Tíminn - 12.10.1963, Blaðsíða 15
BÍLSLYS
Framhald af 1. síffu.
færðist undir hana og dróst meS
henni 30 nietra upn í móti brekk-
unni, þar sem hún JosnaSi undan
henni.
Bifreiðinnj var lyft upp og sáust
þá merki þess, að stúlkan hafð'i
dregizt miili hjólanna. Hún var
þegar fluti á slysavarðstofuna, og
þaðan á Landspítalann.- Skurðað-
gerð stóð fyrir dyrum, þegar blað
ið talaði við lækni kl. 19. en hann
kvaðst ekki á því stigi geta sagt
neitt um það, hvernig telpunni
reiðir af_
Lögreglan í Hafnarfirði taldi að
ekillinn, stúlka, hefði blindazt af
sölinni, sem skein lágt yfir holt-
ið, þegar slysið vildi til. Farþegi
var í bifreiðinni, en hvorugt þeirra
telur sig hafa greint telpuna. En
við árekstminn mun fát hafa kom
ið á1 stúlkuna, sem ók, öðru vísi
verður það sem á eftir fór ekki
skýrt.
Aðstandendur telpunnar óskuðu
eftir, að nafn hennar yrði ekki
birt nú þegar.
DÁNARFREGN
Framhald af 16. síðu.
Manitobaháskóla og síðar doktors
prófi við TorontoháskóM 1950.
Fjallaði ritgerð hftns umvþátt' í
stjórnmálasögu Englendinga á 11.
öld, hið svokallaða Witenagemot.
Tryggvi kunni glögg skil á ís-
iénzkum fræðum og ritaði margt
um þau efni. Hann var ritstjóri
4. og 5. bindis Sögu íslendinga í
Vesturheimi og ritaði sjálfur sögu
Winnipeg-íslendinga.
Tryggvi kom tvisvar til íslands,
í síðara skiptið í fyrra og flutti
þá erindi við háskólann um fyrstu
ferSir Evrópumanna til Ameríku.
Vann hann um þær mundir að
samningu 1. bindis Sögu Kanada.
Með Tryggva er genginn merk-
ur sagnfræðingur og einn bezti
liðsmaöur íslenzka þjóðárbrotsins
vestra. Hann var kvæntur Elvu
Huldu Eyford, og áttu þau þrjú
börn. ________
,;OLD BOYS"
Framhald af 16. síðu.
og Vals. Vítakeppni er þar næst
á dagskrá og senda öll Reykja-
víkurfélögin fulltrúa', einnig FH
og Haukar úr Hafnarfirði og
Breiðablik úr Kópavogi. — Old
boys Fram og Ármanns, árgerð
1950, mætast og koma margir
þekktir fram. Að síðustu fer fram
leikur í 2. flokki karla milli Fram
og ÍR.
v Á sunnudaginn leikur svo Fram
gegn FH í meistaraflokki karla,
en áður fara tveir leikir fram, í
1. fiokki milli Fram og Þróttar
og'í 3. flokki milli Fram og KR.
Þess má geta, að leikir í yngri
flokkum og kvennaflokkum verða
í styttra lagi,. eð'a 2 sinnum 10
mínútur, en leikur Fram og FH
í meistaraflokki karla verður 2
sinnum 30 mínútur.
Víðivangur
Vand'inn er sem sagt harla
lítóll. Aðeius að segja já og
amen við því, sem Ólafur og'
Bjarni vilja — og hneigja sig.
Þá er öllu borgið. feess'ir vitr-
ingar. eru þó bún'ir að ráða í
fjögur ár — ®g sögðust vera
búnir að bjarga öllu.
erming
FERMING í safnaðarheimlll Lang
holtssóknar 13. okt. 1963 kl. 10,30.
Prestur: Séra Árelíus Nfelsson.
S t ú I k u r :
Bára Snorradóttir, Gufunesi 3,
Mosfellssveit.
Erla Emilsdóttir, Glaðheimum 26.
Erla Sigriður Sigurjónsdóttir,
Vitastíg 11.
Guðrún Emilsdóttir, Gl'aðheim-
um 26.
Hrafnhildur Snorradóttir,
Gufunesi 3, Mosfellssveit.
Jóhanna Ágústsdóttir, Ásgarði 69.
Lilja Benediktsdóttir, Safa-
mýri 48.
Margrét Möller, Tunguvegi 26.
Sigrún Benediktsdóttir, Safa-
mýri 48.
Stefanía Sara Gunnarsdóttir,
Hvassaleiti 99.
P I I t a r :
Gunnar Gunnarsson, Skeiðar-
vogi 9.
Halldór Valgeir Kjartansson,
Melgerði 25.
Helgi Kjartansson, Melgerði 25.
fvar Magnús Magnússon,
Langholtsvegi 180.
Jóhannes Norðfjörð, Fossvogs-
bl'etti 8.
Kristinn Ómar Sveinsson,
Mjölnisholti 10.
Pétur Jóhannes Bdgason,
Bergþórugötu 20.
Reynir Magnússon, Langholts-
vegi 180.
FJ ARSV! K.AMALIÐ
Framhald af 16. síðu.
byggja sér hús. Þetta er maður
u:n tvítugt.
Rannsóknin er lokuð sem fyrr,
uppi um þetta mál. Það er að vísu
erfitt að henda reið'ur á slíku um-
tuli og hafa það eftir, en löngu
áður, en þessir tveir menn voru
handteknir voru uppi raddir um
það, að fleirí væru við málið riðn-
ir en Sigu’.’björn einn. Það virðist
nú komið í ljós.
PLÓGURINN
Framhaid af 1. síðu.
leyti til hinna gömlu hand-
gröfun lokræsa. Ólafur kvaðst
fullviss, að plógræsin mundu
endást á við handgrafin lok-
ræsi í góðu landi.
Afköstin hafa verið misjöfn
í sumar. eins og gefur að skilja,
þar sem plógurinn er á tilrauna
stigi. Mestu afköst hafa verið
gífurleg, 40—50 km. á sólar-
hring, en það svarar til fram-
ræslu jafn margra hektara —
Meðalafköst eru um 15 ha. á
sólarhring. Plógurinn hefur ein
göngu verið notaður á óræktað
ar mýrar. Sums staðar hefur ár
angurinn verið slíkur, að landið
fullþornaði á fjórum dögum.
og hættj að drjúpa úr ræsun-
um, ef veður var þurrt. Ræst er
í vélgrafna skurði, gilskorn-
inga og fram úr brekkum.
Framrækslunni er hvergi
nærr: lokið í Holtunum, en plóg
urinn mun sennilega fara aust
ur i Mýrdal í haust, en þar
bíða msnn eftir honum. í Mýr
dal er farið að þrengjast úm
ræktarland og túnin blaut, svo
Gísl
írski leikurinn „Gísl“ er
sýndur um þessar mundir
í Þjóðleikhúsinu við mikla
hrifningu og ágæta aðsókn.
Leikurinn verður sýndur í
10. sinn í kvöld.
Myndin er af Erlingi
Gíslasyni, Ævari Kvaran og
Baldvini Halldórssyni í hlut
verkum sínum.
TEKINNI
BANKANUM
HF, Reykjavík, 11. okt.
Um þrjúleytið í dag var ungur
piltur handtekinn í Útvegsbank-
anum, þar sem hann var að gefa
út falska ávísun. Gjaldkeranum
fannst eitthvað grunsamlegt við
hátterni piltsins, einkum þar sem
hann var drukkinn, og hringdi nið
ur á lögreglustöð, en þar kom í
Ijós, að ávísunin var úr ávísana-
hefti, sem stolið var í Vestmanna-
eyjum í vetur. Rannsóknarlögregl-
an vill að svo stöddu ekki gefa
neitt' rneira upp um málið, enda
ekki hægt að yfirheyra pilt,
vegna ölvunar, en haldið er, að
meiriháttar þjófnaður stirndi á
bak við þetta og annar félagi
piltsins hafi verið í, vitorði með
honum, og gangi hann nú laus.
FLÓÐIÐ
Framhald af 3. síðu.
ið. ef skriða félli aftur úr fjallinu
og niður i uppistöðulónið. sem
enn, er ekki orðið fullt upp að brún
-siiGunnar.
í dag var sprautað sóttvarnar-
eínum á flóðasvaéðinu til þeSS'áð
hindra drepsóttir. Nýir flokkar
lækna koma stöðugt til héraðsins.
Enn eru margir, sem ekki hafa
íundizt og ; kvöld voru fjallamenn
að búa sig undir að síga niður
hina næstum lóðrættu Vaiont-
sriflu til að kanna fréttir um, að
fjórir eða fimm menn séu innilok-
aðir í einum af göngunum í stífl-
unni.
Fórnardýr flóðanna verða öll
grafin í sérstökum kirkjugarði.
SKSPAÚT6ERÐ
RÍKISINS
' Ms. Baldur
fer til Snæfellsnes og Hvamms
fjarðarhafna á mánudag. Vöru
móttaka árdegis í dag og á
mánudag til Rifshafnar, Ólafs-
víkur, Grundarfjarðar, Stykkis
hójins .Hjallaness og Búðar-
dals.
plógurinn mundj sennilega
verða notaður á þau fyrst í
stað.
Til greina hefur komið að
fá stærri dráttarvélar en TD 20
til að draga plógana, sem véla
sjóður mun smíða í vetur. Hér
eru að visu til nokkrar TD 20
vélar, en ekki með jafnbreiðum
beltum og sú vél, sem beitt er
fyrir plóginn, en hún má ekki
minni vera. sagði Ólafur.
HÖFUM OPNAÐ VERZLUN AÐ LAUGAVEGI 87
SKYRTUR OG NÆRFÖT I MIKLU ÚRVALI
Laugavegi 87
Drengjafatnaður
Karlmannafatna?
Stakir iakkar
Sfakar buxur
Rútubíll
28 farþega rútubíll með Mercedes benz dieselvél
tU sölu. Mótor og gír í ágætu ;agi. Selst mjög ódýrt.
Úpplýsingar í síma 16288 og 13976.
Börn óskast
TÍMANN vantar börn til að bera út blaðið á
i áELUNUM
Upplýsingar á afgreiðslu blaðsins,
Bankastræti 7. Sími 1-23-23.
ÍMÚM
ÞAKKARÁVÖRP
Öllum, sem sýndu mér vinsemd a 85 ára afmæli mínu
6. þ.m. færi ég hjartanlegar þakkir og bið þeim bless-
unar.
Jóhann Kr. Hafliðason, Freyjugötu 45
Mínar innilegustu hjartans þakkir færi ég öllum þeim
sem heimsóttu mig á 80 ára afmæli mínu, gáfu mér
stórgjafir, blóm og skeyti. — Guð bJessi ykltur öll.
Jónína Sveinsdóttir frá Þverdal
Hjartanlegar þalíkir og kveðjui til allra þeirra, sem
auðsýndu mér vinsemd og hlýhug á sjötugs afmæli
mínu.
Kjartan Jóhannesson
FöðurbróSir minn,
Egill Egilsson
frá Tungu við AuSkúlu í Arnarfirði,
sem lézt að Vífilsstöðum 7. þ. m. — verður iarðsunginn frá Rafns-
eyrarkirkju þriðjudaginn 15. október, kl. 2 e. h.
Fyrlr hönd aðstandenda,
Baldvin Þ. Kristjánsson.
T í M I N N, Iaugardaginn 12. október 1963. —
15
i