Alþýðublaðið - 05.11.1943, Síða 7
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Skýrsla Samlrandsiis nm kjðtið.
Föstudagur 5. nóvember 1943.
Bœrinn í dag.
Næturlæknir er í nótt í Lækna-
varðstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki
ÚTVAEPIÐ:
20.30 Útvarpssagan (Ragnar Jó-
hannesson).
21.00 Strokkvartett útvarpsins:
Kaflar úr kvartett op. 74
nr. 2 eftir Haydn.
2,1.15 Útvarpsþáttur.
21.35 Spurningar og svör um ís-
lenzkt mál (Björn Sigfússon
magister).
21.50 Fréttir.
22.00 Symfóníu,tónleikar (plöt-
ur): a) Goldberg-tilbrigðin
eftir Bach. b) ítalski kons-
ertinn eftir sama.
23.00 Dagskrárlok.
Happdrætti Menntaskólans.
í happdrætti Menntaskólans í
Reykjavík, sem dregið var í 17.
júní s. 1., komu þessi númer upp:
49fil, 3819, 5373, 5323, 4940, 1455,
636^983, 2284, 5679. Þeir, sem enn
hafa ekki vitjað vinninga sinna,
vitji þeirra í Menntaskólann sem
allra fyrst, og í síðasta lagi fyrir
áramót.
Fljól lerS:
Fóru frá íslandi í
fyrradag um hádegi.
Komu vesfur fil Banda-
ríkjanna í fyrrinóff.
Ó AÐ fjarlægðirnar séu
miklar — eru ferðirnar
farnar að taka stuttan tíma.
Magnús Sigurðsson banka-
stjóri og Sveinbjörn Finnsson
hagfræðingur lögðu af stað
héðan í fyrradag um hádegi í
hernaðarfíugvél, en í gærmorg-
un kom skeyti um að þeir væru
komnir til Bandaríkjanna.
Magnús Sigurðsson á, eins og
kunnugt er að undirrita í Wash
ington 9. þ. m. fyrir .íslands
hönd samninginn um stofnun
hjálparstarfsins eftir stríð.
Skemmtifundur Norræna
félagsins i krðld.
SKEMMTIFUNDUR
Norræna félagsins að
Hótel Borg hefst í kvöld kl.
8,30. Skemmtifundir félagsins
eru allt af mjög góðir. í kvöld
flytur Pálmi Hannesson rektor
erindi og dómkirkjukórinn
syngur, en síðan verður dansað
og munu þekktir harmoniku-
snillingar sjá um músikina.
Menn eru beðnir að taka að-
göngumiða sína símanl. í dag,
því að engir miðar verða seld-
ir við innganginn.
Hitaveitan
Frh. af 2. síðu.
enginn veit hvaða gjald borgar
arnir eiga að greiða og enginn
veit eftir hvaða reglum verður
farið við innheimtuna. Það er
skeggrætt fram og aftur um
smámál, en lítið eða ekkert um
þetta tugmilljónafyrirtæki. Það
er ekki einu sinni farið að semja
reglugerð fyrir fyrirtækið!
Kanpnm tnsknr {
hæsta verði. i
flúsgagnavinnDstofaiiJ
Baldorsgðtu 30.5
Frh. af 2. síðu.
hingað í júní, en hitt dagana 14.
og 29. ágúst. Áður en kjötið var
sent hingað, var það vandlega
yfirfarið og umsaltað undir
eftirliti matsmanna og það
tekið frá, sem gallað reyndist
og var það sem hingað kom 946
tunnur. Það dróst nokkuð fyrir
kaupanda að flytja kjötið út,
en nálægt miðjum september
stóð til að taka fáeinar tunnur
í skip, sem lá hér á höfninni.
Létum vér þá opna allmargar
tunnur og kom í ljós, að kjötið
í sumum þeirra var farið að
skemmast. Hafði það þó verið
pæklað stöðugt alla tíð, bæði
heima hjá kaupfélögunum og
eftir að það kom hingað. Gerði
kaupandi nú kröfu til, að allt
kjötið yrði yfirfarið af mats-
manni að nýju og var það gert
næstu daga á eftir og stjórn-
aði því verki Jón Þorsteinsson
k j ötmatsmaður.
Síðan stríðið hófst, hefir ekki
tekist að fá góðar tunnur undir
saltkjöt. Hefir orðið að notast
við síldartunnur. Er erfitt að
geyma saltkjöt mjög lengi í
slíkum umbúðum, án þess að
það skemmist, vegna þess hve
tunnurnar halda illa pækli,
einkum eftir að þær hafa verið
fluttar með skipum um langan
veg.
Niðurstaða matsins varð sú,
að aðeins 345 tunnur voru
dæmdar með öllu ógallaðar og
voru þær fluttar til útlanda í
lok september. Hefir engin
kvörtun birtst um það kjöt. Um
600 tunnur reyndust því meira
og minna gallaðar. Skemmdirn-
irnar voru í því fólgnar, að kjöt
ið var orðið súrt, sumt þrátt og
í nokkrum var ýlduvottur. I
samráði við yfirdýralækni var
úrgangskjöt þetta enn á ný
vandlega yfirfarið og fyrirskip-
aði hann að eyðileggja það sem
mest væri skemmt, en taldi for-
svaranlegt að notað yrði til
manneldis það sem ekki væri
úldið og ekki mjög áberandi
skemmt að öðru leyti.
Ara Eyjólfssyni verkstjóra
var falið að sjá um afhendingu
þess af kjötinu, sem nýtilegt
reyndist. Var það gert að
skilyrði, að þeir sem vildu
kaupa það skársta af því, kæmu
á staðinn og veldi hver sína
tunnu. Það má fullyrða, að
engri tunnu var hent, fyr en
þrautreynt var að enginn mað-
ur vildi líta við henni fyrir
hvað lágt verð sem var. Það
voru að lokum rétt 20 tonn af
kjöti, sem að allra, dómi, er
það sáu, var fullkomið óæti og
var meiri hluti þess ærkjöt. Og
þar sem hér er engin stofnun,
er eyðileggur skemmdar vörur,
er ekki um annað að ræða en
grafa slíkt í jörðu, eða henda
því í sjóinn. Þessi umræddu 20
tonn af óætu kjöti voru því
vandlega urðuð suður í Krisu-
víkurhrauni.
Það er engum efa bundið, að
allt var gert, sem í mannlegu
valdi stóð, til að halda kjöti
þessu óskemmdu, enda segir
það sig sjálft, þar eð búið var að
selja það úr landi, kom ei til
mála að láta úti til manneldis
það af kjötinu, sem var stór-
skemmt orðið. Enda myndi
yfirdýralæknir ekki hafa tekið
slíkt í mál.
Verður að telja alveg fráleitt
og útilokað að sönn séu þau um-
mæli dagblaðanna, að nokkur
maður með viti leggi sér til
munns nú á tímum stórskemmt
hræ, sem grafið er úr jörð uppi
í óbyggðum, eftir að hafa legið
í skítugum strigapokum um
langan tíma.
Hafi hinsvegar fundist í ná-
grenni Hafnarfjarðar eitthvað
af kjöti, er talist geti manna-
matur ,þá hlýtur það að vera
tilkomið-með öðrum hætti, og
vera frá öðrum aðilum, því
Sambandið hefir engu kjöti
fleygt öðru en því er hér var
frá skýrt.
Reykjavík, 4. nóv. 1943.
Ofanrituð skýrsla er rétt að
því er viðkemur afskiftum
okkar af málinu.
Reykjavík, 4. nóv. 1943.
Sig. E. Hlíðar, yfirdýralæknir.
Ari K. Eyjölfsson, verkstjóri.
Það hefði vérið öllu skemmti
legra 'fyrir alla aðila hefði Jón
Árnason framkvæmdastjóri gef-
ið skýringar sýnar strax og Al-
þýðublaðið lagði málið fyrir
hann í fyrradag, en þá neitaði
hann, þó að hann vissi allt af
létta um það.
Alþýðublaðið vill vekja at-
hygli á því í sambandi við
skýrslurnar, að þar er aðeins
talað um kjöt, sem hafi legið
í óbyggðum í skítugum striga-
pokum. En hver hefir þá urðað
15 kjöttunnur, sem fundust í
gær?
Nýp kjotfnndur.
I gær fundu verkamenn og
bifreiðastjórar við Krísuvíkur-
veginn, alllangt frá aðalkjöt-
námunni, 15 tunnur fullar af
spaðsöltuðu kjöti, sem þeir
telja að sé tryppakjöt, hafði
mosi verið látinn ofan á tunn-
urnar — og telja finnendur
líklegt að þarna séu enn fleiri
tunnur. Botninn hafði verið
sleginn úr öllum tunnunum,
svo að ekki var hægt að sjá
merki á þeim, hinsvegar fanst.
kassi þarna, merktur S. í. S.
Þá fundu þessir sömu menn
allmikið af íshússkjöti í striga-
pokum og virtist það skemmt.
Rannsókn í þessu máli hófst
í Hafnarfirði í gær með fundi,
sem heilbrigðisnefnd bæjarins
hélt, en bæjarfógeti á sæti í
nefndinni..
Er að sjálfsögðu nauðsynlegt
að rannsaka þetta mál, því að
ef skýrsla S. í. S. reynist rétt
og að kjötið er skemmt, þá er
hættulegt að neyta þess.
Hins vegar fullyrða margir,
sem þegar hafa neytt kjötsins
að það sé hinn prýðilegasti
matur.
Héraðslæknirinn í Hafnar-
firði varaði fólk þar opinber-
lega við því í útvarpinu í gær-
kveldi, að neyta þess kjöts, sem
fundizt hefði.
önnar umræða
fjárlaganna.
Frh. af 2. síðu.
Finnur Jónsson kvaðst ekki
að öllu leyti. hafa átt samleið
með meirihluta fjárveitinga-
nefndar og að sumu leyti stað-
ið mitt á milli meirihlutans og
minnihlutans, en þó nær meiri-
hlutanum og því undirritað
nefndarálit hans. Hann kvaðst
ekki geta fallizt á þá skoðun
fjármálaráðherra, að óeðlileg
bjartsýni hefði ríkt í afgreiðslu
fjárveitinganefndar á fjárlaga-
frumvarpinu. Þvert á móti teldi
hann, að nefndin hefði sýnt
fulla varfærni í starfi sínu.
Finnur kvaðst telja, að fjár-
lagafrumvarpið veitti svigrúm
til að mæta nokkrum útgjöldum
vegna væntanlegra launalaga
og hækkaðs framlags til alþýðu
trygginga.
Finnur kvað og nauðsyn til
bera, að lögð væri til hliðar
veruleg fjárhæð, allt að 10 millj.
kr. í því skyni að verja tiL end-
urbyggingar fiskiflotans. Skipa
stóll landsmanna væri nú mjög
úr sér gemginn. Möguleikar til
nýbygginga innan lands væru
nú naumast lengur fyrir hendi,
en unt myndi að fá byggð skip
í Svíþjóð.
Finnur Jónsson sagði, að fjár
veiting^nenfd hefði að þejþsu
sinni fylgt þæirri stefnu, er
nefndin markaði í fyrra: að Ieit-
t
Þökkum sýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
Guúrúnar Ögmundsdóttur,
Grund í Hveragerði.
Börn hinnar látnu.
ast við að halda uppi sem mest
um verfclegum framkvæmdum
á vegum ríkissjóðs.
í þessu sambandi beindi
Finnur þeirri fyrirspurn til
fjármálaráðherra, hvort rík-
isstjórnin mundi leggja til
hliðar og geyma það fé, er
ætlað hefði verið til verk-
legra framkvæmda og ekki
hefði verið unnið fyrir á ár-
inu, svo sem síðasta alþingi
hefði ætlast til. Kvað hann
eklti litlu varða, hvað ríkis-
stjórnin hyggðist fyrir í
þessu.
Fjármálaráðherra svaraði því
til að vegamálastjóra hefði ver
ið gefin fyrirmæli um að leggja
til hliðar og geyma í sérstökum
reikningi það fé, er ætlað hefði
verið til vega- og brúargerða og
ekki hefði verið unnið fyrir á
árinu. Ef ríkissjóður getur stað
ið straum af þeim útgjöldum,
sem fyrirhuguð eru til verk-
legra framkvæmda á næsta ári,
sagði ráðherrann, þá verður féð
geymt, ef eitthvað verður ó-
notað.
Alþýðufræðsla Hlífar
í Hafnarfirði.
ÁætSun um hana
fram í aprílmánuð.
VERKAMANNAFÉLAGIÐ
„Hlíf“ í Hafnarfirði, held-
uruppi fræðslustarfi þar í bæn-
um fyrir meðlimi sína og aðra
bæjarbúa.
Er fræðslustarfsemi félagsins
í því formi, sem algengast er
nú orðið, en það er flutningur
fræðandi fyrirlestra, sem flutt
verða á vegum félagsins.
Nú 'þegar hafa tveir slíkir
fyrirlestrar verið fluttir á veg-
um Hlífar annar af Jóni Rafns-
syni erindreka Alþýðusam-
bands íslands um verkalýðs-
hreyfinguna en hinn af hr.
biskupinum Sigurgeir Sigurðs-
syni, sem flutningsmaður
nefndi: ,,Á vegum Krists og
kirkju.“
Verkamannafélagið ,Hlíf“ hef
ir nú birt áætlun sína um
fræðslustarfsemi sína, og er þar
gert ráð fyrir, að fyrirlestrar
verði fluttir annan hvern sunnu
dag í vetur, í Góðtemplarahús-
inu í Hafnarfirði kl. 4. s. d.
Áætlun þessi fer hér á eftir:
Október: Verkalýðshreyfing-
in: Jón Rafnsson, erindreki Al-
þýðusambands íslands. — Á
vegum Krists og kirkju: Hr.
biskup Sigurgeir Sigurðsson.
Nóvember. Sjálfvalið efni:
Sigurður NordaÍ prófessor. —
Sjálfvalið efni: Jóhann Sæ-
mundsson yfirlæknir.
Desember. Fiskiveiðar íslend-
inga: Árni Friðriksson magister.
— Líkamsrækt: Þorsteinn Ein-
arsson íþróttafulltrúi.
J anúar. Alþýðutryggingarn-
ar: Haraldur Guðmundsson al-
þingismaður. — Leiklistin: Lár-
us Pálsson leikari.
Febrúar. Sjálfvalið efni: Sím-
an Jóh. Ágústsson dr. phil. —
Bókalestur og bókaval: Magnús
Ásgeirsson bókavörður.
Marz. Kaupstaðirnir og bú-
skapur: Pálmi Einarsson ráðu-
nautur. — Samvinnuhreifingin:
Ragnar Ólafsson lögfræðingur.
Apríl. Skógrækt: Hákon
Bjarnason skógræktarstjóri.
Aðgangur að fyrirlestrum
þessum verður seldur svo vægu
verði og unnt er, aðeins eina
krónu. Er þess að vænta að
Hafnfirðingar kunni að meta
menningarstarf það er Hlíf er
að vinna með þessari starfsemi
sinni.
íslenzkur blaðamaður
í amerísku úfvarpi.
Um norsku hersveiiirnar á Islandi.
Benedikt s. gröndal
blaðamaður, sem nú
nemur blaðamennsku við Har-
vardháskóla, hefir átt útvarps-
tal við dr. Frank Nelson, er
veitir Norsku upplýsingaskrif-
stofunni vestan hafs forstöðu.
Kvað Gröndal norsku hermenn
ina á íslandi njóta vinsælda
meðal hinnar íslenzku þjóðar.
Gröndal fórust orð á þessa
lund: — Við lítum á Norð-
menn þá, er komið hafa til ís-
lands eftir að styrjöldin hófst,
sem vini vora. Okkur er hlýtt
til þeirra eins og þeir væru
vandamenn vorir, og við vilj-
um fúslega láta þeim alla þá
þjónustu í té, sem oss er auðið.
Gröndal kvað norska flúg-
menn hafa lagt til atlögu við
þýzkar flugvélar, sem gert
hefðu árásir á ísland. Einnig
lét hann þess getið, að norskir
flugmenn hefðu bjargað lífi
íslenzkra manna, sem veikzt
hefðu á afskekktum stöðum,
með því að fljúga með þá til R.-
víkur, þar sem þeir hefðu
hlotið læknishjálp og sjúkra-
hússvist.
Gröndal lét þess og getið, að
norskir fiskimenn hefðu komið
frá Noregi til íslands á smábát-
um. Þetta verður til þess, að
við minnumst forfeðra vorra,
sem gerðu slíkt hið sama fyrir
méira en þúsund árum, til þess
að losna undan harðstjórn, sem
gerði þeim lífið í heimalandi
þeirra óbærilegt.
HAseiæðraskðlin.
Frh. af 2. síðu.
gátum aðeins tekið 31. Alils eru
nú í skólanum 71 stúlka, 31
í heimavist, 24 á dagskóla og
16 á kvöldnámskeiðum. Auk
þess starfrækjum við sýninga-
kennslu fyrir húsmæður — og
stendur hvert námskeið í þrjú
kvöld. Námskeiðið, sem nú er
lokið, sóttu 20 húsmæður. Nýtt
mámskeið byrjar í næstu viku.
Á öllu þessu geta Reykvík-
ingar ség .hversu mikil þörf er
fyrir þennan skóla —og hversu
mikil þörf er á því að auka
hann.“
Blaðamennirnir gengu um
skólann að borðhaldinu loknu,
fóru um skólastofurnar, þar
sem námsmevjarnar störfuðu að
saumaskap — sumar voru að
læra að sauma barnatau, — að
vefnaði, línstroku, eldhússtörf-
um o. s. frv. o. s. frv. Þá fóru
þeir um vistarverur þeirra. —
í litlu bakhúsi við skólann
starfa stúlkumar sjálfstætt í
eina viku og er það gert tiil þess
að æfa þær í því að stjórna að
öllu leyti sínu eigin heimild.