Alþýðublaðið - 07.10.1943, Page 3
AL»ÝÐUBLAÐ1Ð
&
Framsveitir 5. hersins hafa
brotizt norður yfir Volturno
Nálgast €apra, starstn borgina*
milii Napoli og Rémaborgar.
■ —■+-----
Ákafir bardagar enn við Termoli
FRAMSVEITIR s. HEESINS hafa brotizt norður yfir
Volturaoána og «ru þar háðar grimmilegar orrustur.
5. herinn náði og í gær á vald sitt bæjunum Aversa og
Maddaloní, sem báðir eru norður af Napoli og skammt frá
Capua, sem er aðalmiðstöð Þjóðverja uppi í landi
8. herizm á nú í miklum bardögum við hersveitir Þjóðverja
við Termoli. Gera Þjóðverjar hverja gagnárásina a£ annari, sem
bandamenn hrinda jafnharðan. Flugher bandamanna á Ítalíu
gerði í gær miklar árásir á Bologna og flugvöll Þjóðverja við
Grosseto.
1 Funmtudagur 7. október 1943.
ÍHann cer caunverulega valdalaus konungur í dag og fangi ÞjóS-
'verja. En einbeitt og virðuleg framkoma hans á raunastund
dönsku þjóðarinnar hefir gert hann að þjóðhetju hennar.
Herlögin numin úr
gildi í Danmörkn.
ln ofséknirnar halda áfram,
einkum gegn Gyðingum.
.. ♦------
JÓÐVERJAR hafa tilkynnt, að herlög séu nú úr gildi
numin í Danmörku. Hins vegar er samkomubann enn
ríkjandi í landinu.
Roosevelt m flng-
frelsið í framtiðiDui.
ROOSEVELT forseti skýrði
nýlega frá því á fundi
með blaðamönnum, segir í
fregn frá Washington, að hann
og Winston Churchill hafi rætt
um flugfrelsi allra þjóða að
lokinni styrjöldinni og sé svo
til ætlazt, að allar þjóðir taki
þátt í alheimskerfi fyrir flug-
ferðir.
Hann upplýsti, að fyrirkomu
lag flugmála eftir styrjöldina
hafi verið athugað af ríkis-
stjórn Bandaríkjanna mánuð-
um saman og að þeir Churchill
hafi báðir fallizt á, að frelsi
skyldi ríkja á leiðum loftsins:
Hann sagði ennfremur, að um-
ræður um flugmál hefðu farið
fram milli ríkisstjórnar Banda-
ríkjanna og annarra forystu-
manna þjóða bandamanna.
Roosevelt taldi, að innan-
landsflugferðir ættu að vera í
höndum hinna einstöku landa
og einkafyrirtæki annast far-
þegaflutninga.
Danska lögreglan hefir ver
ið leyst frá ýmsum þeim
störfum, sem hingað til hafa
verið talin x verkahring henn
ar. Er haft á orðspori, að ver
ið sé að æfa stormsveitar-
menn í Þýzkalandi, sem ætl-
að sé að taka við af dönsku
lögreglunni og halda uppi
röð og reglu í landinu.
í fregnum frá Svíþjóð er þess
getið, að Þjóðverjar hafi lagt
tundurduflum í sundið milli
Svíþjóðar og Danmerkur. Er
talið, að þeir hafi gripið til
þessa ráðs í því skyni að hindra
flótta danskra Gyðinga yfir til
Svíþjóðar.
Sænsk blöð ræða mjög við-
horfin í Danmörku, einkum þó
Gyðingaofsóknirnar ,sem Þjóð-
verjar hafa efnt til þer. Kemst
eitt þeirra þannig að orði í sam-
bandi við mál þessi, að væri
hinn merki menntamaður og
rithöfundur Georg Brandes nú
á lífi, myndi honum efalaust
hafa verið varpað í fangelsi
eins og svo mörgum samlönd-
um hans og skoðanabræðrum.
Georg Brandes var svo sem
kunnugt er af Gyðingaættum
og oft þungorður í garð Þjóð-
Framhald á 6. síðu.
Sókn fimmta hersíns á vest-
urströndinni hefir miðað vel
áfram á síðasta sólarhring. —
Hefir hann nú tekið tvo bæi
norður af Napoli, Aversa, 15
km. norður af Napoli, og Mad-
daloni, 22 km. norðaustur af
henni. Báðir eru bæir þessir
skammt frá Capua, sem er ein-
hver mikilvægasta samgöngu-
miðstöð milli Róm og Napoli
og miðstöð varna Þjóðv. við
Volturno-ána.
í síðustu fregnum í gærkv.
var frá því greint, að fram-
sveitir 5. hersins hefðu brotizt
yfir Volturnoána, en megin-
hluti hersins er þó enn stadd-
ur sunnan árinnar og hrekur
hann Þjóðverja þar úr hverri
vamarstöðinni af annarri. —
Sækir 5. herinn fram af gætni
en þó miklum þunga. Noi’ður
af Volturnoánni tekur við
greiðfær slétta en því næst hæð
ir. Er talið, að Þjóðverjar muni
hörfa til hæða þessara og
freista þess að búast þar um
og stöðva framsókn banda-
manna.
Viðreisnarstarfinu í Napoli
miðar mjög vel áfram, og heíir
1 TILKYNNINGUM RÚSSA
í gær var þess getið, að
hernaðaraðgerðir á austuvíg-
stöðvunum væru nú engar
vegna illviðris. Rússar tilkynntu
þó töku Kolnyiski í Hvíta-Rúss
landi ásamt rúmum fimmtíu
þorpum.
Mikið er og barizt á vígstöðv
unum austur af Gomel og
Mohilev. Annars staðar á aust-
urvígstöðvunum hafa hernaðar
aðgerðir aðallega verið fólgnar
í aðgerðum stórskotaliða beggja
aðila, síðasta sólarhringinn.
Haustrigningarnar eru nú
byrjaðar fyrir alvöru í Rúss-
landi og hindra hernaðaraðgerð
ir að verulegu leyti. Rússum
hefir hvergi orðið verulega á-
gengt, þrátt fyrir töku Kolny-
iski og fimmtíu þorpa á leið
sinni til Vitebsk, en þar sækja
vinnuflokkum bandamanna
hvergi orðið svo vel ágengt
annars staðar á jafnskömmum
tíma allt frá því, að styrjöldin
hófst, og hafa þeir þó getið sér
mikinn orðstír. Helztu stræti
Napoliborgar hafa nú verið opn
uð til umferðar að nýju, og er
viðgerðum á höfninni mjög
langt komið. Er lífið í Napoli
að verulegu leyti komið í sitt
fyrra horf og er samstarf banda
manna og íbúa borgarinnar í
hvívetna hið bezta.
Mótspyrna Þjóðverja gegn
sókn 8. hersins á austurströnd-
inni fer ávallt harðnandi. Gera
Þjóðverjar hverja gagnárásina
af annarri við Termoli, sem
bandamenn hrinda þó jafn-
harðan. Þjóðverjar beita og
mjög gagnárásum í viðnámi
sínu á upplandinu. Dylst ekki
— að Þjóðverjar telja sér liætt
á vígstöðvunum á Ítalíu og
leggja ofurkapp á viðnám sifct.
Bandamenn hafa hins ve:gar
treyst aðstöðu sína á Ítalíuvíg-
stöðvunum mjög vel, og er
þungi sóknar þeirra slíkur, að
ólíklegt má telja, að Þjóðverj-
um takizt að stöðva hana.
þeir hægt fram. Engin úrslit
hafa verið ráðin í átökunum
austur af Mohilev og Gomel,
en þó hafa báðir aðilar tilkynt,
að þar séu harðar orrustur
háðar.
Rússar gefa í skyn, að ekki
sé von verulegrar sóknar af
þeirra hálfu íyrr en haustrign-
ingarnar séu um garð gengnar
og jörð tekin að frjósa. Munu
þeir nú leggja megináherzlu á
að treysta aðstöðu sína á stöðv
um þeim, sem þeir hafa þegar
náð og búa sig sem vendilegast
undir vetrarhernaðinn. En
rússneskir hernaðarfræðingar
leggja mikla áhezlu á yfirburði
Rússa í vetrarhernaði og telja,
að á vetri komanda muni
Rauði herinn greiða hersveit-
um Þjóðverja á austurvíg-
stöðvunum þau högg, er ráði
úrslitum átakanna þar.
Morrison ræðir styrj
aidarviðhoriiB.
Japönnm sknln búin sömn
örlög og Þjóðverlnm.
ERBERT MORRISON, inm
anrikismálaráðherra Bret-
lands, flutti ræðu í Lundúnm
í gær. Voru áheyrendur hans
hæði amerískir og brezkir.
Morrison lagði áherzlu á það
í ræðu sinni að skylt væri að
ræða viðhorf styr j aldarinnar
eftir því sem ástæður leyfðu.
Lét hann þess getið, að enginn
misskilningur mætti ríkja milli
Breta og Bandaríkjanna. Kvað
hann Breta gera sér glögga
grein fyrir mikilvægi styrjald-
arinnar við Kyrrahaf. Hann full
yrti, að Bretum myndi aldrei
til hugar koma að telja styrj-
pldinni lokið, þótt sigur væri
unninn yfir Þjóðverjum. Bret-
ar myndu einbeita sér að því
ásamt Bandaríkjamönnum að
bera Japani ofurliði. Minnti
hann á það, að það væru eigi
síður hagsmunir Breta en Banda
ríkjamanna að Japanir yrðu
sigraðir. Hann bað áheyrendur
sína minnast þess, að Ástralía
og Nýja Sjáland ættu ekki hvað
sízt framtíð sína undir því, að
hættunni af stórveldisdraum-
um Japana yrði bægt frá dyrum
þeirra. Eixmig kvað hann Bret-
um kært að hugsa til þess að
Kína yrði frjálst aftur.'
Morrison lagði mikla áherzlu
á þátt Ástralíu í styrjöldinni.
Kvað hann Ástralíu leggja mik
inn skerf til sigurs bandamanna
með því að senda vaska syni
sína til vtígvallanna og auka
hergagnaframleiðsluna svo
mjög, að undrum sætti. Hann
upplýsti og, að 65 af hverjum
100 vinnufærum mönnum í
Bretlandi ynnu nú að hergagna
framleiðslunni. ,
Morrison lét þess getið að lok
um, að skylt væri að vinna að
því, að sjálfsstjórn yrði komið
á í öllum brezku samveldislönd
unum, þegar málstaður réttlæt
isins hefði sigrað stefnu einræð
ishyggjunnar og ofbeldisins og
styrjöldinni væri þannig lokið
með glæsilegum sigri banda-
manna.
Gdeo á fðraæ til
Moskva.
ANTHONY EDEN, utanríkis
xnálaráðherra Breta er nú
á förum til Mosltva, segir í
fregn frá Lundúnum í gær, til
þess að sitja þar fund með utan
ríkismálaráðherrum Rússlands
og Bandaríkjanna.
Eden mun hafa sér til aðstoð
ar-sex sérfræðinga og ráðunauta
og er meðal þeirra varautan-
ríkismálaráðherra Bretlands.
Sétat Rflssa að stöðvast.
— »
Haustrigningar hindra hernaðaraðgerð-
ir og þeir bíða nú vetrarins.