Alþýðublaðið - 22.01.1944, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 22.01.1944, Qupperneq 5
Laugardagur 22. janúar 1944. ALBaYBUBLAPlP 5 Benedetto Croce. Á mynd ]>essari sést hinn heimsfrægi ítalski heimspekingur og rithöfundur Benedetto Croce á taíi við dætur sínar, er heita Alda, Lydía og Sylvía. Myndin var tekin við gosbrunninn í garðinum við hús hans á Capri. þar sem hann dvelur nú. Banda nerin náðu Croce úr klóm fas- istanna, þegar þeir gerðu innrásina á Ítalíu. Croce er í tölu skeLggustu andstæðinga fasistanna. Gustav Vigelan ÞEiGAiR GUSTAV VIGE- LAND leið. var einhver mikilhæfasti og frægasti lista- maður Noregs til moldar geng- inn. Dugnaður hans, hugmynda auðgi og hagleikur er eindæmi í sögu norskrar höggmyndalist- ar. Gustav *Vigeland fæddist í Mandal í Noregi árið 1869. Hann lagði brátt leið sína sem ungur tréskeri til Osló. er þá hét Kristj anía. Hann var nemandi þeirra Bergslen og Skeibrok um tveggja ára skeið. Þá fluttist hann til Kaupmannahafnar og nam hjá Wilhelm Bissen. Á árum þessum bjó hann mörg listaverk, sem vöktu mikla athygli svo sem Hinn fordæmdi, Víti og Dómsdagur. Síðar gerði hann margar smámyndir og hópmyndir svo sem Nótt og Ein búinn. Allar eru myndir þessar frábær listaverk. Vigeland táknaði samband karls og 'konu með mjög áhrifa- ríkum hætti. Það var auðsær skyldleiki með honum og mesta málara Norðmanna um þessar mundir, Edvard Munch. Skyld- leiki iþessi fólst fyrst og fremst í sameiginlegum skoðunum og líku vali viðfangsefna beggja þessara snillinga. Skreyting dómkirkjunnar í Þrándheimi, sem Vigeland vann að um aldamótin, sannar glöggt hæfni hans til þess að skapa listaverk í gotneskum stíl. Við- fangsefni þetta hæfði vel hug- myndaauðgi og sköpunarhæfni hans og má með sanni teljast einstáett í snilld sinni allri. Um aldamótin hefði Vigeland lokið frumlíkani sínu af_lind- inni, sem verða skyldi ævi- starf hans. Lind þessi skyldi vera skál í lögun og haldið uppi af sex mannslíkneskj- um í sexfaldri stærð. Henni var ætlaður staður á Eiðs- vallatorginu framan við þing- húsið í Osló. En mörg ár liðu, unz lindin var fullsköpuð frá hendi listamannsins. Um nokk- urra ára skeið vann Vigeland að því að gera höggmyndir af fræg um mönnum. Höggmyndir hans af Henrik Ibsen, Björnstjerne Björnson, Jonas Lie, Sophus Bugge, Arne Garborg og fleir- um eru frá þessum tíma. Allar eru myndir þessar frábærilega vel gerðar. Einhver frægasta mynd hans frá þessum tíma er þó hrjóstmynd af bróður hans, Emanuel Vigeland. i REIN ÞESSI um Gustav Vigeland? frægasta myndhöggvara Norðmanna, sem mestan orðstír hefir get- i ið sér fyrir Lindina í Osló- borg, er eftir Odd Hilt og þýdd úr septehiberhefti tíma ritisins The Norseman frá ! . fyrra ári. Vigeland lézt hinn í 11. marz 1943. Vigeland tók nú að helga krafta sína óskipta smíði hinn- ar miklu lindar. Árið 1906 lagði hann fram hugmynd sína að verki þessu þar sem hann hafði breytt frumlíkneskinu verulega. Skyldi verk þetta alls nema rúm um sjötíu höggmyndum úr steini og hronzi. Þar skyldi geta að líta tákn lífs og dauða, börn að leikjum, konur og karla og aldurhnigið fólk, einetaklings- myndir og hópmyndir. Lista- verk þetta skyldi verða ein- stætt og bera hugmyndaauðgi og sköpunargáfu listamannsins glæsilegt Vitni. Árið 1814 var Lindinni hug- aður staður á Albelshaugen og Nisseberget framan við þinghús- ið í Osló. Síðar var ákveðið. að henni skyldi fyrir komið í Frog- nergarði. Oslóborg lét reisa veglega vinnustofu Vigeland til umráða og afnota, þó að því tilskildu, að verk hans yrðu eign borgarinnar að honum látnum. Árið 1922 var svo gengið frá svæði því, þar sem lindin og höggmyndirnar, sem henni skyldu fylgja, yrði fyrir komið. Kostnaðurinn við skipulagningu svæðis þessa var metinn á tvær milljónir norskra króna. Það mun einstætt að borg eins og Osló veiti listamanni slík vinnuskilyrði sem Vigeland voru sköpuð. -— Honum var auðið fjárhagsins vegna að ráðast í sköpun hverra þeirra listaverka, sem hann hafði hug á. Þeir listamenn eru næsta fáir, sem notið hafa slíkr- ar aðstöðu. Vissulega ber þelta stórhug og rausn Norðmanna glæsilegt vitni og mun lengi verða minnzt að verðleikum. Vigeland Ivann af fádæma kappi öllum stundum. Þegar dauða listamannsins bar að hönd um, hafði listaverk hans tekið miklum breytingum frá hug- myndinni frá 1906. Verkið hafði sífellt verið að skapast og mót- ast í höndúm hans, meðan hann vann að því. Aðalinngangurinn að garðin- um, þar sem listverkið stendur, liggur um lilið eitt mikið og hag legt. Þaðan liggur vegur að Vig landsbrúnni, sem er risasmíði úr granít. Um fimmtíu höggmyndir aetur að líta á báðum hiiðum brúarinnar. Brú þessi var vígð sumarið 1940. Þegar komið er yfir brúna, blasir lindin sú hin mikla við augum í tign sinni og dásemd allri. Hún mun standa um ald- ur og ævi sem óbrotgjarn minn isvarði hins mi.kla snillings. Vigeland breytti um stíl. með an hann vann að lindinni. Veld ur því meðfram efni það, sem hann gerði listaverkið úr, svo og það, að hann hvarf að miklu •leyti frá listastefnu þeirri, sem harin aðhylltist allt til 1910— 1912. Sumar bronzmyndirnar eru sem greyptar í stein. Það ber þess vitni, hversu rnótun steinsins hefir orkað á lista- manninn, eflt frumleik hans og sérstæða snilld alla. Gustav Vigeland mun fýrst og fremst minnzt fyrir Lind hans. En eflaust eru margar myndir iþær, er hann gerði í æsku' fág- uðustu listaverk hans. Myndir þær vitna um mikinn frumleik og glögga sköpunargáfu. Þau ein myndu hafa nægt til þess, að Vigeland hefði verið skipað á íbekk með mestu myndhöggv- urum, sem uppi hafa verið með norrænum þjóðum. Vigeland hefir unnið mikið og merkilegt ævistarf, sem mun skapa ihonum orðstír,. er aldrei deyr. Verk hans og minning mun lifa, þrátt fýrir umrót og bylgjuköst aldanna. Þau bera hinum frumlega og sjálfstæða snillingi órækt vitni, er verður .talið til eindæma í sögunni. Vigeland var rnaður sjálfstæður og lítt næmur fyrir áhrifum ann arra. Þess vegna hefir áhrifa háns til þessa lítt gætt meðal hinna yngri myndhöggvara Nor egs. Vigeland þurfti ekki að ganga í smiðju til annarra. Þess vegna eru verk hans svo frum- leg og sérstæð sem raun ber vitni. Þau bera svipmót tignar Framh. á 6. síðu. Sjóslysin til umræðu. — Um breytingar, sem gerðar hafa verið á togurunum og þýðing þeirra fyrir sjóhæfni þeirra. EKKERT ER eins mikið rætt um hér í Reykjavík um þess- ar mundir en þau hryggilegu slys, er viff höfum beffiff á sjónum — og tilefniff er öllum augljóst, tap togarans Max Pemberton meff 39 mönnum. Viff höfum misst tvo tog- ara á tveimur árum, þannig aff þeir hafa veriff á leiff heim af veiffum og meff þeim hafa farist um 50 manns. VIÐ VITUM að íslenzka sjó- mannastéttin er kappsöm og þaö er eðlilegur hlutur og ekki til að lasta, en það er ekki undarlegt að fólk reyni að finna svör við því hvað valdi slysunum, enda er blóð- takan svo ægileg fyrir hina fá- mennu þjóð að það er skylda áð reyna að finna leiðir til að forð- ast slysin, en þær verða ekki fundnar, nema leitað sé orsakanna til þeirra. MEÐ ÞETTA fyrir augum hafa rannsóknir líka verið látnar fara fram á einu stórslysi, Þormóðs- slýsinu, en sú rannsókn var fyrir- skipuð eftir að Sigurjón A. Ólafs- son hafði lýst nauðsyn slíkra rannsókna í grein hér í blaðinu. Enn fremur var rannsókn látin fara fram á óhappi, sem kom fyrir togara í góðu veðri, er hann var að veiðum — og gat valdið ægilegu slysi. Niðurstaða annarar þessara rannsókna er kunn en annarar ekki. Niðurstöður Þormóðsrann- sóknaririnar hafa nú legið í stjórn- arráðinu — til mikillar furðu fyrir þjóðina ■— í rúma 5 mánuði. f SAMBANBI við síðasta slysið er mjög rætt um breytingar, sem sagt er að gerðar hafi verið á flest- um togurunum, stækkun lestar- rúms þeirra. Fer mjög tveim sög- um um þýðingu þessa fyrir sjó- hæfni skipanna og er nauðsynlegt að einmitt þetta atriði sé tekið til rannsóknar af sérfróðum mönnum og að niðurstöður þeirrar rann- sóknar séu gerðar heyrinkunnar. ÉG HEF FENGIÐ nokkuð mörg bréf um þetta eíni, undanfama daga. Hér er um ákaflega við- kvæmt mál að ræða og nauðsyn- legt að skrifa og tala um það af skilningi og án þes að vera með áfellisdóma yfir einstökum mönn- um og stéttum. Flest þessara bréfa get ég ekkí birt — og eru þau þó flest frá mönnum, sem stunda sjómennku. En eitt þeirra vil ég nú birta. Það er frá „J. H.“ — og fer hér á eftir: „MIG LANGAR TIL þess að spyrjast fyrir um það, hvort nokkuð muni vera hæft í sögu þeirri, sem sögð er nú manna á milli hér í bæ, þ. e. að nýlega hafl á togaranum Max Pemberton farið fram all víðtæk breyting á lestarúmi skipsins, þannig að í framlest eða framanvert í skipið, kæmi mun meiri þungi, þegar það er fullhlaðið, heldur en í upp- hafi við byggingu þess var gert ráð fyrir. Sé saga þessi á rökum byggð, þá vil ég spyrja: Hver hefir verið frumkvöðull að slíkri hreytingu, hver hefir annast hana í verkinu og hvað segja vátrygg- ingarfélögin um slíkt, ef þetta er eigi gert með þeirra fullkomnu samþykki? “ „ÞAÐ MUN EIGI vera vanda- lítið að breyta lestarúmi skipa svo nokkurru nemi, sízt smáskipa, sem mæta eiga miklum sjógangi. Slíkt mun varla' við annara hæfi að gera, heldur en hálærðra „Skibs- konstruktora“, sem nákvæman uppdrátt fá af skipinu. Þáð fylgir sögu þessari að nokkrum öðrum fiskiskipum hafi verið eða sé ver- ið að breyta á sama hátt“. ÍÉG VÆNTI ÞESS, að þessura fyrirspurnum bréfritarans sé svar- að sem fyrst á einhvern hátt. Það er nauðsynlegt fyrir alla aðila að þessi mál séu upplýst. Hannes á horninu. Svensk skipasmlðastöð sem getur tekið að sér smíði á stærri og minni vélskipum fyrir útgerðarmenn á íslandi, óskar eftir að komast í samband við væntanlega. kaupendur. Fyrirspurnir óskast sendar sem allra fyrst til: C. A. W. Aktiebolag, Pósthólf 891, Réykja vík ásamt öllum nauðsynlegum upplýs- ingum, og helst teikningum, ef möguiegt er. Unglingar óskast strax til að feera blaSið til kaupenda víðs vegar um feæi**. Talið strax við afgreiðsluaa. Alþýðublaðið, sími 4900.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.