Alþýðublaðið - 14.11.1943, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 14.11.1943, Blaðsíða 5
Sunnudagur 14. nóvember 1943 ALÞYÐUBLAÐIÐ Konungurinn, sem vildi verða ósýnilegur. GREIN þessi er þáttur úr bók brezka rithöfund- arins Maurice Collis, Undra- landið mikla, sem kom út í Lundúnum, fyrir skömmu Fjallar hann um hermdar- verk þau er Thiri- thu- dhamma konungur Persíu, sem uppi var á seytjándu öld, lét drýgja að tilhlutun lækni nokkurs, er var hinn versti skálkur. Þátturinn er þýddur úr brezka tímaritinu, Eng- lish Digest. ALLIR KONUNGAR Asíu- landa voru á hnotskóg eftir vitringum, er gætu frætt þá um hinn mikla leyndardóm, leyndardóminn um það, hversu þeir gætu orðið eilífir, ósýni- legir, ósæranlegir og ósigran- legir. Það var vitað, að slíkir vitringar fyrirfundust. Þeir höfðu verið uppi í Kínaveldi. Hafði ekki Genghis Khan árið 1219 sent eftir gullgerðarmann- inum Ch’ang Oh’un? Hafði hann ekki einnig gert sendi- boða á fund Teng Chou, er hafði aðsetur sitt skammt frá Peking, með gullborð að gjöf, sem líkt- ist höfði tígrisdýs að lögun, og stefnt meistaranum til fundar við sig nær 5000 km leið, svo að hann gæti heyrt af vörum hans leyndardóm eilífleikans? Væri sú raunin, að slíkir vitr ingar fyrirfyndust í Kínaveldi, hlutu þeir og að vera uppi á Persalandi, því að byggjendur þeirra héraða stóðu sízt Kín- verjum að baki í fræðum hinna huldu dóma. Efalaust hefir læknirinn byrjað á því, að sannfæra Thiri — thu — damma um það, að hann væri slíkur vitr ingur af náð guðanna. Þegar hann skýrði svo konunginum frá því, að hann kynni leyndar- dóm þann, er til þess þyrfti, að ósk konungsins yrði að veru- leika, vakti sú yfirlýsing hans eigi undrun heldur fögnuð og hrifni. Yfirlýsing læknisins kvað hafa verið svohljóðandi: — Ég get gert yðar tign ósýnilega og ósigranlega. Ég get eigi aðeins firrt yður bana þeim, sem spáð var, að yður myndi ráðinn skömmu eftir að þér hefðuð' verið krýndir til konungs. Ég get einnig gert yður að drottn- ara yfir hinu víðlenda Mughal- ríki og konungsríkjunum Burma og Síam. Það að verða drottari Ind- lands og grannríkja þess var hvorki meira né minna en það að verða jafnvoldugur þjóð- höfðingi og keisarinn yfir Kínaveldi. En þegar mesta hrifnivíman var runnin af konunginum, lék honum hugur á að fræðast nánar um það, hversu þetta mætti verða. Hvernig ætlaði læknirinn að gera hann ósýni- legan og ósigranlegan og tryggja það, að honum skyldi ekkert grand unnið af mönnum eður öndum? — Með hjálp kynjalyfs, til- kynnti læknirinn. Það var ei.n- mitt þessa svars, sem konung- úrinn hatði væn/t. Pnð var al- kunna, að lyf, sem væri búið til á réttan hátt, hvort heldur það var notað s-:m sr.ivrst eða inn- taka, gat veitt yfirnáttúrlegan mátt. — Það var einnig hægt að hljóta mátt þennan með því að draga myndir á hörund sér með töfrafleinum, en kynjalyf var öruggara, samboðnara fyr- irmönnum og í hvívetna þekki- legra. Konungurinn tók tilkynn- ingunni um það, að um kynja- lyf væri að ræða, með velþókn- un hinni mestu. — En, hélt læknirinn áfram mál sínu. — Það er vandaverk hið mesta að blanda kynjalyf það, sem með þarf. Það er einnig mjög örðugt að afla efna þeirra, sem það samanstendur af. ' Þetta kom konunginum eng- an veginn á óvart. Hann átti von á því, að það væri enginn hægðarleikur að blanda kynja- lyf, er ylli því, að honum reyndist auðvelt að vinna sig- ur yfir hinu víðlenda og kosta- mikla Mughalríki. Honum hefði brugðið mun meira í brún og talið sig hafa fyllstu ástæðu til efasemda, ef læknirinn hefði tjáð honum hið gagnstæða. Hann lét því þau orð falla, að lækninum skyldu í té látin öll þau efni, er hann teldi sig með þurfa. — Til þess að unnt sé að búa lyf þetta, þarf hjörtu, mælti læknirinn, — tvö þúsund hjörtu úr hvítum dúfum. Konungurinn hét honum tvö þúsund hvítum dúfum. — Og fjögur þúsund hjörtu úr hvítum kúm. Þetta þar öllu erfiðara viður- eignar. En eigi að síður taldi konungurinn líkur til þess að unnt reyndist að útvega fjögur þúsund hvítar kýr, ef vendi- lega væri leitað um gervallt ríkið. — Og sex þúsund, manns- hjörtu, mælti þrælmennið að lokum. Sagan segir að Thiri — thu — damma hafi brugðið meira en lítið við þessa síðustu til- kynningu læknisins. Það er heldur sízt að undra þótt hann hafi hikað í fyrstu við að láta taka sex þúsundir þegna sinna af lífi. — Þessa ber að geta, og þegar hann er sakfelldur fyrir grimmd sína og hermdarverk, ber að minnast þess, að valda- fíkn hans líktist helzt brjálæði, sem hann gat eigi haimið. Einnig bjó honum sífelldur uggur í brjósti um það, að spá- sögnin um hinn óvænta dauð- daga hans myndi rætast þá og þegar. Hún ægði honum ávallt og olli því, að hann var löngum viíti sínu fjær af ógn og ótta. Hann lét fremja hin hryllilegu hermdarverk í þeirri trú, að hann væri með því að bjarga sjálfum sér, firra sjálfan sig ægilegum örlagadómi. Thiri-thu-dhamma á þessu næst að hafa gefið lögreglu sinni fyrirskipun um það að taka sex þúsundir manna hönd- um, lífláta þær og láta læknin- um hjörtu þeirrá í té. En þessi þáttur frásögunnar er svo ótrú- legur, að varygð skyldi við því goldin, að fólk legði skilyrðis- lausan trúnað á hann. Enda þótt konungar Asíulanda nytu mikilla valda á seytjándu öid, er það í fyllsta máta vafa- sarnt, að þau hafi heimilað þeim slíkar fjöldaaftökur þegna sinna. Efalaust hefði slík fyrirskipun orðið að fara rétta boðleið. Konungurinn hefði orð ið að leggja málið fyrir ráð- gjafa sína. Að fengnu sam- þykki þeirra hefði hann orðið að láta færa fyrirskipunina í letur og innsigla hana embættis innsigli sínu. Sú var boðleið allra mála. / En konungurinn hafði leyni- lögreglu í þjónustu sinni, sem laut í hvívetna boði hans og banni. Fyrirskipanir þær, er hann gaf henni, þurftu eigi að leggjast fyrir ráðgjafana. Hafi saga þessi við rök að styðjast, mun konungurinn hafa falið yfirmanni leynilögregl- unnar að framkvæma verk þetta. 'Frá því er skýrt, að lög- reglan hafi íengið ströng fyr- mseli um það, að ekki yrði urint að korria vitnaleiðslum við í sambandi við handtökur þess- ar. Sagan hermir, að ráðizt hafi verið inn í hús manna á náttar- þeli og sofandi fólki rænt. Fólk á og að hafa verið handtekið á fáförnum strætum eða hópar fólks, sem safnazt höfðu saman einhverra erinda, handteknir með skjótum og óvæntum hætti. Því næst á fólk það, er handtekið var, að hafa verið flutt með leynd á afvikinn stað uppi í fjöllunum, er umlykja borgina, og tekið þar af lífi. En hefði lögregluforingi orðið sannur að slíkri sök og verið dreginn fyrir dómstólana, hefði honum reynzt tilgangslaust að halda því fram að hann hefði verið að framkvæma fyrirskip- un konungsins. Dauðadómur hefði óhjákvæmilega orðið hlutskipti hans. Sagan segir, að lögreglan hafi gengið að ógnaverki þessu af hinni mestu leynd og í fyrstu lagt áherzlu á það að handtaka ekkjur, munarleysingja, verka- menn utan af landsbyggðinni, þræla og aðra þá, sem talið var að lítt myndi verða saknað, þótt þeir hyrfu af sjónarsvið- inu. Én þar er krafizt var sex þúsunda, varð meira til að koma. Þá var það ráð tekið að handtaka fólk í fátækrahverf- um borgarinnar. En þótt lög- reglan gengi að þessu af hinni mestu varfærni, varð ekki hjá því komizt, að fjölmargra hinna horfnu yrði saknað. Brátt komst sá orðrómur á að fólk hyrfi með furðulegum hætti. Orðrómur þessi ágerðist eftir því, sem fleiri varð vant. Borgarbúar voru skelfingu losn ir. Það komst og á orðspor, að fólk væri handtekið, flutt upp í fjöllin tekið þar af lífi og dysjað. Aftökustaðurinn uppi í fjöllunum varð brátt tilgreind- ur. Jafnframt var þess getið, að læknirinn væri þar fyrir. Sjónarvottar báru það, að þeir hefðu séð hann sítja þar við sjóðandi ketil yfir eldi. Um nætur heyrðist hann þylja galdraþulur fyrir munni sér eins og væri hann að særa fram illa anda. Sumir borgarbúa voru slíkri skelfingu lostnir, að þeir lokuðu sig inni í híbýl- um sínum og áræddu ekki út jafnvel um hábjartan daginn. | Aðrir urðu hamstola af reiði ■ og ákváðu að hefjast handa um að bægja burtu vá þessari. I Nokkrir lögreglumenn voru i staðnir að því að handtaka I fólk, dregnir fyrir dómstólana og teknir af lífi. En félagar þeirra héldu ótrauðir áfram | mannaveiðum sínum í næstu borgum og bæjum, þegar þeir | töldu sig eigi lengur óhulta við iðju sína í höfuðborginni. Þannig tókst að afla hinna sex þúsund mannshjartna á nokkrum vikum, og brátt var kynjalyfið til. Kvöld nokkurt gat að heyra hverja skothríð- ina af annarri úr fallbyssum varnarvirkja borgarinnar. Fólk þusti á vettvang og undr- aðist það, að konungshöllin var uppljómuð eins og mikil hátíð Marlene kossinn. Það eru ekki allir, sem verða fyrir því happi að fá koss hjá Marlene Dietrich, kvikmyndaleikkonunni frægu, en her- mennirnir hafa ýmisleg forréttindi og þess vegna veittist Carl Bell liðsforingja það ekki erfitt að fá einn koss hjá Marlene, þegar hann villtist inn í einn veitingastað kvik- myndaleikaranna í Hollywood. væri í garð gengin. Hljómsveit konungsins fór skrúðgöngu eft- ir strætunum og lék hvert ætt- jarðarlagið af öðru. Þessu hélt áfram alla nóttina og fólkið varð frá sér numið af gleði. Það vissi, að fallbyssuskotin, ljósa- dýrðin og leikur hljómsveitar- innar átti að tjá því þau tíðindi, að tími hermdarverkanna væri liðinn. í afturelding hélt svo hver til síns heima fullviss þess að hann fengi notið friðar og öryggis að nýju. Bréf um sjúkratryggingar, sjúkrasamlög og fleira. Tó- bak, dýrtíðarvísitala. Ungur piltur skrifar um búskap, landbúnaðinn og framtíðina. SVANUR FRÁ SVAI.HIÍÐI skrifar mér á þessa lcið: „MIG furðar mikið á þvi, að ekki skuli vera búið að koma á betri sjúkralögum en raun ber vitni, ekki á þjóðin svo fáa full- trúa á alþingi, sem allir þykjast að minnsta kosti bera hlut alþýð- unnar fyrir brjósti, að mikils mættu þeir vænta sem hafa orðið fyrir því óláni að missa heilsuna." „ÞA» SÆTIR IINDRCN að ekki skuli fýrir löngu lögskipað að sjúkrasamlög skuli vera um land allt. Það er hart fyrir efnalítið fólk, sem kemur utan af landi þar sem ekki eru sjúkrasamlög, en þau eru ákaflega óvíða, að þurfa að borga mörgum sinnum meira fyrir læknishjálp t. d. hér í Reykjavík, heldur en það þyrfti ef það væri í sjúkrasamlagi." „EN Ég HELD að ekki verði neitt lag á þessu, fyr en alþingi hefir fyrirskipað að allir hver ein- ast maður skuli vera í sjúkrasam- lagi.“ 1 „OG AÐ LOKCM mætti segja þetta ,sveitastjórnir hafa oft, eins og margar sögu herma, borið hlut smælingjans harla lítið fyrir brjósti svo ekki er gott að ákveða hvers má vænta af þeim öllum að minnsta kosti. Ætlar alþingi enn í nokkur ár, að draga það, að þetta mannúðarmál fái réttmæta lausn.“ ÞETTA BRÉF fékk ég, áður en kunnugt varð um frumvarpið um breytingar á alþýðutryggingalög- unum, en þær eru mjög stórfeng- legar. Taldi ég þó rétt að birta bréfið, því að það sýnir hversu mjög þjóðin þráir umbætur á tryggingalöggj öf inni. ‘1 Ó. J. SKRIFAR: „Við útreikn- ing vísitölunnar fyrir nóvember hækkaði hún nokkuð, og létu blöðin þess getið, að það væri vegna hækkimar á kjötverði o. fl., þar á meðal vegna hækkunar. á verði á tóbaksvörum!“ „ÞAÐ VAR FYRIRFRAM VITAÐ að vísitalan mjmdi hækka fyrir síhækkandi verð á landbúnaðar- vörum, og ein afleiðingin af hinni ósvífna verði á kjötinu, þrátt fyrir verðuppbætur, er að verða þjóð- inni til skaða, og sennilega til mjög mikils álitshnekkis.“ „EN AÐALLEGA VAR ÞAÐ tóbakið, er ég ætlaði að minnast á að þessu sinni. Ég er einn af mörg um, sem undrast mjög yfir því að svo losaralega skuli vera farið með gengiskráningu, að taka með við skráningu hennar, tóbaksvör- ur, sem ekki eru einungis mtrnað- arvörur, heldur öllum til meirí og minni heilsuspillis, sjálfur þekki ég þær verkanir þess. T6- baksvörur ætti því sem fyrst að taka burt við gengisskráningu, þar eiga ekki að koma til greina nema nauðsynjavörur.“ Frh. á 6. sáiu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.