Alþýðublaðið - 16.06.1943, Qupperneq 2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Miðvikudagur 16. júní 1943»
- 17
Bonesteel kvaddi liðsfor^
ingja sína og kunningja í gær
Fjðlmennf boð fi miistöð ameriska raaða krof)sifiis
FJÖLDI HERFORINGJA úr liði bandamanna hér, er-
lendra sendi'herra, íslenzkra embættismanna, stjórn-
málamanna, fjármálamanna, verkalýðsleiðtoga og
blaðamanna var í boði Bonesteels hershöfðingja í miðstöð
ameríkska rauða krossins hér síðdegis í gær, þar sem hers-
höfðinginn kvaddi liðsforingja sína og aðra vini; en hann
er nú, sem kunnugt er, að fara héðan.
Charles H. Bonesteel
Bonesteel hershöfðingi hefir
nýlokið hálfs mánaðar eftirlits-
og kveðjuferð um herstöðvar
víðs vegar á landinu. Hafa hon-
um verið haldin fjöldamörg
kveðjusamsæti, meðal annars af
ríkisstjórninni í alþingishúsinu.
17. júní mótið:
Hjög fiðlbreytt ípróttakeppii á
jpróttavellinum á morsnn.
Björn Þórðarson forsætisráðherra tal~
ar af svölum alþingishússins.
ARMANN, K. R. og í. R.
sjá um hátíðahöld
íþróttamanna á morgun eins
og í fyrra, og verður hátíðin
mjög fjölbreytt og skemmti-
leg sem vænta mátti.
Hátíðin hefst með lúðra-
blæstri á Austurvelli kl. 2.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
þar í hálftíma eð aþar til kl. 2,30
en þá flytur foráætisráðherra,
Björn Þórðarson, ræðu af svöl-
um Alþingishússins. Að henni
lokinni, eða um kl. 2.45, ganga
íþróttamenn bæjarins fylktu
■ liði sfuður á íþróttavöll með
Lúðrasveit Reykjavíkur í
fylkingarbrjósti. Við kirkju-
garðinn verður staðnæmzt
skamma stund, meðan forseti
í. S. í., Benedikt G. Waage,
leggur sveig á leiði Jóns Sig-
urðssonar. Síðan verður haldið
áfram suður á völl .en kl. 3 set-
ur forseti í. S. í. mótið með
stuttri ræðu.
Því næst hefjast íþróttasýn-
ingar. Tveir fimleikaflokkar
munu sýna listir sínar. Fyrst
kemur fram flobkur frá K. R.
undir stjórn Jens Magnússonar,
en því næst flokkur frá Ár-
manni undir stjórn Jóns Þor-
steinssonar. Má þarna búast við
skemmtilegum sýningum, því
flokkarnir hafa æft vél undir
þessar sýningar.
Þá hefst keppnin í frjálsum
íþróttum. Koma þar fram sjö
íþróttafélög: Ármann, í. R.,
K. R., fimleikafélög Hafnar-
fjarðar Umf. Vaka, Knatt-
spyrnufélagið Hörður frá ísa-
firði og Knattspyrnufélag Vest-
mannaeyja. Þátttakendur eru
alls 45, auk 12 stúlkna úr K. R.,
Ármanni og í. R.
Þátttaka í hinum ýmsu grein-
um íþróttanna er sem hér segir:
í 100 m hlaupi eru 18 kepp-
endur. Meðal þeirra eru allir
úrslitamennirnir úr E.O.P.-mót-
inu, þeir Finnbjörn, Oliver,
Brynjólfur og Sverrir en auk
þeirra margir nýir menn, sum-
ir mjög efnilegir. Vafalaust
verður skemmtileg keppni milli
þeirra Olivers og Finnbjörns.
,í 800 m. hlaupi eru 9 kepp-
endur. þar á meðal íslands-
meistararinn Sigurgeir Axels-
son úr Ármanni. Skæðustu
keppinautar hans munu verða
félagar hans Hörður Hafliða-
son og Eggert Magnússon og
Brynjólfur Ingólfsson úr K. R.
Þarna er meðal þátttakenda
maður, se mhér er ókunnur. en
vert er að veita athygli. Það
er Þórður Þorgilsson úr Umf.
Vöku.
í langstökki eru 12 þátttakend
ur. Fremsta þeirra má telja
Oliver Stein og Sverri Emils.
son, en Skúli Guðmundssoon,
sem verið hefir í stúdentsprófi
að undanförnu, keppir einnig
og verður þeim eflaust skeinu-
hættur.
500 m. hlaupi eru aðeins 5
keppendur. Þetta er mjög óviss
grein, en líklegt að bardaginn
standi milli ÍR-inganna Sigur-
gísla Sigurðssonar og Jóhann-
esar Jónssonar og Vigfúsar Ól-
afssonar úr Vestmannaeyjum.
í hástökki eru 8 keppendur.
Má búast við skemmtilegu ein-
vígí í þessari grein milli þeirra
Olivers og Skúla, en Sigurður
Norðdahl úr Ármanni og Ing-
ólfur Steinsson úr Í.K eru
þarna einnig meðal þáttakenda.
í kringlukasti eru 8 - kepp-
endur. Þarna eigast aðallega
við Gunnar Huseby úr KR —
meistarinn — og Ólafur Guð-
mundsson úr ÍR — methafinn.
— Meðal þátttakenda þarna
er Erlingur Guðmundsson úr
Knattspyrnufélaginu Herði á
ísafirði. Verður gaman að sjá
hvað^hann getur.
í kúluvarpi eru aðeins 4
keppendur, sem er allt of lít-
ið. Huseby sigrar þarna auð-
veldlega. Erlingur reynir þar
einnig.
í 1000 m. boðhlaupi eru 7
sveitir á skrá, þrjár frá KR og
Ármanni og ein frá ÍR. Þetta er
óviss grein, en líklega stendur
keppnin milli Ármanns og KR.
1 80 m. hlaupi keppa 12
stúlkur, 4 frá hverju félaganna
( KR, Ármanni og ÍR. Stúlkurn-
ar úr KR og Ármanni eru
gamlir kunningjar frá E. Ó. P.
mótinu, en Í.R.-stúlkurnar hafa
ekki komið fram fyrr og verður
gaman að sjá til þeirra. Stúlk-
urnar keppa einnig í 5x80 m.
boðhlaupi. Verður gaman að
sjá stúlkurnar spretta úr
spori.
Loks keppa nokkrar stúlkur
í kassaboðhlaupi, sér og öðr-
Fxh. á 7. sííSu.
í samkvæminu í gær gekk
hinn hávaxni, silfurhærði hers-
höfðingi milli gesta sinna, þakk-
aði Islendingum góða samvinnu
við herinn, minntist vel unninna
starfa við liðsforingja sína eða
minntist skemmtilegra atvika
við ýmsa kunningja sína.
Á síðasta fundinum með her-
foringjaráði sínu fyrir nokkru
þakkaði Bonesteel þá hollustu
og starfsemi, sem allir meðlimir
hers hans hafa sýnt þann 21
mánuð, sem hann heíir verið
við stjórn hér á landi. „Þrátt
fyrir erfiðleika og þrautir, sem
við hefir verið að etja,“ sagði
Bonesteel, „sem Marshall hers-
höfðingi kallaði eitt erfiðasta
starf ameríkska hersins. hafa
allir meðlimir íslands-hersins
staðið sig hið bezta í hvívetna.
Þrátt fyrir óhagstæð veður-
skilyrði og miklar kröfur til
tíma og þolgæði ameríksku her-
sveitanna á íslandi, hafa þær
byggt upp öfluga bækistöð,“
hélt Bonesteel hershöfðingi á-
fram. „Tuttugu og fjórar stund-
ir á sólarhring, sjö daga vikunn-
ar hafa ameríksku hersveitirn-
ar á íslandi unnið eftir einkunn-
arorðum sínum: „Ávallt við-
búinn.“ Kveðja mín til þeirra
er þessi: Þið hafið lokið starfi
ykkar hingað til. Vel gert.“
Bonesteel hershöfðingi fer
innan skamms af landi burt og
tekur þá við nýju starfi, en ekki
hefir verið skýrt frá, hvert það
er. Hann hefir verið 39 af 58
árum ævi sihnar í hernum og
verið í þjónustu hans í Frakk-
landi, í fyrra stríðinu, á Hawaii-
eyjum og Filippseyjum. Faðir
hans og afi voru báðir herfor-
ingjar. útskrifaðir frá West
Point herskólanum; sjálfur lauk
Bonesteel þar námi 1908 og son-
ur hans útskrifaðist fyrir nokkr-
um árum. Er hann nú í hernum
í Norður-Afríku.
Bonesteel hershöfðingi hefir
unnið sér vinsemd og virðingu
allra, sem hafa kynnst honum
síðan hann kom hingað fyrir
tæpum tveimur árum.
Gullbringu- og Kjósarsýsla
höfðu áður lagt fram andvirði
eins herbergis í Nýja Stúdenta-
garðinum. Á nýafstöðnum sýslu-
fundum hefir verið samþykkt að
hvor sýsla fyrir sig eignist sitt
herbergi og verður herbergi Gull-
bringusýslu nefnt „Gullbringur"
en herbergi Kjósarsýslu ,,Esja.“
Knattspyrnan:
iknrejrringarnir
konn í gœrkveldi.
KNATTSPYRNUMENN-
IRNIR frá Akureyri komu
hingað til bæjarins í gærkveldi
og keppa þeir fyrsta leik sinn í
kvöld við Fram. Dómari verður
Guðmundur Sigurðsson og vara-
dómari Jóhannes Bergsteinsson.
Kl. 7,15 í kvöld verður keppt
í 3. flokks mótinu og keppa þá
Valur og Fram. Dómari verður
Þorlákur Þórðarson.
Hver hreppti
bílinn ?
DREGIÐ var í happdrætt-
inu um bíl frjálslynda
safnaðarins hjá lögmanni kl.
11 í gærkveldi og kom upp
númerið 18111.
Ekki var kunnugt í gær-
kveldi. hver það númer ætti
Fjdlbreytt kvöldvaka
Biaðanannafélagsins
BLAÐAMANNA-KVÖLD-
VAKAN í útvarpinu í
fyrrakvöld þótti að ýmsu leyti
nýstárleg. Hún gekk mjög fljótt
og rösklega, engar þagnir eðó
hlé komu fyrir í þessari fjöl-
þættu dagskrá, og má það telj-
ast sjaldgæft í útvarpi okkar.
Tólf blaðamenn komu þarna
fram og skemmtu.
Vafalaust má þakka góðum
undirbúningi það, hve dagskrá
in gekk greiðlega. Hver þátt-
takenda fékk í hendur fjölritað
heildarhandrit, þar sem allt tal-
að orð var skráð.
Jón Þórarinsson, fréttamaður
útvarpsins, var þulur.
Kvöldvakan hófst á því, að
Ragnar Jóhannesson flutti
„Minni prentlistarinnar“, kvæði
eftir Þorstein heitinn Gíslason.
skáld og ritstjóra. Síðan söng
Þorsteinn H. Hannesson sama
kvæði undir lagi, sem Jón Þór-
arinsson hefir samið. Þess skal
getið, að söngvarinn, Þorsteinn
Hannesson, hefir líka verið
blaðamaður, á Siglufirði fyrir
nokkrum árum. Skúli Skúlason,
formaður Blaðamannafélags ís-
lands, flutti ávarp. Hannes á
Horninu flutti þátt um daginn
og veginn. Jón Helgason sagði
stuttan ferðasöguþátt: „Hvíta-
Frh. á 7. síðu.
Sex málverbasýa-
iogar í haust og
vetur.
Um starfsemina í Sýninga-
skálanum.
Q EX MÁLVERKASÝNING-
k_t AR verða í sýningarskálan-
um næsta vetur, og standa ein-
stakir málarar fyrir þeim ölliun.
Hefjast þær ekki fyrr en í
september, þar eð málarar vilja
ekki halda sýningar yfir sum-
artímann. Þegar ekki eru sýn-
ingar í skálanum, verður hann
notaður til skemmtana og alls
konar fundarhalda. Hefir
Skemmtifélag Góðtemplara sem
kunnugt er leigt skálann til þess
að halda þar skemmtanir.
Skemmtifélagið og stjórn fé-
lags myndlistarmanna boðuðu
blaðamenn á sinn fund í gær og
skýrðu þeim frá rekstri skálans
og gerðu jafnframt grein fyrir
afstöðu sinni til þeirrar gagn-
rýni, sem skemmtistarfsemin í
skálanum hefir mætt. Jón Þor-
leifsson listmálari - sagði m. a.:
„Byggingin hefir orðið dýr, sem
vonlegt var, eins og allt er nú,
og farið fram úr áætlunarverði.
Við vissum fyrirfram, að ekki
var hægt að standa straum af'
húsinu eingöngu með sýning-
um, enda ekki not fyrir húsið*
allt árið til slíkra hluta. Það
gengi líka glæpi næst að láta
skálann standa ónotaðan einn
einasta dag, þar sem jafn mik-/
il vöntun er á samkomuhúsi
eins og nú er. Við höfum alltaf
ætlað okkur að lána húsið, þeg-
ar við þyrftum ekki að nota
það. Eftir nána yfirvegun á-
kváðum við að gera samning
við S.G.T., Skemmtifélag góð-
templara, um sameiginlegan
rekstur skálans. Þeir höfðu
góða reynslu fyrir skemmti-
starfsemi, og við treystum
þeim vel til að sjá um góða
reglu á samkomum og góða um
gengni um húsið. . . Við höfum
alltaf ætlað okkur að sjá um,
að Alþingi yrði ekki fyrir
truflunum af okkur. Þessvegna
völdum við það efni til innan-
hússklæðningar, sem útilokar,
að hljóðfærasláttur heyrist út
úr því, þegar það er lokað.“
Svaraði Jón frekar ýmsum
ásökunum, sem stjórnendur
^rh. á 7 *iðu.
Samkomnlag milli verðlagsstjóra
og kjóEaverkstæðanna.
Talið er að þau muoi vera \ þann
veginn að opna aftur.
.. ♦ . t,
SAUMAVERKSTÆÐIN, sem mynduðu félag með sér
af tilefni hinna nýju verðlagsákvæða viðskiptaráðs
fyrir tæpum mánuði — og lokuðu í mótmælaskyni, eru nú
í þann veginn að opna aftur.
Eins og kunnugt er, kærði
verðlagsstjóri saumaverkstæða-
eigendurna fyrir að neita að
selja birgðir og taldi það brot
á lögunum um verðlagsákvæði.
Sakadómari tók mál þeirra fyr-
ir, og er því ekki lokið enn.
í auglýsingunni um sauma-
laun kjólaverkstæðanna var
gért ráð fyrir því, að 1. flokks
saumastofur gætu samkvæmt
sérstakri umsókn fengið vinnu
sína metna sérstaklega, ef viss-
um skilyrðum væri fullnægt,
en engin saumastofa sótti um
það, heldur lokuðu margar
þeirra, svo sem kunnugt er.
Nú nýlega hafa þó þær
saumastofur, sem lokuðu, sent
umsókn til verðlagsstjóra um
mat á vinnu sinni og veitt hon-
um þær upplýsingar, sem hann
hafði beðið um. Verðlagsstjóri
samdi þá reglur um það, hvern-
ig þær skyldu haga verðlagn-
ingu sinni.
Telja má því víst, að kjóla-
saumastofurnar opni nú aftur,
og er deila þessi þar með úr
sögunni að öðru leyti en því, að
sakadómari á eftir að kveða upp
dóm sinn um það, hvort þáð
hafi verið löglegt að neita að
selja birgðir.