Tíminn - 26.10.1963, Síða 6
Ráðstefna
Varðbergs
hefst í dag
Klukkan 12,30 í dag hefst í
ÞjóðLeikhúskjallaranum ráðstefna
Varðbergs um „ísland og alþjóð-
legt samstarf“. Auk Varðbergsfé-
laga er háskólastúdentum sérstak-
lega boðið til ráðstefnunnar. Ráð-
stefnan hefst með hádegisverði í
boði stjómar Varðbergs en henni
lýkur á sunnudagseftirmiðdag
með erindi Stephan Thomas fram
kvæmdastjóra vestur-þýzka Sosial-
Demokrataflokksins, sem staddur
er hérlendis í boði Varðbergs. Á
ráðstefnunni verða flutt eftirfar-
andi 4 erindi:
1. „ísland og alþjóðlegt sam-
starf“, Ellert Schram, form. Stúd-
entaráðs.
2. „Stjómmálalegt samstarf".
Tómas Karlsson, blaðamaður.
3. „Varnarsamstarf“, Gunnar
Schram, ritstjóri.
4. „Efnahagslegt samstarf",
i Björgvin Guðmundsson, viðskipta
í fraeðingur.
Hringborðsumræður verða að
loknum erindunum báða dagana.
EINS og skýrt hefur vertS frá
f fréttum fórst brezk þota af
nýrrl gerð t tllraunaflugi á ml8-
vikudaginn og með henni 7
tllraunaflugmenn og flugtækni-
fræðingur. — Hér var um að
ræða flugvél af gerðlnni BAC-111
sem Bretar höfðu nýloklð smíðl
á og var hún elna flugvél þelrr-
ar gerðar, en önnnur er í smlð-
um. Á efrl myndinni sést flug-
vélaflaklð, elns og það lelt út
skömmu eftlr slyslð, en myndln
hér tll hltðar var tekin rétt áð-
ur en reynsluflugið hófst.
i
i
Háskóiahátíð verður haldin
fyrsta vetrardag, laugardag 26.
okt. khtkkan 2 eftir hádegi í Há-
skólabíói.
Þar verður leikinn háskólamars
eftir dr. Pál ísólfsson, fluttir þætt
ir úr háskólaljóðum Davíðs Stef-
ánssonar við lög dr. Páls ísólfs-
sonar, dómkórinn undir stjórn tón
skáldsins syngur. Háskólarektor,
prófessor Ármann Snævarr flytur
ræðu. Kristinn Hallsson syngur
einsöng og kór háskólastúdenta
syngur stúdentalög undir stjórn
Sigurðar Markússonar. Háskóla-
rektor ávarpar nýstúdenta, og
veita þeir viðtöku háskólaborgara
bréfum. Einn úr hópi nýstúdenta
flytur stutt ávarp, og nýstúdentar
syngja stúdentalag.
Háskólastúdentar og háskóla-
menntaðir menn eru velkomnir á
háskólahátíðina.
Frekari rannsókn
KJ-Reykjavík, 25. október.
MÁL SIGURBJÖRNS veitinga-
manns sem undanfarið hefur verið
til athugunar og rannsóknar hjá
Saksókaara rlklsins, hefur nú verið
sent aftur til sakadóms tll frekari
rannsóknar. Ekki mun vera að
vænta frekarl frétta af málinu fyrr
en eftir helgi.
ADALFUNDUR F.U
Aðalfundur Félags ungra Fram-
sóknarmanna í Reykjavík var hald-
inn mánudaginn 14. október s. 1.
Starfsemi félagsins hefur verið
mikil á síðast liðnu starfsári, eins
og fram kom í skýrslu stjórnar.
Hafa margir félagsfundir verið
haldnir með góðri þátttöku, og
önnur félagsstarfsemi verið víð-
tæk. Sérstaklega varð þó þáttaka
félagsins og félagsmanna almenn
í kosningabaráttunni s. 1. vor.
Á fundinum mætti Einar Ágústs
son, alþingismaður. Hann þakkaði
félagsmönnum mlkla vinnu og ötul
an stuðning í kosningunum og
flutti snjalla ræðu um stjórnmála
viðhorfið og sérstaklega um hið
alvarlega ástand, sem nú rikir í
húsnæðismálum.
Stjórn Félags ungra Framsókn-
armanna skipa nú: Steingrímur
Hermannsson, formaður; Ragnar
Gunnarsson, varaformaður; Theo-
dór A. Jónsson, ritari; Sigþór Jó-
hannsson, gjaldkeri; Ingibjörg
Jóhannsdóttir, spjaldskrórritari;
Kári Jónasson, fjármálaritari og
meðstjórnendur Hjördís Einars-
dóttir, Bjami Bernder, Halldóra
Sveinbjörnsdóttir og Már Péturs-
son.
Hefur stjórnin þegar hafið und
irbúning að starfseminni á þessu
starfsári og mun fyrsti félagsfund
urinn verða haldinn þriðjudaginn
12. nóvember n. k. Hann mun
fjalla um húsnæðismál, eins og
nánar verður auglýst síðar. Ráð-
gerðir eru mánaðarlegir félags-
fundir, nema í desembermánuði,
m. a. ráðsíefna um uppbyggingu
atvinnuveganna, hringborðsfund-
ur um grundvallarstefnu Fram-
sóknarflokksins o. fl.
Gert er ráð fyrir að minnsta
kosti tveimur eða þremur kvöld-
skemmtunum í súlnasal Hótel
Sögu með svipuðu, sniði og skemmt
anir F.U.F. á sama stað fyrir kosn
ingarnar s. 1. vor, sem tókust með
sérstökum ágætum. Verður fyrsta
skemmtunin föstudaginn 6. des.
næst komandi.
Önnur félagsstarfsemi er annað
hvort hafin eða er u. þ. b. að hefj-
ast. Bridgekvöld verða að minnsta
kosti einu sinni í viku og gert
er ráð fyrir mjög vaxandi ungl-
ingastarfsemi, með skemmtikvöld-
um o. fl. fyrir unglinga að félags-
heimilinu, Tjarnargötu 26.
Stjórn félagsins mun bráðlega
birta heildaryfirlit yfir félagsstarf
semina á komandi starfsári, og
þess má loks geta, að í undirbún-
ingi er að ráða framkvæmdastjóra
að minnsta kosti hluta úr degi til
þess að tryggja, að félagsstarf-
semin öll megi fara sem bezt úr
hendi.
TOLLPUSTSTOFAN
FB-Reykjavík, 25. okt.
f DAG VAR Tollpóst-
stofan í Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu opnuð, eftir að á
henni hafa verið gerðar gagn-
gerar endurbætur. Tollpóststof
an hefur nú starfað frá því í
nóvember 1934 og árlega fara
í gegnum hana tugþúsundir
böggla, og síðustu tólf mánuði
liefur hún innheimt 37.363.000
krónur i tollum. — Tollpóst-
stofan hcfur til afnota um 500
ferm. húsrými í Hafnarhúsinu,
UNGTEMPLARADAGUR
Hins árlega alþjóðlega ung-
tcmplaradags verður minnzt í Góð-
tcmplarahúsinu í kvöld, sunnudags
kvöld. Þá verður kvöldvaka, sem
hefst með ávarpi séra Árelíusar
Nvelssonar formanns fslenzkra
ungtemplara. Þá verður einleikur
á cello, skrautsýning, negrasöng-
varinn Herbie Stubbs skemmtir,
ný kvikmvnd frá Rondo, skemmti-
stað æsku Oslóborgar og að lok-
um verður dansað.
í tilefni Ungtemplaradagsins
vilja samtök þeirra koma á fram-
færi eftirtarandi ávarpi:
Samttmis því að ungtemplarar
um heim allan helga sinn dag, 3.
okt. 1963 skora þeir fastlega á
ríkisstjórnir, þjóðfélög og einstak
linga að gera meginreglur mann-
réUindayfirlýsingar Sameinuðu
þióðanna að veruleika í dagjegu
lífi.
Jafnfranit leitast ungtemplara-
hreyfingin við með sinni marg-
þæctu starfsemi og alþjóðlegu
samböndum að efla dýpri skiln-
ing meðal þjóðanna.
Þörfin fyrir meiri og nánari
'íiekkingu á aðstæðum og ástandi
FramhaJd á 15. síðu.
og hefur það nú verið innréttað
að nýju, og sá Trésmíðaverk-
staði Kaupfélags Árnesinga
um það, en Helgi Hallgríms-
son hósgagnaarkitekt gerði
teikninguna. — Þegar Tollpóst-
stofan hóf starfsemi sína voru
starfsn.enn 3, en nú eru þeir
16, sex hjá tollgæzlunni og 10
hjá pósistofunni. Fyrsta áriff
innheimti hún aðeins kr. 197.
702.97 en nú innheimtir hún
37 milliónir árlega, og pakkarn-
ir þetta árið eru að nálgast sex
tugasta þúsundið. Sigurmund-
ur Gíslason er deildarstjóri hjá
tollinum, en Sigurður Ingason
hjá tollpóststofunni. Óskar Ein
arsson er gjaldkeri stofunnar,
og eini starfsmaðurinn, sem
starfað hefur hjá henni frá
upphafi.
T f M T N N. Jaueardacinn 26. október 1963.