Tíminn - 26.10.1963, Blaðsíða 5

Tíminn - 26.10.1963, Blaðsíða 5
RITSTJÓRI: HALLUR SÍMONARSON ^ 'ú EFTIR LEIK ENGLANDS OG HEIMSLIÐSINS SAGÐI MYNDI'N aS ofan er frá lelknum á ALF RAMSEY UM JIMMY GREAVES Maurice Norman, reynir að stoova --■- 1 ■ ■■■■ — * Engin v«m í heiminum getur stöðvað hann Handbolti um helgina Reykjavíkurmótið í hartd- knaftleik heldur áfram að Há- logalandi um helgina og fara m. a. fram sex leikir í meist- araflokki karla, auk leikja í yngri aldursflokkum. Á laugardagskvöld kl. 20.15, þ. e í kvöld, fara þessir leikir fram: 3. flokkur karla: KR-Víkingur. Meistaraflokkur karla: Víkingur KR. Valur-ÍR, Þróttur-Fram. Á sunnudag kl. 13,30 fara þess- ir leikir fram: 2. fl. kvenna: Vík- ingur-Fram. Valur-Ármann. 3. flokkur karla: Víkingur-ÍR. f i:mn siðu Stóri leikurinn í Lundúnum á miðvikudaginn var, leikur Englands og „heimsliðsins", er enn ofarlega á baugi, enda líklegt, að hann verði talinn einn af stórleikjum aldarinnar. Mörgum finnst sem England hafi unnið frægan sigur með því að vinna „heimsliðið" 2:1. Þeir eru þó fleiri, sem bent hafa á, að sigur Englendinga stafi í raunréttri aðeins af því, að það hafi alls ekki náð tilgangi að hóa saman sterkum einstaklingum úr nær öllum hejmshornum — mönnum, sem hafi skort alla samæfingu og tala ólíkt tungumál og stilla þeim upp sem heimsliði — Hið mjog svo samstillta lið Englands hefði í rauninni unnið of lítinn sigur. Um þetta geta menn vissulega deilt endalaust, en þess má geta, a5 margir íþróttablaðamenn eru á þeivri skoðun, að „heimsliðið" hafi fyrst og fremst tekið leikinn sem „býningarleik" en Englendingar, sem fullgildan kappleik. Til gatnans skulum við svo að- eins líta á ummæli manna, sem nátengdir voru leiknum . . . Alf Ramsey, framkvæmdastjóri enska landsliðsins, sagði eftir leik inn: — „Eg er mjög ánægður með frammistöðu enska liðsins. Strák- arnir börðust vel og léku heil- steyptari knattspyrnu en heims- liðið. Jimmv Greaves var eins hættulegur og mig dreymdi um. Engin vörn í heiminum getur stöðvað hann . . .“ Riera, sá sem stjórnaði „heims- !iðinu“ utari vallar, sagði: „Hefði ég fengið mann eins og Pele og út- herja eins og Hamrin í liðið, hefð um við unnið. En það voru mörg lönd, sem sviku okkur, og þess vegna gátum við ekki stillt upp sterkasta liðinu. Hugsið ykk- ur líka h\að Garrincha hefði get- að gert sem hægri útherji í þess- um leik . . með fullri virðingu fyrir Englendingum. Annars voru Englendingar betri en ég reikn- aði með . .“ Armfield. fyrirliði Englands, sagði: „Það hafði engin áhrif, að „heimsliðið" skipti mörgum mönn um inn á í hálfleik. Eg held að þetta hafi lafnvel verið betra fyr- ir okkur. Tökum sem dæmi hinn frábæra sovézka markvörð, Yash- in, sem hafði varið af hreinni sniild í fyrri hálfleik og haldið markinu h/einu . . . Við megum þakka fyri", að hann lék ekki með í síðari hálíleiknum. Auk þess er það alltaf erfitt að koma inn í miðjan leik. Fyrst verður maður að fá að hitna — og það tekur sinn tíma að samlagast heildinni. Og alveg sérstaklega hlýtur þetta að vera erfitt fyrir leikmenn, sem þekkja hvem annan lítið sem ekkert . . .“ Djalma Santos, bakvörður í „heimsliðinu" sagði: „Englending ar léku miklu betur en venjulega. En auðvitað gætti þess, að „heims liðið“ æfði aðeins í 40 mínútur saman fyrir leikinn og það er auð- vítað allt of lítið“. Og Santos var spurður, hvort hann héldi, að enska landsliðið myndi sigra Brazilíu, ef löndin myndu mætast í iandsleik. „Eg get varla nokk- uð sagt um það“, svaraði hann, „en það myndi alla vega verða erfiður og harður leikur fyrir báða aðila . . .“' • Esbjerg hefur tryggt sér Danmerkurmeistaratitil í knattspyrnu þriðja árið í röð Ems og í fyrri skiptin, hafði Esbjerg gífurlega yfir burði — og er 5—7 stigum hærra en iið númer tvö. •fc JIMMY GREAVES skorar hér sigurmarkið í leiknum. — Undirbúningurinn var CHARLTONS á vinstra kanti. Reykjavíkurúrvai sigr- aði Flugvallarúrvalið Það verða 6 meistaraflokksleikir um helgina. Alf, Reykjavík. REYKJAVÍKURÚRVAL í körfu- knatfleik vann ágætan sigur yfir úrvalsliði frá Keflavikurflugvelli að Hálogalandi í fyrrakvöld. Lokatölur urðu 71:62 og var það sízt of stór sigur, en hinlr reykvísku körfu- jknattleiksmenn höfðu mikle yfir- burði á sviði tækni. Áhorfendur voru nokkuð margir og fylgdust spenntir með viðureigninni, sem var jöfn allan fyrri hálfieikinn og fram- undir miðbik síðari hálfleiks. Hraði var mikill í leiknum og því harka oft á dagskrá. í hálfleik höfðu Bandaríkjamenn yfir 40:35. Fljótlega í síðari hálfleik jafnaði Reykjavíkurúrval og um miðbik hálfleiksins hafði því tekizt að ná undirtökunum og síðustu mínúturn ar voru „reykvísk einkaeign”. í þessum ieik hafði reykviska liðið mikla yfirburði í tækni og oft brá fyrir mjög skemmtilegum sam- leiksköflum. Að mörgu leyti lék bandaríska liðið taktiskar, en leik- Framhald á 15. síðu. STUTTAR FRÉTTIR FRANSKA knattspyrnusom- bandið ákvað á fimmtudag, að útiloka frá allri keppni í þrjá mánuði hinn fræga leikmann, Raymond Kopa, sem m. a. hefur unnið sér til frægðar að leika með heimsliðinu. Þessi ráðstöf- un franska knattspyrnusambands Ins var gerð vegna þess, að Kopa neitaði að leika með franska landsliðinu n. k. laugardag gegn Búlgaríu í Evrópukeppni lands- liða. T f M I N N, laugardaginn 26. október 1963. (

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.