Alþýðublaðið - 16.06.1943, Side 5
JHiðvikudagur 16. júní 1943.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
5uíar em ósmeykir.
GEEININ, sem hér fer á
eftir, og er eftir Albin
Johnson, fjallar um Svía og
afstöðu þeirra til styrjaldar-
innar.
SVÍÞJÓÐ er orðin að lítilli
eyju, sem er umkringd
„vingj amlegum óvinum“, sem
henni geðjast ekki að. Enda þótt
styrjöldin sé ekki alveg á næstu
grösum, verður þess vart. Hern-
aðarflugvélar sveima yfir Stokk
hólmi, loftárásarskýíi óprýða
hina fögru garða. Rúðurnar í
borgunum á suðurströnd lands-
ins nötra af árásunum yfir Dan-
mörku, og fallbyssudrunur frá
Noregi bergmála í landamæra-
dölum Mið-Svíþjóðar.
Opinberlega lætur stjórnin í
veðri vaka, að hún geri ráð fyr-
ir að hægt verði að komast hjá
styrjöld, en allur viðbúnaður
hefur verið hafður, ef til kæmi.
iÞjóðin ann mjög ættjörð sinni.
Sérhver Svíi lítur svo á, að
ættjörð hans sé þess verð, að
hann verji hana og fórni sér
fyrir hana. Þetta er persónulegt
heimkynni hans. Landamærin
hafa staðið óhreyfð um margar
aldir, og fyrir 2000 árum hafa
forfeður hans 'ef til vill búið
þar sem hann býr nú.
Hlutleysisstefna Svíþjóðar í
styrjöld er ekki ný. í meira en
125 ár hefir þjóðin haldið vin-
áttu við öll önnur lönd, stór og
smá. Um þessar mundir er hún
-viðbúin að verja þetta hlutleysi
með öllu vopnavaldi sínu. Leið-
togar hennar hafa margoft lýst
þyí yfir, að þjóðin muni grípa
til vopna gegn hverjum þeim,
sem ræðst á sjálfstæði hennar
og lýðræðislega lifnaðarháttu.
Og Svíar geta barizt. Aðvitað
er ekki hægt að ljóstra upp
hernaðarleyndarmálum, en fá-
einna vikna kynni hafa sann-
fært mig um, að Svíar geta tek-
ið hraustlega á móti hvaða á-
rásarþjóð sem er.
Sérhver heilbrigður maður
milli 20 og 47 ára er viðbúinn
virkri herþjónustu. Skýrslur
sýna, að 95 af hundraði þeirra
manna, sem koma til herskrán-
ingar, eru fílhraustir menn.
Þessi furðulega tala sýnir heil-
brigða og starfsama lifnaðar-
háttu mann fram af manni. Frá
harnæsku iðka hérumbil allir
Svíar skíðaíþrótt, sund, þol-
hlaup og aðrar greinar úti-
íþrótta. Um hreysti Svía vitnar
„vetrarher“ þeirra, sem var að
æfingum mánuðum saman í
skógum Norður-Svíþjóðar í
miklu frosti, en engan einasta j
mann kól.
Hersveitirnar hafa verið æfð-
ar nákvæmlega í því að berjast
á sænskri grund. Þær færa sér
í nyt fenin, vötnin, hæðirnar og
skógana. Svíarnir hafa æft að-
ferðir og herbrögð, sem auka
styrk þeirVa um helming gegn
óvini, sem ekki er kunnugur
landi þeirra. ,
Herinn er vel vopnum búinn.
Svíar framleiða nú nægileg hrá
efni í hergögn allra tegunda
handa sjálfum sér. Þeir fram-
leiða flugvélar, skriðdreka, fall-
byssur, kafbáta og önnur her-
skip. Kostnaðurinn við undir-
búning varnanna mun á þessu
ári nema 16 sinnum meira en
hann nam 1939.
Bak við herinn stendur heima
varnarliðið, vel vopnað og vel
æft. Skotfélögin, sem ríkið
styrkir, telja meira en 300,000
meðlimi, og æfing þeirra er ekki
aðeins bundin við riffla.
Sænskar borgir eru eins vel
búnar undir leifturárás og borg-
ir Bretlands. Um 100,000 menn
hafa verið æfðir loftárásarverð-
ir, og um 800,000 konur hafa
lært hjúkrun. Loftvarnaskytt-
urnar hafa skotið niður meira
en 100 hernaðarflugvélar, sem
flugu þar yfir og skertu hlut-
leysi þjóðarinnar.
Þjóðin er fastákveðin í því
að gefast aldrei upp. Forsætis-
ráðherrann, Per Albin Hansson,
gerði allan heiminn undrandi,
þegar hann skýrði þinginu frá
hinum óafturkallanlegu skipun-
um til hersins um að gefast al-
drei upp. Foringjum og óbreytt-
um hermönnum hefir verið
skipað, ef innrás verður gerð,
að berjast og halda áfram að
berjast, hvað sem í skerist. Þeir
eiga að óhlýðnast skipunum um
að hætta að skjóta, hvaðan sem
þær berast, svo lengi, sem nokk
ur óvinur stendur á sænskri
grund. iSérhver skipun um
uppgjöf muni vera fölsuð.
Þannig gerir Per Albin ráðstaf-
anir gegn fimmtu herdeildar
mönnum, sem gætu náð á sitt
vald opinberum byggingum í
innrásar styr j öld.
Síðan alþjóðaviðskipti lögð-
ust niður að mestu vegna styrj-
aldarinnar, nema milli þeirra
landa, sem möndulveldin ráða
yfir, hefir þjóðin orðið að sjá
mörgu á bak, einkum kolum og
bensíni. Þá sneru Svíarnir sér
til skóganna sinna. Viðurinn
vermir íbúðirnar, og það er
notaleg hlýja, vélknúin farar-
tæki brenna viðarkolum og
jafnvel viðarbútum. Það tekur
ekki nema mínútu að hita vél-
ina og vagninn getur farið með
Konungshöllin í Stokkhólmi. ..
40 mílna hraða á klukkustund
með þessu eldsneyti.
Þjóðardrykkur Svía, ákavíti,
er nú bruggaður úr cellulose-
sykri í stað korns og kartaflna.
Hömlur á . innflutningi hafa
orsakað verðhækkun og launin
hafa ekki verið í samræmi við
verð á lífsnauðsynjum. Almenn-
ingur gerir allt sem í hans valdi
stendur til að hjálpa stjórninni
að firrast fjárhagslegu hruni.
Hann hefir tekið háum skött-
um með þögn og þolinmæði.
Stjórnin hefir strangt eftirlit
með vöruverðinu.
Enda þótt 70 prósent af mat-
vælum séu skömmtunarvörur,
hefir fólk nóg að borða og hefir
nægileg bætiefni. Höfuðréttur
hverrar máltíðar eru kartöflur,
og þær eru ekki flysjaðar, áður
en þær eru soðnar.
Tóbak er sjaldgæft í Svíþjóð
nú á dögum. En Svía henti happ
fyrir ekki alllöngu síðan, þegar
þeir fengu allmiklar birgðir af*
vindlingum frá Þýzkalandi.
Þegar búið var um vindlingana,
höfðu Þjóðverjar verið mjög
bjartsýnir og prentað orðið
„Cairo“ á hvern pakka. En
Rommel hepnaðist ekki að
leggja Egyptaland undir sig,
svo að ' Svíar fengu birgðirnar.
Það hefði nefnilega ekki verið
heppilegt að selja vindlinga
með nafninu „Cairo“ á pökkun-
um í Berlínarborg.
Svíar hafa .gert allt, sem í
þeirra valdi stendur til þess að
hjálpa hinum ógæfusömu ná-
grönnum sínum. Þeir hafa tek-
ið um 30.000 veikra og soltinna
finnskra barna og hjúkrað þeim
og hjálpað þeim til heilsu.
Sennilega eru norsku flótta-
mennirnir, sem til Svíþjóðar
hafa komizt, um 10,000. Rauði
kross Svíþjóðar bauðst til að
útvega ótakmörkuðum fjölda
norskra barna heimili, en Quis-
lingar vildu ekki leyfa það.
Svíar eru hlutlausir í styrj-
öldinni, en um 95 prósent
þeirra, að minnsta kosti, óska
bandamönnum sigurs. Þeir líta
svo á, að frelsi, jafnvel frelsi
annarra, sé þess virði, að fyrir
það sé barizt.
Höfuðverkefni stjórnarinnar
um þessar mundir er að forða
þjóðinni frá þýzkri innráíj. Allt
um það er hún djörf gagnvart
hinum stríðandi nábúaþjóðum,
Þjóðverjum og Rússum.
Svíar hafa mikla samúð með
Finnum. og Norðmönnum, og
þeir unna lýðræði og frelsi.
Varla líður svo dagur, að
sænska utanríkismálaráðuneyt-
ið fái ekki kvörtun frá þýzka
sendiherranum út af hinu eða
öðru. En Svíar láta það sem
vind um eyrun þjóta, og í Sví-
þjóð er ekkert eftirlit haft með
erlendum fréttamönnum.
Jafnvel á hinum erfiðu tím-
um, sem nú stánda yfir, virðast
Svíar lifa samkvæmt setning-
unni: „Gott er þar að lifa, sem
leyft er að segja að, stjórnin sé
vond“. Og þann rétt hafa Svíar
enn í dag; en einnig réttinn til
þess að segja, að nazismi, fasismi
og kommúnismi séu ekki bein-
línis í samræmi við hugmyndir
þeirra um réttlæti og lýðræði;
og þann rétt nota blaðamenn
og stjórnmálamenn Svía sér af
fullri djörfung.
Hún var byggð á síðari hluta 18. aldar, á stjórnarárum Gustafs III.
Sendifulltrúi Svía
/ O. Johanson og kona hans
taka á móti gestum í dag milli
kl. 5—7 e. h. vegna 85 ára afmæl-
is Gustafs V. konungs.
Alþýðubrauðgerðin í Reykjavík
hefir sent stjórn Bálfarafélags-
ins 1000 krónur að gjöf til bygg-
ingar bálstofu í Reykjavík.
85 ára í dag.
Gustaf Svíakonungur.
Annar bifreiðastjóri um veginn austur. — Það, sem
stjórnin á að sjá um. — Ungar stúlkur skrifa um
Safnahúsið. — Húnvetningur gerir fyrirspurn og sendir
vísur. — Um lögin við „íslands hráfnistumenn“.
A*
NNAR BIFREÍÐARSTJÓRI“
skrifar :„Eg þakka þér fyrir
pistilinn þinn á laugardaginn um
veginn austur. Það var engin van
þörf því að minnast á það mál.
Ég vil Ieyfa mér að benda á eitt
til viðbótar. Ríkisstjórnin hefir
gefið út margar áskoranir til bif-
reiðaeigenda um að spara hjólbarð
ana og jafnvel gefið þeim leiðbein
ingar um hvernig bezt sé að verja
þá sliti. Um þetta er ekkert nema
gott að segja. En leyfist mér að
spyrja: Getur ríkisstjórnin ekki
gert mestu sparnaðarráðstafanirn-
ar sjálf?“.
„VISSULEGA getur hún það með
því að sjá svo um, að það verk,
sem hún á að sjá um, sé af hendi
leyst, og það er að gera allt, sem
í hennar valdi stendur til þess að
gera vegina færa. Þetta er látið
undir höfuð leggjast. Vegurinn
austur yfir fjall, fjölfarnasti veg-
ur landsins, er þar gleggsta dæmið.
Hvað hefði til dæmis verið hægt að
spara mikið gúmmí og benzín að-
eins yfir hvítasunnuna með því
að vera búið að laga veginn?“
ÞRJÁR REYKJAVÍKURSTÚLK
UR skrifa mér um Safnahúsið. Þær
eru óánægðar með útlit þess. Þær,
þakka það sem gert hefir verið til
að prýða umhverfi þess, en segja
að útlit húSsins sjálfs sé svo slæmt
að engu tali táki. Oft hefir ver-
ið talað um þetta, ég held á hverju
vori og oft hefir húsið verið „hvítt
að“. En það fýkur strax af, líkast
til ekki gert á réttan hátt.
GAMALL HÚNVETNINGUR
sendir mér eftirfarandi: „Á fremstu
síðu eins Reykjavíkurblaðsins stóð
nýlega svofelld auglýsing: Málara-
sveini vantar herbergi. ..“ o. s.
frv. Ekki getur þú sagt mér, Hann
es minn, hvort honum hefir fengið
því“. — Nei því miður. Ég hefi
ekki fylgst með því máli.
SVO SENDIR HANN mér líka
þessar vísur:
„Þó að kaldir vorsins vindar
veki hugarstríð,
lítum hærra, ljósir tindar
lofa betri tíð.
Fullur vissu færðu í letur
frjálsan vonarmátt.
Eftir sérhvern voðavetur
vermir sumar brátt.“
NORÐLENSKUR SJÓMAÐUR“
segir í bréfi: „í pistlum þínum hér
í blaðinu á fimmtudag gerir þú
sjómannasöngin að umtalsefni. —•
Hvernig var þetta nú hérna um ár-
ið? Komu ekki til álita ein 30 lög
eða fleiri við „íslands Hrafnistu-
menn“, verðlaunkvæði Arnar Arn
arsonar? Eg man ekki betur en
nokkur þeirra hafi komið út á
prenti, og sum verið flutt opinber-
lega. T. d. var í öðru sjómanna-
blaðinu prentað lag Þórarins •
Guðmundssonar. Lög Hallgríms
Helgasonar, Árna Björnssonar, Sig
valda Kaldalóns o. fl. hafa líka ver
ið gefin út“.
«
„ER EKKI HÉR á ferðum verk-
efni til athugunar? Kom ekki til
álita dómnefndar annað en þetta
eina? Ég hef engan af stéttarbræðr
um mínum hitt, sem heldur, að lag
Emils Thoroddsens, sem valið var,
verði nokkurntíma sungið almennt
af sjómönnum. Á hinn bóginn virð
ast allir ánægðir með kvæði Arnar
Arnarsonar“.
Kaffistell
^ fyrir 6, hvít, á 60 kr.
^ fyrir 12, hvít, á 90 kr.
^ Matarstell,
^ hvít, fyrir 6 og 12.
^ Eirniig ódýr vatnsglös,
S Glerskálar, Vasar,
^ Sykursett, Kökuföt o. fi.
^ Sférla* speglai*
; nýkomnlr.
\k. Einærsson
s
s
& BJHrasson
|Kanpnm tuskur
^ hæsta verði.
Búsoaonavinnustofan
Baldursoötu 30. ■