Tíminn - 08.12.1963, Side 3
f SPEGLITÍMANS
Sænska stúlkan Ann-Margret,
sem nú er orðin mjög vinsæl
kvikmyndastjarna í Bandaríkj-
unum, er þarna í heimsókn í
Svíþjóð. Myndin er tekin, er
hún twistaði við einhvern
ónefndan herra, en fyrir vest-
an er Ann-Margret vön að
twista við Eddy Fischer eða
Elvis Presley, sem sagt er að
hún muni trúlofast, hvað sem
úr verður.
Þessi mynd af Caroline litlu
Kennedy er tekin skömmu áð-
ur en faðir hennar var myrtur,
þegar Black Watch Royal High-
land hersveitin kom til Hvíta
hússins og hélt þar nokkurs
konar dans- og reiðlistarsýn-
MIKlLVÆGASTI hlutinn í
sambandi við unglingaheimboð
í Bandaríkjunum er ekki veit-
ingarnar, leikirnir eða gestalist
inn, heldur að hafa lögreglu-
þjón á verði einhvers staðar í
nágrenninu. Ef svo er ekki er
eins gott. að breyta dagsetningu
heimboðsins. Þetta er aðvörun
til allra efnaðra foreldra í út-
hverfum New York-borgar —
Ástæðau er sú, að hinir bráð-
þroska unglingar Bandaríkj-
anna, sem velflestir ganga með
partídellu, eru mikið áhyggju-
efni bæði foreldrum og lögregl-
um. Það kemur oft fyrir, að 20
unglingum er boðið heim, en
þá birtast kannski einir 100
skólafé’agar í viðbót, og ef
þeim er neitaður aðgangur, þá
beita þeir valdi. Það kann að
virðast undarleg tilhugsun, að
hópur af skólabörnum geti vað
ð uppi og eyðilagt heimili
fólks, en svona er það í Ame-
ríku.
☆
ENDURREISNARTÍMABIL
er nú ' listasögu Ameríku. Það
tíðkast ekki lengur að kaupa
eftirprentanir, málverkin verða
að vera ekta og einn af þeim
listamönnum, sem þjónar þess-
um tilgangi, er Dave Carlan.
Ef liggur vel á honum á
morgnana, gerir hann einar 2
til 3 myndir fyrir hádegisverð
og eftir það, eða fram til fimm
gerir hann þó nokkur stykki í
viðbót. Carlan lifir góðu lífi í
fínu einbýlishúsi og hefur tvo
bíla. Hann málar frá níu til
fimm og vikulaun hans nema
því, sem viðskiptamaður í
æðstu stöðu hefur. Málverk
Carlans eru inni á öllum heim-
ilum, verzlunum, verksmiðjum
og hótelum. Það eru fyrirtæki,
sem ráða þessa listamenn til að
mála fyiir sig stanzlaust. Carl-
an vinnur fyrir Aaron Brothers
félagið, cn hjá því starfa tólf
listamenn, sem framleiða mál-
verk. Viðskiptin eru mikil, eins
og sjá má á því, að nýlega pant
aði hótel nokkurt í Las Vega0
1800 abstraktmyndir.
■k
ingu fyrir forsetafjölskylduna
og 1700 börn frá munaðarleys-
ingjahælum. Caroline var nokk-
urs konar fulltrúi forsetafjöl-
skyldunnar á sýningunni og á
þessari mynd situr hún á öðr-
um armi forsetastólsins.
Hvítur háskólakennari í
Mississippi hefur fundið upp
nýstárlega aðferð til þess að
fara í kringum kynþáttamisrétt
islögin. Honum var bannað að
kenna nokkrum svertingjastúd-
entum og þá tók hann til þess
ráðs, að halda fyrirlestra fyrir
þá í gegnum síma frá öðru ríki.
Nærri má geta, að símareikn-
ingurinn varð nokkuð hár.
EITT af því nýja, sem verður
á bandaríska jólamarkaðinum,
er segulband, sem bæði tekur
upp hljóð og myndir eftir sjón-
varpi. Ef fólk er ekki heima,
þegar verið er að sýna einhvern
skemmtilegan sjónvarpsþátt, þá
setur það bara segulbandið af
stað' og svo þarf ekki annað en
að setja það aftur í samband
við sjónvarpið, þegar komið er
heim.
Hún vill gjarnan verða leik-
kona, þó að mér geðjist ekki að
því, segir Zsa Zsa Gabor um
hina sextán ára gömlu dóttur
sína. Dóttirin, Francoise Hilton,
átti nýlega 16 ára afmæli og
var haldið upp á það í Stork-
klúbbnum. Gestirnir voru 12
stúlkur og 24 drengir, eða eins
og Zsa Zsa segir, sækjast sér
um líkir. Faðir Francoise er
hótelkonungurinn Conrad Hilt-
on, en hann og Zsa Zsa eru
löngu skilin.
Á SIÐASTA hluthafafundi í
20th Century Fox var Darryl
Zanuck. forstjóri félagsins sak-
aður um það, að hafa eytt of
miklu te í kvikmyndina Cleo-
pötru og yfirborgað Liz Taylor.
Einnig var fundið að því, að
sonur hans hefði 1000 dollara
kaup á viku. Zanuck svaraði
engu ti! um fyrri ákærurnar,
en soninn varði hann hraust-
lega. Trúið því, sagði hann, að
ég skamma hann oft. Þegar ég
var á hans aldri, (24 ára) hafði
ég 5000 dollara kaup á viku, og
ég læt hann heyra það, að hann
standi sig ekki nógu vel. Hann
ver sig aftur á móti með því, að
ég hafi ekki þurft að dragast
með elt-.fi frægan föður og hann
þarf að gera, eigum við svo
ekki að láta þetta mál liggja á
milli hluta. Um þetta var ekki
meira rætt á fundinum.
ÞAÐ NÝJASTA i sambandi
við kappsiglingar í Bandar. eru
svokallaðar líkkistukappsigling-
ar: Til þcirra eru notaðar gaml
ar plastlíkkistur, sem voru í
eigu hersins, og settar eru á
þær litlir utanborðsmótorar.
Sænska kvikmyndastjarnan
Anita Ekberg er nýgift ame-
ríska leikaranum Rick Van
Nutter og eiga þau nú von á
sínu fyrsta barni. Anita var
áður gift leikaranum Anthony
Steele, en þau voru barnlaus. Á
þessari mynd eru þau að koma
Sænsku unglingarnir láta
ekki að sér hæða. Það fannst
að minnsta kosti enska dægur-
lagasöngvaranum John Leyton,
þegar hann var þar á ferð fyrir
skömmu. Hann veitti því at-
hygli, að hvert sem hann fór
fylgdi leigubíll á eftir honum
úr réttarsalnum, þar sem An-
ita bar vitni gegn fyrrverandi
vini sínum Franco Silva, en
hún bar hann þeim sökum, að
hann hefði sýnt henni undir-
ferli og kúgun og þar að auki
féflett hana.
og í honum var tvítug stúlka.
Eltingarleikurinn náði samt
hámarki, þegar stúlkan einn
morguninn kom inn á hótelið,
þar sem John dvaldist og hafði
með sér fimm lítra af jarðar-
berjum og tvær whisky-flöskur.
Það hefur lítið heyrzt frá
sönghjónunum Nínu og Frið-
rik að undanförnu, enda hefur
Nína staðið í barneignum. Fyr-
ir tveimur árum fæddist þeim
sonur, sem nefnist Floris Nic-
holas Ali og nú hefur hann ný-
eignazt systur, sem skírð hefur
verið Kirsa Elinora Clara. Nú
þegar dóttirin er fædd, taka
þau til á nýjan leik og byrja á
því að skemmta á Savoy-hóteli
í London, en þau munu einnig
gera sjónvarpsþátt í Bretlandi
Eftir nýjár fara þau í hljóm-
leikaferðalag um Austurlönd og
jafnframt Ástralíu. Meðan á því
stendur dvelja Nicholas greifi
og litla systir hans á hinu nýja
heimili fjölskyldunnar í Sviss,
en Nínu og Friðrik hefur alla
ævi langað til að búa þar, þó
að þeim hafi ekki fyrr en núna
tekizt að fá íbúð þar. Öll fjöl-
skyldan er þarna á myndinni,
sem tekin er í Malaga, en þar
hafa þau dvalizt síðasta árið.
T í M I N N, sunnudaginn 8. desember 1963.
3