Alþýðublaðið - 25.06.1943, Síða 2

Alþýðublaðið - 25.06.1943, Síða 2
ALÞÝÐUBLAÐIP Föstudagur 25. júní 1943> Myndin sýnir bátaþilfarið allt sundurskotið og brunnið eftir eldinn, sem upp kom, en að endingu tókst að slökkva. iii. .... ........... ... ■ Samtoandsmálift: ■ Danir óska viðræðna og sam komulags að norrænum sið. Súðin eftir árásina. Bréf, sem Ludvig Bubl fyrrverandi forsætisráð- berra Dana skrilaðl fslenzku rfkisstjórnlnul um málið f iyrrahaust, nú birt í dðnskum blððum. FREGNIR hafa nýlega borizt hingað frá Danmörku um það að 'sambandsmálið hafi upp á síðkastið vakið all- miklar blaðaipnræður þar og raunar víðar á Norðurlöndum. Meðal annars, sem fram hefir komið í dönskum blöðum um þetta mál, er greinargerð eða tilkynning frá dönsku stjórninni 29. apríl síðastliðinn. Er þar upplýst, að 30. sept- ember í fyrrahaust hafi Ludvig Buhl, þáverandi forsætis- ráðherra Danmerkur ,skrifað íslenzku stjórninni bréf um afstöðu dönsku stjórnarinnar til sambandsmálsins og er bréf þetta í fyrsta sinn birt opinberlega í greinargerðinni. Skorað á Sigurð skóla- meistara áð starfa áfram við Akureyrar- skólann. Fundur menntaskóla KENNARA, sem nú situr á Akureyri, hefir eindregið skorað á Sigurð Guðmundsson skólameistara að starfa áfram, Jiótt hann nái brátt 65 ára aldri. Pálmi Hannesson rektor las einnig upp sams konar áskorun frá þingmönnum. Meðal annarra mála, sem fundurinn fjallaði um, voru launakjör stéttarinnar og kröf- ur til stúdentsprófs. Ályktaði fundurinn, að ekki mætti á neinn hátt draga úr kröfum til stúdentprófs frá því, sem nú er. Stjórn félags Menntaskóla- kennara er annað árið á Akur- eyri og hitt í fteykjavík. Hin fráfarandi stjórn var nylíra og var því nú kosin stjórn úr flokki sunnanmanna. Formaður var .kosinn Kristinn Ármannsson, yfirkennari, ritari Ingvar Brynj ólfsson og gjaldkeri Sigurkarl Stefánsson. Dansleik heldur U.M.F.R. í Listamanna- skálanum í kvöld kl. 10. Aðgm. á staðnum eftir kl. 6. 75 ára er Gísli Kristjánsson, Vesturg. 57, í dag. Fluttist í bæinn 1907. Trésmiður að iðn. Vökumaður í Geysi síðustu árin.‘ Hér á landi hefir ekkert heyrzt opinberlega um þetta bréf fyrr en síðastliðið laugar- dagskvöld, að það var lesið upp í ríkisútvarpinu hér í frétt- um frá Danmörku. Hafa Al- þýðublaðinu síðan borizt marg- ar áskoranir um að fá þetta bréf til birtingar, ef unnt væri, og hefir fréttastofa ríkisútvarps ins nú góðfúslega gefið blað- inu kost á því. Fer fréttin, sem lesin var upp í ríkisútvarpinu á laugardagskvöldið, ásamt bréfi Buhls, hér á eftir: ,,Hinn 29. apríl fluttu dönsk blöð eftirfarandi tilkynningu frá danska forsætisráðuneyt- inu: Forsætisráðuneytið birti á sínum tíma samþykktirnar, sem alþingi íslands gerði 17. maí 1941 um þær fyrirætlanir ís- lendinga, að slíta sambandinu milli Danmerkur og íslands, svo og þau bréíaviðskipti orð- rétt, sem fram fóru milli for- sætisráðherrans og hins íslenzka sendifulltrúa hér í tilefni af þeim samþykktum. Þær fregn- ir, sem nú hafa birzt í blöðun- um um þróunina 1. afstöðu ís- lands til sambandslaganna, gefa forsætisráðuneytinu tilefni til j að upplýsa, að danska stjórnin og íslenzka stjórnin skiptust á skoðunum um þett mál haustið 1942 og að Buhl forsætisráð- herra afhenti íslenzka sendifull- trúanum þá, 30. september 1942, eftirfarandi orðsendingu sem svar við tilkynningu sendi- fulltrúans um það, að alþingi hefði kosið fimm mann nefnd til þess að gera tillögur um breytingu á stjórnarskrá ís- lands: Bréf Lndvigs Buhl. ,,Þér hafið í bréfi dags. 24. f. m. samkvæmt fyrirmælum for- sætis- og utanríkismálaráðherra íslands, Ólafs Thors, skýrt mér frá undirbúningi íslendinga að breytingum á stjórnárskipun ís- lands og því sambandi, sem verið hefir við Danmörku. Þér hafið því næst í bréfi dags. 9. þ. m. skýrt mér frá símskeyti íslenzku stjórnarinnar 5. þ. m. til sendiráðs íslands í Stokk- hólmi og enn fremur í bréfi dags. 14. þ. m. látið mig vita um frumvarp það til laga um Frh. á 7. síðu. Ferðafélaglð fer átta sumarleyfisferðir fifár. SUMARLEYFISFERÐIR Ferðafélags íslands hefjast n.ú upp úr mánaðarmótunum. Fyrstu ferðinni er heitið til Mývatns, Dettifoss og Ásbyrgis. Hefst hún 3. júlí. Alls er fyrirhugað að fara 8 sumarleyfisferðir í sumar, og eru þær þessar: Átta daga ferð að Mývatni, Dettifossi og Ásbyrgi. Verður fargjaldið í þeirri ferð ekki nema 20 krónum hærra en í fyrra, þrátt fyrir verulega hækkun á öllum fargjöldum með bifreiðum. — Sjö daga ferð til Breiðafjarðar. Lagt af stað 10. júlí. Þá leið hefir Ferðafélagið ekki valið fyrr. Farið verður til Stykkishólms um Borgarnes og þaðan sjó- leiðina yfir þveran Breiðafjörð. Síðan verður dvalið í tjöldum í skóginum í Vatnsdal og farið þaðan 1 gönguferðir, m. a. að Dynjanda í Arnarfirði. Heim- leiðis verður farin landleiðin frá Kinnarstöðum. — Sjö daga ferð upp á Kjöl og í Kerlingar- fjðll. Lagt á stað 17. júlí. Þessi íerð veröur farin á hestum. —■. Átta til níu daga ferð á hestum úr Þjórsárdal norður að Arnar- felli mikla og þaðan um Kerl- ingarfjoll til byggða. Ferðin hefst 24. júlí. — Tíu daga ferð í Öræfi. Lagt af stað 21. júlí. — 3. júlí verður farið með deild Ferðafélagsins á Akureyri inn í Herðubreiðarlindir og Öskju. — Fjögurra daga ferð austur í Skaftafellssýslu. Hún hefst 7. ágúst. — Um miðjan ágúst hefst svo síðasta sumar- leyfisferðin. Það er önnur Breiðafjarðarför, sem stendur yfir í 5—6 daga. Ráðgerðar hafa verið 20 ferð- ir um helgar á vegum Ferðafé- lagsins. Er búið að fara sex þeirra, en ein hefir fallið niður. Miklir örðugleikar eru á því að afla fararkosts til þessara ferða. Hefir Ferðafélagið mik- inn hug á að eignast sjálft lang- ferðabifreiðar strax og tök eru á. Mundi það greiða mjög fyr- ir starfsemi félagsins. Laidgnét U. N. F. í. á Hvaflieyri. 117|[KIÐ ÍÞRÓTTAMÓT fer ■*- fram á Hvanneyri um helgjina, og eir það landsmót ungmennafélaganna. Um 125 íþróttamenn úr 12 ungmenna- félögum og samböndum víðs vegar um landið taka þátt í mótinu og fara fram keppnir í mörgum íþróttagreinum. Auk einstaklingskeppna í frjálsum íþróttum og sundi verða leikfimissýningar ýmissa flokka frá Stokkseyri, Skeið- um og úr Borgarfirði. Þá verð ur síðast en ekki sízt glíma. Aðalverðlaun mótsins eru far- andskjöldur, sem það héraðs- samband, sem flest stig hlýtur, fær. Þá eru fern önnur merk verðlaun, en það eru silfurbik- ar til handa þeim, sem flest fær stigin, annar silfurbikar fyrir bezt afrek í sundi, en silfurbik- ar fyrir glímusigur og loks skjöldur fyrir stig í frjálsum íþróttum Meðal ræðumanna á mótinu er sér Eiríkur Eiríksson, Bjarni Ásgeirsson, Þorsteinn Einars- son íþróttafulltrúi. Guðmund- ur Ingi skáld les upp o.fl. Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína Gyða Hansdóttir, Baldursgötu 27, og Ólafur Eyjóífsson, Veghúsa- stíg 1 A. Bærloo teknr lái til Mitaveitonaar. Húseigendor grelða bostnað- inn á fimm úrum. LANDSBANKINN hefur nú fallizt á að lána Reykja- víkurbæ 3.750.000 krónur til fimm ára vegna innlagna hita- veitunnar. Var frá þessu sagt á síðasta fundi bæjarráðs. Bærinn mun sem kunnugt er annast innlagningu hitaveit- unnar, sem hver húseigandi á að greiða kostnaðinn við inn- lagningu í sitt hús. Mun bærinn taka fimm ára skuldabréfin af húseigendum, ef þeir vilja, og á Landsbankinn að fá skulda- bréfin að handveði fyrir láninu. Gefst húseigendum þannig kostur á að greiða kostnaðinn við innlagningu hitaveitunnar í hús þeirra á fimm árum, ef þeir ekki vilja greiða hann strax. Framarar fara til Akureyrar. Knattspyrnufélagee> FRAM fer til Akureyrar í næsta mánuði. Hefur íþrótta- ráð Akureyrar boðið félaginu að senda meistaraflokk sinn norður til þess að leika við Akureyringa á heimavelli, en reykvíkskir knattspyrnumenn hafa löngum fundið, að þeir eru harðir heirn að sækja. Framarar fara sennilega 9. júlí og verða 8—10 daga nyðra. Er ekki ákveðið, hversu marga leiki þeir keppa, eða við hverja, en sennilegt er, að þeir leiki tvisvar eða þrisvar við úrvals- lið Akureyringa, eitthvað svip- að því, sem hér er nú. Ragnar Lárusson verður fararstjóri, en alls fara 18 menn„ SUNDHÖLLINNI verður lokað um hálfs mánaðar tíma í sumar. Verður þá aðal- salurinn málaður, enda mun þess full þörf, þar eð hann hefur ekki verið málaður síðan höllin var opnuð. Meðan á máluninni stendur mun allt starfsfólk Sundhallar- innar fá sumarleyfi í einu. ðkflreyrjDgornir sigr flðn K. B. með 4:1 8LEIKUR íslandsmótsins • fór fram í gærkvöldi á milli Akureyringa og K. R. Sigruðu Akureyringar með 4 gegn 1. Þetta var síðasti leikur þeirra á mó.tinu. og héldu þeir heimleiðis kl. 7 í morgun.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.