Alþýðublaðið - 06.09.1942, Blaðsíða 3
Sunnudagur 6. september 1942.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞJéðverJar haf a mílljén manns
í orrustunni nm Stalingrad
og seg|a að
borgln falll
nm helgina,
en Riissar á
annari skoð
un.
LONDON í gærkveldi.
JÓÐVERJAR gefa nú í
skyn, að Stalingrad
muni falla um helgina, en í
Moskva og borginni sjálfri
eru menn á allt annarri skoð-
un. Fréttaritarinn Paul
Winterton, sem er í Moskva,
segir frá því, að Þjóðverjar
hafi um 1 000 000 manna her
í sókninni, 1000 flugvélar og
mörg þúsund skriðdreka. —
Talið er, að 25 herdeildir séu
norðan við borgina, og enn
þá fleiri sunnan við hana, en
Þjóðverjar senda daglega
margar hersveitir til víg-
stöðvanna.
Kaldir vindar eru þegar farn-
Ir að blása yfir „steppurnar“ í
Suður-Rússlandi, en eftir nokkr-
ar vikur er búizt við að rign-
ingar hefjist, og verða þá allir
bardagar erfiði.r Ef Þjóðverjum
tekst ekki að ná Stalingrad á
sitt vald, verður aðstaða þeirra
þarna eystra mjög erfið næsta
vetur. Þjóðverjar eru þegar
farnir að búa sig undir veturinn.
Sunnan við Stalingrad hafa
Rússar enn hörfað nokkuð eftir
geysilega bardaga og ítrekuð á-
hlaup Þjóðverja. Þýzku her-
sveitirnar, sem sækja fram á
þessum slóðum, hafa mikinn
fjölda skriðdreka, og yfir þeim
sveima hundruð flugvéla, sem
kasta stöðugt sprengjum á
stöðvar Rússa og gera vélbyssu-
árásir á þá.
Norðan við Stalingrad geng-
ur Rússum ibetur en á suður-
hluta vígstoðvanna. Hafa þeir
þar gert miklar gagnárásir og
komið í veg fyrir, að Þjóðverj-
ar gætu sótt fram nokkuð að
marki. Bardagarnir eru eins og
sunnan við borgina geysilega
harðir, og' er manntjónið á
báða bóga mikið.
Rússar segja frá því, að þeir
hafi undanfarið fellt 25 000
Þjóðverja við Stalingrad. Þeir
segjast eyðileggja 50 flugvélar
fyrir þeim á degi hverjum.
KAUKASUS
Rússar hafa enn orðið að
hörfa nokkuð norðan við flota-
stöðina Novorossisk, en þó hefir
framsókn Þjóðverja ekki verið
eins hröð undanfarið og áður
var. Rússar hafa eyðilagt
nokkra báta, sem Þjóðverjar
notuðu í innrásartilraUn á
Svartahafsströndinni.
Sókn Þjóðverja til Grozny-
olíulindanna gengur hægt, en
sígandi. Þeir eiga nú eftir 75
km. til borgarinnar.
Brezk árás á Bremen;
♦ .
rússnesk á Budapest.
Mesta árás fljág-
andi virkja.
Þetta eru nýjustu Fljúgandi virkin (Boeing B-17E), sem nú gera hverja árásina á fætur ann-
arri á meginlandið.
Bandamðnnum veltir
betur í Egiptalandl.
Merklleg vfkfngaárás ttala.
LONDON í gærkveldi.
A LLMIKLIR BARDAGAR eru nú háðir í Egyptalandi,
og eru það að þessu sinni bandamenn, sem eiga frum-
kvæðið að hernaðaraðgerðum. Þeir gerðu á fimmtudag á-
hlaup á miðvígstöðvunum og hröktu möndulherinn nokk-
urn spöl aftur á bak. Síðan hafa hersveitir Rommels gert
þrjú gagnáhlaup til þess að reyna að hrekja Nýsjálending-
ana, sem áhlaupið gerðu, til hinna fyrri stöðva sinna, en
ekki tekizt það. Hafa þeir orðið fyrir allmiklu tjóni, sér-
staklega af stórskotaliði bandamanna.
Horska ktrkjan neit-
ar friðartiiboði frá
Qnislinpm.
LONDON, 5. sept.
TILRAUNIR Quislínga til
þess að fá frið við norsku
kirkjuna hafa farið út um þúf-
ur. Fundur presta og biskupa
hinnar frjálsu kirkju Norð-
manna hefir samþykkt að hafna
tilboði Quislings um frið. Meðal
þeírra, sem fundinn sátu, var
Berggrav biskup.
Fréttir, sem hafa borizt til
London, segja frá því, að 40
norskir .verkamenn hafi verið
settir í fangelsi fyrir að neita að
ferma þýzkt skip með kartöfl-
um og ávöxtum, sem áttu að
fara til Þýzkalands frá Noregi.
*
Fyrir nokkru heimtuðu Þjóð-
verjar, að sjúkrahús eitt í Skien
yrði rýmt og fengið þeim til um-
ráða innan tvegja klukku-
stunda. Varð að flytja nokkurn
hluta sjúklinganna í búnaðar-
skóla, sem þarna er, en flestir
urðu að fara heim til sín. Marg-
ir þeirra voru með hættulega
sjúkdóma. Þessi dýrslega fram-
koma Þjóveja hefi vakið mikla
gremju í héraðinu.
Samkvæmt bréfum, sem
quislingarnir norsku, sem berj-
ast á austuryígstöðvunum, hafa
sent heim, er farið með þá þar
eystra rétt eins og þeir eiga skil-
Á syðri hluta vígstöðvanna
hafa Þjóðverjar enn hörfað
nokkuð, án þess að til mikillar
orrustu kæmi. Á þessum slóð-
um eru nokkrar deildir amer-
íkskra skriðdreka og eru þeir
þarna til þess að öðlast reynslu.
Innan skamms fara Ameríku-
menn þessir aftur heim til USA
og kenna öðrum það, sem þeir
hafa lært í eyðimörkinni. Þeir
hafa þegar eyðilagt marga skrið
dreka Þjóðverja. Fréttaritarar
segja frá því, að á vígvellinum
megi sjá hundruð alls konar far
artækja, sem eyðilögð hafa ver-
ið fyrir Þjóðverjum.
ÍTALSKIR VÍKINGAR
Fyrir nokkru gengu 14 ítalir,
einn foringi og 13 undirforingj-
ar og óbreyttir hermenn á land
að baki brezku víglínunni og
1 var á öllu bersýnilegt, að hér
var um víkingaárás að ræða.
Þegar brezkir hermenn komu
á vettvang, gáfust ftalirnir upp,
án þess að hleypa af nokkru
skoti.
Hann stjórnar.
London. — Þjóðverjar hafa
gert dreifðar árásir á Englarld,
meðal annars á London. Þar var
flugmálaráðherra Bretlands að
halda ræðu. Hann heyrði ekki
hættumerkið og hélt áfram, en
hélt að merkið um að hættan
væri liðin hjá, væri hættumerki.
Hann sagði: „Látum RAF um
þetta.“ Þá sögðu menn honum,
að þetta væri merki um að
hættan væri liðin hjá. Þá sagði
ráðherrann um hæl: „Þá hefir
RAF þegar unnið verk sitt.“
Þetta er foringi ameríksku-
sprengjuflugvélanna í Bret-
landi, Ira C. Eaker. Hann
stjórnaði sjálfur fyrstu árs
þeirra.
-----------------------------♦
Þýðing flugsins
eftir stríðið.
Chicago. — Flughetja Banda-
ríkjamanna í fyrra stríði, Eddie
Richenbecker, hefir sagt, að til
þess að vinna stríðið muni fyrr
eða síðar þurfa 300 000 flug-
menn og 3-—5 millj. vélfræð-
inga. Enn fremur 15 milljóna
her. Richenbecker sagði einnig,
að miklar breytingar yrðu í flug
málum, þegar þetta stríð yrði
búið. Hann segir, að því verði
engin takmörk sett, sem hægt
verði að gera á sviði flugmála
og fyrst um sinn verði allur
fyrsta flokks póstur sendur
loftleiðis, svo og mestallur létt-
ari flutningur. Það verður mikil
breyting á þessu sviði, og'það
mun þurfa þúsundir og aftur
þúsundir manna til þess að
starfa við flug.
London. — Hinn frægi flug-
maður frá fyrra stríðinu, Billy
Bishop, er kominn til London.
Bishop er sem kunnugt er Ka-
nadamaður, o.g er hann eftirlits-
foringi í kanadiska hernum.
:J; *
Cincinnati, USA. — Miklir
bardagar eru nú í úthverfum
borgarinnar Kinhwa í Kína, þar
sem Kínverjar eru nu aftur í
sókn eftir gagnáhlaup Japana.
London, 5. september.
MKLIR eldar voru enn í
Bremen í gærmorgun eft-
ir árás brezka flughersins í fyrri
nótt, samkvæmt frásögn flug-
manns, sem flaug yfir borgina.
Árásin stóð aðeins í 30 mín-
útur, en mikill fjöldi flugvéla
tók þátt í henni. Var meðal ann-
ars kastað allmörgum 4000
■punda sprengjum og komu upp
svo miklir eldar, að flugmenn-
irnir sáu þá heila klukkustund
eftir að þeir yfirgáfu borgina. I
Bremen eru mikilvægar verk-
smiðjur og skipasmíðastöðvar.
Bretar misstu 11 af hinum
mörgu sprengjuflugvélum, sem
þeir sendu til árásarinnar. Hafa
þeir þá í þrem stórárásum síð-
astliðna viku aðeins misst 22
flugvélar.
BUDAPEST
Meðan brezku flugvélarnar
voru að kasta sprengjum sínum
á Bremen, komu aðrar flugvél-
ar úr austri inn yfir lönd naz-
ista. Rússneskar flugvélar fóru
yfir 3000 km. vegalengd til þess
að gera fyrstu loftárás stríðsins
á höfuðborg Ungverjalands,
Budapest.
Voru þetta sérstaklega útbún-
ar háloftsflugvélar og köstuðu
þær mörgum sprengjum á ýmsa
staði í borginni. Komu upp yfir
30 eldar, en eitt sinn varð stórr-
kostleg sprenging, sem yfir-
gnæfði allar aðrar og' er talið,
að skotfærabúr eða olíugeymsla
hafi orðið fyrir sprengju.
Rússnesku flugvélarnar voru
einnig yfir Königsberg í Aust-
ur-Prússlandi og köstuðu þar
niður sprengjum. Þjóðverjar til-
kynna einnig, að rússnesku flug
vélarnar hafi flogið yfir Vín,
höfuðborg Austurríkis, Breslau
og aðrar borgir.
Ungverska stjórnin hefir
fyrirskipað myrkvun um allt
Ungverjaland.
DAGÁRÁSIR
Mörg hundruð flugvéla
Breta, Bandaríkjamanna og ann
arra Bandamannaþjóða fóru í
gær til árása á Þýzkaland og
hernumdu löndin. Boston
sprengjuflugvélar ameríkska
flughersins köstuðu sprengjum
á höfnina í Le Havre.
Fljúgandi virki gerðu einnig
í gærdag mestu árás, sem þau
hafa hingað til gert. Þrjár
deildir þeirra, sennilega 35—45
flugvélar, gerðu árásina á járn-
brautarstöðina í Rouen í Frakk-
landi. Flugvélarnar flugu mjög
hátt, en engu síður komu
sprengjur niður á stöðina. Orr-
ustuflugvélar fylgdu þeim til
Rouen og háðu bardaga við
þýzkar orrustuflugvélar. Banda
menn misstu 6 flugvélar, en
skutu niður tvær þýzkar.
Þetta var 9. og mesta árásin,
sem Fljúgandi virki gera í Ev-
rópu og hefir Þjóðverjum enn
ekki tekizt að skjóta eitt ein-
asta þeirra niður.