Alþýðublaðið - 04.01.1944, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 04.01.1944, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 4. janúar 1944. ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 „Ekkert loftkennt hugsæi, eng ar loftkenndar kreddur eða for- dómar stjórnmálaflokka, engir sérhagsmunir, sem einhverjir telja sig kvadda til að standa vörð um, mega verða Þrándur í Götu fyrir þeirri einföldu og sjálfsögðu skyldu, að sjá svo um, áður en ófriðnum lýkur, að ekki verði skortur á fæði, vinnu og heimili handa öllum. Þetta verður að undirbúa nú, meðan ófriðurinn geysar enn þá, svo það verki eins og þegar allsherjar herútboð er gert samtímis því, sem ófriður brýzt út. Og það verður að koma til framkæmda um leið og sigur er unninn í ófriðnum. Að því mikla og víðtæka verki, sem þarf til þess að þetta geti orðið veruleiki, einbeitir brezka stjórnin nú allri þeirri orku, sem afgangs er orkunni sem baráttan við óvinina krefst.“ Fæði, vinna, heimili handa öllum. Þetta þrennt telur þessi framsýni stjórnmálamaður Breta vera það, sem nú eigi að einbeita orkunni að, svo það sé tryggt öllum í ófriðarlok, og draga undirbúninginn ekki deg inum lengur- — Það væri blett ur á hverri þjóð, að gera ekki sitt ítrasta tií að tryggja það, að engan borgara þjóðfélagsins þurfi að skorta nauðsynlegt fæði. Ég man það, að það þótti blettur á hverjum bónda, að hafa ekki nægilegt fóður handa skepnum sínum — að ég tali ekki um að fella þær úr hor. Ef svo er um skynlausar skepn ur, hvað þá um mennina sjálfa? —Vinna fyrir þá, sem geta unn ið, er fyrst og fremst nauðsyn- tegt til þess að tryggja öllum tvennt, fæði og heimili. Auk þess hygg ég, að vinna sé engu ónauðsynlegri fyrir sálarheil- brigði mannsins, en fæðið er fyrir heilbrigði líkamans. Eng- inn mun mæla bót þrælkun, án tómstunda til hvíldar, andlegr- ar hressingar og til þess að létta sér upp. En um leið og vinnan er nauðsyn fyrir sálar- heilbrigði okkar finnst mér hún bezta dægrastyttingin, sem ég hefi komizt í kynni við. Það er hörmulegt fyrir hvern þann, sem lítur á vinnuna sem böl. Ég held að hófstillt vinna hljóti ávallt að vera blessun en ekki böl. Og ég vil fara enn lengra, þótt unnið sé stundum úr hófi fram, þá er þreyta eftir nyt- sama vinnu eða vinnu við ein- einhver hugðarefni áreiðanlega sælli en önnur þreyta. — Við erum með réttu hreykin af því, hve lág dánartala ungbarna er orðin á íslandi, og þeim geipi- miklu framförum, sem orðið hafa á því svíði síðustu manns- aldrana. Þetta er bættum aðbún aði að þakka. En er heimilið ekki nokkurs konar ungbarnavernd fyrir þjóðfélagið? Því virðist augljóst að heiniili handa öll- um er mikilvægt skilyrði fyrir framtíðarvelferð þjóðarinnar. En, kann -einhver að spyrja, er okkur ekki um megn að tryggja fæði, vinnu og heimili fyrir alla hér á íslandi? Ég vil svara með einu af 10 boðorðum Jeffersons Bandaríkjaforseta: „Ekkert er erfitt, ef við ger- um það af fúsum vilja“. Ég held að í þessu felist mikil sann indi. Ef viljinn er hjá einstak- lingunum, þá er vandinn sá að samræma vilja allra eða sem flestra einstaklinga. Þann vanda ættum við að geta leyst, svo mörgum þjóðum hefir tekizt það. „Flokkasundrung, fjandskaps mál fylkjast, tala einum rómi; þegar býður þjóðarsómi þá á Bretland eina sál“. Þannig kvað þjóðskáldið okk ar, sem heygður er á Þingvöll- um, um hina miklu nágranna- þjóð okkar. Hví skyldum við ekki reyna að líkjast Bretum á þessu sviði? Og ber það ekki vott um of mikla vantrú á land og þjóð, ef við trúum því ekki að það sé hægt? í þessu sambandi kemst ég ekki hjá því að minnast á marg ræddu dýrtíðarmálin okkar. Fyrir rúmu ári síðan var hrað- vaxandi dýrtíð og verðbólga orðin vofa, sem flestir íslend- ingar óttuðust að mundi leiða okkur á heljarþröm. Þá tókst að stöðva framfærsluvísitöluna, sem hækkað hafði um nær 90 stig síðasta misserið á undan, svo að hún er nú 13 stigum lægri en fyrir ári síðan. Því miður hefir ekki enn fengizt varan- leg lausn á þessu vandamáli. Þessi stöðvun og lækkun er þó góð byrjun í rétta átt. En betur ■ má ef duga skal. Að vísu hefi ég orðið var við þann hugsun- arhátt hjá einstaka manni, að það muni ekki borga sig að halda áfram glímunni við dýr- tíðina. Eðlilegast að láta allt ganga sinn gang — þótt dýr- tíðin og verðbólgan vaxi. Mér varð bilt við er ég heyrði þetta fyrst. Og ég hefi ekki enn get- að sannfærzt um annað en að slík hugsun byggist á herfileg- um, og jafnframt á háskaleg- um misskilningi. Flest okkar munu finna til ýmissa óþæg- inda í daglegu lífi nú, sern rekja má til dýrtíðar og verð- bólgu. En hvað er framundan? Sú mynd getur orðið óskemmti leg, ef við horfum til framtíð- arinnar, að ófriðnum loknum. Öllum nágrannaþjóðum okkar og öllum þeim þjóðum, sem við eigum að keppa við eftir ófrið- inn hefir tekizt miklu betur en okkur að halda dýrtíð og verð- bólgu í skefjum. Þeim hefir skilizt nauðsynin og lagt mikið á sig í þessu skyni, ofan á margt annað ömmrlegt, sem þaer hafa orðið að þola, en við höf- um sloppið við til þessa. Yið verðum að horfast í augu við það, sem orðað var nýlega af leiðtoga eins hinna smærri ríkja, sem eins og við, þarf að selja öðrum þjóðum mikið af framleiðslu sinni til þess að geta keypt frá öðrum löndum það, sem ekki er framleitt í landinu. Hann sagði þetta: „Það er einfaldur sannleikur, sem hefir ævarandi gildi, að enginn mun liðsinna okkur, ef við vinnum ekki og, að enginn mun sjá okkur fyrir lífsviðurværi, ef framleiðsluvörur okkar eru ekki eins ódýrar og góðar eins og samskonar vörur, sem aðr- ir framleiða“. M. ö. o. ef við eigum að sjá fyrir okkur sjálf; og það Viljum við öll, verðum við að framleiða eins ódýrt og vel og aðrir. Erlendur maður, sem h,efir oft komið til íslands, og tekið ástfóstri við land og þjóð,. dvaldi hér um tíma í sumar og ferðaðist um landið. Eftir heim komuna skrifaði hann mér: „Ég held að lifnaðarhættir yklc ar séu á mjög miklu hærra stigi en sennilegt er að geti orðið í nokkru landi Norður- álfunnar eftir ófriðinn“. Sumir, sem sjá og skilja þetta, sem ég hefi nefnt, hafa tilhneigingu til að kenna stjórn og þingi eingöngu um ástandið eins og það er. Það sé þeirra verk að finna úrbætur. Ef þeim takist það ekki sé það afleitt. En þing og stjórn beri ábyrgð- ina á því og ekki fólkið. Það á ekki við að ég dæmi þá fulltrúa, sem þjóðin sjálf hefir kjörið til þingsetu. Sú ósk mun almenn að aðgerðir þess opinbera í þessu efni megi verða sem heilladrýgstar. En ef eldur kemur upp í húsi mínu, mundi ég þá láta það nægja að kalla á slökkviliðið og reyna ekkert til að slökkva eldinn eða bjarga úr brunan-1 um, með þeim rökum að það sé verk slökkviliðsins eins, og komi mér ekki við? Eða, ef ég verð var við skip í sjávarháska, mundi ég þá láta mér nægja að síma til Slysavarnafélagsins óg leggjast svo til svefns, án þess að reyna að rétta hjálparhönd, þótt ég gæti það, með þeirri hugsun að Slysavarnafélagið muni gera það, sem gera þarf. 1 Það komi mér ekki frekar við? Ég held að hverjum góðum ís- lendingi mundi finnast þetta slík fjarstæða, að hann teldi spurningarnar einar móðgandi. Við kostum slökkviliðið og leggj um fé og máske tíma til Slysa- varnafélagsins af því þetta eru stofnanir, sem við viljum ekki fyrir nokkurn mun vera án. En þeirra starf útilokar ekki, að við, einstaklingarnir, getum hjálpað — og hjálpað mikið •— ef með þarf. Hér er ég kominn að því, sem ég vil kalla fórnfýsi eða þjónustulund sjálfrar þjóðar- innar, einstaklinga hennar og félagsheilda innan þjóðfélags- ins. Það getur sýnt sig í mörg- um myndum, sem of langt yrði að telja upp. Ég held að það sé talsverður eðlismunur á fórnfýsi og þjón- ústulund annars vegar, og sumu því, sem kallað er réttlæti. Fórnfýsin er sprottin af óeig- ingirni og ber venjulega góðan ávöxt. Ranglæti mælir enginn bót. En dómur manna um rétt- læti eða ranglæti sprettur oft af eigingirni og leiðir þá ekki ó- sjaldan af sér óvild og öfund jafnvel heift og hatur. Allt eru það öfl, sem brjóta niður í stað þess að b.yggja upp. Fórnfýsin fer sér venjulega hægt, gerir aðallega kröfur til okkar sjálfra, og laðar menn til gagn- kvæmrar sanngirni og sameig- inlegra átaka. Það, sem sumir kalla réttlætiskennd er aftur á móti oft hávært, hættir við að gera aðallega kröfur til annarra en sjálfra okkar og vill oft leiða út í öfgar og skapa sundr- ungu, sem lamar máttinn til sameiginlegra átaka. Auk þess getur mönnum stundum skeik- að í dómum um réttlæti eða ranglæti. Forn-Rómverjar sögðu, að fyllsta réttlæti gæti leitt til versta ranglætis. Þeim, sem kann að finnast þetta öf- ugmæli vil ég benda á dæmi frá deginum í dag. Því meira, sem gert er til að fullnægja réttlætiskröfum framleiðenda og launþega vegna dýrtíðar og verðbólgu, sem aftur leiðir af sér hækkandi verðlag og verð- fall peninga, því meira rang- læti verða þeir fyrir, sem með sparsemi hafa neitað sér um margt, máske á langri ævi, til þess að geta séð fyrir sér og sínum er vinnuþolið þrýtur, ef ekkert er að gert. Þetta fólk hefir ekki hlíft sér við vinnu frekar en menn gera nú. Það hefir lagt eitthvað í sparisjóð, keypt sér lífeyri eða tryggingu í stað þess að eyða öllu jafn- óðum, í trausti þess að verð- gildi peninganna væri líkt er til ’ þyrfti að taka. Lang almennast mun það vera að hér sé um að ræða fólk með fremur litlar tekjur. 1 ; Ég talaði um réttlætiskröfur framleiðenda og launþega. Þetta mun vera í samræmi við nútíma málvenju. En ég hefi tekið svo eftir að meðal íslend- inga sé máske oftar notað „kröfur“ og „krefjast“ en sam- svarandi orð eru notuð meðal annarra þjóða, sem ég hefi kynnzt þegar átt er við það sama. Ég^ held ekki að þessi tízka okkár sé til nokkurra bóta. Það er einmitt fórnfýsin eða þj ónustulundin, en ekki. hitt, sem getur riðið baggamuninn um að ráða fram úr örðugleik- unum — og hefir áreiðanlega gert það í mörgum löndum. Þetta er ein af afleiðingum þess miskunnarlausa lögmáls, sem við erum öll undir gefin, að enginn réttur er til án skyldu. Lítum snöggvast til annarra þjóða. Sænska þjóðin var sú Norður- landaþjóðanna, sem tókst bezt að komast úr kreppunni fyrir einum áratug. Eftir því, sem frétzt hefir, virðist þeim hafa tekizt óvenjuvel að halda dýr- tíðinni í skefjum nú, með sam- vinnu, fórnfýsi og þjónustu- lund allra stétta og flokka. Er maður les að staðaldri Frh. á 6. síðu. Þegar söngfuglinn íalaði um hið eilífa ár. Þeir vitru skyldu fuglamál í gamla daga. — Hversu marga vitra menn eigum við nú? — Konungsmerkjapeningar og fullveldið. — Ofhiti af hitaveitu. — Rafmagnsleysi og hátíðamessa. Stefánsson söngvara, er hann hróp aöi á nýársdag 63 ársins 1944 — hins eilífa árs, er aldrei hverfur í aldanna skaut. Eggert er mik- ill hugsjónamaður og mikill raddmaður. í því efni dregur hann ekki af, talar ekki tæpi- tungu: ísland er fegursta og bezta og Ijúfasta land í öllum heimi — og við, sem nú lifum, erum gæfu- samari en aílar aðrar gengnar kyn slóðir. Svona talar söngfuglinn. Þetta er hans fuglamál! í gamla daga skyldu ekki nerna allra vitr- ustu menn mál söngfuglanna. Von- andi á þessi gæfusama kynslóð fleiri vitra menn, sem skilja fugla- mál, er fyrrum var. í æfintýrun- um var okkur líka sagt að fugl- arnir segðu aldrei nema sannleik- ann. Og gott væri að vera íslend- ingur, ef óður söngfuglsins á ný- ársdag reyndist sannur — ekki aðeins mikil rödd úr brjósti blinds manns. HANN TALAÐI GLÆSILEGA um sambandsslit og sauðkindur, sem ættu að fá tvöfalda og þre- falda gjöf á þessu mikla ári. Þetta var gleði hans og skáldskapar- órar í trúnni á sitt mál. „SPUEULL“ vill endilega fá að vita hvað gert verði við peningana, sem nú eru í gildi, ef stofnað verð ur lýðveldi á þessu ári. Hann bend ir réttilega á að peningarnir séu með kórónu og konungsmerkjum og að það verði eitthvað skrítið, ef þessi gjaldeyrir verði í umferð eft- ir að stj órnarháttum hefir verið breytt. EKKI VEIT EG, hvað hinir vitru menn hafa hugsað sér í þessu efni, en maður má víst gera ráð fyrir því, að þeir hafi hugsað fyr- ir þessu eins og öðru. Annars býst ég varla við að farið verði að inn- kalla alla peningana og slá nýja ÞAÐ FÓR eins og mig grunaði: Margir kvarta undan of miklum hita síðan hitaveitan kom. Að vísu kvarta líka ýmsir um smávegis ólag á veitunni. Of mikill hiti er stórhættulegur fyrir heilsu manna og sérstaklega er hættulegt að sofa í of heitum herbergjum. Vit- anlega verður fólk að loka fyrir ofnana og datt mér ekki annað í hug en að það gætu flestir, en nú er mér sagt, að ekki sé hægt að loka fyrir miðstöðvaofnana í mjög mörgum húsum, sem byggö! hafa verið upp á síðkastið. Get ég skilið að líðan fólks í þessum hús- um sé ekki neitt sérstaklega góð og verri verður hún þó ef það þarf að búa lengi við of mikinn hita. FLESTU góðu fylgir eitthvað slæmt. Vonandi tekst þó að fá lokur á ofnana svo að hitaveitan geti líka orðið eins góð fyrir þetta fólk og hún á að gea orðið. RAFMAGNSLEYSIÐ er enn hið sama, þó að hitaveitan komi í fleiri og fleiri hús. Fjöldi manna hér í bænum, sem á stór útvarps- tæki tapaði bæði af messunni á aðfangadagskvöld og eins á gaml- árskvöld. Fólk vill hlusta á guðs- þjónusturnar þessi kvöld, jafn vel þó að það hlusti annars sjaldan á messur og því finnst að þessar hátíðir hafi verið með nokkuð öðrum hætti en allt af áður ef það getur ekki hlustað á sálma- lögin. Svona fór fyrir fjölda mörg- um að þessu sinni. Hve nær batn- ar þetta rafmagnsleysi. Ég held að það sé alveg rétt, sem Kiljan seg- ir, að við höfum lítið vit á „mekan isma“ íslandingar, og allt komist í hönk hjá okkur, þegar við förur að fást við vélar. Hannes á horninu. Atvinnurekendur og aðrir sem samkvæmt 33. grein laga um tekjuskatt og eignarskatt eru skyldir til að láta Skatt- stofunni í té skýrslur um starfislaun, útborgaðan arð í hlutafélögum og hluthiáfaskrár, eru hér með minntir á að frestur til að skila þessum gögnum rennur út mánudag- inn þann 10. þ. m. Sérstök athygli skal vakin á því, að at- vinnuveitendum ber að gefa upp öll laun, hversu lág sem eru, og séu heimilisföng launþega ekki tilfærð eða rangt tilfærð, bera atvinnuveitendur ábyrgð á viðbótarskatt- greiðslu vegna ófullnægjandi skýrslugjafa. Þeir, sem eigi isenda skýrslur þessar á réttum tíma, verða látnir sæta dagsektum sbr. 51. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt. Að gefnu tilefni skal á það bent, að orlofsfé skal meðtalið í láunauppgjöfum til iSkattstofunnar. Þeir gjaldendur, sem hugsa sér að njóta aðstoðar við fram- tal sitt tiLtekju- og eignarskatts, skal bent á að koma sem fyrst til þess að forðast bið síðustu daga mánaðarins. SKATTSTJÓRINN í REYKJAVÍK. \

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.