Alþýðublaðið - 01.12.1943, Side 2
ALfrYÐUBLAPIP
MiSvikndsgur
1. alet.
■! ir,".l|í'1 • ,
1943.
Heita vatHÍnu hieypt í bæinn.
ekki síöar en 17. júní ’44.
Þeir hafa ákveðið að ping komi sam
an 10« janúar til að afgreiða málið*
■■■ ..................♦.......
Sameiginleg yfirlýsing fi gær.
FRÁ þingflokkum Sjálfstæðisflokksins, Kommúnista-
flokksins og Framsóknarflokksins barst Alþýðublaðinu
séint í gærkveldi eftirfarandi yfirlýsing:
„Þingflokkar Framsóknarflokks, Sameiningar-
fioldcs alþýðu 1 Sósíalistaflokksins og Sjálfstæðis-
f flokks eru sammála um, að stofna lýðveldi á íslandi
eigi síðar en 17. júní 1944 og hafa ákveðið að bera
fram á alþingi stjórnarskrárfrumvarp milliþinganefnd-
arinnar í byrjun næsta þings, enda verði alþingi kallað
saman til reglulegs fundar eigi síðar en 10. janúar
1944 til þess að afgreiða málið.
Svo mörg eru þau orð þessarar sameiginlegu yfirlýaing-
ar og fer ekki hjá því, að hún muni vekja mikla furðu.
Það er vitað, að hreifing hefir verið í gangi síðustu daga
fyrir því að miðla málum í þeim ágreiningi, sem uppi er inn
afgreiðslu skilnaðarmálsins. En með yfirlýsingu hinna
þriggja flokka er sá samkomulagsvilji hundsaður og þjóð-
inni vitandi vits sundrað í þessu viðkvæma máli og má slíkt
ábyrgðarleysi dæmalaust heita. Mun Alþýðublaðð koma
nánar inn á þetta frumhlaup við fyrsta tækifæri.
Tjarnarbíóhneykslið:
Ofbeldið við hið frjálsa
orð veknr fjrrirlitningn.
.—.—........
„Leiðrétting“ frá Níels Dungal og
athugasemd frá Árna Pálssyni.
HIÐ FURÐULEGA TILTÆKI stjórnar Tjarnarbíós að
að setja skilyrði fyrir því, hvað Ámi Pálsson pró-
fessor mætti segja í ræðu sinni á hátíðarsamkomu stúdenta
í dag, sem hafði þær afleiðingar, að samkomunni var af-
lýst, hefir vakið fádæma athygli og almenna andúð.
Þetta mun stjórn Tjarnarbíós
hafa fundið í gær, því að í gær-
kveldi barst Alþýðublaðinu eft
irfarandi greinargerð frá Niels
Dungal prófessor um þetta mál
— fyrir hönd bíóstjórnarinnar:
„Leiðréttmg“ Dnng~
als.
„IJt af ummælum Alþýðu-
blaðsins og Vísis, í dag og í gær
vil ég taka þetta fram:
Munnleg skilaboð komu til
Stjómar Tjarnarbíós frá stú-
dentum um að fá Tjarnarbíó
lánað 1. des. fyrir skemmtun
stúdenta. Var þetta strax leyft.
Seinna fréttist, að til stæði, að
flytja þarna pólitískt erindi, og
var þá eftir sömu leið skilað
til stúdentanna, að húsið hefði
verið lánað til skemmtunar og
þeim tilmælum beint til stúdent
anna, að hún yrði ekki notuð
til pólitísks áróðurs, því að
stjórn Tjarnarbíós hefði fyrir
rúmu ári ákveðið að lána húsið
sekki til slíks. Var þess því
vænzt að skemmturíin yrði
haldin innan, þess ramma sem
upprunalega var gert ráð fyrir.
Því miður fór allt þetta munn
lega fram, vegna þess að engum
okkar mun hafa dottið í hug,
að deilur gætu sprottið út af
þessu, sérstaklega þar sem um
merkan afmælisdag sjálfstæðis
vors var að ræða sem öllum
mun þykja sjálfsagt að fari
fram í sem mestri eindrægni og
samlyndi.
Vafalaust hafa þær munn-
legu umræður, sem út af þessu
hafa spunnizt, aflagast til mik-
illa muna í meðförum, því að
próf. Alexander Jóhannesson
sagði við mig litlu seinna, að
próf. Árni Pálsson hefði hringt
til sín mjög reiður, út af því,
að sér væri varnað máls í Tjarn
arbíó. A. J. sagðist engu orði
hafa komið að áður en Á. P.
hringdi af í bræði.
Skömmu seinna komu stú-
dentar úr skemmtinefndinni að
finna mig út af þessu, og sagði
ég þeim frá afstöðu okkar í mál
Franah. á 7. síðu.
il|ýðih!aðið bem-
BrehkiitámeriBB
A LÞÝÐUBLAÐIÐ kemur
** ekki út á morgun af til
efni
dag.
fullveldisafmælisins
Fyrsta Msilfi, sem fiékk heita vata
!i var listaverkasafin Eiaaars Jóns
senar á Skólavðrðahæð.
■ • ■■■■
Næst komu nokkur hús í Norðurmýri.
- .....»"
j TJ ITAVEIITA REYKJAVÍKUR er loksins tekin til starfa.
■■■ Hveravatninu frá Reykjum í Mosfellssveit var í
fyrsta sinn veitt inn í nokkur hús í gær. Fyrsta húsið, sem
fékk heita vatnið var Hnitbjörg, listasafnhús Einars Jóns-
sonar á Skólavörðuhæð og var það vel til fundið og smekk-
legt af forstjóra hitaveitunnar, að hefja starf þessa mikla
fyrirtækis í hinu veglega húsi þessa kunna listamanns.
Helgi Sigurðsson, forstjóri hitaveitunnar, boðaði blaða-
menn á fund sinn í gærkveldi klukkan 5,30 og skýrði svo
frá, að um hádegisbilið í gær hefði hveravatninu verið veitt
í fyrsta húsið í bænum og hefði það verið Hnitbjörg, hús
Einars Jónssonar myndhöggvara.
„Við vissum, að allir Reykvíkingár myndu verða sam-
mála um það, að þetta hús ætti skilið að fá fyrst allra húsa
í bænum heita vatnið“, sagði Helgi Sigurðsson.
„Þegar þessu var lokið og
heita vatnið var farið að
streyma um þetta mikla hús,“
sagði forstjórinn ennfremur,
„fórum við inn í Norðurmýri
og hleyptum vatninu þar á
nokkur hús. Voru þau aðallega
í suðurhluta Norðurmýrar. Við
förum Okkur mjög hægt í
fyrstu, því að margt þarf að
aðgæta, en síðan kemst meiri
hraði á þessar framkvæmdir.
Við munum lúka við Norður-
mýrina fyrst, en síðan höld-
um við upp Skólavörðuholtið
og byrjum á Leifsgötu, Egils-
götu, Eiríksgötu o. s. frv. Við
munum þannig smátt og smátt
færa okkur vestur bæinn í
réttri röð.
Eins og áður hefir verið skýrt
frá eru aðalleiðslurnar frá
geymunum þrjár. Sú fyrsta ligg
ur um Laufásveg, um Skothús-
veg og niður í Tjörn, önnur
liggur norður Hringbraut, upp
Egilsgötu, niður Skólavörðu-
stíg, um Bankastræti, Áustur-
stræti, Pósthússtræti, upp Tún-
götu, í Bræðraborgarstíg og
þaðan í Hringbraut og niður í
Tjörn. Þriðja leiðslan liggur
svo niður Vitastíg, vestur
Hverfisgötu, um Hafnarstræti, í
Ránargötu, að Bræðraborgar-
stíg og þanðan um Hringbarut,
sömu leið og önnur leiðslan, og
niður í Tjörn. Þessum leiðum
munum við svo að mestu fylgja,
er við hleypum vatninu á hús-
in.
Það er búið að tengja við all-
flest hús í bænum. Þó er mik-
ið eftir í Þingholtunum, fyrir
sunnan Bræðraborgarstíg og
og svo nokkrir aðrir dreifðari
blettir. Nú sem stendur er
unnið að tengingum í Miðbæn-
um. ■v
Þá er og lökið við að skola
út allar aðalleiðslurnar innan
bæjar og mikið af smáleiðsl-
unum, en það sem eftir er,
verður gert jafnóðum og unnið
er að því að hleypa, vatninu á
húsin.
Ég vona fastlega, að það, sem
eftir er að gera, gangi vel og
þó að húsunum, sem fá heita
vatnið fjölgi ekki með mjög
miklum hraða næstu dagana,
þá býst ég við að við getum
hleypt vatni á fleiri og fleiri
hús á hverjum deigi. Hraðinn í
þessum framkvæmdum verður
meiri með hverjum degi sem
líður úr þessu.“
Verða þá allir, sem á annað
borð geta fengið heita vatnið
búnir að fá það fyrir jól?“ spyr
einn blaðamannanna.
Forstjórinn hugsar sig lengi
um, en segir svo. „Ég þori ekk-
ert að fullyrða, en ég vona það.
— Hversu heitt verður vatn-
ið úr krana á heimilunum?
„Það verður nokkuð misjafnt
og fer það eftir því, hvort vatn-
ið þarf fyrst að fara í geymi
uppi á lofti. En þar sem því er
ekki til að dreifa, verður- það
um 80 stiga heitt úr krana.“
— Hversu mikið kólnar vatn-
ið frá geymunum í Öskjuhlíð og
til dæmis í vestasta húsið í
bænum?
„Það mun kólna um það bil
2 stig,“ svarar forstjórinn.
— Ætlar hitaveitan ekki að
leiðbeina fólki á einhvern hátt
með notkun heita vatnsins?
„Jú. Þeir, sem vinna að því
að hleypa heita vatninu í húsin,
tala við fólkið jafn óðum og svo
munum við gefa úr leiðarvísi,
sem hverjum notanda verður
látinn í té.
Er blaðamennirnir kvöddu
forstjórann óskuðu þeir honum
til hamingju með þetta volduga
fyrirtæki hans, sem tók til
starfa í gær, eftir að hafa verið
í smíðum í meira en fjögur ár
— og allir hafa beðið eftir með
óþreyju.
Kveðjur frá Ameriku
og Englandi á fult-
veldisdaginn.
M. a. frá Wallace,
varaforseta og AI-
exander flotamála-
ráðherra.
T GÆR flutti Henry A. Wall-
■■■ ace, varaforseti Bandaríkj-
anna, heillaóskir til íslendingtt
í tilefni af fullveldisdeginums
1. desember. Kvaðst varaforset
inn bíða þess með eftirvænt-
ingu, að hin vinsamlegu tengsl
milli þessara frelsiselskandi og
óháðu þjóða yrðu traustari.
Samskonar kveðjur hafa og bo®
izt frá Elbert D. Thomas, þing-
manni Utahfylkis, þar sem ís-
lendingar settust fyrst að I
Bandaríkjunum, og frá dr. Paul
Douglass, forseta America®.
University í Washington D.
C., sem var brautryðjandi hreyf
ingar þeirrar, að 8 helztu há»
skólar Bandaríkjanna veittu ís*
lenzkum námsmönnum styrkL
Þá hefir íslendingum einnig
borizt vinsamleg kveðja frá A.
V. Alexander, flotamálaráð-
herra Bretlands, í tilefni af
fullveldisdeginum.
Veða kveðjur þessar birt«p
orðréttar í næsta blaði.
Ni ———
Steingrímur J. Þor-
sfeiimon sæmdnr
doklorsnafnból.
Fyrir rif sift uirai Jóit
Thoroddsesi skáid.
HEIMSPEKIDEILD há-
skólans hefir að fengnu
sam'þykki háskólaráðs álykt-
að að veita mag. art, Stein-
grími J. Þorsteinssyni nafn-
bótina doktor í heimspeki,
dr. phil., fyrir bók hans „Jón
Thoroddsen og skáldsögur
hans,“ án þess að munlegt
doktorspróf fari fram.
Undanþága þessi er veitt án
umsóknar af hálfu doktorsefnis
með þeim forsendum, að heilsu-
fari hans hefir um skeið verið
Framh. á 7. síðu.
Hátiðahðldln f dag
— á fullveldlsdaglian.
HÁTÍÐAHÖLD stúdenta hefjast í dag með því að þeir
safnast saman við háskólann kl. 1 og ganga í skrúð-
göngu að leiði Jóns Sigurssonar forseta — þar flytur for-
maður Stúdentaráðs, Páll S. Pálsson, ræðu og leggjir hlóm-
sveig á leiði forsetans. Síðan heldur skrúðgangan áfram að
alþingishúsinu. Ræða ríkisstjóra hefst af svölum húsins kl. 2.
Hátíðasamkoma stúdenta í háskólanum hefst kl. 3 og
flytja þar ræður Halldór Kiljan Laxness og Hermann Jón-
asson.
Um kvöldið efna stúdeníar til hófs að Hótel Borg.
Hátíðarsamkomu þeirri, sem stúdentar höfðu ákveðið
í Tjarnarbíó hefir verið aflýst, eins og áður hefir verið
skýrt frá.
Ríkisútvapið hefir mikla dagskrá af tilefni dagsins, að
loknu hádegisútvarpi, sem hefst að þessu sinni kl. 12, eða
kl. 1,30 verður útvarpað þænargjörð hiskupsins úr dóm-
kirkjunni, en dagskrá útvarpsins stendur til kl. 12 e. h.