Alþýðublaðið - 26.09.1942, Síða 2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Laugardagur 26. sept: 1942.
Eldur i timbur
verzlun Árna
Jónssonar.
Tók klnkkustund
að kæfa hann.
P LDUR KOM UPP í
timburverzlun Áma
Jónssonar að Hverfisgötu 56
snemma í gærmorgun. Var
slökkviliðinu gert aðvart kl.
6,46 og tókst þvi á einni kist.
að ráða niðuriögum eldsins.
Eldurinn mun hafa komið upp
í kaffidrykkjuklefa verzlunar-
innar, eða í tréstokk sem liggur
um klefann ,en í honUm eru
gufuleiðslurör frá miklum
katli, sem er í kjallara hússins.
í fyrra kvöld varð starsfólk
verzlunarinnar vart við reykj-
arsvælu í kaffidrykkjuklefan-
um og var þá stokkurinn rif-
inn. Kom þá í Ijós að sag sem
\ _r utan um leiðslurnar var
orðið svart á kafla. Var gengið
frá þessu þannig að öruggt var
talið, en síðar um kvöldið var
gengið um klefann til eftirlits
og ekki orðið vart við neinn
eld eða reyk.
Engar skemmdir urðu af eld-
ihum, en nokkrar af vatni.
ungum af völdum húsnæðisleysisins?
Bæjarráð leggnr tll að uppsagnir
á húsnæðl 1« október verði ógilt*
ar? og að bæJarsQórn fái lagahelm*
nái* tilvíðtækra ráðstafana annara
D YRIK FUNDI BÆJARRÁÐS f GÆR lágu tillögur frá
nefnd þeirri, sem bæjarráð kaus fyrir nokkm til þess
að athuga möguleika á ráðstöfimum til að draga úr sárustu
húsnæðisvandræðunum í bænum núna um mánaðamótin og
gera tillögur þar að lútandi. Er í tillögum nefndarinnar Iagt
til að bæjarstjóm hlutist til um það við ríkisstjórnina, að
ný bráðabirgðalög verði gefin út, þar sem ógiltar verði upp-
sagnir á húsnæði. miðaðar við 1. október. En jafnframt
leggur hún til að bæjarstjóm leiti lagaheimildar til marg-
víslegra víðtækra ráðstafana með það fyrir augum að bæta
úr húsnæðiseklunni.
Tillögur nefndarinnar, sem
þeir Jón Axel Pétursson, Björn
Bjarnason, Magnús V. Jóhannes
son og Gunnar Þorsteinsson
eiga sæti í eru orðréttar þannig:
L Nefndin leggur til: Lag-
færð verði þau íbúðarher-
bergi, um 20 talsins, sem til
eru á Korpúlfsstöðum.
II. Ennfremur hefir nefndin
látið rannsaka og komist að
þeirri niðurstöðu að um 20
sumarbústaðir við Vatns-
enda, eru íbúðarhæfir og
Jakob Möller leggur bif-
reiðaeinkasöluna niður!
Ástæða: Hann vildi fá að ráða áfram úthlut-
un bílanna þvert ofan i ákvörðun alþingis!
Freklegt brot ráðherrans gegn
yftrlýstum vllja þlngsins.
ÞAÐ varð kunnugt í gærkveldi, að Jakob 'Möller f jár-
málaráðherra hefði ákveðið að leggja niður bíla-
einkasöluna, og í samræmi við þá ákvörðun þegar sagt
forstjóra hennar, Sveini Ingvarssyni, upp starfi.
Vldtal vid Jakob
Möller,
Alþýðublaðið sneri sér strax
í gærkveldi tíl fjármálaráð-
herrans og spurði hann um
hvort þessi fregn væri rétt, og
kvað hann svo vera.
„Lögin um bifreiðaeinkasöl-
una eru heimildarlög,“ sagði
Jakob MöIIer. „Samkvæmt
þeim er það á valdi ríkisstjóm-
arinnar, hvort hún notar þau
eða notar þau ekki. Á sínum
tíma taldi ríkisstjórnin rétt að
nota heimildina, en nú tel ég
ekki ástæðu til að nota hana
lengur.
Það hefir verið skipuð skila-
nefnd einkasölunnar. Hún mun
selja þær birgðir, sem einka-
salan á. í nefndinni eru: Bjöm
E. Ámason endurskoðandi og
Jóhann* Ólafsson stórkaupmað-
ur. — Anna^vil ég ekki segja
að svo stöi
Laag&rnespi
Messa á ml
ar Sratmrssaai'
ai.
kL 2, aíra Garff-
Viðtal við Jón Siíi-:
nrðsson.
Alþýðubl. sneri sér einnig í
gærkveldi til Jóns Sigurðsson-
ar, framkvæmdastjóra Alþýðu-
sambandsins, sem á sæti í bíla-
úthlutunarnefnd þeirri, sem var
kosin á alþingi í sumar, og
spurði hann hvað hann hefði
um þessa ráðstöfun fjármála-
ráðherrans að segja.-
Jón Sigurðsson sagði:
„Mér var nú rétt áðan að
berast sú fregn, að Jakob
Möller fjármálaráðherra væri
búinn að leggja niður bifreiða-
einkasölu ríkisins, og var það
ekkert meira en ég gat búizt við
eftir hans fyrri framkomu við-
víkjandi þeim málum öllum.
Strax, þegar eftir að úthlut-
unarnefnd bifreiða hafði verið
kosin í sameinuðu alþingi, sam-
kvæmt þingsályktunartillögu
þar um, kom í Ijós, að fjármála-
ráðherra ætlaði sér að hafa
vilja meirihluta alþingis að
engu og úthluta eöir sem áður
bifreiðum eftir eigin geðþótta.
Síðan nefndin var kosin, hefir
lítill tími verið til þeirra starfa,
sem þingið ætlaði nefndinni að
inna af höndum, því við tveir,
ég og Stefán Jónsson, hÖfum
frá því fyrsta staðið í sífelldu
stríði við meðnefndarmann
okkar Gísla Jónsson og ráð-
herra, sem báðir stóðu á því
fastar en fótunum, að fjármála-
ráðuneytið gæti eitt öllu ráðið
um úthlutun bifreiða, sem og
annað, sem einkasölunni við-
kæmi.
Áður en nefndin tók til
starfa, kallaði ráðherra okkur
alla nefndarmerm á sinn fund,
og vildi fá okkur til þess að
gangast inn á það að lofa því,
að uppfylla loforð, er hami
taldi sig hafa gefið ýmsum
mönnum um að þeir skyldu fá
bifreið.
Eðlilega neituðum við Stefán
að gefa slíkt loforð, en vildum
þó fá í okkar hendur lista yfir
þá menn, er ráðherra teldi sig
hafa gefið fyrirheit.
Ráðherra lofaði að listinn
slcyldi koma þá um kvöldið, en
hann kom þó ekki, heldur viku
eftir að nefndin tók til starfa,
og var þá þannig, að á honum
voru fleiri nöfn manna, er bif-
reið áttu að fá samkvæmt lof-
orði ráðherrans en bifreiðamar
voru, sem einkasalan átti.
í bréfi til einkasölunnar, er
fylgdi þessum lista, fyrirskip-
CFrb. á 7. síðu.)
leggur til að leitað sé sam-
samkomulags við eigendiur
þeirra iun umráðarétt bæn-
um til handa yfir vetrar-
mánuðma, fyrir búsnæðis-
laust fólk. Sömuleiðis aðra
sumarbústaði ef til eru í
nágrenni bæjarins.
III. Nefndin leggur til að skip-
aður verði nú þegar sér-
stakur húsnæðisráðunaut-
ur, sem líti eftir fyllstu
bagnýtingu á öllu íbúðar-
húsnæði í bænum, og það
sé eimmgis notað í þágu
innanbaéjarmanna, aðstoði
bæjarmenn í útvégun hús-
næðis, og benti bæjarstjórn
á þær leiðir sem líklegastar
eru til að draga úr hús-
næðisvandræðunum.
IV. -a. Nefndin Ifegguf til að
bæjarstjóm hlutist til við
ríkisstj., að ógiltar verði
með bráðabirgðalögum upp
sagnir á íbúðarhúsnæði.
. miðað við 1. okt. þ. á., í
öðrum tilfellum en þeim
þar, sem leigutaki hefir
valjið skemmdum á hús-
næði eða komið ósæmiiega
fram.
Fnndabðld Aipfön-
(lokbsíns viðsveg-
ar á Norðnrlandi.
Steíán Jóbann mætir.
Q TEFÁN JÓH. STEFÁNS
SON, fomaður Alþýðu*
flokksins og Guðjón BÍ
Baldvinsson, fyrsti maður-
inn á lista Alþýðuflokksins f
Eyjafirði, eru á ferðalagi hér
inn Norðurland. Komu þeir
hingað til Hvammstanga i
gær og héldu opinberalt
stjórnmálafund í gærkveldi
í kvöld heldur Stefán fund
á Blönduósi, en Guðjón boð»
ar til fundar á sama tíma á
Skagaströnd.
Á fundinum í gærkveldi
flutti Stefán Jóhann langt er-
indi um stjómmálaviðhorfin og.
lýst sérstaklega afstöðu Alþýðu
flokksins til dýrtíðarmálanna
og lausnar þeirra. Rakti hann
fyrst baráttuna innan ríkistjóra
arinnar í fyrra um þessi mál,.
sem lauk með gerðardómslög-
unum og því, að Alþýðuflokk-
urinn neitaði áframhaldandl
stjómarsamvinnu. Hann skýrði
og þær tillögur, sem flokkurinn
hefir borið fram um lausn dýr-
tíðarmálanna, og hvemig and-
stæðingarnir, íhaldið, framsókn
og kommúnistar hafa snúizt við
þeim.
Var máli Stefáns mjög vel
b. Bæjarstjórn fái laga- i tekið af fundarmönnum
heimild til að framkvæma
útfourð á þeim er ólöglega
hafa fengið húsnæði í bæn-
um, og forleigurétt að því
húsnæði, enda verði til hins
ýtrasta reynt að útvega því
fólki húsnæði annarsstaðar.
c. Bæjarstjóm fái laga-
heimild til að taka til afnota
ónotað og lítt notað hús-
næði, sem hæft er til íbúð-
ar fyrir fjölskyldu.
V. Nefndin leggur til, að borg-
arstjóri og bæjarstjóm
beita sér fyrir því, eftir
því sem fært er, að vinou-
, afli og efni verði fyrst og
fremst varið til að Ijúka
við þær íbúðarbyggingar,
srm nú era í smíðum.
Bæjarráðsfundurinn 1 í gær
féllst á þessar tillögur nefnd-
arinnar í meginatriðum og fól
borgarstjóra að ræða við ríkis-
stjóraina og formann búsaleigu
nefndar mn útgáfu bráðabirgða
laga til að tryggja framkvæmd
þeirra.
Sfðustn forvðð f dag að
kæra sig iii á kjðrskrá.
----------
Kærufresturinn er útrunninn í kvöld.
I
DAG eru síðustu forvöð til að kæra sig inn á kjörskrá
því að kærufresturinn er út runninn kl. 12 í kvöld. Er
því nauðsy»légt að kjósendur, sem telja, að einhver vafi
geti leih^CPá, að þeir séu á kjörskrá, leiti sér upplýsinga um
það, og, ef þeir standa ekki á kjörskrá, kæri yfir því til rétta
hlutaðeiganda.
Kosningaskrifstofur Alþýðu-
flokksins em í Alþýðuhúsinu, 2.
og 6. hæð. Eru þær opnar frá
klukkan 10 á morgnana til
klukkan 7 á kvöldin. Þar liggur
kjörskrá frammi, og geta menn
fengiö upplýsLogar um það,
hvort þeir eru á kjörskrá, og
aðstoð til að semja kæru, ef
þeir þurfa að gera það. Eins er
séð um, að kæran komist á rétt-
an stað fyrir þann tíma, sem á*
kveðinn er.
Frfc. é T. síðu.