Alþýðublaðið - 03.11.1943, Qupperneq 2
AUÞYIHJ>3LAÐIB
Miðvikudagur 3. nóv. 1943»
Hillipinganefnd til að ákveða
stjðrn HjóðleikMssins.
. ■ ■. +--
Flutt áf mönnum úr öllum flokkum
ÞINGMENN úr öllum flokkum, þeir BarSi Guðmundsson,
Kristinn E. Andrésson, Gunnar Thoroddsen og Bjarni
Ásgeirsson, flytja í sameinuðu þingi tillögu til þings-
ályktunar um stjórnarfyriirkomulag og rekstur þjóðleik-
hússins.
Tillagan er svohljóðandi:
„Sameinað alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að
skipa nú þegar sjö manna milliþinganefnd, er leggi fyrir
næsfa alþingi tillögur um stjórnarfyrirkomulag og rekstur
þjóðleikhússins. Nefndin verði skipuð þannig: fjórir menn
eftir tilnefningu þingflokkanna, einn tilnefndur af Leikfé-
lagi Reykjavíkur, einn af Bandglagi íslenzkra listamanna og
einn tilnefndur af Félagi íslenzkra leikara, og sé hann for-
maður nefndgrinnar.“
í greinargerð fyrir tillögunni segja flutningsmenn:
„Ríkisstjórnin hefir tikynnt, að setuliðið muni rýma
þjóðleikhúsiðfggrfnæstunni. Mun þá þegar hafizt handa að
fullgera bygginguna, svo að gera má ráð fyrir, að leikstarf-
semi. geti hafizttþar, áður en langur tími líður. Er því nauð-
synlegt, að Mþi'ngi hugsi þegar fyrir því, hvernig rekstri
og stjórnarfýrirkomulagi þjóðleikhússins skuli hagað. Hefir
Félag íslenskra leikara einnig heint þeirri áskorun til al-
þingis, að skipuð verði nú þegar milliþinganefnd, er leggi
fyrir næsta alþingi ákveðnar tillögur um þetta mál. Er
þingsályktunartillagan hér flutt í samræmi við þessar óskir
leikara og Vegna þeirrar nauðsynjar, sem á því er, að hraðað
sé sem mest undirhúningi þess, að þjóðleikhúsið geti tekið
til starfa.“ ;f % f * *
Rétílátari skipting bjðrg-
nnarlanna ea verið hefnr.
Fmmvarp um breytiugar á sigiiugaiög
unuDi, sem Sigurjón Á. Óiafsson flytur.
SIGURJÓN Á. ÓLAFSSON
hefir lagt fram á alþingi
nýtt frumvarp um breyt. á sigl-
ingalögum, sem miðar að því,
að björgunarlaunum sé skipt á
jafnari hátt milli allra skips-
manna, er vinna að hjörgun úr
sjávarháska. en tíðkast hefir
samkvæmt núgildandi lögum.
Hefir misskipting hjörgunar-
launa oft valdið óánægju og
undirmenn talið sig afskipta í
þessu efni.
Breytingin er við 233. grein
siglingarlaganna og leggur Sig-
urjón til að hún verði orðuð á
eftirfarandi hátt:
„Ef björgunarmenn greinir á
sín á milli um skipti björgunar-
launa, þá skal skipt með dómi
og gætt þeirra atvika, sem 230.
gr. greinir.
Nú hefir skip bjargað ein-
hverju á ferð og hlotið fyrir það
björgunarlaun með dómi eða
samningi, og skal þá fyrst af
björgunarlaununum bæta það
tjón, sem við björgunina varð á
skipi því eða farmi, svo og bein
útgjöld við björgunina önnur
en venjulegur rekstrarkostnað-
ur skipsins. Næst eftir fá út-
gerðarmenn tvo þriðjunga björg
unarlauna, en einn þriðji
björgunarlaunanna rennur til
skipshafnarinnar, og skal þeim
skipt milli allha skipsverja í
réttu hlutfalli við mánaðartekj-
ur hvers þeirra. Við útreikning
björgunarlauna skulu skiptin
miðast við meðaltekjur á hverri
starfsgrein um borð í skipinu
síðustu 12 mánuði eða þann
tíma, sem skipið hefir verið í
gangi á árinu, ef skemur er. Eft-
ir að skipti hafa farið fram á
milli skipverja samkvæmt of-
anskráðu, skal útgerðarmaður
greiða skipstjóra af sínum hluta
björgunarlaunanna þá upphæð,
er á vantar til þess að hann fái
samtals Vs hluta þeirra upphæð
ar, er kom til skipta meðal
skipshafnarinnar. Ákvæði þess-
arar greinar gílda ekki um Skip-
verja, sem lög nr. 32 íþ jan.
1935 taka til svo, svo og skips
hafnir á björgunarskipum, sem
ráðnar eru með sérsamningum
til björgunarstarfa.“
í greinargerð sinni fyrir
frumvarpinu segir Sigurjón Á.
Ólafsson:
„Það hefir komið í ljós á síð
ari tímum, að ákvæðið um
skipting björgunarlauna sam-
kvæmt 233. gr. siglingarlag-
ann hefir valdið verulegri ó-
ánægju meðal sjómanna. Þetta
ákvæði laganna mun ævagam-
alt í erlendri siglingalöggjöf,
þótt það væri ekki lögtekið hér
á landi fyrr en 1914. Breyttir
tímar, fullkomnari skip, ýmsar
reglur og lag^ákvæði ásamt
meiri mannúðarhugsjón um að
bjarga þeim, sem í háska eru
staddir, gerir þáð að verkum,
að jafnt æðri sem lægri leggja
sig fram í þessum efnum meira
en almennt tíðkaðist fyrr á
tímum. Björgunarlaun hafa á-
vallt verið talin sjálfsögð
Framh. á 7. síðu.
Ætlar Fnmsókn að ganga
með fbaldinn i bíómálini ?
Fulltrúl flokksins tekur afstöðu með Garðari
og Gunnari gegn sasnpykkt kœ|arst|ðrnar.
Leggja til að Reykjavíkurbær fái ekki
heitnild til eignarnáms á bíóunum,
FRUMVARPIÐ, sem fól í sér heimild handa Reykja-
urbæ til að taka kvikmyndahúsin hér í Reykjavík
— Gamla Bíó og Nýja Bíó — eignarnámi og flutt var af
Stefáni Jóh. Stefánssyni og Sigfúsi Sigurhjartarsyni, hefir
legið lengi hjá allherjaijnefnd neðri deildar, enda mun
mjög hafa verið deilt um það í nefndinni eins og deilt var
um það, er það var til umræðu.
Loksins 1 gær afgreiddi nefndin málið frá sér með
tveimur nefndarálitum, þ. e. hún klofnaði um það.
Þau furðulegu tíðindi gerðust að fulltrúi Framsóknarflokks-
ins í nefndinni, Jörundur Brynjólfsson gekk með fulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins, þeim Garðari Þorsteinssyni og Gunnari Thor-
oddsen í því að eyðileggja aðaltilgang frumvarpsins, sem fól í
sér eignarnámsheimildina handa Reykjavíkurbæ á kvikmynda-
húsunum. -
Þessir þrír menn skipa meiri ♦
hluta nefndarinnar — og verður
að líta svo á, að ef Framsóknar-
þingmennirnir fylgja við at-
kvæðagreiðslu á þinginu þeirri
stefnu, sem fulltrúi flokks
þeirra hefir tekið í nefndinni,
þá séu þar hrein og bein svik
við málið, því að Framsóknar-
flokkurinn hefir hvað eftir ann-
að lýst yfir því, að hann væri
því fylgjandi, að bæirnir rækju
kvikmyndahúsin, en eini mögu-
leikinn til þess að Reykjavík
geti náð rekstri kvikmyndanús-
anna í sínar hendur gegn sann-
gjörnu gjaldi til núverandi eig-
enda fýrir eignirnar er, að; bær-
inn ^hafi í höndum eignarnáms-
heimild frá alþingi.
Hvort Framsóknarflokkurinn
ætlar hér að ganga á móti hags-
munum Reykvíkinga, mun hins
vegar' koma í ljós innan tíðar.
Minni hluti allsherjarnefnd-
ar, þeir Sigurjón Á. Ólafsson
og Þóroddur Guðmundsson,
hafa einnig skilað nefndaráliti.
Leggja þeir til að frumvarpið
verði samþykkt, og gera á eftir-
farandi hátt grein fyrir stefnu
sinni:
„Nefndin klofnaði um af-
greiðslu þessa máls. Minni hlut-
inn getur ekki sætt sig við þá
lausn, sem meiri hlutinn telur
viðeigandi að viðhafa á af-
greiðslu frumvarpsins. Er þar
um að ræða nýtt frumvarp, sem
lagt var fram í nefndinni og á
engan hátt getur samrýmzt
aðalmarkmiði frv., sem er sá,
að heimila bæjarstjórnum og
hreppsnefndum að taka eign-
arnámi kvikmyndahús og sýn-
ingartæki, ef samningar um
kaup hafa ekki tekizt. Tilefni
þessarar lagasetningar er í
fyrsta lagi samþykkt bæjar-
stjórnar Reykjavíkur 4. febr.
1943 um að taka rekstur kvik-
myndahúsanna Gamla og Nýja
Bíós í sínar hendur. Samningar
við eigendur þeirra hafa ekki
tekizt. í öðru lagi er stefna frv.
sú, að rekstur kvikmyndahúsa
sér í höndum bæjarfélaganna
sem einni liður í tekjum þeirra
og að þau hafi að öðru leyti full
yfirráð þeirra, svo að myndaval
sé á þá lund, að sýningar þeirra
verði til aukinnar menningar.
Með einkarekstri kvikmynda-
húsanna er þeirrar hliðar ekki
eins vel gætt og æskilegt væri.
Þessari stefnu frv. er minni hlut
inn fyllilega samþykkur og
leggur til, að frv. verði sam-
þykkt.“
Álþýðuflokksfélag
Hafnarfjarðar hefur
velrarsfarfið.
Alþýðuflokksfélag
HAFNARFJARÐAR held
ur fyrsta fund vetrarins í Góð-
templarahúsinu í kvöld (mið-
vikudagskvöld) kl. 8%.
Félagar eru hvattir til þess
að fjölmenna á fundinn og
mæta stundvíslega.
Norræna félagið:
Skemmíifyndur að fféíeí
Borg á fösfudagskvöld.
fWT ORRÆNA FÉLAGIÐ
heldur skemmtifund að
Hótel Borg nk. föstudagskvöld
klukkan 8.30.
Dagskrá fundarins er á þessa
leið:
Félagsmál: Guðlaugur Rós-
enkrans. Erindi: Pálmi Hann-
esson rektor. Söngur: Dóm-
kirkjukórinn syngur dönsk lög
undir stjórn Páls ísólfssonar.
Að lokum verður dansað.
faflfélag Reykjavíkur
hefur sfarfsemi aS nyju.
Byrjar með keppni milli Vesfur-
og Ausfurbæjar á sunnudaginn.
Taflfélag reykjavík-
UR hefir nú hafið starf-
semi sína og regluhundna fundi
á nýjan leik, eftir tveggja ára
óskipulagða starfsemi, sem or-
sakaðist af mjög tilfinnan leg-
um húsnæðisvandræðum annars
vegar, en sumpart af frámuna
lega óhentugum húsnæðisaf-
notum.
Að vísu hefir félagið alltáf
verið illa statt hvað húsrúm
snertir síðan það varð að hverfa
úr KR-húsinu eftir koriiu setu-
liðsins forðum, en nú virðist
svo, sem bætt sé úr brýnustu
þörfurn í bili, þar sem bæjarráð
Reykjavíkur hefir nú nýlega
heimilað félaginu afnot af sal
í fyrverandi „Hótel Hekla,“ að
vísu fremur litlum, en að ýmsu
leyti mjög hentugum. Verð-
skuldar bæjarráð tvímælalaust
þakkir fyrir sína skjótu ákvörð
un og velviljuðu afstöðu í fé-
lagsiriis garð.
Félagið hefur nú starfsemi
semi sína með fceppni milli
Austur- og Vesturbæjar, sem
verður háð næsta sunnudag (7.
nóvember) en í kjölfar þeirrar
keppni siglir önnur meiri, sem
sé „Innanfélagsmót Taflfélags
Reykjavíkur,“ sem féll niður í
ifyrrahaust og verður án efa þar
afleiðandi mjög fjölmennt í
þetta sinn.
Stjórn félagsins skipa nú þess
ir félagar: Aðalsteinn Halldórs-
son formaður, Guðmundur S.
Guðmundsson féhirðir, Baldur
Möller ritari, Óli Valdimars-
son skákrit., Róbert Sigmunds-
son áhaldavörðuir og Hafsteinn.
Gíslason meðstjómandi.
Tryggvi Mignisson
verzhinardjéri látinn.
Tryggvi MAGNÚSSON,
verzlunarstjóri Edin-
borgarverzlunar, lézt í fyrra-
kvöld í sjúkrahúsi eftir upp-
skurð.
Með honum er horfinn einn
vinsælasti og þekktasti borgari
Reykjavíkur — og munu þeir
fjölda margir, sem harma
hann.
Tryggvi Magnússon var
mikiil íþrótta- og ferðamaður.
Hann hefir og skemmt Reyk-
víkingum með leik sínum í
mörgum gleðileikum. og í
starfi sínu í Edinborg var hann
annálað lipurmenni.
Glímufclag'ið Ármann
heldur skemmtifund í kvöld kl.
9. Skorað er á félaga aðmæta.
irezMr kmm látnir skipa út
íslenzknm vðram vlð hðfnina.
; ■ }'■ j
~ .....O--------
Dagsbrðn kærir yfir bessn tll £lD$ðttsambanðs-
ins og pað snýr sér fl! litanrikisráðaaeytisins.
FYRIR nokkrum dögum bar
það við hér við Reykja-
víkurhöfn að erlend skip tóku
1000 tunnur af gotu, sem flutt
hafði verið að skipshlið á ís-
lenzkum hifreiðium frá Sand-
gerði og Keflavík.
Venja hefir verið að íslenzkir
verkamenn önnuðust alla út-
skipun á íslenskum vörum hér
við höfnina, en að þessu sinni
var brugðið út af venjunni og
brezkum hermönnum skipáð að
annast útskipunina, sem þeir og-
gerðu.
Verkamenn vilja ekki þola að
þannig sé brugðið út af þeirri
venju, sem hér hefur gilt og
sneri Dagsbrún því sér til Al-
þýðusambandsins, en það sneri
sér síðan til utanríkisráðu-
neytisins. V
I bréfi Dagsbrúnar er þetta
mál, nokkuð rakið og segir svo
í því:
„Þann 25. og 26. október s. 1.
Framh. á 7. síðu.