Alþýðublaðið - 14.11.1943, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 14.11.1943, Blaðsíða 3
Sunnudagur 14. nóvember 1943 ALÞYÐUBLAÐIÐ Tíðindalífið frá Ítalíu Altalíu hefir fátt markvert gerzt síðasta sólarhring- inn. í fréttum frá London . á miðnætti í nótt var aðeins greint frá staðhundnum, minni háttar viðureignum, og hafi bandamenn bætt aðstöðu sína. Hefir snjóað á vígstöðvunum og er ófærð á vegum og erfitt um' allar hernaðaraðgerðir. Sveitir úr 8. hernum hafa farið yfir Sangro-fljót og unnið Þjóð- verjum nokkurt tjón. 5. her Clarks hershöfðingja hefir náð á sitt vald tveim smábæjum á Mignano-Venafro vígstöðvun- um. Tundurspillar bandamanna hafa veitt 5. hernum aðstoð með því að skjóta á stöðvar Þjóðverja nálægt borginni Ga- eta. Einn tundurspillanna var pólskur, hinir brezkir. 8. herinn hratt nokkrum gagnáhlaupum Þjóðverja og bætti aðstöðu sína á bökkum Sangro-fljóts. Flugher bandamanna gerði árásir á járnbrautina norður af Kóm, en aðrar flugsveitir fóru til árása á staði í Albaníu og vörpuðu sprengjum á flugvöll og olíuhreinsunarstöð. Þá var einnig gerð árás á hernaðarlega mikilvæga staði í Júgóslavíu, norður af Split. Þjóðverjar misstu 5 flugvél- ar yfir ítalíu í fyrra dag en jbandamenn 3. Loftárás á Bremen IGÆR fóru mörg flugvirki Bandaríkjamanna til árása á Þýzkaland. Flugvirkin nutu fylgdar Thunderbolt-orrustu- flugvéla. ' Aðalárásinni var beint gegn Bremen, næstmestu hafnarborg Þýzkalands. Kom til snarpra átaka við þýzkar orrustuflugvélar og lauk viðureigninni þannig, að flugvirkin skutu niður 33 orr- ustu-flugvélar Þjóðverja, en Thunder-bolt-flugvélarnar skutu niður 10 í viðbót. Banda- ríkjamenn misstu 15 flugvirki og 9 orrustuflugvélar. Ekki er enn vitað um árangur af loft- árásinni. Mosquito-flugvélar gerðu einnig árásir á stöðvar Þjóð- verja, meðal annars á Bre- tagne-skaga. Finu va.rðskipi Þjóðverja var sökkt í loftárás undan Boulogne. Orrustuflug- vélar réðust á eimlestir og eyðilögðu 11 eimreiðir. barátta Noregs T ÚTVARPSRÆÐU, sem Trygve Lie, utanríkisráð- herra Norðmanna, flutti. s.l. þriðjudag, lagði hann áherzlu á, að styrjöldinni væri ekki lok- ið, frá sjónarmiði Norðmanna, fyrr en Japan hefði einnig verið sigrað. Það væri þýðingarlaust að semja frið við Þýzkaland meðan ræningjaríki í austri léki lausum hala. Taldi ráðherrann víst, að norska þjóðin liti einnig svó á, en engin ákvörðun yrði tekin um áframhaldandi þátttöku í ófriðnum eftir fall Þýzkalands, nema með samþykki þjóðarinnr ar sjálfrar. Hins vegar á Nor- egur mikilla hagsmuna að gæta í Austur-Asíu, þar sem er ör- yggi á siglingaleðium þar og frjáls viðskipti. Loftsóknin frá Italíu Mynd þessi gefur allgóða hugmynd um bætta aðstöðu bandamanna til loftárása á stöðvar Þjóðverja frá flugvöllum á Suður-Ítalíu og Korsíku. Hringirnir til hægri sýna fjarlægðir í enskum mílum (1 ensk míla er 1.6 km.), frá Foggia, en þar eru ágætir flugvellir. Þannig eru ekki nema um 400 mílur frá Foggia til iðnáðarborgarinnar Graz í Austurríki. Hring- irnir til vinstri sýna fjarlægðir frá Korsíku. Zhitomir á valdi Rússa. Kósakkar tókn borgina með áhlaupi. SÍÐDEGIS í gær tilkynnti Stalin, að hin mikilvæga sam- göngumiðstöð Zithomir væri nú á valdi Rússa. Borgin er, sem fyrr getur, á aðal-samgönguleið Þjóðverja frá norðri til suð- urs, og hefir því mjög mikla hernaðarlega þýðingu. Eáin er um 100 km. frá landamærum Póllands og þar búa um 100 þúsund manns. Við Gomel hafa Rússar einnig sótt nokkuð á, og telja frétta- ritarar aðstöðu Þjóðvcrja hafa versnað til stórra muna. Orrustan um Kerch geisar enn, en fyrirsjáanlegt þykir, að Þjóðverjar verði að hrökklast þaðan þá og þegar. Með töku Zhitomir hafa Rússar unnið enn einn stórsig- urinn og þykir sókn þeirra þangað mikið hernaðarafrek, þar eð þeir fóru 130 km. frá Kiev á einni viku, þrátt fyrir það, að Þjóðverjar reyndu að tefja þá eftir föngum. Vatutin hershöfðingi Rússa beitti snjöllu herbragði til þess að ná borginni. Lét hann sumar her- sveitir sínar sækja að borginni að sunnan, til þess að draga at- hygli Þjóðverja frá þvi', sem raunverulega var að gerast, en síðan tefldi hann fram miklu fótgönguliði gegn borginni, og loks þeystu Kósakkar inn í hana og hröktu Þjóðverja á brott. í þessari sókn náðu Rússar á sitt vald yfir 100 þorpum og byggðum bólum, þar á meðal borginni Korostchev, um það bil 30 km. frá Zhitomir. Sú borg féll í hendur Rúsum eftir harða bardaga og var Þjóð- verjum stökkt á flótta, en eftir það varð minna um varnir í Zhitomir. Hafa Rússar nú rofið aðal-aðflutningsleið Þjóðverja, og mun þetta hafa mikil áhrif á rás viðburðanna á þessum vígstöðvum. Þjóðverjar veita harðvítugt viðnám suður af Ryetchissa, sem er um 50 km. vestur af Gomel. Reyna Þjóðverjar að forðast það að láta hrekjast út í Pripetmýrarnar og eykur sókn Rússa til Korosten mjög á þá hættu. Á vígstöðvunum við Fastov, suðvestur af Kiev, verjast Þjóðverjar af hinu mesta kappi og gera gagnáhlaup t.il þess að reyna að vernda herirm í Dnieprbugnum. Á Kriraksaga er barizt heiftarlega dag og nótt bæði á landi, á sjó og í lofti. Rússum hefir enn tek’zt að koma hergögnum yfir Kerch-sund og hafa nú sknð- dreka á Kerch-tanga. Samkvæmt fregnum írá Moskva síðdegis í gær hefir Þjóðverjum hvergi tekizt að brjóta á bak aftur hina öfiugu sókn Rússa. Bretar á Leros í úlfakreppu ÞJÓÐVERJUM hefir enn tekizt að koma liði á land á Leros ög eiga Bretar og ít- alir, "sem þarna verjast, mjög erfitt um vik. Að þessu sinni var lið sett á land vestanvert á eyjunni, en fallhlífahersvc-it- ir svifu til jarðar um miðbildð. Þjóðverjar njóta stuðnings steypiflugvéla, sem ráðast í sí- fellu á stöðvar Breta. Hins veg- ar geta Bretar ekki komið 'lug- vélum sínum við, svo að gagni komi, þar sem næsta flugbæki- stöð þeirra er á eyjunni Kýpur, en þangað er um 500 km. flug- leið. Bækistöðvar Þjóðverja eru á næstu grösum. Er aðstaða Breta mjög ískyggileg, að því er síðustu fréttir hermdu. Dómsmálaráðherra Norðmanna: Svíar bjálpa Norð- mönnum eflir föngum •T1 ERJE WOLD, dómsmála- -*■ ráðherra Norðmanna, fór nýlega snögga ferð frá London til Svíþjóðar á vegum stjórnar sinnar. Er hann kom aftur til London átti blaðið „Norsk Tidend“ tal við ráðherrann og gaf hann meðal annars eftirfar- andi upplýsingar: Norðmenn í Svíþjóð, sem ekki geta komizt til Bretlands og tekið virkan þátt í barátt- unni, inna af hendi margvísleg störf, svo sem skógarhögg og landbúnaðarstörf, og allir bíða þeir með óþreyju þess dags, að þeir geti snúið heim aftur sem frjálsir menn. Svíar eru þeim afar hjálpsamir, og yfirleitt er samvinna Svía og norslcu flótta- mannaskrifstofunnar með á- gætum. Unnið er að því að undirbúa eftir föngum heimflutning kvenna og barna, svo allt fari skipulega fram, þegar þar að kemur. Loks vinnum við að því, eftir því sem hægt er, að matarbirgðir verði fyrir hendi, þegar fjandmennirnir hafa verið reknir úr Noregi. Loks sagði Terje Wold, að skilningur Svía og Norðmanna á lögum, rétti og mannúðarmál- um væri sá hinn sami, eins og bezt hefði sést á því, hverjar móttökur norskir flóttamenn hefðu hlotið í Svíþjóð. Taldi ráðherrann, að sömu stefnu yrði fylgt, þegar draga ætti quislinga og stríðsglæpamenn til ábyrgðar, enda væri a.Kr’ð undir því atriði komið með til- liti til samvinnu bræðraþjóð- anna í framtíðinni., Atlantic Ciiy: Magnús Sigurðsson sfcipaður í nefnd F RÁ ATLANTIC CITY ber- ast þær fregnir, að Magnús Sigurðsson bankastjóri, fulltrúi íslands á ráðstefnunni þar. hafi verið skipaður í dagskrárnefnd. Formaður nefndarinnar er Jan Masaryk, lutanríkisráðherra Þjóðverjar hræddir umlífsitl FYRIR sutttu varð járnbraut arslys í nánd við Mjön- dalen í Noregi og fórust all- margir Þjóðverjar. Vegna þessa atviks, hafa Þjóðverjar gripið til þess ‘ráðs, að kveðja vissan hóp norskra áhrifamanna til þess að halda vörð við brýr, jarðgöng og þessháttar og ber hann ábyrgð á öryggi þýzkra hermanna, sem fluttir eru með járnbrautarlestunum. Nýlega voru tvær dætur Bergesens, forseta óðalsþings- ins norska, teknar fastar og fluttar í hinar illræmdu fanga- búðir í Grini. Síðar fréttist, að þær hefðu verið fluttar til Þýzkalands. -------------------------- i tékknesku stjórnarinnar í London. McArfhur filkynnir mikla sigra ■lr '' "O RÁ aðalbækistöðvum Mc- •L Arthurs berast þær fregn ir, að bandamenn hafi sökkt 1 japönsku beitiskipi og 2 timd- urspillum við Rabaul. Annað beitiskip var laskað, svo og 11 tundurspillar. Segir í tilkynningu McArt- hurs, að könnunarflugvélar hafi orðið varar við 23 japönsk her- skip við Rabaul. Voru þegar gerðar loftárásir á flota þenn- an og tóku þátt í þeim flugvél- ar Bandaríkjaflotans og flug- vélar, sem höfðu bækistöð í landi. Á miðvikudaginn var var gerð hörð árás á flugvöllinn í Rabaul. Kom til loftbardaga og misstu Japanir 23 flugvélar. Japanir reyndu að gera árásir á flota Bandaríkjamanna, en flugvélar þeirra voru hraktar á brott, áður en þær fengu unn- ið honum verulegt tjón. Misstu þeir 64 flugvélar í þeirri viður- eign. Bandaríkjamenn misstu aðeins 17 flugvélar og margir flugmannanna komust lífs af. Könnunarflugmenn skýrðu síð- ar frá því, að aðeins 8 óvina- herskip væru eftir við Rabaul. Bandamenn hafa gert skæð- ar árásir á stöðvar Japana á Bougainville-eyju.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.