Alþýðublaðið - 27.01.1944, Qupperneq 3
¥imintudagur 27. jaiiúar 1944.
ALÞTÐUBLAÐIÐ
Borgin eiiífa.
Rússar taafna milligöngu U.S.A.
í deilunnl viö Pélveria.
Brefar viðurkeiina engar hreytimnar á Pélsku
lasadauBærununi frá 1939, segir Eden.
Bandainenn fijrtja ítðinm matvæli.
Talið er, að Þjóðverjar hafi haft á hrott með sér mikinn hluta
þeirra matvælabirgða, sem til voru í Napoli, er þeir hörfuðu það-
an fyrir 5. hernum. Á myndinni sést skipað í land vörum handa
ítölum í Napoli-höfn.
Landgangan suður af Róm gengur vel,
en búizt er við hörðum átökum.
Bandairoenn hafa rofið Via Appia og eru nú
innan við þrjátíu ®g fimm kíiómefra frá ftém
ÞJÓÐVERJAR flytja nú æ meira lið til móts við land-
gönguheri bandamanna norðan Rómaborgar, sem
sækja fram inn í landið og í áttina til borgarinnar. Síðustu
fregnir herma, að bæði brezkar og amerískar hersveitir
hafi rofið Via Appia, svo og tvíspora járnbraut, sem liggur
milli Róm og Napoli. Könnunarsveitir fara fyrir meginhern-
um. Bandamenn eru nú innan við 35 km. frá Róm og hafa
tekið borgina Velletri og hrundið snörpu gagnáhlaupi.
ALIÐ ER, að Róm falli
bandamönnum í hendur
nú á næstunni, eða að minnsta
kosti í náinni frámtíð. ÁLeð
hinni óvæntu landgöngu
sunnan borgarinnar, hefir að-
staða þeirra stórum breytzt.
Sunnar voru sóknarskilyrði
hin erfiðustu og vörn Þjóð-
verja hin harðfengilegasta,
en Róm, aðaltakmark banda-
manna á Ítalíu nú, virtist
jafnfjarri og áður. Augu
manna um allan heim mæna
enn á ný til Róm, til borgar-
innar eilífu.
ENGIN BORG í víðri veröld á
eins mikil ítök í hugum
menningarþjóða og Róm. —
Hvort sem menn eru
, kaþólskrar eða lútherskrar
'i trúar líta menn á Róm sem
eins konar tákn hins óbreyti-
lega, hins eilífa hér á jörð,
og ber margt til þess. Þangað
hafa menn sótt öldum saman
úr öllum löndum' heims, til
þess að skyggnast inn í for-
tíðina, kynnast ótæmandi
fjársjóðum hennar og teyga
andrúmsloft hins horfna, —
þess, •—■' sem var. Ferða-
manninum, sem nemur stað-
ar við rústir Colosseum,
hringleikahússins mikla, sem
Vespasianus keisari lét reisa
endur fyrir löngu, finnst
hann skilja betur, hvað við
er átt, þegar borgin var köll-
uð ,,eilíf.“
ERÁ ÞESSARI BORG var bin-
um þeklfta heimi stjórnað
um margra alda skeið, þaðan
fóru hinir sigursælu og aga-
sömu herskarar Rómaveldis
nm löndin umhverfis Mið-
jarðarhaf allt til Bretlands.
Þar gengu sigraðir þjóð-
höfðingjar smánargönguna á
eftir vagni sigurvegarans og
þangað var flutt ógrynni her-
fangs og listaverka, sem
varðveitzt hafa allt fram á
þennan dag. Hvergi í heim-
inum er samankomið sl.íkt
safn listaverka, fornminja og
bygginga og í Róm. Þar er
óþrjótandi uppspretta fróð-
leiks um fornöldina og þá,
sem þá skipuðu málum í
heiminum.
EN SIGURBOGINN FRÆGI,
múr Áreliariusar og grafhýsi
Hadrians fengust á misjafn-
an hátt. Þau eru til orðin
fyrir slit og þjáningar
margra kynslóða undirok-
aðra þjóða, þau eru reist í
skjóli vopnavalds hinna sig-
ursælu og harðfengu Róm-
verja, en vopn þeirra voru
hert í blóði og tárum. Tím-
inn leið. Rómaveldi hnign-
aði, germanskar þjóðir brut-
ust inn í ríkið og Vandalar
, rændu borgina. Rómverski
örninn, sem hafði svifið á
styrkum vængjum yfir óra-
víddir, féll magnþrota til
jarðar. Nýjar þjóðir komust
til vegs og valda, en um
frægðarorð Rómverja var
ekki talað, nema í sögubók-
um. Tunga þeirra, sem eitt
sinn var töluð jöfnum hönd-
um í öllum hinum þekkta
heimi, dó, og heyrðist ekki
nema af vörum fræðimanna.
EN BORGIN SJÁLF breyttist
Talið er, • að aðalorrustan um
Róm hefjist þá og þegar og er
búizt við heiftarlegum átökum.
Gengur vel að koma hermönn-
um og ibirgðum á land og veita
flugvélar bandamanna landhern
um mikla aðstoð.
Á Garigliano-vígstöðvunum
hafa Bandaríkjámenn brotizt yf
ir Rapido-á. Hefir varnarlína
Þjóðverja á þessum slóðum, er
þeir nefna Gustav-línu^ ekki
reynzt eins örugg og við hafði
verið búist, þar eð Kesselring
marskálkur hefir sent mikið af
liði sínu norður á Ibóginn til
móts við landgönguheri banda-
manna. Þjóðv. hafa komið
fyrir mörgutm jarðsprengjum
við Cassino, sem torvelda banda
ekki. Hún var enn, sem fýrr,
borgin eilífa. Niðurlægingar-
tímar komu og það eru enn
ekki liðin hundrað ár síðan
Ítalía, kjarni Rómaveldis, —
varð eitt ríki. En þá tók aft-
ur að rofa til. Fólkið tók
aftur að menntast og Róm
mönnum sóknina. Sumar fregn
ir herma, að Þjóðverjar hafi yf-
irgefið borgina, en það hafði
ekki verið staðfest, þegar síðast
fréttist. Er bent á, að hin skæðu
gagnáhlaup Þjóðverja þar að
undanförnu séu vísbending þess^
að þeir hafi ætlað að hörfa það
an norður á bóginn og taka sér
varnarstöðu við Róm. Tíðinda-
lítið er af vígstöðvum 8. hers-
ins.
Flugvélar bandamanna hafa
einkum ráðizt á samgönguleiðir
Þjóðverja milli Róm og suður-
vígstöðvanna. Sprengja féll á
mikilvæga járnbrautarstöð
skammt frá Cetrano. Um 30
sprengjuflugvélar reyndu að
trufla landgöngu bandamanna,
en voru hraktar á brott.
varð enn á ný miðstöð menn-
ingar og fræðslu. Skyndilega
varð afturkippur. Með svik-
um og prettum, morðum og
ránum, tókst einum leikn-
asta loddara þessarar aldar
að draga úr framvindu þró-
Frh. á 7. eíðu.
AÐ var tilkynnt opinber-
lega í Moskva í gær, að
rússneska stjórnin hefði hafn-
að tilboði Bandaríkjastjórnar
uni að miðla málum í landa-
mæraágreiningi Rússa og Pól-
verja. Anthony Eden, utanrík-
isráðherra Breta lýsti yfir því
í gær á þingfundi, að brezka
stjórnin viðurkenndi engar
breytingar á landamærunum
frá 1939, en héldi fast við At-
lantshafssáttmálann. Hafa
tíðindi þessi hvarvetna vakið
gífurlega athygli og þykir
mönnum þunglega horfa um
lausn þéssa máls á samkomu-
Iagsgrundvelli.
Rússar rökstyðja neitun sína
með því, að málið sé ekki ,svo
aðkallandi eða alvarlegt, að
aðstoðar Bandaríkjanna þuvfi
með. Engar fregnir hafa erm
borizt um viðtökur þessarar
neitunar í Washington.
Hins vegar flutti Eden ræðu
í neðri málstofu brezka þings-
ins, þar sem hann markar
skýrt afstöðu Breta til þessa
máls. Eden sagði, að brezka
stjórnin mundi halda beirri
stefnu, að v.iðurkenna engar
landamærabreytingar Póllands
síðan 1939, í fullu samræmi við
ákvæði Atlantshafssáttmálans.
Með þessu er skýrt láfið í
ljós, að Bretar muni snúast á
| móti kröfum Rússa um ný
landamæri Póllands, hvort sem
miðað verður við Curzon-lín-
una eða einhver önnur tak-
mörk. Síðan sagði Eden: ,,Slík
er afstaða vor. Brezka stjórnin
mun halda Atlantshafssáttmál-
ann.“
Eins og kunnugt er, kröfðust
Rússar þess af Pólverjum, að
landamæri ríkjanna yðru end-
urskoðuð og lögðu til, að svo-
nefnd Curzon-lína yrði lögð til
grundvallar, en Curzon-línan er
í meginatriðum sú hin sama og
markalína Rússa og Þjóðverja,
er mótspyrna Pólverja hafði
verið brotin á bak aftur árið
1939. Pólska stjórnin svaraði
á þá leið, að ekki væri tíma-
bært, vegna samheldni banda-
manna, að reifa þessi mál nú,
en bað stjórnir Bretlands og
Bandaríkjanna að miðla mál-
um.
Er uggur mikill í mönnum út
af þessum atburðum, og telja
sumir, að óhyggilegt sé af
Rússum, að hafna milligöngu
hinna engilsaxnesku, stórvelda,
og þykir það ekki spá neinu
góðu.
Lundúnablöðin í gær gera sér
mjög tíðrætt um neitun Rússa.
Leggja sum áherzlu á, að Rúss-
a rhafi þakkað góðvilja Banda-
ríkjastjórnar, þótt þeir hafi ekki
viljað færa sér hann í nyt.
Flest blöðin bera fram þá von
og ósk, að hægt verði að leysa
þetta viðkvæma vandamál á
samningsgriundvelli svo báðir
megi við una.
9
Járnbrautarbærinn
(aichina á valdi
Rússa.
NÝRRI dagskipan Stalins
í gær var tilkynnt, að
Catchina, mikilvægur járnbraut
arbær, væri nú á valdi Rússa.
Þá hafa þeir einnig tekið
Krasnogvardeisk og Vladimir-
skaya. Borgir þessar voru afar
þýðingarmiklar í /arnárkerfi
Þjóðverja á Leningrad-víg-
stöðvunum.
Þjóðverjar flytja nú í ofboði
liðsauka frá Estlandi og Lett-
landi til þess að stemma stigu
við framsókn Rússa, en [:að
virðist lítinn árangur bera.
í Ukrainu gera Þjóðverjar
ítrekuð gagnáhlaup og reyna
að stöðva Rússa áður en þeir
komast að járnbrautarlínunni
Odessa-Varsjá. Áhlaupunum
hefir verið hrundið og biðu
Þjóðverjar mikið manntjón.
Rússar segja Þjóð-
verja valda að
morðunum á pólsku
liðsforingjunum.
RÚSSAR hafa nú tilkynnt,
að nefnd sú, er þeir settu
á laggirnar til þess að athuga
ákæru Þjóðverja um, að þeir
hefðu látið myrða um 11 þús-
und pólska liðsforingja og lát-
ið grafa þá skammt frá Smol-
ensk í einni gröf hafi nú skil-
að áliti. Segja Rússar þetta ó-
satt með öllu og telja Þjóð-
verja valda að glæpum þessum
er Smolensk var á valdi þeirra.
Kemst nefndin að þeirri nið-
urstöðu, að ýmis gögn, sem
fundust með líkunum og læknis
skoðun sanni, að þetta hafi átt
sér stað meðan Smolensk var
í höndum Þjóðverja. Þá er sagt
að menn þessir hafi allir verið
skotnir í hnakkann með skam-
byssu, en slíkt hafi verið háttur
Þjóðverja, er því var að skipta.
Rússar segja, að um 135 þús-
und manns hafi verið teknir af
lífi í Smolensk-héraði og af
7900 húsum standi aðeins um
300 uppi.
Á sínum tíma fóru Pólverjar
þess á leit við alþjóðlega Rauða
krossinn, að hann græfizt fyrir
um það, hvað hæft væri í psök’-
ununum um morðin á pólsku
liðsforingjunum, en Rússar
neituðu því og kváðust sjálfir
mundu rannsaka málið.
Vestur-Evrópa:
Loftárásum haldið
áfram.
D ANDAMENN héldu upp-
teknum hætti í gær og
fóru í hvern árásarleiðangur á
fætur öðrum á ýmsa staði í
N.-Frakklandi. Orustuflugvél-
arnar voru í fylgd með
sprengjuflugvélunum. í fyrri-
nótt fóru Mosquito-flugvélar til
árása á V.-Þýzkaland. Allar
flugvélar bandamanna komu
aftur til bækistöðva sinna.