Tíminn - 23.11.1963, Blaðsíða 15

Tíminn - 23.11.1963, Blaðsíða 15
Johnson Framhald af 7. síðu. ing í að sætta andstæðinga og fá | þá til að starfa saman. þegarí mikið liggur við. Sumarið 1960 kepptu þeir Kennedy og Johnson um að verða forsetaefni, og varð Kenn- edy hlutskarpari, ef til vill mest vegna þess að Johnson var frá Texas. Kennedy bað Johnson síðan að verða varaforsetaefni og telja margir að það hafi tryggt sigur hans. Rannsóknir á sviði geimvísinda. Þegar fór að örla á því, að öld- geimferða og geimvísinda væri að ganga í garð, beitti Johnson sér fyrir því fyrstur manna á Bandaríkjaþingi, að sett var á laggir árið 1957 sérstök þing- nefnd til að kanna þessi mál í alla staði, athuga, hvernig komið væri í þessum efnum vestan hafs og hve langt aðrar þjóðir væru komnar. Upp úr því buðu Banda- ríkin síðan aðild sína að sam- starfi um friðsamlega könnun geimsins, svo að öllu mannkyni yrði til góðs en ekki ills. •Síðan Johnson varð varafor- seti, hefir hann einnig haft á hendi formennsku í Geimnefnd- inni svonefndu — Space Council — sem kemur saman fjórum eða fimm sinnum í mánuði og er ráð- gjafanefnd forsetans í öllum málum er snerta rannsóknir í geimnum og annað af því tagi. Auk þess var hann formaður ráð gjafanefnda Friðarsveitanna (Peace Corps) og þeirrar sér- stöku nefndar, sem forsetinn skipaði til að hafa umsjá með því, að aliir borgarar hafi jafnan rétt til starfa í landinu. Það er mikilvægur liður í baráttunni gegn kynþáttamisréttinu, sem haldið er uppi af stjórn Kenn- edys, eins og öllum er kunnugt. Ötul barátta gegn kynþáttamisréttinu. Lyndon B. Johnson, sem tal- inn er eínn ötulasti baráttumað- ur Bandaríkjastjórnar gegn kynþáttamisréttinu, er sammála Kennedy forseta um, að fortöl- ur — þrotlausar samræður og fundir allra helztu aðila — muni bera mestan ávöxt í þeirri bar- áttu að skapa öllum jafna að- stöðu til vinnu, hver sem litar hátturinn er. Hann hefir til dæm- is rætt við stóratvinnurekend- ur í 25 helztu borgum landsins til að fá þá til að fjölga starfs- fólki af öðrum kynþáttum en hin um hvíta. Þetta hefir borið mik- inn árangur, meðal annars í Suð- urríkjunum, þar sem málstaður blökkumanna hefir löngum átt erfitt uppdráttar. Samtök blökkumanna hafa viðurkennt þessa viðleitni í verki, — og til dæmis hefir blaðamannafélag blökku- manna í Washington, Capital Press Club, sæmt hann heiðurs- merki sínu fyrir góðan stuðning við málstað þeirra. Einnig hefur hann verið heiðraður af samtök- um G.vðinga, B’Nai B’rith. fyrir að hafa staðið vel á rétti þeirra sem minnihluta með þjóðinni Vinfengi við svartan sendiherra. Þegar .'ohnson tók við viður- kenningu Gyðingasamtakanna, rifjaði hann það upp, þegar hann kvaddi Suðurríkjamann einn, Carl P. Rowan, Svertingja, sem gerður hafði verið sendiherra Bandaríkjanr.a í Finnlandi og gegnir því embætti enn. Hann sagði: „En sú tilviljun, sem réð því, hvar við fæddumst, varð frétt- næm, af því að ég var fæddur þar syðra af hvítum foreldrum en hann af svörtum. En ef það eru fréttir að ég standi við hlið hans og iaki í hönd hans og árni honum fararheilla — þá eru það fréttir, sem ég er hreykinn af að vera aðili að“. Má segja, að þetta sé eins kon ar játning Johnsons í baráttunni fyrir jafnrétti kynþáttanna í Bandaríkjunum. Þannig á varaforseti að vera. Að endingu má geta þess, að skömmu eftir að Kennedy varð forseti sa,gði Johnson vinum sín- um oft, að hann langaði mest til að verða vavaforseti af því tagi, sem hann mundi vilja hafa sér við hlið, ef hann hefði verið kjör inn forseti 1962. Nú segja þeir hinir sömu, að það, sem þá hafi verið rnarkmið, hafi orðið að veruleika. Þetta helur þó ekki reynzt auð- velt, því að í fyrstu voru marg- ir nánustu samstarfsmenn Kennedys varir um sig gagnvart varaforsetanum. Þeir minntust ofurvalds Johnsons, þegar hann var foringi þingmeirihlutans í öldungadeildinni, og þeir voru í nokkrum vafa um, hvernig hann mundi una sér í hinu nýja hlutverki sínu. Þetta voru eðli- legar efasemdir, en þær urðu fljótt að engu, þegar augljóst var, að Kennedy bar fullkomið traust til varaforsetan síns. Eftir því sem lengra leið á samstarf þeirra, batnaði samvinnan og gagnkvæm virðing og vinátta. — Er vafasamt, að slíks hafi verið dæmi áður í sögu Bandaríkjanna. UNDIRBÚÁ SJÓNVARP Framhald af 16. síðu. Þess bæri þó að gæta, að nokkuö væri um liðið. síðan þessar áætl- anir voru gerðar, og gætu þær ver ið orðnar úreltar nú. Útvarpsstjóri sagði, að áhugi væri á þvi a? hafa stöðina svo stóra, að sendingin næði sem víð ast, en ékki væri únnt að segja um það á pessu stigi málsins, hvort svo stór stöð væri möguleg strax eða hvort yrði að byrja með lilla stöð, sem síðan yrði stækkuð smám samao Menntamálaráð óskaði sérstak- lega eftir þvi að athuguð verði skilyrði til hagnýtingar sjónvarps í þágu skóla, og sagði útvarpsstjóri að það hefíi þcgar verið athugað lauslega, en ekki væri fyllilega iióst, hvorr skclar hefðu yfirleitt ahuga á að hagnýta sér það. En þetta væri eit* það þýðingarmesta, sem kanna yrði í þessu sambandi. Að lokum cskar menntamálaráð t.'llagna um fjóröflun til greiðslu stofnkostnaða' og árlegs rekstrar kostnaðar. Útvarpsstjón sagði, að eitthvað yrði enn að Læta við starfsliði h’á útvarpinu vegna þessa, og svo vrði að fara að líta í kringum sig eítir hæfum mönnum til að mennt- ast í sjónvarpsfræðum erlendis, svo að allt yrð' tilbúið. þegar sjón varpið kemur En hvenær það verð ur vildi útvarpsstjóri ekki spá. ’^PICT.lÁN BEN. . . Framhald af 16. sfSu. Aðalsteinr. Jónasson skrifstofu- stjóri fulltrúaráðsins gerði grein tyrir störfun: skrifstofunnar. g'eindi fri félagsstarfsemi, svo ,em skemmtunum, hverfastarfsemi uigáfustarfsemi og skemmtiferð í hjórsárdal, sero farin var á s.l. sumri með 470 þátttakendum Hvað Aðalsto’r.n það mikið gleði eíni, hve margt ungt fólk hefði unnið fyrir -'-listann á kjördaginn s vor og spáði það góðu um fram 1’ðina Stjórnarkiör fór þannig: For n.aður var tinróma endurkjörinn Kristján Beneriiktsson. kennari. '’araformað'..’. Kristján Þorsteins son heildsaii og aðrir í aðalstjórn > oru kjörnir Guðrún Heiðberg kaupkona, Eystein R. Jóhannsson b krifstofustjóri og Hörður Helga son. blikksmiður. í varastjóm voru kosnir: Jón A Ólafsson íulltrúi, Markús Ste '-| ánsson, verzlunarstjóri. Hannes [ Pálsson, fulltrúi Kristján Friðriks j íon, iðnrekandi og Hrólfur Haii- dórsson, skrifstofumaður. Sam- kvæmt nýjum flokkslögum, sem samþykkt voru. á flokksþingi Fra.n sóknarmanna s.l. vetur voru kosn- ir 7 menn í rr.iðstjórn Framsókn- arflokksins, til viðbótar þeim, sem k;.örnir voru á flokksþinginu. — Þessir hlutu kosningu í miðstjórn: Rannveig Þorsteinsdóttir, lögfræð ingur, Steingrímur Hermannsson, framkvæmdastjóri, Jón Arnþórs- son, fulltrúi, Hannes Pálsson, full- tiúi, Sigtryggur Klemenzson, ráðu ntytisstjóri, Valborg Bentsdóttir, skrifstofustjóri og Hörður Helga son blikksm:ðui. Margir tóku til máls á fundinum og fluttu fráfarandi stjórn og Fjár hagsnefnd þaKkir fyrir mikil og góð störf á liðnu starfsári. JOHN F KENNEDY MYRTUR EYSTEINN UM KENNEDY Pramlial' ai bls 3 búð manna og þjóða, verði til þess að eíla og styrkja alla þá i starfi, sem vinna vilia í sama anda og hann að þeim velferð- armálum mannkynsins sem nú skipta mestu. Bíla-oghúvélasalan selur FÓLKSBÍLA Chevrolet unpala ’60 ekinn að- eins 40 þús. km. Mercedes Benz ‘55—‘61 180—190 - 220 S. Fiat 180ft 60 Opel Kanitan ’60 Volkswagen ’55—’62 Taunus J2 m og 17 m ’59—’63 Taunus 17 m station ’62 VÖRUBÍLAh: Mercedei Benz '60—’63 Volvo 61 5 tonna Bedford —63 Scandia Vabis ’60 Volvo ’62 s tonna Chevrolet 5t Jeppar oe Weaponar. Jeppakerrui Dráttarvélai af öllum tegund um og aðraj búvélar Bíla & búvélasalar v/Miklatorg Sírrn 2-31-36 AKADEMIET fyrir Duispekivísindi austurlenzkt MAGI — MYSTISK lndó-1 íbetskt YOGA Skrifið rftir ókeypis bækl- ingi Postbox 422, Aarhus Danmark Frímerkjasafnarar Sendið mér L00 ógölluð is lenzk trímerki og ég sendi vður ‘200 erlend í staðinn Ólafur Guðmundsson Óldugötu 17. Reykjavík Framhald af 1. sí8u. fararleyfi lyrir sig og fjöl- skyldu sina og flutti aftur til Bandarík:anna. Hann er for- maður íélags, sem hlynnt er Castró, og heitir Fair Play for Cuba. Ham var i skólabygging- unni, sem levniskyttan hafðist við í. Þegar bann var handtekinn í kvikmyndahúsinu, var hann klædur i ðhreinar og þvældar buxur og sportjakka. Sam- kvæmt ’iprlvsingum lögregl- unnar, sagði hann, þegar lög- reglumen.iirnir lögðu hendur á hann: — læja, þá er öllu lokið. Kennedy er fjórði forseti Bandarikjanna, sem fellur fy•- /fiöardúnsængur Vöggusængur. Æðardúnn — Hálfdúnn Kodda- — Sængurver — Damask. DúnheH og fiðurhelt léreft Matrosaföt 3—7 ára. Drengjaiakkaföt Stakar Hrengjabuxur.. Drengioiakkar. Drengjaskyrtur Drengjapeysur. Crepesokkabuxur, barna og fnilorðinna, frá kr 95 00 Patonc ullargarnið 60 iitir 5 grófteikar. Hringprjónar — Sokka- prjónar Póstsendum, 01 u Vesturgötu 12, - sími 13570 T rúlofunar hringar afgreiddir samdægurs Senfl'.im nm alll lanci HALLD0R Skólsvorðustía 2 ir hendi morðingja. Abraham Lincoln var skotinn 14. april 1865 og dc næsta dag. Það gerðist i Washington. James A. Garfield var skotinn 2. júlí 1881 í Washington og lést 19. sept. sama ár. Og 6. september 1901 var Wiillam McKinley skotinn í Buffalo og lézt 14. september sama ár. Kennedy íorseti féll fyrir leyniskyttu áður en hann gæti flutt síðustu viðvörun sína til bandarísku þjóðarinnar: — Að okkar öld geti tapað frelsinu, án þess að einu skoti sé hleypt af. — Á vorum tímum getum við tapað freisinu engu síður fyrir atkvæðaseðium en byssukúlum, stóð í ræðunni, sem Kennedy ætlaði að fíytja í Dallas í gær. Hvort íeiðtogar Bandaríkjanna ná árangr' eða ekki, er komið undir virðingunni fvrir hlut- verki oklcar í heiminum og eld flaugununi okkar, undir skýr- ari viðurker.ningu á kostum frelsisins o;: ókostum einræð- isins. Kennedy varði áætlun sína um hjálp til erlendra ríkja og hélt þ'i fram, að þessi áætl un væri mjög þýðingarmikil í viðleitninm til þess, að þeir sem lifa crdir nögl hins komm únistíska beims, haldi hlutleysi sínu. Hann eridaði með að vitna í sálm, sem byrjar á þessa leið — í lausxegri óbundinni þýð- ingu: — Ef Herrann er ekki með í verki stendur varmað- urinn árangurslausan vörð. MINNING Framhald af 5 síðu. Indriða voru að vonum þær slóð- ir allar kærar. Og það var gaman að tala um fegurð náttúrunnar við hann, eins og fegurð ljóða. Mjög mikil umferð var um Lind arbrekku, einkum áður en akvegur kom um Mývatnsöræfi og brú á Jökulsá á Fjöllum. Þar mæddi á mikil gestakoma, og upp af brýnni þörf spratt svo greiðasala, sem rómuð var af öllum. er hennar nutu. í þeim miklu vinsældum áttu þau hjón bæði sinn stóra þátt. Nú er Indriði horfinn okkur Inn á framtíðarlönd tilverunnar. Ávallt minnist ég hans sem ein- hvers mesta sæmdarmanns og hugljúfasta sem ég hef mætt á 'ífsleiðinni. Hallgrímur Jónasson 'ÓRANSTÖÐIN TRUFLAR Framhald af 16. síSu. þessa dagana, eftir hina miklu stækkun, sem gerð var á henni í sumar. Stöðin sendir út á 3000 m., eða helmingi lengri bylgjulengd eu Ríkisútvarpið. Sigurður sagði, að vissulega yrði ekki leyft, að lóranstöðin truflaði íslenzka útvarpssendingu, og ef ekki reyndist kleift að koma í veg fyrir truflanir á annan veg, þá yrði að stöðva sendingar lór- anstöðvarinnar eða draga úr orku hennar. Hann kvaðst ekki vita, hvenær prófunum yrði lokið, en þangað til væri ekkert frekar um málið að segja. Innilega þakka ég öllum þeim. er sendu mér skeyti. færðu mér margar góðar gjafir og sýndu mér margs konar vináttu á 80 ára afmæli mínu 18. okt. s.l. Guð blessi ykkur öll. Valdimar Böðvarsson frá Mutru Við flytjum okkar hjartans þakkir öllum þeim, er veitt hafa okkur ómetanlegan stuðning í sambandi við læknishjálp handa syni okkar. Guð blessi ykkur öll. Anna og Böðvar Eyjólfsson, Saurbæ. 1 j M I N N, laugardaginn 23. nóvember 1963. 15

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.