Alþýðublaðið - 14.11.1943, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 14.11.1943, Blaðsíða 4
ALÞYÐUBLAÐIÐ Sunnudagur 14. nóvember 194S fUþi|ðtibUðið Útgefaadi: AlþýSaflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pétursson. Ritstjém og afgreiSsla í Al- þýðuliúsinu við Hverfisgötu. pfmar ritstjómar: 4901 og 4902. Símar afgreiðslu: 4900 og 4906. Verð i lausasölu 40 aura. Alþýðuprentsmiðjan h.f. Sigar Ölafs Tbors ð SaðurnesjamöDnao). ÞAÐ hefir oft þótt viljað við brenna á alþingi, að þingmenn væru nokkiuð ágeng- ir og harðfylgnir fyrir hönd kjördæma eða umbjóðenda sinna. En í lok vikunnar sem leið varð einkenmleg unjdan- tekning á þessu. Einn af þing- mönnunum fór hamförum í þinginu til þess að koma í veg fyrir að stórt hagsmunamál fyrir kjördæmi hans næði fram að ganga. Þessi þingmaður var Ólafur Thors, þingmaður Gull- bringu og Kjósarsýslu. Fyrir þinginu lá tillaga til þingsályktunar frá honum um að heimila ríkisstjórninni að kaupa efni í rafmagnsveitu fyrir Keflavík. En ekki aðeins Keflvíkinga, heldur Suður- nesjamenn yfirleitt, vantar til- finnanlega rafmagn, og hafa mikinn hug á því, að fá raf- magnsveitu fyrir allt Reykja- nes, og því flutti Guðmundur I. Guðmundsson þá breytingar- tillögu við tillögu Ólafs Thors, að ríkisstjórninni skyldi heim- ilað, að kaupa efni til raf- magnsveitu fyrir sjávarþorp á Suðurnesjum yfirleitt; og ætl- uðu menn, að þingmaður kjör- dæmisins hefði sízt ástæðu til þess að vera slíkri breytingu á tillögu hans andvígur. En það furðulega skeði, að Ólafur 'Thors reis öndverður gegn breytingartillögu Guð- mundar og hafði beinlínis lið- safnað í þinginu til þess að fá hana fellda. Gat enginn skýrt slíkt háttalag þingman.nsins fyrir sér á annan hátt en þann, að hann væri svo afbrýðissam- ur gagnvart Guðmundi I. Guð- mundssyni, sem eins og kunnugt er var í kjöri á móti honum í Gullbringu- og Kjós- arsýslu við síðustu kosningar, að hann kysi heldur að hindra framgang stórkostlegs 1 hags- •munamáls fyrir allan þorrann af umbjóðendum sínum, en að það næði fram að ganga fyrir frumkvæði Guðmundar. Við atkvæðagreiðsluna um máli urðu úrslitin þau, að Ólafi Thors tókst með liðsafnaði sín- tum — kommúnistar greiddu allir sem einn maður atkvæði með honum og flokki hans — að fella breytingartillögu Guð- mundar og bregða á þann hátt fæti fyrir Reykjanesrafveituna. En því næst var tillaga Ólafs um heimild til efniskaupa í raf magnsveitu fyrir Keflavík sam þykkt í einu hljóði. Morgunblaðið var mjög hróðugt yfir þessum málalok- um í gær og kallaði þau „sig- ur Ólafs Thors“. Já, Ólafur Thors vann sigur í málinu — á umbjóðendum sínum, Suður- nesjamönnum. En mikið má það vera, ef sá sigur á ekki eftir að xeynast honum Pyrrhusarsigur. Felix Guðmundsson: Fvrsta verkfallið - fyrir 40 ðrum. SUMARIÐ 1904 fóru átján Sunnlendingar norður að Jökulsá í Axarfirði, voru ráðn- ir til að vinna við brúargerð á Jökulsá, ásamt allmörgum Norðlendingum. Brú þessi er hengibrú og eru tveir stöplar hvorum megin, hlaðnir úr grásteini. Var unnið að því um sumarið að hlaða þessa stöpla og voru því meðal verkamannannna vanir stein- smiðir. Var einn flokkstjóri hafður hvorum megin árinnar. Auk þess var með í ferðinni maður, sem sjá átti um alla að- flutninga, kaupa hesta og því um líkt og borga verkamönn-, unum út laun sín, þar til aðal- yfirmaðurinn kæmi, en það var Steinþór Björnsson steinsmiður frá ‘Litlu-Strönd við Mývatn, faðir Steingríms búnaðarmála- stjóra og þeirra bræðra. Kaup manna var ákveðið við ráðningu. Var það kr. 3,00 fyr- ir daginn hjá óbrotnum verka- mönnum, en víst um kr. 3,50 hjá þeim, er vanir voru grjót- vinnu. Þarna varð .einnig að vinna önnur verk en þau, sem unnin voru við brúarstæðið, Sérstök skip komu með cement og sjálfa brúna, sem smíðuð var erlendis. Við uppskipunina varð að vinna jafnt að nóttu sem degi og varð vinnutíminn þá óreglulegri en á sjálfum brúarstaðnum. Af þessu mynd- aðist fyrsti ágreiningurinn. Við uppskipun á cementi, sem var mjög vond vinna, þar sem að- staða var slæm, bryggjulaust og léleg tæki, var unnið óslitið í að minnsta kosti þrjú dægur. Þóttu það að vonum nokkuð harðir kostir. En Jónas, sá, er sá um aðflutningana og útborg un vinnulaunanna, svo sem áð ur er getið, lofaði að greiða kaup fyrir þá aukatíma, sem unnir voru, en þegar til kom, urðu víst efndirnar lélegar. Ekki var það þó þessi ágrein- ingur, sem kom af stað þeirri óánægju, er leiddi til þess að lokum, að vinna var stöðvuð. Til þess lágu þær orsakir, að Jónas þessi var ógætinn í orð- um og lét þá, er þarna störf- uðu, lítillar virðingar njóta. Hafði hann mar^t við mennina að athuga, þótti sumir vera lat- ir og lítilvirkir, en bauð svo öðrum ýmis fríðindi, ef þeir vildu herða á mönnum við störf sín, og bað þá að segja sér ef menn héldu sicr illa að vinnu og væru lítilvirkir. Þó að eng- inn af verkamönnunum yrði við þessum tilmælum, varð andrúmsloftið á vinnustaðnum þó æði rotið, söguburður um ámæli, vanþakklæti og ónáð Jónasar á hinum og þessum breiddist út, þar til svo var komið málum, að meiri hluti þeirra manna, sem þarna unnu, voru orðnir svo óánægðir, að þeir nutu sín varla við vinn- una. Af þessu leiddi það, að menn tóku ráð sín saman og komust að þeirri niðurstöðu, að ef breyting ætti að verða, sem við unandi væri, yrði Jónas að fara. Ef hann hinsvegar ekki þýddist það, skyldum við allir fara úr vinnunni. Þessi ákvörð un var bundin fastmælum og úrslitin tilkynnt Jónasi. Varð hann fár við í fvrstu og vildi leita sætta, en það reyndist þungsótt. Menn voru í vígahug, fóru yfir ána á víxl, til skrafs og ráðagerða, réru fast, brutu árar og sungu söngva. Og kvöld ið sem ákvörðunin var tekin, endaði með því, að hleypt var nokkrum skotum úr ryðguðum byssuhólki, sem einn mannanna hafði í fórum sínum; sungin voru ýmis ættjarðarljóð og síð- ast íslendingabragur. „— — En Þeir fólar, sem frelsi vort svíkja“ hljómaði beggjamegin árinnar. VINNAN tímarit Alþýðu- sambandsins byrjaði í nýútkomnu tölubl. að birta greinaflokk eftir Felix Guð- tnundsson um „Verkföll, sem voru háð“. Fer hér á eftir fyrsta greinin, sem nefnist „Fyrsta verkfallið“, segir frá vinnustöðvun við brúargerð- ina við Jökulsá á Fjöllum fyrir hér um bil 40 árum. Og „Jökla“ vall fram með jöfn um hraða og þungum nið — það var undirspilið við sönginn og tákn þess kraftar, sem flest verður að beygja sig fyrir. Þessi atburður gerðist fyrri hluta júnímánaðar. Næsta morgun barst sú fregn meðal manna, að nú væri Stein þór kominn; hafði harin gist á næsta bæ, Ási, og var hans bráðlega von á vinnustaðinn. Jók þessi fregn mjög „spenn- ing“ þann, er ríkti meðal manna. Hvernig myndi hann líta á málið? Hvers málstað styðja? En nú var ekki lengur tími til urpþenkinga í þessum efn- um. Vitað var að Seinþór var aðeins ókominn og Jónas var farinn til móts við hann. Tím- inn var því notaður til þess að skjóta á fundi og var þar ákveð ið að halda fast við fyrri á- kvörðun. Skömmu síðar komu þeir Steinþór og Jónas og var nú enn haldinn fundur. Steinþór var viðstaddur og fengum við fljótt það álit á honum, að hann væri fastur fyrir, stilltur og athugull, og reyndist okkur sú ályktu* við síðari kynningu, rétt. Hann kvaðst ekki ætla að blanda sér í þetta mál, en sagði, að Jónas og við yrðum að leiða það til lykta, eri hon- um skildist þó fljótlega, að ekki væri um neinar sættir að ræða, því að í áheyrn hans voru born ar fram sakir og voru þær flest ar viðurkenndar af Jónasi í að- alatriðum. Endirinn varð sá, í þetta sinn, að Jónas bjóst til ferðar og Steinþór með honum, til Húsavíkur, til þess að taka við reikningsskilum af honum í viðurvist sýslumanns. Vinnan hélt svo áfram undir yfirstjórn Steinþórs og sóttist vel. Flokkstjórar voru hinir sömu og fyrr og samkomulag hið bezta. Bar nú fátt til tíð- inda, unz komið var fram í á- gúst, en þá kom til okkar Sig- urður Thoroddsen, þáverandi landsverkfræðingur og hafði Jónas Jónsson með sér. Kvað hann Jónas eiga að verða eftir á vinnustaðnum og skyldi hann vinna þar sem óbreyttur verka maður. Bárust tíðindi þessi milli vinnusvöðvanna og ræddu menn hvarvetna um hið nýja viðhorf. Mun og auk þess hafa verið rætt við aðal yfirmann- inn, Steinþór, sem lét málið af- skiptalaust að öðru leyti en því, að hann mun hafa sagt for göngumönnunum, að ef ákvörð un yrði tekin um vinnustöðv- un að nýju, vildi hann að það yrði gert meðan Sig. Thorodd- sen væri á staðnum. Var nú skotið á skyndifundi og urðu skoðanir manna skipt- ar um það, hvernig bregðast skyldi við málinu. Þótti ýms- um sem annað viðhorf hefði nú skapazt en áður var. Maður sá, er styrinn stóð um, hafði þegar verið sviptur þeim afskiptum, sem hann hafði áður haft af vinnunni, og þótt hann kæmi nú að nýju yrði hann gjörsam- lega valdalaus sem óbreyttur liðsmaður. Töldu sumir honum ekki of gott að kynnast sam- búðinni við verkamennina, eft- ir atburði þá, sem á undan voru gengnir og fannst ekki ástæða til að hefja vinnustöðvun af þessum ástæðum einum. Hinir — og þeir voru fleiri — töldu það áfrávíkjandi „princip“-mál, að hann kæmi ekki aftur til vinnunnar undir neinum kring umstæðum, af því myndi leiða nýjar sögur og spillt félagslíf. Auk þess gæti litið svo út sem menn væru hræddari við lands verkfræðinginn en aðra menn, ef slegið væri nú undan. Væri og ástæða til þess að ætla, að landsverkfræðingurinn, Sig. Thoroddsen, væri að svara því, er áður hafði skeð, þegar Jónas varð að fara, með því að setja hann að nýju til vinnu með okkur, því að nægileg verkefni voru að sjálfsögðu annars stað- ar fyrir hann, ef verkfræðing- urinn kaus að hafa hann í þjón ustu sinni. Sú ákvörðun var tekin að lokum af miklum meirihluta, að hætta vinnu næsta dag, ef landsverkfræðíngurinn héldi fast við ákvörðun sína, en frá henni vildi hann ekki víkja. Færði hann þau rök fyrir af- stöðu sinni, að Jónas hefði ekki sem verkamaður fyrirgert rétti sínum til vinnu. Þeirri kröfu hefði verið fullnægt, að svipta hann starfi sínu sem um- sjónarmanni og væri á engan hátt skert sú ákvörðun, þótt hann ynni nú með okkur fram- vegis sem óbreyttur verkamað- ur. jUndirföfl Náttkjólar frá 23.0f. Nátttreyjur 24.85. , Náttföt 31.09. vcrzl. Grettisgötu 57. Næsta dag kl. 10, þegar lok- ið var matmálstíma, var að venju „kölluð klukka“, en eng- inn hreyfði sig til vinnu. Men* lögðu sig úti fyrir tjöldunum og böðuðu sig í sólskininu. Um nón sama dag voru allir kallað ir til fundar við landsverkfræð inginn við tjöldin austan ár- innar. Hann spurði hvort það væri föst ákvörðun okkar að hverfa frá vinnunni og var því játað, að það myndi gert ef Jónas yrði settur á vinnustaðinn, og kvað Sig. Thoroddsen það ó- hagganlegan ásetning sinn. Jafnframt benti han okkur á, að við mættum búast við skaða bótakröfu fyrir töf á verkinu. Var honum þá bent á, að við værum engir ráðnir tiltekinn tíma — en hann taldi flesta hafa óskað vinnunnar sem lengst. Var því ekki mótmælt nema af einum manni, sem kvaðst hafa skýrt frá því, er hann réði sig, að hann myndi fara nokkuð snemma, vegna annarrar atvinnu og taldi Sig. Thoroddsen það nokkuð annað Frh. á 6. síðu. Ræða JAKOBS BENE- DIKTSSONAR um sam- bandsmálið á íslendingafundi í í Höfn í vor, sem birt var í Al- þýðublaðinu á föstudaginn upp úr Fróni, tímariti íslenzkra stúdenta í Kaupmannahöfn, hefir vakið mikla athygli og rifjað upp fyrir mörgum hinar heimskulegu og ódrengilegu getsakir Morgunblaðsins í garð Hafnar-íslendinga fyrir sam- þykkt þá, sem þeir gerðu um af greiðslu sjálfstæðismálsfns og sendu hingað heim. Morgun- blaðið finnur sig bersýnilega mjög berskjaldað fyrir þeim ummælum í formála Fróns fyr- ir ræðunni, sem að því snúa, og reynir því í ritstjórnargrein í gær, að klóra yfir skömm sína og sverja af sér sumt af þeim ómaklegu orðum, sem það lét á sínum tíma falla í garð landa okkar í Höfn, sem ekki höfðu neina aðstöðu til að svara fyrir sig fyrr en seint og síðar meir. Það skrifar: „í sumar bárust hingað fregnir af því, að íslendingar í Höfn hefðu samþykkt á fundi, — réttum mán- uði eftir að stjómarskrárneínd skilaði sameiginlegum tillögum um að lýðveldisstofnun færi hér fram eigi síðar en 17. júní 1944, — að „beina þeirri eindregnu ósk til stjórnar alþingis að fresta úr- slitum þessa þangað til báðir að- iljar hafa talazt við“. Alþýðublaðið hossaði þessari fregn. Morgunblaðið sagði: „Það má um þessa ályktun segja ,að áður fyrr heyrðist annar tónn frá íslenzkum stúdentum í Höfn“. Þetta var satt. Hitt vissi Morgun- blaðið að var jafn satt, að íslend- ingar, sem nú dvelja í Danmörku, bjuggu við allt önnur skilyrði en nokkru sinni fyrr. Þess vegna bætti blaðið við: „Hitt er svo ljóst, að þeir Islendingar, sem nú dvelja í Kaupmannahöfn, búa við þau skilyrði, að þeir íiafa enga getu til þess að hafa frjáisa yfirsýn mála, eða að minnsta kosti alls- kostar takmarkaða möguleika til þess að tjá sig opinberlega um þau“. Morgunblaðið leit svo á, að draga mætti með fullum rökum í efa, að fram kæmi allur hugur ís- lendinganna í Höfn. Það vítti þá því ekki — heidur aísakaði. Alþýðublaðið liefir hvað eftir annað verið að sveigja að Morgun blaðinu, — og gerir það enn í gær, — fyrir dólgslegar getsakir í garð landa okkar í Kaupmannahöfn“ — í sambandi víð áminnsta fregn. Eitt af skáldunum, sem „týnzt hafa“ í sjálfstæðismálinu, eins og Sigurður Eggerz komst að orði, tók undir við Alþýðublaðið, af ekki* minni vandlætingu, í tíma- riti sínu einhverju sinni, að visu 1 „léttara hjali“. Oss sýnist alveg augljóst, í afstöðu hvors blaðsins felist meiri „árás“ á íslendinga í Höfn, og leggjum það óhikað und- ir þeirra dóm sem annarra. Allt annað mál er það, er fram kemur í „Fróni“, biaði íslendinga í Höfn, að þeir hafi frétt ,,á skot- spónum“, að þeir „hafi sæt.t hörð- um átölum í Morgunbiaðinu". Ekki getur Morgunbiaðið ábyrgzt ófróman sögubui'ð.“ Svo Morgunblaðið getur ekki skilið, að það stafi af neinu öðru én „ófrómum söguburði“, sem það geti enga ábyrgð á tekið, að íslendingar í Höfn telji sig hafa „sætt hörðum átölum í Morgunblaðinu“ því að það (Frh. á 6. síðu.)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.