Tíminn - 26.10.1963, Síða 15

Tíminn - 26.10.1963, Síða 15
UNGTEMPLARAR FYamhnM 'í -jriu í, öðrum löndum er mjög veiga- niikil og ungtemplarar vilja að Ungtemplaradagurinn hvetji alla sína félaga og samstarfendur tii að vinna me'ð meiri áhuga og krafti til að skapa betri og sterkari sam- bönd æskulýðs allra landa. Þar eð unga kynslóðin nú á dög um áttar sig tiltölulega vel á meg inatriðum samstarfsins — og hin- um fjárhagslegu og félagslegu vandamálum, sem hindra þróunar framkvæmdir út frá þeirra sjón- ar.niði, virðist mest aðkallandi verkefnið vera það að efla skilyrð- in til samstarfs aeskulýðssambanda hinna ýmsu landa, til þess að unnt verði að hvetja til framkvæmda á sem víðtækastan hátt í alþjóð- legu samstarfi. Og eftir því sem hin tæknilega þróun eflist til að koma upp sameiginlegum mörk- uðum í efnahagsmálum, verður að sveigja menningar- og þróunarleið irnar í sömu átt og dæma þær út frá rökum og sama bakgrunni. Bindindishugsjónin og bræðra- Jagshugsjónin hafa engin land- fræðileg takmörk önnur en þau, sem þeim eru sköpuð af okkur sjálfum með dvínandi framkvæmd- um og starfsemi. iSamtímis því að hver ungtempl ari er eindregið hvattur til þátt- töku í alþjóðlegu samstarfi, vilj- um við einnig benda á þýðingu þess að mynda sambönd utan Góð- templarareglunnar, og að æsku- lýðsfélögum með svipuð hugðar- efni og áhugamál — þótt þau séu ekki innlimuð reglunni, sé boðið til samstarfs, hvort sem heldur væri á þjóðlegum eða alþjóðlegum staj-fsgrundvelli. Á þessum tímum, þegar svo mjög er rætt um kynþáttavanda- mádn vilja ungtemplarar leggja áherzlu á óbifandi trú sína á jafn gildi allra manna og sama rétt þeirra til allra lífsgæða jarðarinn- ar. íþrótfip mennirnir virtust ekki vera nægi- lega sam-þjálfaðir. Hjá Reykjavíkurliðinu var Þor- steinn Hallgrímsson beztur, en þeir voru jeinnig góðir Birgir Birgis og Agnar Friðriksson. Þessir skoruðu og fiest stigin. Hjá bandaríska l'iðinu vakti Bill Bracey (14) mesta athygli — hann skoraði langflest stigin fyrir Flug- vallarúrvalið. Dómarar í leiknum voru þeir Guð jón Magnússon og Björn Arnórsson og gerðu þeir hlutverki sínu góð skil. Aðra sögu er hins vegar að segja um litlu strákana, sem töldu ctisin . . . íþrðftf? 2. flokkur karla: KR-Fram. Ár- mann-ÍR. Valur-Víkingur. 1. flokkur karla: Fram-ÍR. Vík- ingur (a)-Víkingur (b). A sunnudagskvöld fara svo eikir fram: 3. flokkur karla: KR-Þróttur. Meistaraflokkur karla: Fram- Ármann. Víkingur-Þróttur. ÍR- KR. Mtísr i essu, verður nóg um að verá í t^hdknattleiknum um helg- ina, eða 16 leikir samtals. WENNERSTRÖM Framhald af 1. síðu. Einnig hafa blöðin deilt harð lega á sömu aðila og að auki ákæruvaldið fyrir að gera til- raun til að þegja um málið, en það var í gærmorgun, að Wennerstrcr.n fannst meðvit- undarlaus og var fluttur í skyndi í sjúkrahús, en fyrst í dag var gefin út tilkynning um atburðinn. Samt höfðu nokkur blöð haft veður af atburði þessum og birtu þar af leiðandi mjög vill andi og æsandi fyrstu fréttir af honum. í hinni opinberu yfirlýsingu, sem gefin var út í dag, segir. að Wennerström hafi tekið inn of mikið af svefnlyfjum, en blöðin höfðu talað um alls kon ar tegundir eiturs. Var þar og sagt, að njósnarinn væri úr lífs hættu. Enn hefur lögreglan ekk, komizt til botns í því, hvern ig Wennerström komst yfii svefntöflurnar, en nokkrir lö^ reglumenn gæta hans stöðugt í aðalstöðvum lögreglunnar í Stokkhólmi og er því ekki ann að að sjá, en að gæzlan hafi verið, eins og lög gera ráð fyrir. Helztu getgátur í þessu sam bandi eru þær, að Wenner- ström hafi safnað saman svefn töflum þeim, sem hann fékk af og til frá læknum, þar til komið var upp í banvænan skammt. Ekki er heldur úti- Iokað, að hann hafi getað feng ið töflurnar frá utanaðkom- andi aðila og er í því sam- bandi minnst á, að mat hef- ur Wennerström fengið frá lít illi veitingastofu í nágrenni leynilögreglustöðvarinnar á Kungsholmen í Stokkhólmi, en matarsendingar þessar voru rnjög nákvæmlega athugaðar i hvert sinn. í dag var haldinn ríkisráðs- fundur í Stokkhólmi, þar sem innanríkisráðherrann, Johans- son og Herman Kling, dóms- málaráðherra, gerðu grein fyr ir þessum alvarlega atburði. Næstkomandi þriðjudag verð- ur umræða í þinginu um Wenn erström-málið og er búizt við, að innanríkisráðherrann og lögreglan verði fyrir mikilli á- deilu fyrir ifandáhátt í mál- inu. Síðdegis í dag var Wenner- strcm að byrja að rakna við. en hann hefur verið meðvit- undarlaus síðan aðfaran.ótt fimmtudags. Liggur hann í eín angruðu herbergi á sjúkrahús- inu og er þess gætt af lögreglu mönnum, en einnig er lög- regluvörður víða í kringum sjúkrahúsbyggingarnar. Wennerström er 57 ára gam- all og var tekinn til fanga 20. júní í sumar ákærður um að hafa stundað njósnar fyrir Sov- étríkin í 15 ár. VÍÐAVANGUR (Framhald ai 'i >íðu) Svari þeir nú, sem það stenó ur næst. Er þetta, sem upplýst er hér að framan, tákn stöðug leika í fjármálum og efnahags málum þjóðarinnar? Er þetta Iækkun tolla og skatta? F þessi þróun hagstæð lands- byggðinni? — Dagur. TOGARINN Framhald af 3. síðu. ónýtur, og búizt er við að hann brotni í spón í næstu norðanátt, því hann liggur svo utarlega und- ir Grænuhlíð, og þar sem ekkert er nema stórgrýti. Skipsmenn voru væntanlegir til Reykjavíkur síðdegis í dag, en flug vélin, sem fór vestur um klukkan 6 varð að snúa við aftur án þess að lenda vegna þess hversu þung- búið var fyrir á ísafirði. BELLA og HASSAN Framnaid af 1. síðu. skyndilega, að mikill stórskota- liðsútbúnaður varð eftir. Seint í kvöld bárust þær fregnir frá Kabylia. að uppreisnarmenn þar myndu hefja baráttu gegn stjórnarherjunum á nýjan leik og voru ummæli í þá átt höfð eftir Hocine Ait Ahmed, upp- reisnarforingja, en í gær hafði annar uppreisnarforinginn, E1 Hadj lýst yfir stuðningi upp- reisnarmanna við baráttu Alsír gegn Marokkó í landamærastríð inu. FLÓANÐ! GÖNG Framnato r-t > síðu. unnt verði að bjarga þeim 43, sem enn eru innilokaðir, enda náman að fyllast af vat.ni. Er ótt- azt, að allir hafi drukknað. Ekk- ert hefur heyrzt til þeirra síðan vatn og leðja byrjaði í gærkveldi að flæða inn i námugangana. 79 námamönnum tókst að kom ast upp úr námunni í tæka tíð, áður en flóðið lokaði útgöngu- leiðum. Einn þessara manna sagði svo frá því, sem gerðist: Við vorum 32 saman, er sím- inn gaf fyrstu aðvörunina. Skömmu síðar slokknuðu ljósin. Við reyndum að halda hópinn, en hlupum síðan eins og fætur toguðu niður eftir námugang- inum undan vatninu en er það var komið í brjósthæð, reyndum við að komast til baka aftur á hærri stað í göngunum. Okkur tókst að komast alla leið til baka, en þar var vatnið líka of djúpt til þess að hægt væri að hafast þar við. Tókst okkur að finna loftgang, sem við svo gátum klifrað upp eftir og þegar við áttum um 25 metra ófarna upp á yfirborðið, var kastað reipstigum niður til okkar, sem hjálpuðu okkur upp síðasta spölinn í frelsið og þá var komið miðnætti. Maður þessi, Nassner að nafni, sagði, að sums staðar í námunni hafi vatnið náð þeim minnstu yfir höfuð og hefðu þeir stærri í hópnum lyft þeim upp fyrir vatnsyfirborðið, þar sem dýpst var í göngunum. Miklir fagnað- arfundir urðu í nótt, er Nassner hitti son sinn fyrstan manna, er hann kom upp úr námunni, en sonurinn hafði starfað á öðrum stað í námunni og bjargazt. í kvöld höfðu björgunarmenn fengið rör, 40 sm. í þvermál, sem þeir hyggjast bora niður til sjömenninganna, sem vitað er um. en von er á mioc nákværnú hlustunartæki til að reyna að leita að fleiri mönnum í nám- unni. Mörg hundruð ættingjar og vin ir námamannanna stóðu í alla nótt vi,ð námuopið og fylgdust þögul með björgunaraðgerðum. PÁSKARNIR Framhald af 1 síðu. ískri helgisiðabók. Kirkjuþingið samþykkti að það myndi ekki vera andstætt fastsetningu páskanna, svo framarlega sem aðrir, sem mál- ið varðar, og þá sérstaklega aðrir kristnir menn. sam- þyk'ktu slíka ráðstöfun fvrir sitt leyti. Aðalfundiir Framsóknarfélags Kópavogs verður haldinn sunnu- daginn 27 okt. kl. 2 e.h. í barna- skólanum við Digranesveg. Venju leg aðalfundarstörf. — Stjórnin. Komir í Kónavogi Aðalfundur Freyju, félags Fram sóknarkvenna í Kópavogi verður haldinn sunnudaginn 27. október kl 2 e.h. • barnaskólanum við Djgranesveg Venjuleg aðalfundar störf. — Stiórnin Sameiginlegur fundur Framsókn arfélaganna i Kópavogi verður haldinn í harnaskólanum við Digra ueVveg 27. okt. kl. 4 e.h. Fundar- efni: Bæjarmál. Frummælandi: Páll Hannesson. — Fulltrúaráðið. KREFJA5T HÆKKANA Frarrihaic ai bls. 3 inenn fenau á laun sín frá þeim iíma. Á fundi stjórnar BSRB s. 1. mánudag var gerS svofelld til- laga um skattamál: Stjórn BSRB bendir á, að lög- gjöf um skatta og útsvör, og þá ekki síður framkvæmd þeirrar löggjafar, er og hefur um langt skeið verið með þeim hætti, að skatta og útsvarsbyrðin leggst óeðlilega þungt á launamenn í þjóðfélaginu. Skorar stjórn bandalagsins á rikisstjórnina að beita sér fyrir breytingum á skattakerfi lands- Ins og framkvæmd skattheimtu, er tryggi fullt réttlæti í þessum málum. Stjórn BSRB bendir sérstak- lega á nauðsyn þess: 1. að persónufrádráttur verði hækkaður verulega frá því, sem nú er, 2 að skattaeftirlit verði hert og þannig komið í veg fyrir að skattsvikin verði þeim til refs- ingar, sem telja rétt fram. Stjórn BSRB skorar á önnur iaunþegasamtök landsins að taka upp samstillta baráttu fyrir endurbótum í skattamálum, er leiði til réttlátari skattheimtu en verið hefur. VIGTARMÁLIÐ Framhald af 16. síðu. að frétta af síðara málinu. Einn af yfirmönnum fyrirtækis þess, sem einnig hefur verið kært fyrir að vanvega vörur er erlendis, og er ekkert hægt að gera í málinu á meðan. Saksóknari hvað það mál myndu vera miklum mun umfangs meira, en blaðið hefur frétt, að fyrirtækið sé Pökkunarverksmiðj- an Katla. ÍSLENZKT BLAÐ Framhald af 16. síðu. íslandi, en auk þess aðsendar greinar. Síðustu árin hefur Skúli G. Bjarnason í Los Angel es verið meðritstjóri Guðnýjar. Blaðið, sem ég fékk sent, er þriðja tölublað ellefta árgangs. Þar ritar Guðný grein og seg ir frá erfiðleikum sínum í sam bandi við áframhaldandi útgáfu Félagsblaðsins, og því að í sam ræðum sínum við Walter Lín- dal dómara, sem verið hefur ritstjóri blaðsins Icelandic Canadian, sem gefið er út á ensku í Winnipeg, hafi hún komizt á þá skoðun, að heppi- legast muni að sameina þessi blöð, og biður lesendur Félags- blaðsins að senda sér línu og segja álit sitt á málinu. Seg- ir hún, að Líndal dómari eigi hugmyndina að þessu og þendi á, að í Toronto í Kanada séu nú orðið búsettir allmargir ís- lendingar, sem hafi með sér félag en gefi ekki út neitt blað. og muni þeir áreiðanlega leggja til efni, ef blöðin verði samein uð. Eftir að Winnipegblöðin Lögberg og Heimskringla voru sameinuð, sé tryggð áframhald andi útgáfa blaðs á íslenzku í Vesturheimi, en nú sé þörf á að sameinast um íslenzkt frétta og fræðslublað á ensku, sem nái til lesenda, er ekki geta lesið Lögberg—Heimskringlu sér að gagni. Birtist hér mynd af haus Fé- lagsblaðsins, sem telst útgefið af íslenzk—Ameríska klúbbn um í Suður-Kaliforníu. í fyrrinótt lézt í Reykjavík dr. juris Björn Þórðarson fyrrum for- sætisráðherra og lögmaður. Dr. Björn var sonur hjónanna Þórðar Runólfssonar og konu hans Ást- ríðar Jochumsdóttur. Stúdent varð Björn árið 1902, en lauk lögfræði prófi í Kaupmannahöfn árið 1908. Forsætis- og kirkjumálaráðherra varð Björn árið 1942. BÍL STOLIB KJ-Reykjavík, 25. okt. í nótt var stolið leigubifreið af Chevrolet gerð, árg. 1955, þar sem hún stóð innarlega á Hverfisgötu. Sá er stal bílnum, var drukkinn og bauð hann tveim mönnum upp í bílinn til sín. Ökuferðin endaði svo á mótum Kleppsvegar og Lang holtsvegar, þar sem bifreiðinni hvolfdi og þeir er í henni voru slösuðust allir, en þó ekki mikið. Ökumaðurinn mun vera rétt- indalaus og játaði hann við yfir- heyrslu að hafa stolið bílnum. — Sjálf er leigubifreiðin illa farin og nálgast það að vera ónýt. Árekstur togara og bíls KJ-Reykjavík, 25. okt. f DAG, skömmu eftir hádegi, varð árekstur á milli togara og bíls í Hafnarfirði. Bíllinn, sem var með Reykjavíkurnúmeri, Bed- ford-vörubifreið, var á leið niður nýju-hafskipabryggjuna svoköll- uðu og lenti á byrðingi togarans Bjarna riddara og dældaði hann. Sjálfur stórskcmmdist bíllinn við áreksturinn, en ökumaðurinn var ekki ástaðnum er að var komið. Máiið er í rannsókn hjá lögregl* unni í Reykjavík. Fundur Ferða- félags Nands > 9d»rkvöldi FB-Reykjavík, 25. okt FERÐAFÉLAG ÍSLANDS hélt fyrstu kvöldskemmtun sína á þess- um vetri í Sjálfstæðishúsinu í gær- kvöldi, og var hún fjölsótt. Dr. Sig- urður Þórarinsson skýrði þarna frá ferð sinni tii Bandaríkjanna á síð- asta vori og sýndi iitmvndir, aðal- lega frá Mormónalandinu Utah. — Kryddaði hann frásögn sína með fræðilegum upplýsingum um land- ið og myndun þess og tilvitnunum í Paradísarheim Halldórs Laxness, og var gerður góður rómur að frá- sögn hans. Á eftir var myndaget- raun og að lokum dans. Au^lvslps: í Timamim kemm’ fyrir aumi vaNlátr* lila5a- lesenda um allt land. Hér með tilkynnist að faðir minn og tengdafaðir. DR. JURIST BJÖRN ÞÓRÐARSON fyrrv. lögmaður og ráðherra, andaðist f Landakotsspítala 25. þ. m. Þórður Björnsson. Guðfinna Guðmundsdóttir. T f M I N N, laugardaginn 26. október 1963. 15 I

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.