Alþýðublaðið - 26.09.1942, Qupperneq 3
luaugardagur. 26. scpt. 1942.
ALÞYÐUULAÐ!"
Hvernig stríðið
höfst“
jC* YRIR nokkru kom út í
*■ Améríku bók, sem heitir
sjlvemig stríðið hójst“ og er
hún eftir tvo þekkta Banda-
ríkjamenn, þá Forrset Davis,
sem er þekktur rithöfundur, og
Emest K. Lindley, frægan
blaðamann, sem hefir mjög góð
sambönd við þá, sem stjórna
Ameríku í Washington.
í bók þessari er rætt um
margá af helztu viðburðum
stríðsins og koma þar fram
ýmsir áður ókunnir hlutir. Hér
fara á eftir nokkur atriði, úr
bókinni, sem athyglisverð eru.
Eru þaú tekin á víð og dreif úr
henni:
* Roosevelt forseti og Knox,
jlotamálaráðherra Bandaríkj
anna kom báðum mjög á ó-
vart, er Japanir gerðu árás-
ina á Pearl Harbour og
hversu vel árásin tókst.
-Þeir Cordell Húll og Sumner
Welles, utanríkis og varautan
ríkisráðherrar Bandaríkj-
anna voru báðir þeirrar skoð-
unar, að hefði William Buill-
ir, sendiherra Bandaríkjanna
í París, farið með frönsku
stjóminni til Tours og síðan
Bordeciux, er hún flúði, rétt
áður en Frakklandi féll, hefði
hann getað dregið úr hinum
illu áhrifum Lavals og stapp-
áð stálinu í Pétain og þannig
komið því til leiðar, að Frakk
ár hefðu barizt áfram í Norð-
ur-Afríkunýlendum sínum.
* Churchill vildi gefa Ameríku
mönnum nokkrar bækistöðv-
ar í nýlendum Breta í Vestur
heimi en Roosevelt vildi
Jcaupa þær. Þeir Cordell Hull
og ráðgjafi hans, Hackworth,
komu því þá til leiðar, að
nokkrar bækistöðvar voru
gjof frá,Bretum og fullnægðu
þannig rausn Churchills, en
nokkrar voru afhentar í skipt
um fyrir 50 tundurspilla og
Jullnægðu þannig vilja Roose
velts.
* I miðjum janúar 1941 sagði
Eumner Welles þáverandi
sendiherra Rússa í Bandaríkj
unum, Constantin Oumanski,
að Hitler hefði ákveðið að
ráðast á Rússland í júni sama
ár. Sunner Welles víssi, að
von Brauchitsch, sem trúir
á „tákmarkaða“ landvinn-
inga, eins og Bismarck gerði,
hafði látið í minni pokann
■fyrir Hitler og þá þegar var
undirbúningurinn hafinn.
* Franski herforinginn Weyg-
and sagði vinum sínum, að
amerískum her mundi verða
tekið með kostum og kynj-
um, ef hann réðist á frönsku
Norður-Afríku. — Frakkar
hefðu gengið í lið með Am-
eríkumönnum.
* Mjög litlu munaði, að Þjóð-
verjum tækist að leggja Iraq
undir sig og höfðu margar
flugvélar þeirra komið þang-
að með viðkomu í Sýrlandi,
sem Vichy stjórnin réði fyrir.
* Harry Hopkins sannfærði
amerísku stjórnina um að
Rússar mundu standast. Her-
málaráðunautur amerísku
sendisveitarinnar í Moskva,
Þfóðverjar reyna að ná aðalgotum Stal~
ingrad á
sitt vald.
Á leið til Rússíands.
Bretar hafa nú sagt nánar frá skipalestinni miklu, sem fyrir nokkru fór til Norðtur-Rúss-
lands. Hér er mynd frá einni af skipalestum þeim, sem áður hafa farið þessa leið.
Bretar reka
Quisling í
loftvarnabyrgi.
London, í gærkveldi.
QUISLING og lífvörður hans
tóku til fótanna og flýðu
niður í kjallara, þegar brezkar
flugvélar flugu yfir Oslo í dag
og vörpuðu þar niður sprengj-
um.
Quisling var að halda ræðu
fyrir nazistum í Oslo þegar
brezku flugvélarnar komu yfir
borgina. Engin loftvarnamerki
voru gefin, því menn urðu ekki
varir við flugvélarnar fyrr en
sprengjurnar sprungu og urðu
af þeim miklar sprengingar.
Þetta er í annað sinn, sem
brezkar flugvélar trufla sam-
komur nazista.
Áður höfðu brezkar flugvélar(
varpað sprengjum yfir Mún-
chen er nazistar voru þar á úti-
samkomu.
Faymonville, hélt þessu fyrst
fram, en var kállaður heim.
Þegar Harry Hopkins kom úr
fyrstu Rússlandsför sinni, lét
hann senda hann aftur aust-
ur til Moskva.
* Skemmtileg saga er sögð af
því, hvernig nafnið „United
nations“ (Bandamenn) varð
til. Roosevelt datt þetta orð
skyndilega í hug í rúminu
einn morgun, þegar Churchill
var vestra. Forsetinn fór þeg-
ar fram úr og yfir í herbergi
forsætisráðherrans. Þegar
hann kom þangað, var Chur-
chill í baði. Roosevelt káll-
aði inn um dyrnar: „Hvern-
ig finnst þér United Na-
tions?“ Churchill dýfði sér í
baðkerið, stakk hausnum aft-
ur upp úr,' strauk sápuna úr
augunum og sagði: „Það ætti
að duga“. Það virðist hafa
dugað. ,
Þetta eru nokkur atriði á víð
og dreif úr bókinni „Hvernig
stríðið hófst“, sem nýkomin er
á markaðinn vestan hafs. Ann-
ar höfundurinn er ráðinn sem
ævisöguritari Roosevelts og er
vel kunnugur honum.
Skipalestin komst til Rðss-
lands eftir 4 daga árásir.
Hurricaneflugvéiar vörðu skipio.
I_J ERGÓGN, sem hin mikla skipalest Bandamanna flutti
til Norður-Rússlands, eru nú á leið til vígstöðvanna.
Skipalestin varð fyrir stöðugum árásum í fjóra sólahringa,
er hún sigldi norður fyrir Noreg. Þjóðverjar sendu ógrynni
flugvéla og kafbáta skipalestinni til höfuðs, en „mestur
hluti skipanna komst heilu og höldnu tjil hafnar í Norður-
Rússlandi, og ekkert fylgdarskipanna laskaðist“ eins og
segir í tilkynningu flotamálaráðuneytisins í London.
Nokkru nánar hefir nú frétzt
af hinni mikluj ornustu, sem
skipalestin háei við Þjóðverja.
Þjóðverjar urðu varir við skipa
lestina 12. september og gerðu
þá þegar kafbátaárás á hana.
Eftir það varð lestin fyirir
stöðugum árásum og köstuðu
allt frá 6 til 50 fdlugvélar á
degi hverjum tundurskeytum,
sprengjum og tundurduflum á
skipalestina, en öflug loftvarna-
skothríð allra skipanna og fl-ug-
vélar, sem voru þeim til vernd-
ar, hindruðu þýzku flugvélarn-
ar í að hæfa nema mjög fá áf
skipum Bandamanna.
Þýzku flugvélarnar köstuðu
niður miklum fjölda tundur-
dufla fyrir frarnan skipalestina
og unnu brezku tundurdufla-
slæðararnir mikið starf og
hættulegt við að hreinsa þau
upp.
Flugvélamóðurskip var með
skipalestinni og hafði það nýja
tegund Hurricaneflugvéla, sem
kallaðar eru ,,Sjó-Hurricane“.
Þessar orrustuflugvélar, sem
þegar eru frægar orðnar á Iandi,
sýndu margsinnis í bardögum
við þýzku flugvélarnar mikla
yfirburði, enda skutu þær marg
ar þeirra niður. Bretar misstu
4 af flugvélur sínum, en 3 flug-
mannanna Kefir verið bjargað.
Yfir 80 tvxndurskeytum og mikl
um fjölda sprengja var beint
á flugvélamóðurskipið, en það
slapp við allt tjón.
í skipalest þessari voru bæði
brezk, rússnesk og bandaríksk
skip og lofar brezkt flotastjórn-
in mjög frammistöðu skips-
hafnanna í tilkynningu sinni.
\
Herskipin, sem fylgdu lest-
inni til Rússlands, fengu þar
litlá hvíld, og lögðu þegar af
stað heimleiðis með aðra skipa-
lest. Þýzkir kafbátar (En engar
flugvélar) gerðu allmiklar árás-
ir á lestina og tókst þeim að
hæfa tvö herskipanna með tund
urskeytum, Voru það tundur-
spillirinn Somali og Leader, her
snekkja.
Alls misstu Þjóðverjar 40
flugvélar í árásuta þessum,
tveim kafbátum þeirra var ökkt
sennilega fjórir mikig laskaðir.
Bretar misstu, eins og áður var
getið 4 flugvélár og tvö her-
skip, en „mestur hluta flutn-
ingaskipanna“ komst á áfanga-
staðinn.
Amerikskir verka^
lýðsleiðtogar hylla
norska verkamenn
Washington, 25. sept.
MIJ* * ORINGJAR verkálýðsfélag
anna í Ameríku hafa í dag
lagt fram fé til styrktar norsk-
um verkamönnum í tilefni af
því, að tvö ár eru liðin síðan
nazistar reyndu að eyðileggja
og yfirtaka norsku, verkálýðsfé-
lögin.
. .Philip Murray forseti C.I.O.
(sem er stærsta iðnverkamanna
samband í Ameríku með 6 millj
ón meðlimum) sagði við þetta
tækifærí:
London, í gærkveldi.
ÞJÓÐVERJAR gerðu í dag
miklar tilraunir til þess áS
ná á sitt váld aðálgötu Stalvn-
grad, sem liggur í austurátt að
Volgu. Reyndu skriðdreka- og
fótgönguliðssveitir hvað eftir
annað að brjótast yfir rústir ná-
grannáhverfanna, en í hvert
sinni hrundu varnarsveitir
Rússa áhlaupunum.
Þjóðverjar sækja nú fastar á
norðan við borgina, en enn
hafa Rússar gert þar áhlaup, og
unnið Þjóðverjum mikið tjón.
Rússar skýra svo frá, að 25 000
Þjóðverjar hafi fallið á Stalin-
gradvígstöðvunum undanfama
viku. Manntjónið fer þar a&
auki hraðvaxandi og falla þús-
undir hermanna á degi hverj-
um.
Saga er sögð af skriðdreka-
verksmiðju einni í úthverfum
Stalingrad, sem á að vera eitt
dæmi af mörgum í borginni.
Verkamennirnir unnu í verk-
smiðjunni dag og nótt, þótt bar-
izt væri aðeins örskammt frá og
tjónið á verksmiðjunni var
mjög lítið. Þeir voru að Ijúka
við nokkra skriðdreka og héldu
áfram, hvað sem á gekk. Um
það bil, sem skriðdrekamir
voru tilbúnir, höfðu Þjóðverjar
brotizt fram í næsta nágrenni
við verksmiðjuna. Þá óku
verkamennirnir sjálfir skrið-
drekunum út úr verksmiðjunni
og fram í víglínuna. Þar börð-
ust verkamennirnir í marga
daga. Margir komu aldrei aftur,
aðrir börðust áfram og héldu
víglínu sinni á þessum slóðum,
þar til liðsauki kom.
Sunnan við Leningrad hafa
Þjóðverjar gert állmikil áhlaup
og hrakið Rússa nokkuð til
baka, en rússnesk gagnáhlaup
hafa hindrað frekari sókn.
Við Novoi’ossisk hafa Þjóð-
verjar misst 2000 manns a ein-
um degi. Við Mostok hafa Rúss-
ar gert gagnáhlaup mikil.
Þýzki herforinginn Gleisner
er fallinn á austurvígstöðvun-
um, tilkynna Rússar. Hann kom
mikið við sögu í sókninni miklu
á vesturvígstöðvunum.
„Úrsagnir þúsunda norskra
verkamanna úr verkalýðsfélög-
unum, sem nazistar ráða yfir
og okkur hafa borizt í kringum
þennan afmælisdag, eru við-
burðir, 'sem snerta alla verka-
menn.
Við í Ameríku höfum ekki
gleymt 25. sept. 1940 þegar
Þjóðverjar tóku stjórn norska
landssambandsins í sínar hend-
ur og fengu nazistum í hendur
alla opinbera stjórn landsins.
Við þekkum allir hina hetju-
legu baráttu norskra verka-
manna gegn hinni nazistisku
villimennsku og þeirra stöðugt
aukna kraft í baráttunni gegn
öxulríkjunum. í nafni 6 milljón
verkamanna sendi ég stéttar-
bræðrum þeirra í Noregi kveðj-
ur.“