Alþýðublaðið - 22.01.1944, Síða 2
ALÞYÐUBLAÐIP
Vísttalan 263 stig
1. janúar
4 stigum hærri en
1. desember
KAUPLAGSNEFND og
hagstofan hafa nú
reiknað út vísitölu fram-
færslukostnaðarins 1. janúar,
og reyndist hún vera 263
stig, eða 4 stigum hærri en 1.
desember.
Þessi hækkun vísitölunnar
stafar af verðhækkun á
brauði/ og fatnaði.
Ungmennadeild Slysavarnafélags-
. ins
heldur fund á morgun (sunnu-
dag) kl. 1 e. h. í Oddfelliwhúsinu
uppi. Á fundinum verða skemmti-
og fræðsluatriði, auk umræðna
um væntanlega opinbera bama-
skemmtun deildarinnar.
Stlórnmálasamband tekið upp
milli íslands og Rússlands.
Pétur Benediktsson skipaður
sendiherra okkar í Moskva.
SendilaerrR Rússa iiér weriiir
Krnssilfiilkov, 35 ára gamall
verkíræiiiigur.
STJÓRNMÁLASAMBAND hefir nú verið tekið upp
milli íslands og Rússlands. Er það fyrsta sinni, sem
ötjórnmálasamband hefir komist á milli þjóðanna og fyrsta
sinni sem þjóðirnar eiga fulltrúa hvor hjá annarri. Að vísu
hafði keisarastjórnir rússneska konsúl hér fyrrum, en so-
vétstjórnin hefir engan fulltrúa haft héi fyrr en nú.
Pétur Benediktsson, sem verið hefir sendiherra íslands
í London verður nú sendiherra í Moskva, en sendiherra
Rússa hér verður A, N. Krassilnikov, en hann er enn ekki
kominn hingað til lands.
Ásgeir Ásgeirsson um skilnaðarmáEið:
Við eigum að halda okkur við uppsagn
arákvæði sambandslagasáftmálans.
—.——..
Og ekki að fasfákveða gildisfökudag lýð-
veidisstjórnarskrárinnar iöngu fyrirfram
Gunnar Thoroddsen hvetur til samkomulags
VIÐ LOK FYRRI UMRÆÐU um þingsályktunartillög-
una um niðurfellingu sambandslagasáttmálans í fyrra-
dag héldu þeir Ásgeir Ásgeirsson og Gunnar Thoroddsen
aðalræðurnar. í ræðu Gunnars Thoroddsen kom fram nokk-
ur sérstaða í málinu og lét hann ótvírætt í ljós, að hann
teldi miklu varða að fá fullt samkomulag um lausn þess.
Ræða Ásgelrs Ás-
geirssonar.
í tilefni af tilvitnunum ann-
arra þingmanna í afstöðu sína
1942, kvaðst Ásgeir Ásgeirsson
vilja benda á það, að árið 1942
hefði verið bein hætta af sam-
bandinu við Darii. Sú hætta
hefði m. a. komið í ljós í umtali
þýzka útvarpsins um það, að
lsland væri dönsk eyja, cg ráca
gerðum um innlimun íslands í
hið nýja heimsskipulag. Kvaðst
ræðumaður líta svo á, að þess-
ari hættu væri nú að verulegu
leyti bægt frá okkur.
Árið 1942 hefði það áunn-
izt, sagði Ásgeir, að báver-
andi ríkisstjórn hefði fengið
yfiriýsingu frá Bandaríkjunum
um það, að bau mvndu ckki
leggja stein í götu sambands-
slita eítir árslok 1943. Þá var
og samþykkt stjórnarskrár-
breytingin, sem ákvað að lýð-
veiaiö væri hægt að stofna með
einni alþingissamþykkt, er síð-
an yrði lögð undir þjóðarat-
kvæði. Þetta hvorttveggja væri
mikilsverðir áfangar og biðin
færði okkur alltaf nær því, að
skilnaðurinn færi fram eftir á-
kvæðum sambandslaganna
sjálfra. Nú væri alveg að þessu
komið. Það væri sá meginmun-
ur á afstöðunni í þessu máli nú
og 1942. Það væri ekki lengur
þörf á því að tefla á tænasta
vaðið. Okkur væri orðið í lófa
lagið að slíta sambandinu sam-
kvæmt ákvæðum sambandsla^-
anna sjálfra, og það væri sjálf-
sagt að fara þá leið úr því sem
komið væri.
Ásgeir taldi ekki vel ráðið,
að einskorða gildistökudag lýð-
veldisstjórnarskrárinnar við
17. júní, því að ekki væri að
vita, , hversu málum yrði þá
háttað. Vildi hann, að slíkt
ákvæði yrði ekki í stjórnar-
skránni, heldur lagt í vald
þingsins að ákveða það, hve-
nær hún skyldi taka gildi, og
mundi það gert, þegar það
þætti bezt henta.
Ásgeir mælti fast með sam-
komulagstilboði því, sem for-
maður Alþýðuflokksins, Stefán
Jóhann Stefánsson, bar fram,
og hvað mestu varða að ná um
þetta mál fullri einingu.
^fstaða Gunnars
Tboroddsen.
Ræða Gunnars Thoroddsen
vakti milda atriygli. Hann lét í
Ijós ótvíræðan vilja til sam-
komulags í þessu máli og
kvaðst fyrir sitt leyti telja vei
geta komið til mála, að um
niðurfellingu sambandslagasátt
málans yrðí farið eftir þeim á-
kvæðum hans varðandi þjóðar-
atkvæðgreiðsluna, að 3á hlutar
kjósenda yrðu að taka þátt í
atkvæðagreiðslunni og % hlut-
ar greiddra atkvæða að vera
'með niðurfellingunni, ef hún
ætti að öðlast gildi. Gunnar lét
einnig í það skína, að hann
teldi geta komið til mála að
fresta að samþykkja þingsálykt
unartillöguna um sambands-
slitin þangað til eftir 19. eða
20. maí.
Gunnar tók það fram, að
hann lýsti hér aðeins sínum
persónulegu skoðunum en tal-
Utanríkisráðuneytið gaf í gær
út eftirfarandi tilkynningu um
hetta:
„Síðan 1942 hafa staðið yfir
samningar milli stjórnar Sovét-
ríkjanna og ríkisstjórnar Is-
lands. Hafa nú orðið þeir samn
ingar að stjómmálasamband
milli ríkjanna verður nú tekið
upp að nýju, en það hafði leg-
ið niðri um stund.
Ríkisstjórn Sovétríkjanna hef
ur óskað eftir og fengið viður-
kenningu fyrir Alexei Nicolay-
witch Krassilnikov sem sendi-
herra í Reykjavík.
Á sama hátt hefur ríkisstjóm
íslands óskað efir og fengið við-
urkenningu fyrir Pétur Bene-
diktson sem sendiherra í
Moskva.
Samkvæmt þessu hefur Pét-
ur Benediktsson núverandi
sendiherra í London, í ríkis-
ráði í dag verið skipaður sendi-
herra íslands í Moskva.
Enn er ekki ráðið, hvenær
Pétur Benediktsson fer til
Moskva. Þá er ekki vitað, hve-
nær sendiherra Rússa kemur
hingað.
A. dr. Krassilnikov er 35 ára
gamall, fæddur í Kazan árið
1909. Hann er vatnsvirkjaverk-
fræðingur að námi, og útskrif-
aðist úr háskólanum í Lenin-
grad árið 1933. Frá 1933—1941
vann hann í húsasmíðaskrif-
stofum ríkisins, en síðan 1941
hefir hann gegnt trúnaðarstöð-
um í rússneska utánríkisráðú-
nevtinu. Síðast gegndi hann
trúnaðarstörfum í Arkangelsk.
Alþýðublaðið spurðizt fyrir
um það í gær í utanríkisráðu-
neytinu, hvenær skipaður yrði
nýr sendiherra í London, og
fékk þau svör, að það myndi
verða gert innan tíðar.
Bankarnir etga inni
ertenis 443 millj. kr.
jT NNEIGNIR bankanna erlend
* is námu 1. des. s.l. 442.738
milljójnum króna og höfðu
aukist í þeim mánuði um 5.908
milljónir króna, en síðan 1. des.
1942 höfðu þær aukist um
167.934 milljónir króna.
áði ekki í umboði flokks síns.
Hann á, sem kunnugt er, sæti
í nefnd þeirri, er fjallar um
framangreinda þingsályktunar-
tillögu.
Pétur Benediktsson
Alþýð-ufLfélagið
Fræðsiu-og skemmti
fundur í Alþýðuhús-
inu í kvöld
Alþýðuflokksfélag
REYKJAVÍKUR efnir til
fyrsta fræðslu- og skemmti-
kvölds síns í samkvæmissöl-
um Alþýðuhúss Reykjavíkur
í kvöld og hefst það kl. 8.30.
. Á skemmtiskránni er margt
gott og ætti flokksfólk að
fjölmenna í Alþýðuhúsið í
kvöld, en skemmtunin er að-
eins fyrir Alþýðuflokksfólk.
FJárEagaf rumvarpið:
Verður umræðum um
það freslað!
P JÁRMÁLARÁÐHERRA
kvaddi sér hljpðs utan
dagskrár í sameinuðu þingi í
fyrradag. Lét hann svo um mælt
að ekki hefði unnizt tími til að
athuga og undirbúa fjárlaga-
frumvarp fyrir árið 1945 eins og
þurft hefði. Væri frumvarp það,
er útbýtt hefði vepð í þingbyrj-
un, að öllu leyti sniðið eftir nú-
gildandi fjárlögum og fram
borið í því skyni einu að full-
nægja bókstaf stjórnarskrár-
innar, sem kveður svo á um, að
írumvarp tii fjárlaga skuli lagt
fram í byrjun hvers þings.
Pcáðherrann kvað ríkisstjcrn-
ina áskilia sér rétt til að leggia
síðar á þinginu fram annað fjár-
lagafrumvarp, er tími hefði gef-
izt til nauðsynlegs undirbún-
ings og athugunar. Óskaði
stjórnin því eftir, að fjárlögin
yrðu ekki tekin fyrir til um-
ræðu fyrr en síðar á þinginu.
Forseti, Gísli Sveinsson, kvað
sjálfsagt að verða við þessum
tilmælum og vænti samvinnu
þingflokkanna í því efni.
Skákþing Reykjavíkur
hófst í gærkveldi í taflstofu
Taflfélags Reykjavíkur að Hótel
Heklu.
Skíðafélag Reykjavíkur
ráðgerir að fara skíðaför upp á
Hellisheiði, næstkomandi sunnu-
dagsmorgun. Lagt af stað kl. 9 frá
Austurvélli. Farmiðar seldir í dag
hjá Míiller frá 10 til 4 til félags-
manna, en kl. 4 til 6 til utanfélags-
manna ef óselt er.
Laugardagur 22. janúar 1944»
M jó Ikur skömmtun in
er alger blekking!
EVIörg barnaheimili
nær mlólkurlaus
þegar skammtaö
var
SÍÐAN Krísuvíkurleiðitt.
er fær — en engirm
vegur liggur þó þá leið
alla — er Hellisheiði gjör-
samlega ófær, þrátt fyrir
snjóýtur og snjóbíla.
Af þessum sökum er Reykja-
víkurbær nær mjólkurlaus dag
eftir dag, en reynt að skammta
þá litlu mjólk, sem hingað
berst, eins og það er kallað. Hér
er þó ekki um neina skömmtun
að ræða, heldur aðeins blekk-
ingu! Stúlkurnar í mjólkursölu-
búðunum sjá um þessa svoköll-
uðu skömmtun. En þær geta
ekki, þó að þær séu allar af
vilja gerðir, skammtað mjólkina
réttlátlega, enda verður útkom-
an sú, að sum heimili fá nægi-
lega mjólk, en önnur ekkert.
í fyrradag var sú regla höfð
að láta hvert heimili fá 1 lítra,
hvort sem um væri að ræða ein-
hleyp hjón eða f jölskyldu með
7—10 börn og sum þeirra
vöggubörn.
Fólk fór og með tvö ílát —
og fékk í bæði, enn fremur gekk
það búð úr búð og fékk alls;
staðar eitthvað — eða stundum.
hvergi neitt. Sumir, sem eiga
bifreiðar, óku milli búðanna til
að sækja mjólk.
Á miðvikudag og fimmtudag;
var fjöldi heimila algerlega
mjólkurlaus.
Hin svokallaða mjólkur-
skömmtun er alger blekking.
Skömmtun er ekki hægt að
framkvæma á þennan hátt, það
hefði ráðamönnum þessara mála
átt að hafa verið orðið ljóst
fyrir löngu.
Siórgjaíir berast til
Vinnuheimiils berkla-
sjóklinga
GJAFIR eru nú teknar að
berast til vinnuheimilis
berklásjúklinga alverulega. Sést
greinilega, að lögin um skatt-
frelsi á þessum gjöfum ætia aÖ
' reynast vel, sem líka var að
vænta.
Eins og skýrt hefir verið áð-
ur frá, gaf Oddur Helgason
útgerðarmaöur fyrstur manna,
stórgjöf á grunövelli þessara
laga: Tuttugu þúsund krónur.
Næstur varð Marteinn Ein-
arsson kaupmaður með 10 þús.
króna gjöf.
Þá hefir og Bjarni Jónsson
bíóstjóri gefið 5 þúsund krón-
ur. Ásgeir Þorsteinsson verk-
fræðingur hefir gefið 1000.00
krónur. Auk þesara gjafa, sem
þegar hafa borizt, hefir fjöldi
einstaklinga og fyrirtækja, heit
ið vinnuheimilinu stuðningi sín
um.. Öruggt má teljast, að á
næstu dögum berist vinnu-
heimilinu margar og rausnar-
legar gjafir. (Frá skrifstofu
S. I. B. S.).
Hjónaband.
í dag verða gefin saman í hjóna
band, á Akureyri, ungfrú Stein-
unn Sigurbjörnsdóttir frá Gríms-
ey, og Guðmundur Jónsson frá
Siglufirði. — Heimili ungu hjón-
anna verður að Norðurgötu 33.