Tíminn - 23.11.1963, Blaðsíða 13

Tíminn - 23.11.1963, Blaðsíða 13
ems ermaiur í , Tilkynningin um morðið á Kenn- edy forseta kom sem reiðarslag í London, en Sir Alec Douglas- Home, forsætisráðherra, og Ric- hard A. Butler, utanríkisráðherra var þegar í stað tilkynnt um at- burðinn. Brezka útvarpið gerði thlé á dagskránni og útvarpaði þeg ar fréttinni. Elísabet drottning sendi fjöl'skyldu Kennedys þegar í stað samúðarkveðju, er hún heyrði um atburðinn. Sir Alec sendi fjölskyldu Kennedys einnig samúðarskeyti. Attlee, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sagði: — Þetta er mikill harmleikur. Hann var góður stjórnmálamaður í blóma lífsins, sem ástæða var til að ætla, að mundi koma miklu til leiðar. Hann var hugrakkur og framsýnn maður. Avon lávarður, fyrrverandi forsætisráðherra Eden, sagði: — Bandaríska þjóðin hefur orðið fyrir miklu áfalli. Forsetinn var gæddur óvenjulegum hæfileik um, festu og þolinmæði. Churchill, fyrrverandi forsætisráðherra, sagði: — Bandaríkin hafa misst mikinn leiðtoga og vitran og hug- rakkan mann. Tjón Bandaríkjanna og alls heimsins við fráfall for- setans er ekki hægt að meta. Útvarpið í Moskvu gerði hlé á dagskránni til að tilkynna morðið á Kennedy forseta. Útvarpið stað- hæfði, að það væru róttæk hægri sinnuð öfl, sem stæðu að baki morðinu. Síðan var leikin orgeltón list. Fréttamenn í Moskvu minn- ast þess, að meðan á öllum deilum Sovétríkjanna og Bandaríkjanna stóð, hafa Sovétleiðtogarnir vand- lega gætt þess að skilja á milli Kennedys' og hinna svokölluðu heimsvaldasinna og stríðsæsinga- manna í Bandaríkjunum. Hinn ungi forseti var án efa vinsæll meðal ráðamanna í Moskvu. So- vézk stjórnarvöld munu sennilega bíða átekta og segja ekki álit sitt fyrr en hægt verður að kanna áhrif in af dauða forsetans. Moskvublað ið Pravda fór í prentun klukku- tíma síðar en venjulega í kvöld til þess að vera með öll smáatriði í sambandi við fréttina. — _ í Moskvu er sagt, að hópur rúss- ncskra stúdenta hafi safnazt sam- an i samúðarskyni fyrir utan bandaríska sendiráðið. Hann var nýr Lincoln, sagði stúdent skjálf- andi röddu. Þeir voru um hundr- að fyrir utan sendiráðið. Bandaríski utanríkisráðherrann Dean Rusk, sem var á leið til Tok- yo með flugvél, þegar hann fékk fréttina um dauða Kennedys — hætti strax við ferðina til þess að komast heim til Bandaríkjanna eins fljót og kostur var. Rusk kom frá herráðstefnunni í Honululu, þar sem m. a. var rætt um ástandið í Suður-Vietnam. í Tokyo ætlaði Rusk að ræða við leiðandi japanska stjórnmálamenn. Páfinn tók á móti fréttinni um dauða Kennedys með skelfingu, segir Reuter. Hann var augnablik í einrúmi tíJ þess að biðja fyrir forsetanum. Forsætisráðherra Frakklands, Georges Pompidou, varð harmi sleginn, er hann frétti lát Kenn- edys forseta. Hann muldraði að- eins: — Þetta er hræðilegt, þetta er hræðilegt. — Kennedy forseti dó eins og hermaður í eldlínunni, meðan hann gegndi skyldustörfum fyrir land sitt og þjóð, sagði de Gaulle Frakklandsforseti. Fyrir hönd frönsku þjóðarinnar, sem ætíð hefur verið vinveitt Banda- ríkjunum, votta ég ímynd hans og minningu heiður minn. Formaður brezka verkamanna- flokksins, Harold Wilson, sagði, að Kennedy hefði verið góður vinur Bretlands, mikill stjórnmálamaður og baráttumaður fyrir friði í heim- inum. Barátta hans fyrir uppræt- ingu kynþáttamisréttis í Banda- ríkjunum mun lifa í hugum allra. í Haag var kirkjuklukkum hringt í tilefni af dauða Kennedys for- seta. Victor Marijnen, forsætisrájð herra Hollands, sagði, að frá al- þjóðlegu sjónarmiði væri lát Kennedys reiðarslag. Einar Gerhardsen, forsætisráð- herra Noregs, sagði: — Þetta er skelfileg frétt og gífurlegt áfall fyrir alla, sem skilja, hvað við höf um misst við fráfall Kennedys for seta. Við fundum til öry'ggis að hafa hann í svo mikilvægri stöðu. Við treystum honum, og við trúð- um á hann. Við trúðum á vilja hans til' að efla réttlæti og frið, við trúðum á hæfileika hans til að draga úr andstæðunum í heim- inum. Norska þjóðin lætur í ljós djúpa samúð með frú Kennedy og börnum hennar og allri bandarísku þjóðinni. Frá Bonn berast þær fréttir, að fréttin um andlátið hafi valdið mikilli skelfingu í Vestur-Þýzka- landi. Ludwig Erhard, sem var á leiðinni frá París í hraðlest, þegar Kennedy lézt, var undir eins sagt frá atburðinum, og bæði útvarps- og sjónvarpsstöðvar breyttu dag- skrám sínum undir eins. Útvarp- að var sorgartónlist. Útvarpsstöð ^SÍPFÍÍPg Framhald af 9. síðu / urinn um afdrif íslendinga í Grænlandi og utr Grænlandsbyggð, einnig um Vínlandsferðir íslend inga Kanada og ísland hafa missi einn af sínum beztu sonum, sagr, fræðinginn og rithöfundinn Trygg va J Oleson Kona hans Elva Huld° Eyford, menntuð fríðleikskona, va hálfsystir Hallgríms heit. HaD grímssonar bókavarðar Hún ei fædd vestanhafs. Eörn þeirra þrjú ! Gwenn Katrín. Tómas og Sólveiv eru mjög efnileg. með greinileg íslenzk ættareinkenni. Ég votta öllum aðstandendun mína dýpstu samúð. Blessuð sé | minning þessa stórmerka Vest.ur | íslendings. Anna Þórhallsdóttir. I ÞEIR SKRIFA UM . , . Framhald af 2 síðu. myndskreyft en alls munu vera einar fjörutiu og átta síður með myndum i t.ckinni frá aflatúrum þejm, sem höfundarnir fóru í Jg af öðru í sambandi við veiðarnar VIOAVANGUR '■c!zt í sínu skólahverfi, hvort em það nú væri einn hreppur 'ða fleiri saman. Ef slíkt fyrir- omulag kæmist á. mundu börn n og unglingarnir geta lokið kólaskyldu sinni í barna- og nglingaskóla sinnar sveitar eða kólahveirfis og þyrftu þá al- nennt ekki að vera nema eitt r í héraðsskóla til þess að júka miðskólanámi. þ. e. Iiinu svokallaða ,.Iandsprófr‘, sem vfeitir rétt til frekara framhalds náms, m. a. í menntaskóla og kennaraskóla.“ ameríska hersins í V-Þýzkalandi flutti fréttina á eftirfarandi ein- faldan hátt: Herrar mínir og frúr, forseti Bandaríkjanna er látinn. Staðgengill Erhards í fjarveru hans, Erich Mende, sagði, að allir sem hefðu orðið þeirrar ánægju aðnjótandi að hitta Kennedy í heimsókninni til Vestur-Þýzkalands og Berlínar, hefðu verið slegnir djúpri sorg. Forsætisráðherra Svíþjóðar, Tage Erlander, sagði: Lát Kenn- edys er hræðileg ógæfa, ekki að- eins fyrir bandarísku þjóðina held ur fyrir okkur öll, sem trúum á þær hugsjónir, sem Kennedy barð- ist fyrir. Hann vakti undrun heims ins fyrir stöðu sína í baráttunni fyrir jafnrétti. í höfuðstöðvum Efnahagsbanda- lagsins í Brussel hafði morðið á Kennedy geysileg áhrif. Kennedy var orðinn þekktur sem forseti með mikinn skilning á þörfinni fj'rir samvinnu á milli Bandaríkj anna og Efnahagsbandalagsins. Belgíski utanríkisráðherrann Paul-Henri Spaak virtist gráta, þegar fréttamaður frá Reuters- fréttastofunni talaði við hann í síma. — Hvað get ég sagt, annað en að ég er þrumulostinn. Eg get ekki talað í kvöld, sagði Spaak. Danski forsípt^srqðþerranh^ Jens Otto Krag'sagði, að Kennedy forseti hefði staðið sem hinn sterki ungi leiðtogi hins vestræna heims. Og á hvern hátt dauða hans hefði borið að höndum væri óskilj anlegt. Morðárásin á Kennedy mun setja svartan bl'ett á samtíð vora, og með Kennedy hafa Banda ríkin misst einn sinn stærsta stjórn málamann. sagði Krag. Fyrir aðeins einu ári síðan horfð ist hann í augu við erfiðasta og eftirþankamesta vandamál, sem nokkur stjórnmálamaður hefur nokkru sinni staðið frammi fyrir. Það var spurningin um stríð eða frið, og hann vissi, að örlög föður lands hans voru í húfi. Sú stefna; sem Kennedy fylgdi, einkenndist af miklu öryggi og skapaði það ástand að stórþjóðirnar gátu fjall- að um frið og öryggi, sagði Krag. Lögreglumaður heldur á riflinum, sem álitið var að Oswald hefðl myrt Kennedy með. VÖL Af tímantiiiu DVÖL eru til nokkrir eldri árgangar og ein- stök hefti trá fyrri tímum. — Hafa veríð teknir saman nokKr ir Dvalarpakkar. sem hafa inni að halda un 1500 blaðsíður af Dvalarhc’.tum með um 200 smá sögum aðfl'ega býddum úrvats sögum a»iJi margs annars efn- is. greins ><f ljóða Hver þess , ara pakúr l».istar kr 100,— og j verður burðargjaldsfritt. et greiðsla tylgir pöntun, ann ars í postmöfu — Mikið og gott lesefn’ fyrþ lítið fé. — Pantanii sendist til: Tímar*ti« DVÖL. (íigranesvegr 107, (Cópavegi. Tilkynnt hefur verið í Kaup- marinahöfn, áð“Friðrik konungur hafi sent svohljóðandi skeyti til bandaríska sendiherrans: Djúpt snortin af hinni hörmulegu fregn um dauða Kennedys forseta, vilj- um við drottning mín votta okkar innilegustu samúð. Öllum fundum þings Sameinuðu þjóðanna hefur verið frestað. Full- trúar frá 111 löndum á allsherjar þingi risu úr sætum til að heiðra minningu Kennedys forseta. For- seti allsherjarþingsins, Carlos Sosa-Rodriguez, og U Thant, aðal- ritari Sameinuðu þjóðanna, sögðu nokkur orð til minningar um for- setann. Adenauer, fyrrverandi kanslari Vestur-Þýzkalands, sendi frú Kenn edy og Lyndon B. Johnson, for- seta samúðarskeyti. í skeytinu seg ir, að Kennedy muni verða minnzt í sögunni sem píslarvotts frelsis og friðar. Kardínálinn Francis Spellmann sagði, að hann væri lamaður og harmi lostinn af sorg yfir dauða Kennedys. Spellmann skalf í rödd- inni af geðshræringu, þegar hann sagði við fréttaritara Reuters í Róm: Ég bið fyrir honum nú. Kardínálinn sem er á kirkjuþing- inu, sagði, að dauði Kennedys væri mikill missir fyrir Bandarík- in og raunar allan heiminn. Finnska þingið heiðraði minn- ingu Kennedys forseta með einnar mínútu þögn. Kauno Kleemola, forseti þingsins, flutti stutt minn- ingarávarp. Kekkonen, Finnlands- forseti, sendi frú Kennedy þegar í stað samúðarskeyti. Tító, forseti Júgóslavíu, símaði sjálfur samúðarkveðju sína til bandaríska sendiráðsins í Belgrad, þegar eftir að hann frétti um lát Kennedys. Sjónvarpið í Júgóslaviu gerði hlé á dagskrá sinni til að til- kynna morðið á forsetanum. Orðsending Ákveðið hefir verið að dagvisnr fyrir 7—12 ára börn verði starfræktar i Laugarnesskóla og húsi KFUJM og K við Holtaveg Skriflegum umsóknum skal skilað til fræðsluskrif- stofu Reykjavíkur, Tjarnargötu 12 sem gefur nánari upplýsingar. Fræðsluskrifstofa Reyk|avíkur Einbýlishús Til sölu einbýlishús á fallegum stað í Kópavogi Útborgun 180 þús. Laust strax — Sími 40396 T f M I N N, laugardaginn 23. nóvember 1963. 13

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.