Tíminn - 23.11.1963, Side 1
NTB-Dallas, 22. nóv.
John F. Kennedy, forseti
Bandaríkjanna, var myrtur
í gær. hann var í opnum
bíl á leið frá flugvellinum
í Dallas mn í borgina, þeg-
ar skotið var á hann úr
launsátri frá nærliggjandi
skólahúsi. Skotið kom í höf
uð forsetans, og fór í gegn
um höfuðkúpuna. Hann
var þegar fluttur í sjúkra-
hús en lézt þar klukkan 18
að íslenzkum tíma, án þess
að komast nokkurn tíma iil
meðvitundar.
Með honum í bílnum var
.Jacqueline kona hans, John
Connally, fylkisstjóri í Texas
og kona hans, og loks Lyndon
B. Johnson. varaforseti. Þegar
bíll forsctans var að koma að
götubrú, /ar allt í einu skotið
þrem skotjm að bílnum, og
hitti eitt þeirra forsetann í
höfuðið, sem fyrr segir. Féll
hann þegar fram fyrir sig, en
kona hans gieip hann og reyndi
að halda höfði hans Connaliy
fylkisstjóri varð einnig fyrir
skoti, sem hitti hann í brjóstið
og fékk ar.nað i handlegginn.
í fyrstu fréttum sagði, að
Lyndon B. Johnson hefði einn-
ig særzt cn það var síðan bor-
ið til baka.
AJlt komst á ringulreið við
árásina, en bílstjóra forsetans
var þegar skipað að aka rak-
leitt til næsta sjúkrahúss, Park
land Memorial Hospital. For
setinn var með lífsmarki, þeg
ar þangað kcm, en þrátt fyrij
að allt var gert, sem í mann
legu valdi stóð, tókst eklp aó
bjarga lífi hans, og lézt hann
í örmum kcnu sinnar án þess að
komast t.il meðvitundar.
Óttast er um líf fylkisstjór
ans.
Sjónarv ittar segja, að stib
ing Jacqueiine Kennedy hafi
verið aðdaur.arverð. Þegar mað
ur hennar féll, hrópaði hún aö
eins: — ó, nei! Svo greip hún
um höfuð hans og reyndi að
hagræða honum, en var róleg
og sem dofin. Þegar hún kora
út úr sjúkrahúsinu að manni
sínum látnum, var hún enn ró
leg og æðiulaus, þótt klæði
hennar væru ötuð í blóði
Hún fór síðan ásamt Lyndun
B. Johnsc-n út á flugvöll, þa.
sem hann vann forsetaeiðinn í
forsetaflugvélinni. Síðan fylgdu
þau ásamt fylgdarliði forsetans
heim til Washington, með lík
Kennedys ícrseta.
Edward Kennedy, öldungai-
deildarþingrraður og systir
Kennedy bræðra, Eunice Schri
ver, tóku þcgar einkaflugvél til
Dallas, bega. fréttist um moró
ið. Robert Kennedy, dómsmála
ráðherra, stjórnaði þingfundi,
þegar nonum barst fregnin.
Hann lagði hæglátlega frá sér
fundarhamarinn og gekk út úr
þingsalnum án þess að mæla
orð af vörum.
Garðyrkjumaður, sem var að
störfum x gaiði foreldra Kenne
dys forse!a, var fyrstur til að
færa gömlu hjónunum frétt
ina, sem hann heyrði í ferðavið
tæki, sem hann hafði með sér.
— John Kernedy hafði nýlega
ákveðið aj dvelja hjá foreld.--
um sínum fimmt.udag í næstu
viku. — Þakkargjörðardaginn
— Frú Bose Kennedy, móðir
forsetans, mun að líkindum
fara til Dallas, þar sem son
ur hennar var myrtur, en Jos-
eph Kennedy. faðir forsetans
er ekki ferðafær.
Fregnir. um dauða Kennedys
kom sein rtiðarslag yfir allan
heiminn Ekki aðeins vestræn
ríki, heldur einnig austræn
Víðast voru útvarpsdagskrár
rofnar til þess að koma fregn-
inni um dauða forsetans aó'.
og sorgariögum útvarpað milli
þess, sem nánari fréttir bár-
ust. Þing og ríkisráð felldu þeg-
ar niður fundi og ráðamenn
gáfu út yHilýsingar um atburð
inn. Fréttin breiddist einnig
meðal almennings á torgum og
gatnamótum og menn voni
daprir i bragði. Síðan Dag
Hammars.cjöld fórst fyrir tveim
ur árurn, hefur engin dánar
fregn orkað eins á allan heim
inn. — t Washington safnað
ist fólk saman á aðalgötunum,
og þegar Hegnin um dauða for
setans hafði verið birt, ríkti
dauðaþögn ! borginni.
Ekki var alveg ljóst í fyrstu,
hvaðan skotin komu, og beind-
ist athygiin í fyrstu að götu
brúnni. sem forsetabíllinn var
í þann veg að fara undir.
Töldu sumir sig hafa séð mann
og konu i hlaupum burtu frá
morðstaðnum, en um leið varð
mönnum í >úst. að skotin komu
frá nærligg.iandi skólahúsi. Lög
reglumenn úi leyniþjónustunni
og frá lögreglunni í Dallas
svöruðu þegar í sömu mynt.
en féllu náðir.
Byggingia var rannsökuð, og
í hornheibergi í skólahúsinu
.fundust þrjú tóm skothylki úr
riffli, sem áiitinn er vera með
25 mm. hlaupvídd og annað
hvort af bandarískri eða jap
anskri gerð Þar fannst einnig
mikið af pappír og ræksni aí
steiktum kjúklingi, og er tal
ið líklegt, að morðinginn hafi
haft dvol í þessu herbergi um
hríð. — Kuna ein í mannfjöld
anum á gotunni telur sig hafa
séð marin með riffil við glugga
í skólahúsinu, um leið og for-
setinn var skotinn.
Lögreglan handtók fljótlega
tvo menn, grunaða um morðið
en nokkru seinna hinn þriðja,
sem þykir grunsamlegastur
Hann náðist í kvikmyndahúsx
og bar á séi skammbyssu ai
sömu gerð og skotið var af á
lögreglu'r.fnrina.
Maðuntin. Lee Harvey Os-
wald, sótti um ríkisborgararétt
í Sovétríkiunum árið 1959, og
fékk vinmi í verksmiðju i
Minsk. Hann á rússneska konu.
í fyrx-avor sótti hann um brott
Framhalcf á 15 síðu.
Lee H. Osv/ald, formaSur félags-
ins: „Fair Play for Cuba", sem
tallnn er morðingi Kennedys, var
handtekinu rétt eftir morðið.
Skotið ríður af og allt fer i uppnám. Fólkið flevgir sér til jarðar, en lögreglumenn þjóta í áttlna til bílalestar Kennedys, sem er innar á
myndinni. — Allar myndir af atburðunum voru símsendar í gærkvöldi.