Tíminn - 26.10.1963, Síða 9

Tíminn - 26.10.1963, Síða 9
 Lárus Jónsson, sem undan- farin ár hefur lagt stund á landbúnaðarfræði í Svíþjóð og starfar við Landbúnaðarhásfcól- ann í Uppsölum, var hér á ferð á dögunum, og hitti ég hann snöggvast að cnáli áður en hann fór út aftur. — Eru margir íslendingar, sem nema landbúnaðarfræði í Svíþjóð? — Nei, helzt hafa landar far- ið til náms í þeim fræðum í Danmörku eða Noregi, svo mér fannst ekki úr vegi að kynnast því, hvernig Svíar kenna þau fræði. Á þessari mynd sést starfsmaður í geislavirknlrannsóknarstöð landbúnaðarháskólans í Uppsölum vera að blanda gelslavlrkum (sótópum I jarðveg, sem síðan á að rækta plöntur [. eftir hagfræðingum til starfa í þágu landbúnaðar. Það er nú talið tniklu skipta að reikna út heppilegustu rekstrarform á öllu, er að landbúnaði lýtur. Hins vegar hefur verið dregið úr kennslu í vélfræði í sam- bandi við landbúnaðarvinnuvís- indi, en þeim mun meiri á vinnuhagfræði og vinnuhagræð ingu til að tryggja afkomu bú- anna. — Hvað er fréttnæmt annað af starfi og rannsóknum þeim sem reknar eru við þennan gamalgróna skóla? — Svo ég minnist á jarðrækt artilraunir, þá hefur verið breytt um kerfi á því sviði. — Lögð hefur verið niður gamla tilraunastofnunin, sem áður starfaði sjálfstætt, en í þess stað hefur tilraununum verið skipt niður á einstakar deildir í skólanum. Um sama leyti voru lagðar niður fastar tilrauna- stöðvar úti á landi, en landinu skipt í tilraunasvæði í hverjum landsfjórðungi og yfirmaður yfir hverju fjórðungssvæði. — Sjálfar tilraunirnar fara fram á ökrum bændanna, og hefur yfirmaður hvers fjórðungssvæð Aiikin áherzla á vinnuhagræð- ingu og bættan búrekstur.... — Er Landbúnaðarháskólinn í Uppsölum gömul og gróin stofnun? — Hann er, held ég, yfirleitt talinn sá landbúnaðarháskóli ó Norðurlöndum, sem einna bezt er búinn að vísindatækjum, einkirm að því er snertir jarð- ræíktarrannsóknir. Svíar horfa yfirleitt ekki í krónuna handa rannsóknum og vísindutn, enda eru þeir Ifka ribust þjóð á Norð urlöndum. Skólinn í Uppsölum er um 115 ára gamall sem bú- fræðistofnun, sem gerð var að háskóla fyrir rúmum þrjátíu áruim. — Er hann alveg sjálfstæð stofnun eða í tengslum við Upp salaháskóla? — Hann er vissulega rekinn sem sjálfstæð stofun, hefur sína sérstjórn, en þó er hann sumpart tengdur Uppsalahá- skóla, að því er snertir kennslu og rannsóknir í grasafræði og erfðafræði, og ríkir gagnkvæm samvinna imilli háskólanna. Ekki er heldur allt, er að land- búnaði lýtur, kennt í sérstökum deildum við landbúnaðarháskól ann. T.d. læra menn ekki skóg rækt og dýralækningar þar, heldur í Stokkhólmi, og er þetta ólíkt sem tíðkast í hin- um nágrannalöndunum. — Hvaö er landbúnaðarskól- inn fjölmennur? — Ég held að stúdentar séu nokkuð á fjórða hundrað, um tuttugu prófessorar, en alls starfa um sex hundruð manns við skólann, við kennslu, á rannsóknastofum og við skrif- stofustörf. — Er skólinn í örum vexti sem vísindastofnun? — Það gerir hann vissulega. Einkum man ég að nefna tvennt, sem þróazt hefur ört þar hin síðari ár. Annað er geislavirknirannsóknir, sem þar eru reknar, hitt er vöxtur hag- fræðideildar skólans. — Hvað er að segja um geislavirknirannsóknirnar, sem þar eru stundaðar? Hafa þær mikið með landbúnaðarvísindi að gera? — Það hafa þær sannarlega, að því er snertir geislavirk efni í jarðvegi, geislavirkt ryk. sem berst í gras og vatn, sem búfénaður nærist á, og berst síðan með mjólk og kjöti í mannfólkið. Verulegur skriður á þessar rannsóknir við land- búnaðarskólann í Uppsölum komst á fyrir tilstilli landvarna ráðuneytisins sem afleiðing af kjarnorkusprengjum stórveld- anna, einkum Rúsisa. Rannsókn arstofnun í þágu landvarnanna leitaði til allra áhugasamra jarðvegsfræðinga og útvegaði ríflegri styrki en ella hefðu fengizt svo skjótlega. Þannig þróaðist þessi deild innan land- búnaðarháskólans, svo mikið var talið í húfi, bæði fyrir land búnaðinn og einnig hitt frá sjón armiði landvarnanna og hvað snerti heilbrigði og öryggi allra landsmanna, hvaða ráðstafanir væri t.d. bezt að gera, ef svo illa færi, að til atómstyrjaldar kæmi, og til að mynda hvernig tryggja eigi matvæli handa þjóðinni, ef gras og skepnur spilltust af geislavirku ryki o.s.frv. Þessar rannsóknir hafa sem sagt margfalda þýðingu og ekkert til sparað að hraða þeim og leggja fram alla krafta til að ráða þær gátur. — Svo minntist þú á aukn- ingu hagfræðikennslu í skólan- um? — Já, það er sú önnur deild landbúnaðarháskólans, sem gíf urlega hefur aukizt upp á síð- kastið. Reksturshagfræði er að verða æ stærri liður í landbún- aði, og eftirspurn eykst sífellt is eftirlit með þeim. Ríkið hef- ur gert samninga við bændur til mismunandi langs tíma um skákir til jarðvegstilraunanna. Engin veruleg reynsla er enn komin á þessu, breytta tilrauna kerfi, því að fyrirkomulaginu var breytt fyrir rúrnu ári, en margir gera sér vonir um betri árangur með því, þótt það sann ist ekki fyrr en eftir alllangan tíma. — Þú hefur verið starfandi við skólann upp á síðkastið. í hverju er starf þitt aðallega fólgið’ — Fyrir tveimur árum fór ég til Bandaríkjanna í boði Efnahagssamvinnustofnunarinn ar OECD og dvaldist þar í tíu mánuði til að kynna mér jarð ræktartilraunir og vísindaiega útreikninga. Siðan kom ég heim og starfaði hér um tíma. En undanfarið hef ég starfað í landbúnaðarháskólanum í Uppsölum við útreikninga á jarðvegsefnagreiningum, um- fangamiklum tilraunum. sem Svíar hafa stundað rækilega um langan aldur. — En hvenær kemurðu heim til starfa? — Það get ég ekki sagt um að svo komnu máli, eða hvenær mér býðst hér viðunandi starf í minni grein. GUNNAR BERGMANN ili var jafnan fjölmennt, bæði áð- ur en Gísli settist þar að og síð- ar. Fólk, sem þar starfaði um skemimri eða lengri tíma, fann yfirleitt ástæður til að sýna heim ilinu ræktarsemi og bera til þess svipaðan hug og lýsir sér í til- svari ■ vinnumannsins til húsráð- enda á Bergþórshvoli forðum: Betra þykir mér að látast í þínu húsi en skipta um lánardrottna. Bróðir Gísla, sem vann heim- ilinu fullan aldarfjórðung, af fyllstu ósérhlífni og óbrigðulli trú mennsku á hér þó stærstan hlut, þegar f.jölskyldan sjálf er undan skilin. Og að lokum, þegar ört hallaði undan fæti, var vandafólk Gísla á heimilinu í Hafnarfirði samtaka um að gera ævikvöld hans bjart og friðsælt. Hið fjölmenna heimili Gísla á Hnappavölluim var jafnan styrk stoð í sveitarfélaginu og hafði ríku leg áhrif* á nágrennið. Meðan heilsa og starfsþrek leyfði, hafði Gísli forustu um margar félags- legar framkvæmdir í bæjarhverf inu. Hann gekk þá sjálfur fram ótrauður og gerði nágrönnum sín- um gjarnan boð um þátttöku. ef ástæður leyfðu. Glaðværð hans og gamansemi í kunningjahópi lyfti upp. Húsfreyjan vildi ávallt bæta úr því, sem miður fór og láta af hendi rakna af mildri mund og hlýjum huga í annarra garð. Börn in voru góðir félagar og aðlaðandi í leik og starfi. Greiðviknin af hálfu þessa heimilis brást ekki og það, sem um var beðið veitt, ef hægt var, ekki með hangandi hendi eða undandrætti, heldur af örlæti og tafarlaust. Og nú við leiðarlokin skal þess minnzt. að Gísli gekk stundum enn lengra Það kom fyrir, að hann gekk til nágranna síns og tók óum beðið að hjálpa honum við fram- kvæmd, sem þurfti að ljúka. Enn fremur að hann að fyrrabragði sendi nágranna boð um að hag- nýta án »ndurgjalds verðmæti. sem þau hjónin höfðu aflögu, en búast mátti við. að hinn skorti. Þegar áhuginn starfið og hjarta lagið í senn hneigist að þessu marki þá er bjart yfir lífi manna og leiðir ti1 samstarfs greiðfærar. Enginn má sköpum renna. Nú er á enda æviskeið þessa rnanns. Aldurinn var orðinn nokkuð hár, starfsþrekið lamað — og hann var sjálfur ferðbúinn af þessum heimi íbúar þeirrar sveitar, sem var Gísla vettvangur ævistarfsins, mir.nast hans með þakklæti og hlýjum hug. Hér skal hinzta kveðja flutt með þeim orðum er sögð voru um einn drengskatvr mann Sturlungaaldar: Láti Guð honum nú raun lofi betri. P.Þ. T í M I N.N, Iaugardaginn 26. október 1363. 9

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.