Alþýðublaðið - 01.06.1943, Qupperneq 2
2
Valgerðnr á Hðlanni lætur
a( störfum eftir 42 ár.
Sezt að í litlu sumarhúsi í túnfætinum.
Íslandsglímag fer
fram I kvðld.
ISLANDSGLÍMAiN fer
fram í kvöld, eins og
sagt var frá hér í blaðínu á
sunnudaginn.
Sú breyting hefir orðið á
þátttökunni, að Finnbogi Sig-
urðsson úr Ármanni getur
ekki verið með, þar sem hann
liggur nú rúmfastur í mis-
Iingum. Þá mun Ingólíur
Jónsson úr Umf. Dagsbrún
heldur ekki geta keppt. Hann
hefir enn ekki jafnað sig
eftir meiðsl, er hann hlaut í
flokkaglímu Ármanns á dög-
unum.
Glíman fer fram í íþrótta-
húsi Jóns Þorsteinssonar við
Lindargötu og hefst kl. 9
stundvíslega.
Túlinitisarmótið:
Leiknr VikiDgs gegn
fram dæmdnr ölðg-
legnr.
Fram og Valur keppa til úr-
slita í kvðid.
N ATTSP YRNURÁÐIÐ
dæmdi í gærkveldi leik
Antons Sigurðssonar með Vík-
ingi gegn Fram ólöglegan og
þar mejð leikinn tapaðan fyrir
Víking, þó að Víkingur hefði
unnið Fram með 1:0.
Úrslitakappleikurinn í Tuli-
niusarmótínu fer því fram í
kvöld kl. SV2 milli Vals og Fram
og bíða knattspyrnumenn með
óþreyju eftir úrslitunum.
Veizlan á Sólhaugum
eftir Ibsen verður sýnd í kvöld
kl. 8,30. Hefir þetta leikrit nú
verið sýnt nokkrum sinnum við
ágæta aðsókn og prýðisgóðar únd-
irtektir.
IDAG lætur Valgerður á
Kolviðarhóli af störfum
eftir 42 ára starf þar. Hún flyt
ur úr húsinu, sem hún hefir
stjórnað í sem húsfreyja í 38
ár — og sezt að í litlu sumar-
húsi í túnfætinum, skammt þar
frá, sem maðurinn hennar,
Sigurður Daníelsson hvílir í
heimagrafreit.
Nýir húsbændur taka nú við
heimilisstjórn á Kolviðarhóli,
sem nú er orðinn heimili æsku-
lýðsins í Reykjavík, vetur og
sumar, áfangi hans á leiðinni
upp um fjöll og firnindi.
Það er áreiðanlegt, að um
leið og Valgerður Þórðardóttir
flytur úr bænum sjálf, óskar
hún þess, að gæfa og gengi
fylgi Kolviðarhóli og öllum,
sem þar eiga að ráða húsum
— og þar muni koma á ókomn-
um' árum. Það er víst óhætt að
fullyrða það, að engir gest-
gjafar á Suðurlandi hafi verið
jafnvinsælir og þau hjónin
Valgerður og Sigurður, enda
hallaði aldrei orði í þeirra garð
frá neinum. Kolviðarhól hafa
gist tugir þúsunda manna —
og oft var Hóllinn athvarf
þreyttra og móðra langferða-
manna, sem brutust yfir fjall-
ið í gjörningaveðrum fyrr á
árum í atvinnuléit eða á leið
heim til bús síns — og hlýjar
hendur tóku alltaf vjð þeim á
hlaðinu á Hólnum.
Valgerður Þórðardóttir hefir
beðið Alþýðublaðið að færa
öllum, sem hún ’hefir kynnst á
undanförnum árum, hinar
beztu kveðjur sínar og heilla-
óskir. Það er og áreiðanlgt að
beztu óskir og þakklæti
streyma til hennar frá þeim
sem notið hafa hjálpar hennar
og gestrisni.
Valnr vann annars-
flokksmötið.
Jafntefli millf hans og Fram
í gærkveldi-
URSLITALEIKUR annars
flokks mótsins fór fram í
gærkveldi milli Vals og Fram.
Lauk honum með jafntefli, 0:0,
en Valur vann mótið á stigum.
Á undan átti að fara fram
leikur milli K. R. og Víkings,
en Víkingur mætti ekki til leiks.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Þriðjudagur 1. júhí 1943-
Einræði framleiðenda í MJólk~
nrsamsðlnnni fnllkomnað.
..—■ ■ ♦ ■
Neytendur sviftir öllum áhrifum á stjórn og
rekstur hennar.
Nýtt sðlasamlag stofnað
til að reka samsðluna.
ATVINNUMÁLARÁÐHERRA ákvað í gær, að afhenda
framleiðendum allan rekstur og stjórn Mjólkursamsöl-
unnar í Reykjavík. — Um leið eru neytendur sviftir öllum
áhrifum á stjórn og rekstur þessa fyrirtækis; en þeir hafa
þó hingað til haft 2 fulltrúa af 7 í stjórn samsölunnar.
Hafa mjólkurbúin stofnað nýtt sölusamlag og því verið
afhent Mjólkursamsalan til rekstrar.
Hin nýja stjórn Mjólkursamsölunnar er skipuð þessum
mönnum: Svein'birni Högnasyni alþingismanni, Agli Thor-
arensen kaupfélagsstjóra, Jóni Hannessyni bónda, Olafi
B jarnasyni bónda og Einari Olafssyni bónda.
Tilkynning atvinnumálaráð-
herra um þessa furðulegu
skiplagsbreytingu á Mjólkur-
samsölunni, sem mun hafa orð-
ið að samkomulagi milli Sjálf-
stæðisflokksins og Framsókn-
arflokksins, er svo hljóðandi:
„Fyrir nokkru síðan kallaði
atvinnmálaráðherra á sinn fund
nokkra menn af mjólkurverð-
lagssvæði Reykjavíkur til við-
ræðna um mjólkursöluna í
Reykjavík.
Síðar skrifaði ráðuneytið
stjórnum Mjólkursamlags Kjal-
arnesþings, Mjólkurbúi Flóa-
manna og Mjólkursamlagi Borg-
firðinga bréf, þar sem þess er
óskað, að fulltúar frá þessum
aðilum mættu hjá atvinnumála-
ráðherra 15. maí til þess að
ræða um rekstur mjólkurstöðv-
arinnar í Reykjavík.
Á þessum fundi hvatti at-
vinnumálaráðherra til þess. að
mjólkurframleiðendur tækju
stjórn Mjólkursamsölunnar í
sínar hendur, eins og ráð er
fyrir gert í lögum um meðferð
og sölu mjólkur og rjóma o. fl.
frá 1935. Að afstöðnum þessum
fundi var málið rætt á fulltrúa-
ráðsfundum í félagsdeildum,
sem að Mjólkursamsölunni
standa. og voru þar kosnir full-
trúar til að mæta á fundi, er
haldinn var s. 1. laugardag, 29.
þ. m. Atvinnumálaráðherra
setti þennan fund. Hvatti hann
bændur á verðlagssvæði
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar
til þess að mynda með sér fé-
lagsskap um stjórn Mjólkur-
samsölunnar Þannig væri hags-
munum þeirra bezt borgið.
Fundurinn setti samþykktir
fyrir Mjólkursamsöluna í
Reykjavík. Samkvæmt sam-
þykktunum er Sölusamlagið
stofnað samkvæmt lögum nr.
1/1935 um meðferð og sölu
mjólkur o. fl. Mjólkursamsöl-
unni ber að annast sölu og
dreifingu á neyzlumjólk, nýju
skyri o. fl. á verðjöfnunarsvæði
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar.
Eftirgreindir menn hafa ver-
ið kosnir í stjórn Mjólkursam-
sölunnar: Sveinbjörn Högnason,
Egill Thorarensen, Jón Hannes-
son. Ólafur Bjarnason og Ein-
ar Ólafsson.
Með bréfi dags. í dag hefir
atvinnumálaráðherrann sam-
þykkt, að sölusamlagið Mjólk-
ursamsalan í Reykjavík, sem
stofnað var 29. þ. m., taki við
stjórn og rekstri Mjólkursamsöl-
unnar í Reykjavík frá og með
1. júní að telja.“
Sænsk íslenzka frystihúsið;
1
Reykjavikorbær tapaði mál-
ino fyrlr klaofaskap.
Dómur lðgmannsins í Rvík s. 1. sunnudag
LÖGMÁÐURINN í REYKJAVÍK kvað upp dóm á laugar-
daginn í máli hafnarstjórnar Reykjavíkur gegn Sænsk-
íslenzka frystihúsinu. Höfðaði hafnarstjórn þetta mál sam-
kvæmt ályktun hæjarstjórnar Reykjavíkur til þess að fá
viðurkenndan forkaupsrétt Reykjavíkur að frystihúsinu.
Dómsniðurstöður undirréttar urðu á þá leið, að Reykja-
víkurhær tapaði málinu.
Aðalástæðan. fyrir því, að
bærinn tapaði málinu, var talin
sú. að það dróst svo lengi hjá
ráðamönnum bæjarins að gefa
ákveðin svör við því, hvort
Reykjavíkurbær ætlaði sér að
nota forkaupsréttinn.
Þrátt fýrir ítrekaðar fyrir-
spurnir eigenda frystihússins
um það, hvort bærinri ætlaði
sér ,að neyta forkaupsréttarins
samkvæmt mati dróst það i
marga mánuði að fá svarið.
Þetta mál var mjog mikið
rætt á sinni tíð. í fyrra haust
keypti h.f. Frosti frystihúsið,
en bæjarstjórn taldi, að eigend-
urnir hefðu brotið .leigusamn-
inginn við bæinn með því að
selja frystihúsið. Varð út úr
þessa deila ,en henni lauk að
nokkru með því að kaup h.f.
Frosta á eigninni gengu til baka
— og bærinn ákvað að neyta
forkauþsréttarins.
Eigendur frystihússins töldu
sig þá ekki viljá selja, en bæj-
Frh. á 7. síðu.
BjSronn ör elflsvoða. |
Herbileg björgnnar-
sýiiag Sjysavariafé-
lagsios.
Ný tæhi tii að bjarga fólki
úr eldsvoða.
Menn komu svífandi, sem í
lausu Íofti væru, eða
brunandi í segldúk ofan af
efri hæð Miðbæjarbarnaskól-
ans við björgunarsýningu þá,
sem Slysavarnafélagið gekkst
fyrir með aðstoð Slökkviliðs
Reykjavíkur síðastliðinn sunnu-
dag.
Fyrst var sýnt hvernig bjarga
má fjölda manns á skömmum.
tíma úr brennandi húsi. t. d.
skólum, sjúkrahúsum o. s. frv.,..
með því að koma fyrir i þar til
gerðri segldúksræmu. sem fest
er á króka innanvert v. glugga.
Slíkum útbúnaði var komið ■
fyrir á síðast liðnum vetri við-
nokkra glugga á efri hæð Mið-
bæjarbarnaskólans, og ættu.
fleiri skól'ar og sjúkrahús, sem.
byggð eru úr timbri, að gera.
slíkt hið sama.
Því næst var sjálfvirkur
björgunarkaðall sýndur í notk-
un. Menn smeygðu lykkju und-
ir hendur sér og stigu út um.
gluggann eins og fallhlífarher-
menn, hver á eftir öðrum, allir
í sama kaðlinum. Því þegar sá.
fyrsti lendir á jörðinni, er önn-
ur lykkja tilbúin fyrir þann
næsta og svo koll af kolli þar
til öllum er bjargað. Þetta er
merkilegt áhald, sem ekki hefir
sézt hér áður, en er mjög al-
gengt erlendis, einkum í gisti-
húsum, sjúkrahúsum, skólum
og einnig heimahúsum. Slysa-
varnafélagið eða deild þess, sem
annast slysavarnir á' landi.
hefir pantað þessi áhöld og mun:
geta útvegað þau enn þá, svo
að forráðarrienn fyrrnefndra
húsa ættu sem fyrst að afla sér
upplýsinga hjá. félaginu um
þessi ágætu áhöld, sem þegar
hefir fengizt reynsla fyrir að
geta bjargað fjölda mannslífa
á skömmum tíma, ef eldsvoða
ber að höndum.
Að lokum voru sýndir björg-
unarkaðlar með belti og hemli.
sem maður stjórnar sjálfur.
Þeir eru einfáldir og öruggir £
notkun og einkum ætlaðir til
notkunar í heirnahúsum, enda
Frh. á 7. síðu.