Alþýðublaðið - 14.11.1943, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 14.11.1943, Blaðsíða 6
ALÞYÐUBLAÐIÐ Simnudagur 14. nóvember 1943 Gúmmístakkar Olíufatnaður Skinnjakkar Skinn- og Taublússur Stormblússur , Skyrtur o. fl. j Sjóklæði og Fatnaður S.f. ^ Varðarhúsinu. — Sími 4513. $ S S s S s s s s s s s s s s s s s s s s 25 ára blaðamannsafmæli: Halldúr Frlðiónsson, Akurejrri HANNES Á HORNINU Frh. af 5. síðu. „FYRST NÚ AÐ tóbak er talið nauðsynjavara, þá má gjöra ráð fyrir, að margra grasa kenni í því plaggi er gengið byggist á. Enda virðist sumum áhugamál að vísi- talan, eða réttara sagt, gengishrun ið, breytist ekki til lækkunar, og er þetta eitt af því er ber vott um sjálfstjórnarhæfileika þjóðarinn- ar.“ „ÁHUGAMAÐTJR skrifar mér: „Ég er 23ja ára að aldri, hefi fengist töluvert mikið við búskap og hef mikinn áhuga á honum. Ég er eins og svo margir ungir menn, sem ekki eru til fjár fæddir, pen- ingalítill. En engu að síður hefi 'ég gott veganesti, nefnilega: þekk- ing, áhugi og gott heilsufar, sem 'ég vil telja bestu og nauðsynleg- ustu eiginleika bóndans.“ „EIGINLEIKAR ÞESSIR hafa gefið mér tilefni til að íhuga mögu leikann á því að verða bóndi, og niðurstaðan er þessi: 1. Nóg er til af auðum býlum í landinu. 2. Framboð á bólföstum býlum er mikið, vegna sívaxandi flótta bænda úr sveitunum, sem náð hefir hámargi sínu nú frá því er stríðið skall á. 3. Landbúnaður er og hefir verið okkar aðal atvinnu- vegur, ásamt fiskveiðum, og lífs- liauðsynlegur hverri þjóð, og ekki sízt okkur íslendingum, þar eð aðrir atvinnuvegir eru hér hverf- andi littlir." „AÐ ÖLLU ÞESSU athuguðu ætti lífið að brosa við mér. Og hvernig sem ég velti þessu fyrir mér verður útkoman alltaf þessi: Heilög skylda stjórnarvaldanna, svo framarlega sem þjóðskipu- lagið er byggt á réttum grund- velli, er að veita ungum mönnum, sem sýna vilja þegnskap með því að leggja á sig erfiði bóndans til að rækta landið, sér og þjóð sinni til bjargar, allan þann stuðning, sem þeir nauðsynlega þarfnast til þess.“ „EN MÉR FINNST sannarlega að allmikið vanti uppá þetta. Það er allt af verið að tala um upp- bætur, en það er ekkert talað um framtíð okkar sem erum að vaxa upp og viljum gjarnan taka plóg og orf. Framtíð landbúnaðarins er aðalatriðið. Ég er ekki að krefj- ast neinnar gjafar, en það þarf að koma Iandbúnaðinum í það horf að við getum byrjað. Síðan munum við skapa okkur hamingju sjálf.“ Hannes á horninu. HVAÐ SEGJA HEN BLÖÐIN? Framhald af 4. síðu. hafi ekki vítt þá, heldur aðeins afsakað! En eitthvað annað mun nú þeim hafa fundizt, sem lásu þá athugasemd blaðsins við samþykkt Hafnar-íslend- inga um sjálfstæðismálið, þegar hún var birt í dálkum þess, að þeir hefðu „brugðizt hinum ís- lenzka málstað“ og sjá mætti „áhrif nazismans“ í samþykkt þeirra. En máske Morgunblað- íð vilji halda því fram, að einn- ig slík orð í garð landa okkar i Höfn séu afsakanir en ekki ávítur? Fyrsta verkfallið — fyrir 40 árnm (Frh. af 4. síðu.) og ólíkt því að „hlaupa í burtu“ á miðju sumri. Þá var það, að þessi sunn- lenzki rumur gekk fram fyrir verkfræðinginn og rétti út aðra löpp sína eins og hún var löng til, sýndi honum járnað verka- mannastígvél og mælti- „Ég held maður hlaupi ekki langt á þessu!“ — Ég get um þetta hér til gamans, því að viðræðurnar voru mjög í þessum tón. Þessum fundi með landsverk fræðingnum lauk án árangurs. Næsta dag eða svo, hélt hann á brott frá okkur aftur og hafði Jónas með sér. Um svipað leyti hófst vinna á nýjan leik, þótt með semingi væri. Vildu sumir halda verkfallinu áfram, unz verkfræðingurinn hefði fallizt á að vísa Jónasi með öllu úr vinnunni, en það hafði hann ekki viljað vera. Hins veg ar töldu aðrir, að deilan væri raunverulega unnin og engin á- stæða því fyrir hendi til frek- ari mótþróa. Þá lögðu og hér- aðsbúar með héraðslækni í broddi fylkingar, mjög eindreg ið að mönnum að hefja vinn- una aftur, því að allar tafir komu niður á þeim. Fólkið hafði reynzt okkur vel og við vildum mjög gjarnan vera því til geðs. Og svo fór í þessum efnum að raunverulega höfðum við ekkert meira af Jónasi að segja. Hann kom víst einu sinni á staðinn eftir þetta, en fýsti ekki að eiga þar langa dvöl, og hvarf eins fljótt og hann kom. Það, sem einkenndi mennina við Jökulsá, var það, að þeir þekktu kraft sinn og höfðu upp- götvað samtakamáttinn þegar á því herrans ári 1904. Yfirmenn- irnir voru fólkinu velviljaðir, og maðurinn, sem allt snerist um, var ekki lakari en gengur og gerist. Hann vildi komast á- fram og verða fjáður. Hann hafði séð marga gera það á kostnað fólksins, hefir að sjálf- sögðu haldið, að ef hann kæmi sér vel við yfirboðara sína, væri gæfan tryggð, hvað sem „þrælunum“ liði, en svo nefndi hann stundum verkamennina. Sennilega hefir hann ekki hald- ið að til væri fólk, sem tæki til- tölulega litlar syndir svo alvar- lega sem við gerðum. Mennirnir við Jökulsá vísuðu öðrum leiðina til sigurs, ef rang- indum væri beitt við þá, og fyrir þær sakir áttu þeir ekki afturkvæmt að Jökulsá síðar. Þeim gerði það ekkert til, þetta voru vaskir drengir, sem höfðu nóg að starfa. — Við kvöddum Steindór með litlu kaffisamsæti á Húsavík um haustið, fullvissir þess að eiga ekki kost á því að vinna með honum næsta sum- ar. Helzt hefðum við þó kosið það, því að það sem við söknuð- um var prúðmennska hans, gæði fólksins og fegurð héraðs- ins. En öllu þessu varð að fórna fyrir sigur réttlætis og samtaka. ÚíbreiÖiÖ MbýÖublaðíÖ. Elsti blaðamaður Al- þýðuflokksins, sem allt af hefir verið í starfi, á í dag 25 ára blaðamannsafmæli. Það er Halldór Friðjónsson ritstjóri Alþýðumannsins á Akureyri. 14. nóvember árið 1918 kom út á Akureyri nýtt blað, sem hét Verkamaðurinn. Var Hall- dór Friðjónsson stofnandi þess og ritstjóri. Halldór Friðjóns- son stofnaði blað þetta fyrst og fremst vegna þess, að baráttan milli verkamanna og atvinnu- rekenda á Akureyri var orðin svo hörð, að atvinnurekendur neyttu afls síns og yfirráða s'vo mjög að verkamenn gátu ekki fengið að túlka skoðanir sínar og viðhorf til málanna í þeim blöðum sem til voru í bænum og túlkuðu þau því eingöngu sjón- armið atvinnurekenda. Það var mikið ráðizt í þá daga að hefja blaðaútgáfu fyrir félítinn mann, enda vissu sum- ir atvinnurekendur það og beittu sér því mjög gegn þess- um fyrsta vísi að málgagni fyrir verkalýðssamtökin í höfuðstað Norðurlands. Önnur blöð tóku því þessu nýja blaði og ritstjóra þess með miklum kulda. Sér- staklega þótti nafn blaðsins vont, enda þótti mönnum skörin vera farin að færast upp í bekk- inn, þegar hafin var blaðaút- gáfa, sem kennd var við eyrar- vinnulýð og kotunga. En Hall- dór gafst ekki upp. Hann hafði þá tekið ástfóstri við jafnaðar- stefnuna og hugsjónaeídur hans skapaði honum aukið áræði. Og hann stóð einn að útgáfunni fyrst í stað. Varð þessi blaðaútgáfa hans til ómetanlegs styrks fyrir verkamenn og samtök þeirra í baráttunni fyrir viðunandi lífs- kjörum. Bróðir Halldórs, Erlingur Friðjónsson, ásamt nokkrum verkamönnum, gengu inn í út- gáfu blaðsins frá næstu áramót um og varð blaðið um leið op- inbert málgagn verkamannna- félagsins og Alþýðuflokksins á Akureyri og naut útgáfa þess á næstu árum nokkurs styrks frá Verkamannafélaginu. Um áramótin 1926—27 keypti Verkalýðssamband Norður- lands blaðið og var Halldór Frið jónsson ráðinn ritstjóri og á- byrgðarmaður þess, en 1. jan- úar 1928 tók stjórn VSN ábyrgð ina á blaðinu, en Halldór sá um útgáfuna og var áfram ritstjori þess. Þetta hélzt til 6. janúar 1931, er kommúnistar náðu blað inu algerlega í sínar hendur með eins atkvæðis meirihluta í stjórn VSN og brutust um leið til algerra valda í verkalýðs- hreyfingunni nyrðra. En 10. janúar sama ár tóku þeir bræður Halldór og Erling- ur að gefa út nýtt blað Alþýðu- manninn og gera þeir það enn. Hefur Halldór verið ritstjóri blaðsins alla tíð. Halldór Friðjónsson hefir allt af í starfi sínu sem blaðamaður fylgt eindregið Alþýðuflokkn- um að málum og verið ætíð hinn skeleggasti bardagamaður. Klofningsstarf kommúnista mæddi fyrst á verkalýðshreyf- ingunni norðanlands og gegn því stóð Halldór í fremstu röð með blað sitt. Hann hefir alla tíð varað eindregið við spilling- ariðju kommúnista og þó að verkamenn þar hafi ekki borið gæfu til að verjast lævísi þeirra og svikum, þá geta þeir nú, er þeir líta yfir rústirnar, sann- fært sig um það, að Halldór og Erlingur hafa alla tíð haft rétt fyrir sér, er þeir bentu á í blaði sínu hvaða afleiðingar starf kommúnista hlyti að hafa fyrir verkalýðssamtökin og verka- mennina sjálfa. Halldór Friðjónsson ritar fal- legt mál. Það má ef til vill segja, að hann sé á stundum óvæginn, en óvinir þeirra hugsjóna, sem Halldór hefir barizt fyrir hafa oftast ráðið því hvaða vopnum hefir verið beitt. Skal það þó tekið fram, að þó að Halldór hafi oft vegið ótt og títt með penna sínum og hann hafi ver- ið níddur meira en flestir aðrir blaðamenn, enda hefir hann staðið í fremstu röð í barátt- unni gegn kommúnistum og þeir eru ekki vandir að meðul- um, þá hefir hann alltaf forðazt persónulega ádeilu, en í þess stað rætt málefnin, dregið fram rökin og bent á veilurnar í stefnu og starfsaðferðum and- stæðinganna. Halldór Friðjónsson er gáfað- ur maður og bjartsýnn og mæt- ir erfiðleikum og bardaga með brosi. Það eru kostir, sem koma sér vel í blaðamennsku. Hann er skáld gott, eins og fleiri í. þeirri ætt og sézt það oft í grein um hans. Hann hefir verið útsölumað- ur Alþýðublaðsins á Akureyri um f jölda ára skeið og hefir út- breiðsla blaðsins margfaldazt í höndum hans hin síðari ár. Fyrir allt hans mikla starf, fórnfýsi og ódrepandi áhuga þökkum við honum — og ósk- um þess eindregið að flokkur- inn megi sem lengst njóta hinna ágætu og mikilhæfu starfs- krafta hans. VSV Áf filefni afmælis: ión Eiríksson írá Högnasföðum ÞÓ AÐ það sé ef til vill ekki venja að minnast manna, nema þegar þeir standa á heil- um eða hálfum tug ára, eiga merkisafmæli, eins og það er kallað, þá langar mig þó i dag að bregða út af venjunni og minnast með nokkrum orðum manns, sem nú dvelur í Elli- heimilinu og fyllir í dag 89. ár- ið, hann vantar eitt ár upp á að verða níræður. Þessi maður er Jón Eiríksson frá Högnastöð- um, alkunnur Reykvíkingur, steinsmiðurinn, sem sagði fyrir Svfnakjðf Svínakjöt hefir nú lækkað í verði, svo mikið, að 1. fl. grísakjöt eru ódýrustu matarkaupin, , sem þér getið gert. — Svínakjöt fæst framvegis í heildsölu í síma 1439. Svínarækfarfélag Suðurlands ÆGIR ti til Vestmannaeyja kl. 10 ár- degis á morgun. Tekur póst og farþega fram og aftur. „ármasin" Tekið á móti flutningi til Búða, Arnarstapa og Stykkishólms árdegis á mánudag bókina Frá Liðnum árum, er Elinborg Lárusdóttir færði í let ur og svo mikla athygli hefir vakið, Jón Eiríksson er nú orðinn farinn, enda eru ár hans orðin mörg og aldrei hefir hann setið auðum höndum, margt hefir hann reynt misjafnt og gott, líf hans hefir verið sterkt og við- burðaríkt, pins og það getur verið hjá síþrælandi alþýðu- manni, sem hefir brotizt upp úr einstæðingsskap, fátækt og um- komuleysi og fyrir gáfur, dugn- að og ósérplægni orðið sjálf- stæður maður í orðsins bezta skilningi. Ég fer ekki að rekja hér æfiferil hans, honum hefir fólk lcynnzt í bók Elínborgar Lárusdóttur. En ég vil bara segja það á þessum afmælisdegi þessarar öldruðu kempu, að ef íslenzka þjóðin ætti marga slíka sem hann, þá þarf hún engu að kvíða. Nú er farið hins vegar að halla undan fæti fyrir hon- um — og þó er minnið svo gott, að enn les hann heila kvæðaflokka viðstöðulaust upp úr sér og hefir hann þó orkt þá fyrir mörgum árum því að hann er skáld gott. Upp á síðkastið hefir hann ekki getað lesið á bók. Ég hygg að vinir og kunningj ar Jóns Éiríkssonar muni senda honum í dag hlýjar kveðjur með þökkum fyrir allt gott og ekki sízt það, sem hann hefur kennt þeim með bók sinni Frá liðnum árum. Virrar. i- og stýri- mannafélagið Orótfa heldur árshálíð SKIPSTJÓRA og stýri- mannfélagið „Grótta“ hélt árshátíð sína að Tjarnar- kaffi í fyrrakvöld: Atli Þor- bergsson skipstj. setti skemmt- unina og lék þarnæst hljóm- sveit „íslands hrafnistumenn“ Þarnæst talaði formaður fé- lagsins Agnar Hreinsson og ræddi m. a. um hve sjómenn yrðu að vera vel á verði um að aukning og endurnýjun skipa flotans yrði komið í fram- kvæmd. Og önnur slík ábuga- mál sjómannastéttarinnar. , Næstur talaði Finnbogi Guð- mundsson útgerðarmaðux í Gerðum. Minntist hann margra ágætra sjósóknara og afla- manna hér við Faxaflóa og víð- ar, og hve mikil nauðsyn væri á fyrir þjóðarheildina að sjávar útvegurinn drægist ekki sam- an, heldur yrði stóraukinn og endurbættur. Auðunn Hermannsson talaði fyrir minni kvenna og var gerð ur góður rómur að. Á milli ræðuhalda voru leikin íslenk lög. Sigfús Halldórsson skemmti með söng, og Sigríður Ármanns sýndi listdans. Dagskráratriðin tókust hið bezta, og að lokum var stiginn dans. Hófið fór í einu og öllu hið bezta fram. Tveir Vestur- íslendingar voru meðal gesta félagsins.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.