Alþýðublaðið - 04.01.1944, Side 7
Þriðjudagur 4. janúar 1944.
ALÞÝÐUBLAÐflÐ
1
Maðurimi minn,
Magnús BVflagnússbn, umsjónarmaður,
andaðist að heimili sínu, Frakkastíg 20, sunnudaginn 2. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Guðfinna Jónsdóttir.
Minningarguðsþjónusta
fer fram að tilhlutun vorri í Dómkirkjunni miðviku-
daginn 5. janúar klukkan 2 e. h., um þá félaga vora:
Anton B. Björnsson
og
Hreiðar B>. Jónsson
— sem fórust með Vb. Hilmi.
r r
Iþróttasamband Islands
Knattspyrnufélag Reykjavíkiir
%
Knattspyrnufélagið Víkingur
rrrrmiYTrrrmrrrrmTYTYT^^
AUGLÝSIÐ í ALÞÝÐUBLAÐINU
af eftirtöldum stærðum fyrirliggjandi:
600—650x16 og 900X18.
I
\
m
( SKÚLAGATA bl iíni 171» )
s
s
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
S
Unglingar óskast
strax til að bera blaðið til kaupenda víðs vegar um
bæinn. Talið strax við afgreiðsluna.
Alþýðublaðið, sími
unum út og kvaddi slökkvilið-
ÍBœrinn í dagÁ
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki.
ÚTVARPIÐ:
12.10—',13.0j0 Hádegisútvarp.
15.30-—16.0Ö Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 1. fl.
19.25 Hljómplötur: Lög úr óper-
ettum og tónfilmum.
19.50 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.20 Tónleikar Tónlistarskólans:
Strengjasveit leikur undir
stjórn dr. Urbantcshitseh:
a) Hádel: Hirðingjasöngur
út ,,Messias“. b) Corelli:
Jólakonsert í g-moll.
20.45 Erindi: Uppreisn Catilinu
gegn rómverska lýðveldinu
(dr. Jón Gíslason).
21.10 Hljómplötur: Kirkjutónlist.
21.50 Fréttir.
Jón Þórarinsson,
sem unnið hefir í fréttastofu
útvarpsins, alllengi, er farinn til
Vesturheims til tónlistarnáms. Hef
ir hann fengið frí frá störfum í
2 ár.
Skíðaferðir.
Ungt fólk fór á skíði á sunnudag
og skemmti sér vel. Veður var
gott og skíðafæri sæmilegt.
Hjónaband.
Á nýársdag voru gefin saman í
hjónaband á Eskifirði, ungfrú
Brynhildur Stefánsddóttir, Þver-
holti 7, Rvík og Kristinn Júlíus-
son lögfræðingur, Eskifirði.
Hjónaefni.
Á aðfangadag jóla opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Bergþóra
Sigmarsdóttir, saumakona, Klapp-
arstíg 16, og Karl Sveinsson verzl-
unarmaður, Reynimel 54.
ðnðniBBdnr Jðnsson
frá Marfepri.
Framhald á 6. síðu.
ir framgangi mála og stefnu, er
hann barðist fyrir.
Með Guðmundi er fallinn í
valinn einn af brautryðjend-
um verkalýðshreyfingarinnar.
Hann lézt á heimili sínu 22.
des. síðastliðinn. Um langt
skeið hafði hann kennt þess
sjúkdóms, er varð hans bana-
mein. En þann sjúkdóm bar
| hann af hinu mesta þreki og
gegndi skyldustörfum fram á
síðustu stundu. Við, sem áttum
þess kost, að þekkja Guðmund
og starfa með honum, söknum
vinar í stað, og þökkum honum
trúa fylgd við sameiginlegar
hugsjónir. Ég vil taka mér í
munn orð Björnsson: ,,Þar sem
góðir menn fara eru Guðs veg-
ir.“ Hann var góður maður, er
við, sem þekktum hann, minn-
umst með virðingu.
Sigurjón Á. Ólafsson.
Mafcðlubúðin, ASal-
stræli 16.
Lausar máltíðir. Smurt brauð
og veizlumatur.
Sími 2556.
Úlbreiðið ÁlbÝðublaðið.
Lækmsbústaðuriuo m
sjúkrabúsið að Brekku
i Fliótsdal brennurtil
kalúra kola.
IFYRRINÓTT um kl. 4 kom
upp eldur í læknisbústaðn-
um og sjúkrahúsinu að Brekku
í Fljótsdal og brann hvort
tveggja til kaldra ko'la. Mann-
björg varð, en engir sjúklingar
voru í sjúkrahúsinu. Innbú
fórsit.í eldinum, svo og öll verk
færi læknisins og sjúkrahúss-
ins, en lyfjabirgðum læknisins
var bjargað. Læknisbústaður-
inn og sjúkrahúsið var gamalt
steinhús, ibyggt 1907, tvær hæð-
ir og kjallari, niðri var sjúkra-
húsið með rúmum fyrir 8 sjúkl-
inga, en uppi var íbúð læknis-
ins, Ara Jónssonar, en hann
varð fyrir mjög mikXu tjóni.
Ókunnugt er um upptök elds-
ins.
Þ]éfD8ðir og Ino-
brot BDi ðramétin.
Bnxum með 2500 fer. stolið
frá sofandi manni.
A LL MÖRG INNBROT
og þjófnaðir voru fram-
in um áramótin.
Á nýársnótt var farið inn í
herbergi, þar sem sofandi
maður var. Buxur hans lágu
þar á stól og voru þær teknar.
í einum vasa þeirra var veski,
og í því 2500 krónur. Buxurn-
ar fundust fyrir utan húsið, en
veskið með peningunum var
horfið.
Sömu nótt var brotizt inn í
veitingast. Fróðá á Laugav. 28
og stolið þaðan 126 kr., 48
vindlingapökkum og 8 bjór-
flöskum. Þá var og brotizt inn í
gufupressustofuna Stjarnan í
Kirkjustræti. Þar var mikið af
fatnaði, en enn er ekki vitað
með vissu hverju stolið var.
í fyrrinótt var farið inn í
herbergi, þar sem sofandi mað-
ur var og stolið úr fötum hans
170 krónum. í sama kjallara,
en í öðru herbergi var stolið
60——* 170 krónum úr vösum ann-
ars sofandi manns.
Þá var einnig brotist inn hjá
G. Ólafsson & Sandholt og
„kassa-apparatinu“ stolið. —
Fannst það svo í gærmorgun
tómt á Grettisgötu. í því munu
hafa verið 60—70 krónur.
NoregssöfnoBic.
Frh. af 2. síðu.
sem veitist til þess að koma til
hjálpar því ,fólki, sem þess
hefur mest þörf í Noregi.
Síðustu gjafirnar, sem bor-
izt hafa eru þessar:
Kvenfélag Keldhverfinga kr.
400.00. Eiríkur Hjaitarson,
Rvk. 200.00. Söfnun úr Skrið-
dalshreppi 1.095.00. Frá Hús-
mæðraskólanum á Laugum
270.00. Kvenfél. Bergþóra Ölf-
usi 200.00. R. J. 100.00. Krist-
jana Jónsd. Rvk. 25.00 Kvenf.
Snót, Hellu Strandas. 617.15
Kvenf. Döggin, Eskifirði 578.00.
Kvenféi. Hlín, Grenivík 550.00
Kvenf. Glæður Hóimavfk 287.35
Margrét Ingimundard. Vestm-
eyjum 18.00. Áður tilkynnt
809.588.95. Samtals 813.929.45
Auk þess hefur borizt mikið
af fatnaði, sem enn er ekki bú-
ið að meta eða flobka.“
Sex naona nefodin
sfðari áraognrslans.
Frh. af 2. síðu.
verðbólgunnar, var þó um það,
að það skyldi eingöngu gert á
kostnað launþega og bænda,
eða með því að dýrtíðaruppbót
skyldi ekki greidd nema á 90%
af grunnkaupi og landbúnaðar-
afurðir lækka í samræmi við
það. Við viljum enn fremur
taka það fram, að framkvæmd
þessarar tillögu hefði ekki lækk
að verðbólguna eða dýrtíðar-
vísitöluna nema mjög lítið.
Eftir því, sem næst verður kom
izt, hefði vísitalan varla lækkað
við það nema um ca. 4—5 stig.
Við hlutum því af framan-
greindu, að greiða atkvæði
gegn þessari tillögu, en lögðum
hins vegar til, að tollar væru af
numdir af nauðsynjavörum.
Eftir útreikningum hr. hagfr.
Torfa Ásgeirssonar að dæma,
myndi það lækka dýrtíðarvísi-
töluna fljótlega um a. m. k. 20
stig. En slík ráðstöfun myndi
kosta ríkissjóð í lækkuðum toll-
tekjum um 8,5 millj. króna á
ári. Nú er það kunnugt, að
ríkissjóður kaupir niður vísitöl-
una um 14 til 15 stig með niður-
greiðslu á verði landbúnaðaraf-
urða á innlendum markaði með
um 15 milljónum króna. Eftir
okkar tillögu myndu því hver
2 vísitölustig ekki kosta ríkis-
sjóð nema 0,85 millj. króna, en
eins og ríkissjóður kaupir nú
niður vísitöluna, kosta hver tvö
stig um 2 millj. Þess ber að
gæta, að ríkissjóður sparar í
fyrra tilfellinu um helming
upph. í lækkuðum útgjöldum
vísitölulækkunar og í því síð-
ara tilsvarandi.
Þegar sýnt var, að um tvö svo
gagnólík sjónarmið var að
ræða, eins og fram kom í þess-
um tillögum okkar og • fulltrúa
Búnaðarfélagsins, töldum við
tilgangslaust að leggja fram
fleiri tillögur um lækkun verð-
bólgunnar.“
Sæmundur Ólafsson hafði þá
sérstöðu, að þó að hann væri
samþykkur hinni sameiginlegu
tillögu Alþýðusambandsfulltrú-
anna um niðurfellingu tolla á
nauðsynjavörum, þá taldi hann
einnig nauðsynlegt, að leið-
rétta það misræmi milli afurða
verðs og kaupgjalds, sem skap-
azt hefði við samkomulag hinn
ar fyrri sex manna nefndar, og
lét því bóka eftirfarandi á næst
síðasta fundi nefndarinnar:
„Sæmundur Ólafsson óskar
bókað, að hann telur, að það
verð á landbúnaðarafurðum,
sem hin svo nefnda sex manna
nefnd ákvað, sé ekki í samræmi
við laun launþeganna í landinu,
og að leiðrétta beri það mis-
ræmi, sem þar er á, og að niður
greiðslur á dýrtíðinni með fram
lögum úr ríkissjóði beri að
stöðva þar til slík leiðrétting
hefir verið framkvæmd og aðr-
ar raunhæfar dýrtíðarráðstaf-
anir.“
í séráliti fulltrúa Búnaðar-
félags íslands segir að lokum:
„Eins og sjá má á nefndar-
álitinu, hefir þetta. samtal
bænda og verkamanna ekki
borið neinn sýnilegan árangur.
Hins vegar hefir ekki komið
neitt það fram í þessu sam-
starfi, sem fjarlægt hefir það
sjónarmið, að nauðsyn beri til
að gagnkvæmur skilningur sé
á starfi þessara stétta og vilj-
um við fulltrúar Búnaðarfélags
íslands lýsa því yfir, að við
teljum að rétt hafi verið stefnt
hjá ríkisstjórninni að gera
þessa tilraun.“
Eldsvoðl í Hverfis-
gðtn 59 B.
E LDUR varð laus í húsinu
Hverfisgata 59 B á annan
nýársdag. Höfðu unglingar far-
jð þar ógætilega með eldföng.
Kom eldurinn upp í svefn-
herbergi á efri hæð hússins í
íibúð Haraldar Eiríkssonar pípu-
I lagningamanns. Voru tveir
ungir synir þeirra hjona þar
inni. Þegar móðir þeirra 'leit
inn í herbergið, varð hún elds-
ins vör. Bjargaði hún drengj-
íð þegar a vettvang.
Eldurinn jókst mjög á
skammri stundu. Urðu miklai'
skemmdir í íbúðinni, áður en
því tækist að ráða niðurlögum
hans. Miklar skemmdir urðu og
á neðri 'hæð og í kjallara af
völdum vatns,
Inmbú Haraldar var váitryggt.