifreiðastöð -Akur-
eyrar fór út af veginum skammt
fyrir sunnan Húsavík og meidd
ust fimm farþegar.
Slysið varð rétt fyrir norðan
ibæinn Kaldibak, sem er rétt
fyrir sunnan Húsavík. Er þar
hlið á veginum og rétt fyrir
norðan það kröpp beygja.
Voru þrír áætlunarbílar þar
á leiðinni til Húsavíkur, en sá
í miðið fór út af, þar sem beygj-
an er.
í bílnum voru þrjár konur og
fimm karlmenn og slösuðust
allar konurnar og tveir karl-
mannanna. Nöfn þeirra, sem
meiddust, eru: Sigríður Árna-
dóttir, Fanney Stefánsdóttir,
Aðalheiður Eliníusdóttir, Ás-
geir Jónsson og Páll Jónsson.
Fjögur em á sjúkrahúsinu á
Húsavík og ekki hættulega
meidd, en Páll Jónsson var
fluttur til Akureyrar til nán-
ari skoðunar. Mun hann hafa
axlarbrotnað og herðablaðs-
brotnað.
Háskólabióið er að
Teknr tll starfa í
UM ÞESSAR MUNDIR er
verið að fullgera háskóla-
bíóið, og er búizt við, að það
geti tekið til starfa í næsts
mánuði.
Svo sem kunnugt er, er það
íshúsið við Tjamargötu, sem
hefir verið breytt i biósaí. Hús-
ið hefir verið múrhúðað utan
og salurinn skrautlega málað-
ur.
Salurinn tekur hátt á fjórða
hundrað manns í sæti, og þar
af á annað hundrað manns á
svalir.
Aðaldyr hússins og inngöngu-
dyr eru frá Tjarnarg., en tvenm
ar útgöngudyr liggja út í port,
sem er hægra megrn við húsið^
þegar inn er gengið.
Áætlað er, að þarna verði
sýndar fréttamyndir daglega
frá klukkan 2—5, en sogu-
myndir verði sýndar á kvöld-
in, og hefir bíónefndin gert
samning við ameríksk og ensk
félög um filmur.
Ætlaði að eima siiri-
tus en kveikti í.
IGÆRKVELDI klukkan
tæplega hálf sjö var
slökkviliðið kallað að. Þingholt®
stræti 3, en þar hafði sézt reyk-
ur út um glugga á annarri hæð.
Þegar slökkviliðið ætlaði inn.
í íbúðina, var hún harðlæst
og neitaði húsráðandi að opna
íbúðina. Tókst þó að komast
inn og stóð þá húsráðandi þar
Framhald á 7. síðu.
Fjðgnr alvarleg nmferða-
sljs nndanfarna daga.
Öll í næsta nágrenni höfuðstaðarins»
O AMKVÆMT upplýsingum
^ rannsóknarlögreglunnar
hafa fjögur alvarleg umferða-
slys orðið undanfama daga.
Fyrsta slysið varð 10. þ. m.
Var þá íslenzkri vöruflutninga-
bifreið ekið eftir Suðurlands-
braut. Bifreiðarstjórinn kveðst
hafa ekið á eftir heyvagni, en
varð að nema staðar fyrir aft-
an hann, þar eð bifreið kom á
móti honum á hinni vegarbrún-
inni.
í sömu svifum kom erlendur
setuliðsmaður á bifhjóli á eftir
bifreiðinni, sem varð að nema
staðar, og lenti undir palli bif-
reiðarinnar. Slasaðist hann al-
varlega, en ekki er vitað hvern-
ig meiðslunum var varið.
Annað slysið varð 12. þ. m.
Tveir erlendir setuliðsmenn,
báðir á bifhjóli, lentú. saman
við íslenzka vörubifreið á gatna
mótum Suðurlandsbrautar og
Holtsvegar. Meiddust þeir báð-
ir allmikið. Annar fótbrotnaði,
en hinn fékk heilahristing.
Þriðja slysið varð í fyrradag;
á Breiðholtsvegi. Mætti þar ís~
lenzk vörubifreið erlendri her-
flutningabifreið.
Vöruflutningabifreiðin ísL
var með járnskúffur stórar á
palli, fullar af sandi og möl,
sem átti að fára í skip sem kjöl-
festa. Stóð önnur skúffan ofur-
lítið út af pallinum.
Herflutningabifreiðin var
með tjald yfir pallinum, og á
pallinum voru hermenn.
Þegar bifreiðarnar mættust,
rakst hornið á naalarskúffunni
á tjaldið og reif það. Einn her-
mannanna var einnig fyrir
skúffunni og meiddist mikið.
Fjórða slysið varð í fyrra-
kvöld, og skeði það við veg-
hindrunina fyrir vestan Tungu.
Var þar herlögregluþjónn að
kveikja á lukt, sem höfð er við
hindrunina. Varð hann þar
fyrir íslenzkri fólksbifreið og
fótbrotnaði.