Alþýðublaðið - 29.07.1943, Síða 2
Fimmtudagur 29. júlí 1943»
-----------------,-----------
Mðlaferli út a!
kanpi 14 -16 ára
noylioga.
AlÞýðusambaodið iiofðaði
málið og mm pað.
IVT ÝLEGA hefir félags-
' dómur kveðið upp dóm
í máli, sem reis út af tíma~
vinnukaupi unglinga, 14 og
16 ára að aldri.
Alþýðusambandið hóf mál
þetta fyrir hönd Verkalýðs-
félags Árnesshrepps gegm
Vinnuveitendafélagi Islands
fyrir hönd H. f. Djúpavíkur,
Vann Alþýðusambandið
málið.
í dóminum segir meSal ann-
ars:
„Málsatvik eru þau, að í 3. gr..
kjarasamnings milli málsaðilja,.
dags. 30. des. 1942, er m. a. svo
um samið, að: „Lágmarkskaup
kvenfólks og unglinga, 14—16'
ára skal vera kr. 1,40 pr. klst.“
En í sömu grein er ákveðið, að'
lágmarkskaup fyrir fullgilda
verkamenn skuli vera kr. 2,10
fyrir hverja klst. Aðiljar deila
um það, hvernig skilja beri of-
angreint ákvæði um kaup ung-
linga „14—16 ára“. Heldur
stefnandi því fram, að sam-
kvæmt því megi aðeins greiða
unglingum 14 og 15 ára lægra
kaupið, en stefndi lítur svo á, að
undir þetta ákvæði falli ung-
lingar 14, 15 og 16 ára. Þar sem
samkomulag hefir ekki náðst
um ágreining þennan, hefir mál
þetta verið höfðað, svo sem áð-
ur er greint, og gerir stefnandi
þær dómkröfur, að viðurkennt
verði, að 3. gr. framannefnds.
samnings 'beri að skilja þannig,
að lágmarkskaup kvenfólks og
unglinga 14 og 15 ára sé kr. 1,40
fyrjr hverja klst. í dagvinnu, en
að verkamönnum, sem náð hafa
16 ára aldri, beri kr. 2,10 fyrir
hverja klst. í dagvinnu. Þá
krefst hann málskostnaðar úr
hendi stefnda eftir mati dóms-
ins.
Stefndi hefir mótmælt kröf-
um stefnanda og skilningi hans
á um deildu ■ samningsákvæði
og krefst hann viðurkenningar
dómsins á því, að um deilt á-
kvæði beri að skilja svo, að það
nái til 14, 15 og 16 ára ung-
linga. Einnig krefst hann máls-
kostnaðar úr hendi stefnda eftir
mati dómsins.
Samkvæmt -því. sem uþp er
komið í málinu, var framan-
greindur samningur, sem gildir
um vinnu norður í Árnesshreppi
í Strandasýslu, saminn og undir
ritaður hér í Reykjavík af fram-
kvæmdarstjóra Alþýðusam-
bandsins og Ólafi A. Jónssyni,
framkvæmdarstjóra hér í bæ,
f. h. H/f Djúpavíkur. Við samn-
ingsgerðina var ekki rætt sér-
staklega um hið umdeilda at-
riði, en það er nýmæli í samn-
ingum aðilja og venja ekki til
um þetta efni í viðskiptum
þeirra. Þá er það og upp komið
í máli þessu, að sá háttur gildir
hér í Reykjavík, að unglingar,
fullra 16 ára, fái venjulegt
verkamannakaup. Loks liggja
og fyrir upplýsingar þess efnis.
að bæði á Isafirði og í Hólma-
vík séu svipuð samningsákvæði
og það, sem hér er deilt um,
framkvæmd á þann hátt, að
drengir á aldrinum 14 og 15
I ára fái' lægra kaupið, en þeir,
se meru fulra 16 ára, fái venju-
legt verkamannskaup.
Með tilliti til nefndra upp-
lýsinga þykir mega fallast á
framangreindan skilning stefn-
anda á samningsákvæði því,
sem um er deilt, og ber því að
Frh. á 7. síðu,
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Þórshöfn í Færeyjum.
GlæsilegltörjLeikíélags
Reykjavikui/til Akureyrar.
Myndin er tekin af skipi sem liggur við hafnargarðinn og sér
inn í bæinn.
ÞJóðhátiðardagnr Fær-
eylnga er i dag.
Hátiðahoid Færeyinga og vina þeirra
í fyrsta sinn i Reykjavík.
------♦-----
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGUR Færeyinga, Ólafsvakan, er í
dag — og fyrsta sinni í sögunni halda Færeyingar,
sem hér eru búsettir, þjóðhátíðardag sinn hátíðlegan opin-
berlega.
Verzlunarmean:
Birgðakönotininiii
frestað ti! tnið-
vikndags.
Viðsbiptamálaráðherra viidi
ekbi styggja verzlunarmenn
VIÐSKIFTAMÁLA-
RÁÐUNEYTIÐ hefur
ákveðið að birgðakönnun í
verzlunum skuli ekki fara
fram fyrr én á miðvikudag-
inn kemur og mun þetta
verða tilkynnt í dag.
Hjörtur Hansson, formaður
Verzlunarmannafélags Reykja-
víkur, sneri sér til viðskipta-
málaráðherra í gær, strax eftir
að hann hafði lesið greinina í
Alþýðublaðinu, og kvartaði
undan því, að birgðakönnun
skyldi hafa verið fyrirskipuð á
laugardag. Viðskiptamálaráðu-
neytið kvað tilkynninguna um
birgðakönnun á laugardag vera
á misskilningi byggða og myndi
leggja svo fyrir, að tilkynnt
yrði að henni skyldi fresta þar
til á miðvikudaginn.
Verzlunarmenn og aðrir, sem
ætluðu sér úr bænum upp úr
hádeginu á laugardaginn, geta
því farið frjálsir ferða sinna úr
bænum — og vonandi fá þeir
gott veður. En komið nógu
snemma á mánudagskvöldið til
að taka þátt í hátíðahöldunum
að Hótel Borg!
lieynilögreglumaðurinn
Michael Shayne heitir ný mýnd,
sem Nýja Bíó sýnir núna. Er það
leynilögreglumynd og leika aðal-
hlutverkin Lloyd Nolan og M.
Weaver.
Trúlofun.
SÍ’. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Helga Guð-
björnsdóttir, Skeggjagötu 14 og
Magnús Þorsteinsson, sjómaður,
iaufásvegi 25.
Áður hefur nokkuð verið
skýrt hér í blaðinu frá fyrir-
komulagi þessara hátíðahalda.
Kl. '2 safnast Færeyingar og
vinir þeirra saman við Iðnó og
ganga suður í kirkjugarð, en
þar leggja þeir hlómsveig á
grafir færeyskra sjómanna, sem
fórust hér af slysförum. Um
kvöldið verður hóf í Iðnó og
verða þar meðal annars dans-
aðir færeyskir þjóðdansar, en
Ríkisútvarpið tileinkar Fær-
eyjum og Færeyingum nokkurn
hluta dagskrár sinnar í kvöld.
Færeyjar eru margar, en 18
þeirra eru* byggðar. Færeying-
ar eru um 30 þúsund. Stærsta
eyjan er Straumey, á henni
stendur Þórshöfn, höfuðstað-
ur eyjanna með um 5000 íbúa.
Næst fjölmennust er Suðurey,
á henni er Þvereyri, íbúatalan
um 2000.
Eyjarnar eru háar og mjög
lítið undirlendi á þeim. Margir
Færeyingar stunda búskap, en
höfuðatvinnuvegur þeirra er
sjávarútvégur og lifa allir
*Færeyingar meðfram á honum
á einhvern hátt.
Víða er mjög fallegt í Fær-
eyjum. Eyjarnar eru grösugar,
en víða eru þverhnýpt björg í
sjó fram. Þar er mikil fugla-
tekja og eru margar sagnir um
fífldirfsku eyjaskeggja við
þau störf, ekki síður en við sjó
sóknina, en Færeyingar eru
framúrskarandi duglegir sjó-
menn, eins og íslendingar
þekkja manna bezt.
Fæ'reyingar hafa verið undir
Danakonungi jafnlengi og við
íslendingar, en voru áður undir
Noregskonungi. Færeyingar
halda því fram, að lögþing
þeirra sé enn eldra en alþingi
okkar íslendinga. Lögþingið er
ráðgefandi. — Amtmaðurinn
stjórnaði Færeyjum. Nú stjórn-
ar 5 manna nefnd, sem lög-
þingið kaus — og skipuð er full
trúum allra stjórnmálaflokka,
málefnum eyjanna í samráði
við amtmanninn.
Flestir prestar í eyjunum eru
danskir, aðeins þrír færeyskir.
Guðsþjónustur fara bæði fram
á færeysku og ðönsku. Kennsla
(Frh. á 7. síðu.)
Þetta er fyrsti þýzki fanginn, sem ameríkski herinn hefir tekið
á íslandi. Menn muna e. t. v. eftir því, er herstjórnin gaf út til-
kynningu síðdegis á laugardegi fyrir nokkrum vikum, þar sem
skýrt var frá því, að þýzk flugvél hefði flogið yfir Suðvesturland
og verið skotin niður. Það var „Junkers 88“ sprengjuflugvél, og
þessi ungi Þjóðverji, Manfrak liðþjálfi, kastaði sér í fallhlíf úr
henni, er ameríkskar orrustuflugvélar höfðu hitt hana og hún var
tekin að hrapa. — Manfrak liðþjálfi var tekinn til fanga af ame-
ríkskum hermönnum og fluttur til aðalstöðva herstjórnarinnar.
Þar var mynd þessi tekin, er hann var langt kominn með ríku-
lega máltíð, sem borin var fyrir hann, eins og myndin sýnir. —
Manfrak var, eins og sjá má, meiddur á handlegg. Hann ber heið-
ursmerki á brjóstinu. — Það er mikil breyting, sem orðið hefir á
högum hans: Stríðinu er lokið fyrir hann. (Myndi nvar tekin
af Ijósmyndurum hersins hér, en Associated Press sendi faana út,
er leyft var að birta hana í Washington.)
Viðtal við Hallgrím Bachmann gjaid-
kera Leikfélagsins.
Leikfélag reykja-
VÍKUR fór í þessum
mánuði í leikför til Akureyr-
ar og sýndi þar „Orðið“
þrisvar við fádæma góðar
undirtektir. 16 leikendur og
starfsmenn Leikfélagsins
fóru í þessa för norður.
Alþýðublaðið hefir átt stutt
samtal við Hallgrím Bachmann.
gjaldkera Leikfélagsins um
þessa leikför, en á Akureyrar-
blöðunum má sjá, að Akureyr-
ingum hefir þótt mikið til
hennar koma.
Hallgrímur Bachmann sagði
meðal annars:
Stjórn Leikfélags Akureyrar
annaðist með ágælum undir-
búning og var að mestu fyrir-
fram selt á þær þrjár sýningar,
sem ákveðnar voru. Ýmsir
fleiri aðstoðuðu með vinsemd
og verki, að leikför þessi yrði
sem bezt, svo sem Sigurður O.
Björnsson prentsmiðjustjóri og
hinn óþreytandi Hallgrímur
Valdimarsson o. fl.
Leikstjórinn, Lárus Pálsson,
æfði sex unga leikara frá Ak-
ureyri, þau: Sigrúnu Hauks-
dóttur, Helgu Júníusdóttur,
Guðrúnu Oddsdóttur, Halldór
Jónsson, Þórarinn Þór og Elías
Kristjánsson, til aðstoðar í öðr-
um þætti leiksins, og tókst þeim
miög vel að skapa hina réttu
mynd á samkomu Péturs
skraddara.
í lok 4. þáttar söng með
mestu . prýði blandaður kór, er
Hermann Guðmundsson fefði.
Akureyringar voru allir á
einu máli um, að betri leikmeð-
ferð hefði þar vart sézt og
töldu sumir jafnvel Orðið þann
albezta sjónleik, sem þeir hefðu
nokru sinni séð.
í kaffisamsæti, er Leikfélag
Akureyrar hélt leikurum í Orð-
inu, sagði formaður Leikfélags
Akureyrar í ræðu einni, að þeir,
sem hann hefði talað við, væru
allir orðlausir af hrifningu, og
þakkaði ekki hvað sízt þá upp-
örfun, er Leikfélag Akureyrar
hefði fengið við að sjá svo fram
úr skarandi leikmeðferð og
kvaðst tala fyrir munn sinna
meðstjórnenda í Leikfélagi Ak-
ureyrar og hinna mörgu aðdá-
andi áhorfenda, ad Leikfélag
Reykjavíkur gæti á hverju ári
’ komið til þeirra til að sýna þeim
(Frh. á 7. síðu.)
| Fyrsti pýzki fanginn tekinn á íslandi. j