Alþýðublaðið - 04.01.1944, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 04.01.1944, Blaðsíða 2
2 ALÞYÐUBLAÐIÐ Föstudagur 31. desember 1943- Viðsklptaráð lækharíarm llðld Eimskipalðlagsiis. ----*---- Vegna lækkunar á vátryggingum og greiðari ferða skipanna. VIÐSKIPTAKAÐ hefur ákveSið að lækka farmgjöld með skipum Eimskipafélags íslands frá og með 1. janúar 1944 að verulegum muu. Var þessi ákvörðun tekin rétt fyrir áramótin. Lækkunin nemur 20% af farmgjöldunum, eins og þau voru áður en lækkun var leyfð í maímánuði síðastliðnum, en þá voru farmgjöld á öllum öðrum vörum en kornvörum, kaffi, sykri, áburði, fóðurbæti og smjörlíkis- olíum hækkað um 50%. Það er þessi farmgjaldahækkun, sem viðskiptaráð hefur nú lækkað niður í 30%. Viðskiptaráð taldi þessa lækkun farmgjaldanna sjáZf- sagða og réttmæta, fyrst og fremst vegna þess að vátrygg- ingarjiðgjöld hafa lækkað og ferðir1 skipanna hafa tekið styttri tíma en gert var ráð fyrir að þær myndu taka, þegar gjöldin voru hækkuð í maí. Gera verður ráð fyrir því, að farmgjaldalækkun þessi komi einnig fram í vöruverðinu á næstu mánuðum. isaanaia nefniliii si§ arl bar emggan árangnr. Fulltrúar Alpýðusambandsins og Bún- aðarfélagsins urðu ekki sammála. ENGINN ÁRANGUR hefur orðið a£ störfum nefndar, sem forsætisráðherra skipaði í s. 1. septemhermánuði til að leita að samkomulagsleiðum um niðurfærslu verð- bólgunnar, en nefndin var skipuð þremur fulltrúum frá Alþýðusambandi íslands og þremur fulltrúum frá Búnað- arfélagi íslands. Ólafur Guðmundsson, Páll G. Halldórsson, Egill Guðmundsson, 16 ára. 18 ára. 16 ára. Þrír reykviskir nnglingar handlaka innbtotspjðfa. Stöðu þá að verki á nýársnótt og fóru með þá á lðgregiustöðina. Þrír reykvískir PILTAR, tveir 16 ára Nefndin skilaði áliti sínu | rétt fyrir áramótin til forsætis- ráðherra og var það í tvennu lagi. I séráliti fulltrúa Alþýðu- samþandsins kemur það þerlega fram, sem á milli þar og segir 1 því á þessa leið: ,,Eitt með fyrstu verkum nefndarinnar var að leita sér hipplýsinga um og láta fara fram rannsókn á afkomu nokk- urra greina atvinnuveganna, svo séð yrði, hvort nokkur at- Stórskemmdir af eldsvoöa í Guaars hélma. Ókunimgt er um eldsupp- tökln. C TÓRSKEMMDIR urðu í '*** gær í búgarðinum Gunn- arshólma. eign Gunnars Sig- urðssonar kaupmanns. Eldurinn kom upp kl. 11.20, en er slökkviliðið kom upp eft ir var eldurinn orðinn mjög magnaður. Eldurinn mun hafa komið upp á efri hæð hússins og brann þar mikið í eldhúsi og herbergi. Komst hann upp í rjáfrið og út um þakið. Eyði- lagðist ákaflega mikið af eldi — reyk og vatni. Aðstaða slökkviliðsins var mjög erfið, því að vatn varð að taka úr Hólmsá. Tókst því þó að koma í veg fyrir að eldurinn breidd- ist út, en í fyrstu var ekki annað sjáanlegt en að húsið yrði alelda. vinnurekstur hefði stöðvazt eða væri við það að stöðvast vegna verðbólgunnar. Þessi rannsókn virðist leiða í ljós, að svo sé ekki, og verður því að teljast, að þörfin til að lækka verðbólg una sé hvergi nærri eins brýn og ef svo hefði verið. Frá byrjun tókum við það fram í nefndinni, að ráðstaf- anir þær, er gerðar kynnu að verða til að lækká verðbólguna, mættu á engan hátt verða á kostnað launþega og bænda, en yrðu að vera á kostnað hátekju- og eignamanna. Samkvæmt niðurstöðum hinnar svokölluðu sexmannanefndar eru meðal- tekjur sjómanna, verkamanna og iðnaðarmanna kr. 12400,00 eða sem svarar kr. 14500,00 með núverandi vísitölu, og með samkomulagi nefndarinnar eru bændum með meðalbú tryggð- ar kr. 14500,00 í árstekjur, fái þeir það verð fyrir allar afurðir sínar, sem nefndin reiknaði út, en nú mun fengin trygging fyrir, að svo verði. Okkur er kunnugt, að meðaltekjur hluta- sjómanna og útgerðarmanna smæstu bátanna eru mikið lægri og eru tekjur þeirrá sums staðar allt niður í 4 til 6 þús- und krónur á ári. Ilins vegar er það alkunna, að mikill auður hefir hlaðizt upp á einstakra manna hendur, síðustu árin, og meiri en dæmi eru til nokkru sinni í sögu þjóðarinnar. Að þessu athuguðu, virðist okkur ekki verða um það deilt, að sanngjarnast og réttast sé að þessir menn beri þungann af því að lækka verðbólguna. Þessari skoðun okkar mót- mæltu fulltrúar Búnaðarfélags- ins ekki, en tillaga sú, sem þeir fluttu í nefndinni, um lækkun PWi. á 7. síðu. gamlir og einn 18 ára unnu þaS þrekvirki á nýársnótt að handsama tvo innbrots- þjófa og afhenda þá lögregl- unni á lögreglustöðina. Voru innbrotsþjófarnir erlendir sjóliðar, sem höfðu brotið stóra rúðu í sýningarglugga Magnúsar Benjamínssonar & Co. í Vallarstræti og stol- ið þaðan úrum, hringjum og öðrum munum. Hefur síðan sannazt að þessir sömu menn voru valdir að sams konar innbroti og þjófnaði úr glugga Jóns Sigmvmdssonar að Laugavegi 8. Segir lögreglan að aðstaða hinna ungu pilta hafi verið slæm og eigi þeir heiður skil- inn fyrir' framtak sitt og vask- lega framgöngu. Piltarnir eru Ólafur Guð- mundsson, Hofsvallagötu 22, 16 ára, Egill Guðmundsson, Bræðraborgarstíg 14, 16 ára og Páll Halldórsson, Hólavalla- götu 5, 18 ára. Alþýðublaðið hefir haft tal af Ólafi Guðmundssyni, sem kom fyrstur auga á innbrots- þjófana og hóf eltingaleikinn við þá, og skýrði hann svo frá: „Við félagarnir vorum að labba úr Aðalstræti og inn í Austurstræti klukkan um 2 á nýársnótt. Ég var svolítinn spöl á undan Páli og Agli og var næstum því kominn að Veltusundi, þegar ég heyrði brothljóð. Eg hljóp þá fyrir hornið á Hótel ísland og sá þá tvo sjóliða vera að hrifsa úr sýningarglugga Magnúsar Benjamínssonar & Co. Eg hljóp strax til þeirra og hróp- aði til strákanna, er einnig tóku til fótanna. Sjóliðarnir tóku þegar á rás frá gluggan- um eftir Vallarstræti og upp Grjótagötu og við á eftir. Loks voru sjóliðarnir staddir í garði þarna og n£ði Egill tökum á öðrum þar. En hinn hélt áfram yfir garðana og ég á eftir. Eg reif buxurnar mínar og jakk- ann á girðingunum. En efst í Grjótagötunni náði ég í hann. Eg réðist bara strax á hann, en hann skirpti og öskraði. Hann reyndi að slá mig, en ég sló aftur — og svo tókst mér að halda honum þangað til Páll kom. Þessi sjóliði var mjög ill- ur viðureignar. Hann streittist á móti eins og hann gat og greip í allt, sem hann gat náð í. Við urðum að slíta hann af húshornum og ýmsu öðru. Það varð bara að draga hann. Hinn var ljúfur og labbaði með. — Hann fór að gráta. Svo fórum við á lögreglustöðina og af- hentum þá þar, en mikill mann fjöldi elti okkur á stöðina og einu sinni reyndu einhverjir stýrimenn eða kapteinar að taka þá af okkur, en við slept- um þeim ekki. Sjóliðarnir reyndu að henda þýfi úr vös- um sínum, en við týndum sumt upp, en eitthvað mun hafa týnzt. Annar sjóliðinn var blóð ugur á annarri hendinni af rúðubrotinu. Þeir voru svolítið undir áhrifum víns. Þeir voru með bjórflöskur.“ — Þetta hefir verið dálítið spennandi? „Já, en það var verst, hvað annar var aumur.“ Rannsóknarlögreglan hefir skýrt Alþýðublaðinu svo frá, að þessir sömu sjóliðar hafi stolið úr glugga Jóns Sigmundssonar um daginn. Úr glugga Magnús- ar Benjamínssonar & Co. stálu þeir 5 armbandsúrum, 7 hringum — og sumir mjög dýr- ir -i- ennfremur vindlinga- veski úr silfri og lyklafesti. — Enn hafa ekki komið í leitirnar 4 hringir og 3 úr og er fólk beðið að skila því, ef það finnur. OniinBBðar Jóbssob fró Hirfeyri borlnfl til iral- ar i Stykkisbólmi i dag. Guðmundur jónsson FRÁ NARFEYRI, hinn þekkti brautryðjandi verika'lýðs hreifingarinnar og jafnaðar- stefnunnar, sem lézt að heimili sínu ií Stykkishólmi fyrir jólin, verður borinn til grafar þar í dag. Leikfélag Reykjavíkur sýnir „Vopn guðanna,“ eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, annað kvöld. IWr OREGSSÖFNUNIN var | nú um áramótin komin upp í 814 þúsundir króna. En auk þess hefur safnazt all mikið af ýmis konar fatnaði. Noregssöfnunarnefndin hefir nú ákveðið að söfnuninni skuli verða lokið 1. febrúar næst komandi. Sendi hún blöðunum í gær eftirfarandi skýrslu um söfnunina. „Allir þeir, sem fengið hafa söfnunarlista Noregssöfununar- Friðsamlegasta gcnlaðrskvðM i nanoa ninnnn. Slökkviliðið var aldrei kallað At. AMLÁRSKVÖLD var miklu lriðsamars. að þessu sinni en f jölda mörg undanfarin ár“, sagði lög- reglustjóri í samtali við Al- þýðublaðið í gær. „Reykvík- ingar slógu met í góðri hegð- xm á gamlaárskvöld. Ég hygg að það megi ekki sízt þakka skrifum blaðanna á gamlaárs dag — en auk þess munu menn vera famir að skilja? það, að það verður líka að vera hóf á hlutunum á gamla árskvöld. Slökkviliðið hefur þessa sömu sögu að segj-a. Það var aldrei kallað út á gamlaárs- kvöld. Alþýðutolaðið hafði tal af varðstjóra í slöhkviliðinu og sagði hann: „Þetta mega heita eins dæmi. Ég er toúinn að vera í slökkviliðinu í 29 ár og alltaf böfum við verið kallaðir út offc og mör.gum sinnum. Brezkir iternenn netaðir sen verk- fallsbrlðtar á Hðtet Borg. AlþýðnsamþaDdið mötmælir vii utaoríkisráðiierra. SÁ FURÐULEGI ATBURÐ- UR gerðist um áramótim að eigandi Hótel Borg fékk 7 manna hljómsveit frá brezka flughernum til að leika á dans- leik hótelsins á gamlaárskvöld frá kl. 9 og fram undir morgun. Það er ekki aðeins furðulegt að hinn íslenzki eigandi hótels- ins skuli leyfa sér slíkt, heldur og einnig, að brezka herstjórn- in skuli láta slíkt viðgangast. af sinni hálfu, því að henni hlýtur að vera kunnugt um, að vinnudeila hefir um langan tíma staðið yfir milli íslenzkra hljóðfæraleikara og hóteleig- andans, og er óútkljáð enn. Alþýðusamband Islands hef- ir mótmælt þessu við utanrík- ismálaráðherra og mun hann taka málið til athugunar. innar og ekki hafa skilað þeim enn þá eru vinsamlega beðnir að senda þá ásamt þeim gjöf- um, er kunna að hafa safnazt. Söfnuninni er lokið þann 1. febr. n. k. og er því nú síðasta tækifæri til þess að gefa í söfn- unina. Noregssöfnunin er nú kömin upp í kr. 813.929. 45. En auk þess hefur mikið borizt af ágætum fatnaði, sem kvenfé- lögin víðsvegar um landið hafa isafnað og gefið. Féð og fatnað- urinn verður síðan afhent Norð mönnum við fyrsta tætkifæri, Framh. á 7. síðu. Henoi verður lokið 1. febr. næstkomandi i

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.