Tíminn - 10.10.1963, Blaðsíða 15
f KVÖLD ætlar Sumarleikhúsið að Hafa. lokasýningu á Ærsladraugnum í Austurbæjarbíói og að þessu sinni
til ágóða fyrir styrktarsjóð Félags íslenzkra leikara. Sumarleikhúsið hefur ferðazt um landið í sumar með
þennan gamanleik og sýnt hann yfir fjörutíu sinnum við mikla kátínu fólks um land all't . Sýningin í kvöld
hefst klukkan hálf tólf. Hér birtist mynd af einu atriði úr leiknum, og það er ekki um að viilast, að þarna er
verið að reyna að „komast í samband".
HEIMAVISTARSKÓL.AR
Framhald af 16. sicSu. •
um Sikólum. Verið er að byggja einn
nýjan barnaskóla í Reykjavík, Álfta
mýrarskólann, sem yrði mjög ný-
tízkulegur skóli. í fyrsta áfanga cr
gert ráð fyrir ell'efu kennslustofum,
og samkvæmt samningi við verk-
taka eiga þær að vera tilbúnar til
notkunar á næsta hausti.
Unnið er að fullnaðarfrágangi á
þriðja áfanga við byggingu Haga-
skóla, og bætast þá við 12 almennar
kennslustofur. Enn er eftir að
ganga frá sérkennslustofum, bóka-
safni o. fl.
Viðbyggingu við Langholtsskólann
á að ljúka um næstu áramót, og
verða þá sex kennslustofur teknar
fi'notkun.
Næstu daga verður væntanlega
hafizt handa um byggingu inýs á-
fanga við Réttarholtsskóla. Er það
fþróttahúsnæði, sem verður bæði til
nota fyrir skólann og félagsstarf-
semií hverfinu á vegum knattspyrnu
félagsins Vikings. Er vafasamt, að
það verði tilbúið á næsta ári.
Fyrsti áfangi við Gagnfræðaskóla
verknáms verður boðinn út um
næstu mánaðamót. Verður hann tvær
hæðir, 450 fermetrar hvor hæð, og
er það húsnæði ætlað fyrir kennslu
í trésmíði, járnsmíði og bifvélavirkj-
un. Verður það væntanlega tilbúið
tii notkunar á næsta ári.
Þá er loks unnið að þriðja áfanga
Hlíðarskóla, og bætast þar við fjór-
ar kennslustofur.
SÍLD FYRIR 700 MILLJ.
Framhald af 1. síðu.
Seyðisfjörður 192 þús., Vopna-
fjörður 128 þús., Siglufjörður
90 þús, Eskifjörður 90 þús.,
Reyðarfjörður 52 þús., Fá-
skrúðsfjórður 52 þús., Hjalt-
eyri 37 þús. og Krossanes með
17 þúsund mál.
Uppsaltaðar tunnur urðu
463.235 Þær voru saltaðar á
21 höfn og voru þessir staðir
hæstir: Seyðisfjörður 109 þús-
und tunnur, Raufarhöfn 78
þús., Siglufjörður 69 þús., Nes
kaupstaður 56 þús,. Eskifjörð-
ur 24 þús., Vopnafjörður 23
þús., Fáskrúðsfjörður 22 þús.,
Reyðarfjörður 21 þús.. Ólafs-
fjörður 11—12 þúsund og Húsa
vík 8—9 þúsund tunnur.
Frystar voru 33,424 tunnur.
Mál og tunnur urðu samtals
1,646 225, fyrir utan ósöltunar-
hæfu síldina. Síldarmálið kost-
aði 150 krónur í höfn en. 136
krónur um borð í flutninga-
skip. Uppmæld tunna í salt
kostaði 220 krónur og uppsölt-
uð tunna 293 kr. Löndunarverð
mæti síldaraflans í heild varð
330—340 milljón krónur en út
flutningsverðmætið er áætlað
650—700 milljón krónur.
MEISTARI JÓN
Framhald af 1. síðu.
listmálari, en í söngför til Skál-
holts hinn 11. ágúst síðast liðinn
ákvag söngkór Akraneskirkju,
sóknarnefnd og annað starfsfólk
kirkjunnar að koma henni í fram-
kvæmd, og gáfu Jón Sigmundsson
sparisjóðsgjaldkeri og kona hans
fyrstu gjöfina til þess. Krossinn
smíðaði Ingi Guðmonsson skipa-
smiður á Akranesi.
Þegar krossinn var reistur. á
þriðjudaginn var, voru þar við-
staddir nokkrir menn, m. a. biskup
inn herra Sigurbjörn Einarsson,
séra Sigurjón Guðjónsson prófast-
ur í Saurbæ og séra Jón M. Guð-
jónsson á Akranesi, sem verið hef
ur helzti forgöngumaður þess, að
minnismerkið var reist. Þegar
gengið hafði veri^ frá minnismerk
inu, flutti þiskupinn ávarp og las
valinn kafla úr predikunum meist
ara Jóns.
Við þjóðveginn, hið næsta auð-
kenni þessu, var um leig reist veg
arskilti með nafninu Biskups-
brekka.
Héraðsmót Rang-
æinga 12 ©któber
Framsóknarmenn í Rangárvalla-
sýslu halda héraðsmót sitt að
Hvoli n.k. laugardagskvöld kl. 9
Ávörp flytja alþingismennirnir
Ágúst Þorvaldsson og Björn Fr
Björnsson. Guðmundur Jónsson,
óperusöngvari, syngur meg undir
leik Þorkels Sigurbjömssonar, og
Ómar Ragnarsson skemmtir. Saf-
írsextettinn leikur fyrir dansi.
Söngvarar Ámi og Hjördís.
ÓFRIÐLEGT
Framhald af 3. síðu.
herflutningar af hálfu Marokkó
stjórnar, en ekki er vitað til,
að til bardaga hafi komift í dag.
Frá Michelet í Kabylíu bár-
• ust þær fréttir í morgun, að um
nóttina hefðu tvær herdeildir
úr stjórnarhernum yfirgefið
herbúðir. sínar og haldið til
fjalla, þar sem hermennirnir
slógust í lig með uppreisnar-
mönnum. Mjög mikil spenna er
nú í loftl i Kabyliu og er beðið
með eftirvæntingu eftir því,
hvort stjórnarherinn leggur til
atlögu við uppreisnarmenn,
sem enn hafast við í aðalherbú®
um sínum upp í fjöllunum.
STYRKUR
til minningarlunda og skrúðgarða.
Samkv. 14. gr. LXXV. fjárlaga fyrir árið 1963 er
ætlaður nokkur styrkur til minningarlunda og
skrúðgarða.
Stjórnir þeirra lunda og garða, sem óska styrks
samkvæmt þessu, sendi umsóknir sínar til skrif-
stofu skógræktarstjóra fyrir lok þessa mánaðar.
Reikningar og skýrsla um störf s. 1. ár skal fylgja
umsóknimv
Reykjavík, 8. okt. 1963
Hákon Bjarnason,
skógræktarstjóri.
Bðrn óskast
TÍMANN vantar börn til að bera út blaðið á
TUNGUVEG
RÉTTARHOLTSVEG
3RÍMSTAÐARHÓLTI
9
Nánari upplýsingar á afgreiðslu blaðs-
irss í Bankastræti 7 — Sími 12323.
ESJA — HEKLA
Framhald af 16. síðu.
ið stiglækkandi á míluna, eftir því
sem lengra dró frá þeinj stað, þar
sem ferðir. hófst og gerði þetta
mönnum, sepi þurfa ^f einhverjum
ástæðum að ferðast með skipun-
um slík ferðalög léttari fjárhags-
lega. Á sama hátt urðu ferðirnar
tiltölulega ódýrar fyrir sumarferða
fólk, en slíkt var ekki talið nauð-
synlegt. Nú hafa fargjöldin aftur
verið lækkuð, því að vety.'irlagi
ferðast aðallega með skipunum
það fólk, sem gerir það at'vinnu
sinnar, veikinda eða búsetu
vegna, og lág fargjöld auðvelda
því ferðalögin.
Eftir að vetraráætlunin gekk í
gil'di hjá Ríkisskip var fólki fækk
að á skipunum og lokað öðru far-
rými og hætt að skylda farþega
til þess að kaupa sér fæði. Verði
hins vegar mjög margir farþegar,
má alltaf taka einhvern hluta apn
ars farrýmis í notkun aftur.
RJÚPNAVEIÐI
stjóra, hreppstjóra og allra verzl-
ana, sem selja skotfæri, þar sem
veiðimenn geta fengið þessi eyðu-
blöð, og afhendi þeir skýrslur að
veiðitíma loknum t'il þesgara aðila
eða sendi þær beint til Dýrafræði
deildar Náttúrugripasafnsins, Póst
hólf 532, Reykjavík. Á það skal
bent, að farið verður með upplýs
ingar, sem aflað verður með
skýrslusöfnun þessari, sem trúnað
armál'.
EKKI FJÁRDRÁTTUR
Framhald af 16. síðu.
úustandaijdi. Mál þptta var gert
að upijíilSPfnÍ í PiÖðHm um helg-
ina, þar scip þúseigendum höfðu
þorizt riv’íkanir fyrir greiðslum,
sem þeir voru búnir að inna af
iiendi.
Það hefur komið í ljós, að hér
var ekki um auðgunarbrot að
ræða, en viðkomandi starfsmaður
bvrgarinnar, Eipar Pétursson,
skrifstofusijón. hafði í heimildar-
leysi lánað þetta fé fólki, sem átti
í erfiðleikum vegna íbúðakaupa,
húsnæðisvandræða o. fl. Borgar-
ráð samþykkti að fela borgarrit-
ara og borgarendurskoðanda að
innheimta það sem eftir stendur
hjá viðkomandi skuldurum, eða
þá hiá Einari sjálfum.
TJÓN
Framhaid af 1. síðu.
valda tjóni. Sums st'aðar erlendis
er bannag að ganga á háum hæl-
um út á flugþrautir, þar sem kom
ið geta holur í malbikið, og eru
þess dæmi, að orðig hafi að mal-
bika upp flugbrautir vegna holu-
skemmda af völdum kvenhæla.
Vísindamenn hafa spreytt sig á
ag reikna út þunga á fersenti-
metra, þegar mjóum kvenhæl er
stigið niður, og segja sumir, að
þunginn sé jafn og eins fíls, aðrir
eins og þungi 10 tonna trukks og
enn aðrir jafnt og þungi 18 hæða
húss. Engin furða, þó að þeir
valdi skemmdum.
þákkarávörp
Þakka öllum hjartanlega sem gerðu mér 80 ára af-
mælisdaginn ógleymanlegan.
Guðmundur Guðmundsson, Núpi, Fljótshlíð.
Innilegar þakkir færi ég öllum, íyrir heimsókn, gjaf-
ir og skeytfá 75 ára afinaelinu.
Njótið lífshamingju til hinztu stundar. Lifið heil.
Sigurður Kristjánsson, Hrísdal.
Öllum þeim er sendu mér heillaóskir og gjafir í til-
efni af 70 ára afmæli mínu færi ég hér með beztu
þakkir.
Friðrik Stefánsson
Hjarfans þakkir færum vlð öllum þeim, sem vottuðu okkur samúð
og hlýhug eða veittu belna hjálp vlð andlát og útför
Hauks Eiríkssonar
blaðamanns.
Sérstaklega þökkum við samstarfsmönnum hans við Morgunblaðið
°g Fílharmoníukórnum, enrr fremur stúdentum frá MA 1950 þeirra
mikla framlag, svo og mörgum einstaklingum, sem ekki verða
nafngreindir. Guð blessi líf og starf ykkar allra.
Eiríkur Stefánsson,
Þómý Þórarinsdóttir og börn.
Systir okkar,
Guðrún E. Waage
frá Litla-Kroppi,
lézt á sjúkradeild Hrafnistu þriðjudaginn 8. okt. s. I. — Jarðar-
förin verður auglýst síðar.
Ingibjörg E. Waage, Jóna E. Waage,
Guðmundur E. Waage.
Maðurinn minn og faðir okkar,
Jón Pétursson
vigtarmaður, Vesturgötu 77, Akranesi,
andaðist að Sjúkrahúsinu á Akranesi 9. okt.
Guðrún Jóhannesdóttir og börn.
Þökkum hjartanlega okkur auðsýnda hluttekningu og samúð vlð
andlát og jarðarför móður okkar, fósturmóður og ömmu,
Vigdísar Sigurðardóttur
Háfshjáleigu, Djúpárhreppi.
Sérstaklega viljum við þakka heimilisfólkinu að Hala og Háfi fyrir
einstaka umönnun og hjálpfýsi henni sýnda í öllum hennar veik-
indum. oa einnia vi? '•ndlá* hennar og jarðarför. Megi guð launa
þeim.
Sigurbjörn Halldórsson.
Hermann Sigurðsson,
lipnur Síi'-snerdiltir. .
Acjrtúr Símenarson.
i'
T í M I N N, fimmtudaginn 10. október 1963. —
15