Alþýðublaðið - 21.07.1943, Síða 3

Alþýðublaðið - 21.07.1943, Síða 3
Bfíðvikudagur 21. júli 1943. ALÞYÐUBLAÐIS » * 'S s s s * I s $ I ( HITLER OG MUSSOLINI HITT* AST A NORÐUR-fTALÍU LONDON í gærkvöldi. ÞAÐ hefur verið opinherlega tilkynnt í Berlín, að þeir Hitler og Mussolini hafi hitzt í borg einni á Norður- Ítalíu. Tilkynningin var afar fáorð, aðeins, að þeir hefðu rætt hernaðarleg mál. Fundur þeirra einræðisherranna var á mánudag, svo að Mussolini hefur verið hppinn að vera fundarins vegna ekki í Róm, því að árásin mikla var gerð á borgina þann sama dag. Hitler ferðaðist loftleiðis og hafði með sér nokkra af herforingjum sínum. Viðræðumar stóðu nær allan daginn. Þegar þeir félagar hittast venjulega, er mikið orðaskrúð um innleik, samvinnu, vináttuhönd og áætlanir þeirra, en að þessu sinni var öllu slíku sleppt. Ekki er ósennilegt, að Hitler hafi þótt þörf á að stappa stálinu í Mussolini. Loftárás á Horeleyjar. Fyrsta árásm á Norður- Japanseyjar NEW YORK í gær. MERÍKSKAR flugvélar hafa gert fyrstu árás sína á herstöðvar Japana á Kurel eyjunum, sem liggja norður af sjálfum Japanseyjum, allt norð ur undir Kamsjatlca skagann. Það voru Liberator sprengju- flugvélar, sem bækistöð hafa á Attu í Aleuteyjum, sem árás þessa gerðu. Aðalárásin var gerð á Para- inushir flotastöðina, sem er á samnefndri eyju skammt sunn- an við odda Kamsjatkaskagans. Komu þar upp nokkrir eldar, en enn fremur var sprengjum varpað á japönsk skip, sem voru á siglingu í sundunum við eyna. Flugleiðin frá Attu til Para- mushir er um 1200 km., en frá Paramushir suður til Tokio er yfir 2000 km. eða álíka og frá Reykjavík til Kaupmannahafn- ar. Bndaríkjamenn tóku Attu fyrir nokrrum dögum síðan úr höndum Japana og hafa því ekki beðið boðanna með að taka flugvelli eyjarinnar í notkun. ÆVINTÝRI NORÐMANNSINS Charleston, South Carolina. — Á meðal 70 manna, er björg- uðust af skipi, sem varð fyrir tundurskeyti frá þýzkum kaf- báti á Atlantshafinu, var Al- fred M. Evjenth, 58 ára gamall Norðmaður. Lenti hann á ein- kennilegan hátt á þilfari kaf- bátsins, sem sökkti skipinu. ,,Við gátum ekki komið í veg fyrir árekstur," segir hann. .Kafbáturinn rak stefnið í bóg- inn á björgunarbátnum. En ég kastaðist yfir á framþilfarið á kafbátnum. Það var vott af ol- íu og vatni. Eg rann út af því og slapp með naumindum við að lenda í skrúfunni.“ — Fé- lagar Evjenth náðu honum upp í bátinn. Honum hafði lítið orð- ið meint við þetta. 8. herinn býr sig undir að gera lokaárás á Catania. Kanada- og Bandaríkja~ menn nálgast Enna. ♦ .... Hörð andstaða Þjóðverja á Mið-Sikiley LONDON í gærkvöldi. ÞAÐ ER HLÉ á stórorrustum við Catania. Þjóðverjar vita af gamalli reynslu frá Afríku, hvað það þýðir. Mongomery er að búa sig undir lokaáhlaupið á borgina, áhlaup, sem Þjóðverjar sýnilega óttast. Sterkar könnunar- sveitir úr brezka hernum eru á ferli við varnarlínu Hermann Görings hersveitanna, sem reyna af kappi að hefja gagn- áhlaup til þess að tefja eða koma í veg fyrir lokaáhlaup Breta. fiiraid koniinn til Bretlands LONDON í gærkveldi. GIRAUD hinn franski kom til Bretlands í dag. Margt manna var við, er hann steig út úr flugvél sinni, þar á meðal fulltrúar Churchills og fleiri háttsettra manna. Giraud mun ræða við marga herleiðtoga Breta. Á morgun verður mikil her- sýning fyrir Giraud, er hann fer til aðalherstöðva Frakka í London. Ameríkskar og kanadiskar hersveitir nálgast nú Enna á miðri Sikiley, en það er ein mikilvægasta samgöngumiðstöð eyjarinnar. Fréttir, sem birtar voru í gær um að borgin væri þegar fallin, voru ekki réttar. Þýzka 15. vélaherfylkið hef- ur átt í hörðum bardögum við kanadisku hersveitirnar á mið- hluta eyjarinnar, en ekki tekist að stöðva framsókn þeirra. Þessi 15. hersveit er hálfgerð draugasveit því að 15. véla- hersveit þýzka hersins var ger- eyðilögð í Túnis, en hefur nú í skyndi verið endurreist. Þegar Bandamenn hafa náð Enna á sitt vald, hafa Möndul- herirnir aðeins eina góða sam- gönguleið við Vestur-Sikiley en það er meðfram norður- strönd eyjarinnar, norðan fjall- garðsins, sem er eftir henni endilangri. Síðast, þegar til fréttist áttu framvarðsveitir 18 km. eftir ófarna til Enna. Fangar eru stöðugt teknir hundruðum saman og veita ' litla andstöðu, Sérstaklega ber mikið á þessu á herstöðvum 7. hersins, en þar er minnst um Þjóðverja .Hefur borið mikið á uppreisnum í ítölskum hersveit- um, sem hafa þýzka herforingja 'Hafa Italarnir víða skotið þýzku foringjana og gefizt upp. Banda menn hafa enn tekið ítalskan herforingja á Sikiley, og er það hinn fjórði. sem gengur þeim á hönd. Brezkt beitiskip hefur skotið af fallhyssum sínum á Catania og var skothríðinni beint gegn jámhrautastöð horgarinnar. Hergögn og liðsauki streym- ir yfir fjöllin milli Augusta og Catania og ganga í lið 8. hersins við Catania. LOFTÁRÁS Á MALTA. Þjóðverjar og ítalir hafa gert harða árás á Malta. Er það harð- asta árás, sem gerð hefur verið á eyna síðan í fyrra. TJÓN í RÓM. Myndir, sem teknar hafa verið af Róm úr lofti sýna, að tjón hefur orðið gífurlegt, er 500 flugvélar köstuðu um 1000 smálestum af sprengj- um á hina sögulegu borg. Myndirnar sanna, að ekkert tjón varð á menningarverð- mætum. Hinsvegar eru San Lorenzo járnbrautastöðin í Bardagar hefjast Donetzhéruðunnni Rússar taka Misensk, mikilvœga virkisborg norðan við Orel. LONDON í gærkvöldi. D ÚSSAR TILKYNNTU í GÆR, að bardagar hefðu brot- izt út í Donetzhéruðunum og búast hætti við stórorr- ustum þar um slóðir. Rússneskar hersveitir hafa' brotist yfir efri-Donetz á tveim stöðum, sunnan við Izyum og suðvestan við Voroshilovgrad. Nánari fregnir hafa enn ekki borizt af þessum vígstöðvum. Við Orel hafa Rússar unnið mikinn sigur með því að taka virkisborgina MTSENSK, sem er 45 km. norðaust- an við Orel og liggur við járnbrautalínuna og þjóðveginn milli Orel og Moskva. Við Orel sjálfa er nú bersýnilegt, að ætlun Rússa er að umkringja borgina, og miðar þeim hægt en örugglega áfram. Þeir hafa sótt fram 5—7 km .allt í kringum borgina. Norðan við Orel hafa her- sveitir Rússa tekið 30 byggða staði til viðbótar og eru nú að- eins 10 km. frá hinni mikil- vægu járnbrautarlínu milli Orel og Bryansk, en eftir þeirri leið fara allar birgðir og liðs- auki til setuliðsins í Orel. Væri það Þjóðverjum hinn mesti hnekkir ef Rússar ryfu þá leið. Austan við Orel hafa Rússar enn tekið 20 byggða staði og þar á meðal nokkur allstór þorp. Þýzkum gagnáhlaupum hefur verið hrundið. Sunnan borgarinnar sækja hersveitir Timoshenkos að því að draga saman háfinn um Orel og munu nú aðeins 75 km. milli hersveita Rússa norðan og sunnan við fleyginn. Það er nú talið víst, að setulið Þjóðverja í Orel sé um 250 000 manns og sést bezt á því, a ðþýzka her- stjórnin hefur í hyggju að halda þessu mikla virki eins lengi og hægt er. Þjóðverjar rústum og stendur þar ekki steinn yfir steini. Járnbrauta lest hlaðin skotfærum var í stöðinni og sprakk hún í loft svo að tjónið- varð miklu meira fyrir bragðið. hafa viðurkennt, að þeir eigi á þessum slóðum í hörðustu varnarbardögum, sem þeir hafa háð, síðan Rússlanðs- styrjöldin hófst. Fleiri og meiri innrásir. Ræða Ernst Bevins* LONDON í gær. ERKAMÁLARÁÐHERRA Breta, Ernest Bevin, hefir komizt svo að orði í ræðu, að gerðar muni verða stærri og meiri innrásir en Sikileyjarher- förin. Hann var að ræða um skort þann, sem er á námu- mönnum í Bretlandi um þessar mundir, sérstaklega í kolanám- unum. Bevin sagði, að nú væru um 690 000 manns í brezku nám- unum, en þeir yrðu að verða 720—750 000, ef ekki ætti að verða skortur á kolum. Hann kvað kolaskort vera það eina, sem gæti frestað algerum sigri Bandamanna, en þörfin fyrir kol mundi aukast gífurlega, þegar hinar seinni og meiri inn- rásir yrðu gerðar.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.