Tíminn - 02.10.1963, Qupperneq 8
V18 flugum fram á þessa tvo menn, þar sem þelr rfSu ( ófærSlnnl i gamla slóS I áttlna aS Blöndu.
sem þangaS voru komnlr. Þama óSu hestarnir vfSa snjólnn f hné.
Þeir ætluSu aS halda að Ströngukvíslarskála í gærkvöldi til móts viS þá þrjá,
FLOGIÐ YFIR FE OG MENN
yaf1 Mfffii'lirk .
1 Vj|a njj;
IGÞ-Reykjavik. 1. okt.
f dag fóru blaðamenn Tím-
ans í flugferð yfir Eyvindar-
staðaheiði í björtu veðri og
hinu bezta skyggni. Var snjó-
hvítt yfír að sjá norðan jökla,
en aftur á móti lítill snjór sunn
an þeirra frá uppsveitum Borg-
arfjarðar og austur að Kili. Á
Eyvindarstaðaheiði féllu ár á
milli skara og víða virtust þær
komnar á ís. Aftur á móti var
ekki kominn ís á stöðuvötn
nema þar sem krap hafði safn-
azt I þau meðfram löndum.
Norðan Ströngukvíslar og út
með Blöndu var töluvert um
fjárslóðir og hópar kinda voru
á strjálingi á þessari leið. Nokk
uð var um kröfs á hæstu hnott-
um, en féð virðist hafa stanz-
að lítið og bendir það til þess,
að víðast sé um jarðbönn að
ræða.
Við flugum fyrst að Ströngu-
kvíslarskála, þar sem allt var
hvítt og fannbarið. Dráttarvél-
in með vagninum aftan í var
fyrir dyrum skálans, eins og
menn nöfðu skilið við hana,
þegar þeir riðu til byggða í
hríðinni í fyrri viku. Skammt
norður undan voru tveir menn
á hestum að reka fáeinar kind-
ur til norð vesturs. Voru það
tveir þeirra þriggja, sem riðu
upp á heiðina á
morgunn. Þriðja manninn sá-
um við standa á mel, ekki langt
frá skálanum. Hann veifaði til
flugvélarinnar. Virtist allt vera
í bezta gengi hjá þeim þre-
menningunum, sem eru Sigur-
jón Guðmundsson. fjallskila-
stjóri, Jósep Sigfússon, undan-
leitarforingi og Sigurður Sig-
urðsson, yngri. Nokkuð langt
var á milli þeirra, sem Vöfu á
hestunum með féð og manns-
ins á melnum .Virtist hann vera
að huga að fé þarna af hæð-
inni, en skyggni var afburða-
gott, og auðvelt að sjá fé, sem
skar sig vel úr á hvítri mjöll-
inni. Okkur sýndist ekki ýkja
þungfært fyrir skepnurnar, þar
sem mennimir voru að reka
féð, en kindumar fóm sér hægt
og engmn gáski sjáanlegur i
fasi þeirra.
Norðar á heiðinni vissum við
af tveimur mönnum. sem áttu
að vera á leiðinni suður að
Ströngukvísl til móts við þá
þrjá, sem þar voru. Við hittum
á þá vestur af Fossárdrögum og
stefndu þeir í átt að Blöndu.
Fóra þeir gamla slóð og á leið-
inni til baka sáum við að þeir
mundu eiga fremur greiðfæra
leið þegar að Blöndu kæmi, því
þar var eins og meira hefði
rifið af en annars staðar. Þar
sem við flugum fram á mennina
tvo, var töluverður snjór. Sáum
við að stundum óðu hestamir
snjóinn í hné, og vita allir, sem
ferðast á hestum i þannig færi,
að það er bæði seinlegt og
erfitt. Annar mannanna reiddi
hund sinn fyrir aftan sig. Hann
reið brúnum hesti. Hinn var á
skjóttum; hafði tvo skjótta til
reiðar. Þrátt fyrir færðina mið-
aði mönnunum vel áfram. og
munu þeir ætla að ná að
Ströngukvíslarskála í kvöld.
Þegar komið var þama út á
heiðina, sáust hrossahópar við
og við og virtust þau hafa gras.
Munu þau bjargast betur í þeim
snjó, sem þarna er, heldur en
féð. en víða sáust kindur standa
í hópum og híma. Hins vegar
vora kröfs eftir þær sums stað-
ar, eða að minnsta kosti var
hægt að álíta það, þótt erfitt
sé að gera greinarmun á slóð-
um og krafsi kinda og hrossa
úr lofti.
Við flugum til baka yfir
Ströngukvíslarskála, en sáum
ekki til mannaferða við skálann
sem varla var von, þar sem
mennirnir höfðu verið í tölu-
verðri fjarlægð frá honum er
við vorum á norðurleið, og
verið að huga að fé. Er við
flugum norður fórum við upp
Borgarfjörð og vestan Eiríks-
jökuls, en suður fórum við Kjöl.
Suður undan Kili tekur fljót-
lega fyrir snjó og er jörð auð
úr því. Er ólfkrt um að litast
sunnan Kjalar, þar sem enn
eru góðir hagar, en allt í frer-
um nyrðra.
Munu menn vinna af kappi
að því að koma fénu niður af
Ejrvindarstaðaheiðí, enda virð-
ist manni. að þörf sé skjótra
handtaka við það. Svo sýnist
sem fé og hross hafi sótt mik-
ið norður heiðina síðustu daga,
þar sem mikið er um slóðir
niður með Blöndu. Og fjárhóp-
urinn, nær þrjú hundrað kind-
ur, sem rekinn var yfir
Ströngukvísl fyrra mánudags-
kvöld hafði dreift sér svo ræki
lega, að hvergi sáust meira en
tíu til fimmtán kindur í hóp.
Um hádegið í dag lögðu Hún-
vetningar og Skagfirðingar af
stað í slóð þeirra fimm, sem
þegar voru komnir upp á heið-
ina. Þeir fóra á tveimur Fergu-
son-beitisdráttarvélum með
sleðum en jarðýta fór á undan
og raddi slóðina. Þeim hefur
fjölgað, sem fara á heiðina og
munu það' alls verða fimmtán
manns, sem fylgir sleðunum. í
Framhalfl á 15 siðu
llmSTl'i'Mll1MiM' 13 i ■
:
; ■ ,
Tvelr menn á hestum aS smala klndum skammt frá Ströngukvísl f gærdag.
(Ljósmyndlr: Kárl).
b
T í M I N N. mlSvikudaalnn 2. október 1963. —