Alþýðublaðið - 27.01.1944, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 27.01.1944, Blaðsíða 8
ALÞYÐUBLAÐJÐ ITJARNARBIÖ LAJLA I Kvikmynd frá Finnmörk eftir skáldsögu A. J. Friis, leikin af sænskum leikur- um. Aino Taube Áke Oberg Sýnd kl. 5, 7 og 9. Síðasta sinrs. j /6 É v / Tt 0 pu fm KERLING ein úr Möðru- vallasókn fór eitt sinn í verzl- unarerindum til Akureyrar. Þetta var fyrir miðja síðustu öld. Að loknum viðskiptum við kaupmann einn á Akureyri gaf hann kerlingu tóbaksdósir í kaupbæti. Þá kvað hún: Góði kaupmann gaf mér þessar dósir, honum þakka má ég mest, því hann reyndist allra bezt. Logandi og gylltar eru innan, en kóngsmyndin á þeim er, sem allir mega líta hér. Áttundi sá eðla kóngur góði Kristján heitir svo til sanns, sjá má hérna prýði hans. GLATT HJARTA gjörir and- litið hlýlegt, en sé hryggð í hjarta, er hugurinn dapur. Orðskviðir Salomons. ÞORLÁKUR hét maður og bjó í Seljahlíð. Anna hét tengdamóðir hans. Einu sinni kom Þorlákur með öðrum manni neðan úr sveit um vetr- artíma. Fundu þeir þá slóð í snjónum og varð Þorláki að orði: — Hér er þá slóð, og það er kvenslóð. Anna hjá mér er vist dauð. Það er rétt eftir henni. ANNA spurði Þorlák einn morgun að því, hvort hann ætl- aði ekki í kaupstað. Hann svar- ar: — Hvað á ég að gera í kaup- stað nema að láta hengja mig? Hún sagði þá: — Það er nú ekki oft að þú segir þetta, og þó kemur þú æfinlega aftur. laganna myndi höggva sér spor í hall- fleyttan vegg sprungunnar, ef hún hefði öxina sína ennþá. Það voru ekki einu sinni tíu fet af jökli, sem skildi milli hennar og öryggisins. Þá, en við höfum bara ekki öxina stúlka mín, og iþað er nú það, sagði hún við sjálfa sig. Það er bezt að reyna að kalla. Rödd hennar var að heyra á- kaflega mjó og vesöl. Ég verð að syngja hærra; maður er ekki beinlínis að raula í baðkerinu sínu, hugsaði Marion. Hún fyllti lungun af lofti og hóf upp rödd ina. Nú tókst henni ágætlega vel að hóa. Hún hlustaði undr- andi á það. Maður getur gert hlutina, þegar neyðin er annars vegar hugsaði hún. Hún hélt niðri í sér andanum og hlustaði eftir svari. Já, henni virtist vera hóað aftur. Hljóðið var mjög dauft og ekki neitt bergmál. Hún hóaði aftur. Það var ákaf- lega kalt þarna niðri. Marion fagnaði því, að hún hafði 'haldið vaðsekknum sínum. Hann skap aði góða einangrun milli baksins á henni og jökulveggjarins. Hins vegar var ekki eins þægi- legt að sitja á ísbríkinni. Kuld- ann lagði upp eftir henni allri, og henni fannst hún ætla að hélfrjósa. Hún var þurr í munn inum. Skinnið hafði núizt af höndum hennar og vinstri kinn. Sársauki gerði vart við sig á ýmsum stöðum í líkama hennar eftir að dofinn. sem óttatilfinn- ingin í fyrstu hafði valdið, smá hvarf. Það, sem olli henni mest- um óþægindum, var þrautir og stirðleiki í hægri öklanum. Hún reyndi að hreyfa hann en hann hélt áfram að vera grunsamleg- ur. Hún kom sér fyrir á örugg- um stað milli sprunguveggsins og ofurlítillar upphækkunar á ísspönginni, sem byrgði fyrir henni hið ógeðfélda útsýni nið- ur í gínandi sprunguna. Hún kallaði aftur og aftur. Henni virtist hún heyra svar, nær og greinilegra að þessu sinmi. Jæja, maður hefir nú komizt í hann krappari, hugs- aði hún. Verra var það í Val- zinje. Verra var það, þegar Mikael var orðin nærri blind- ur. Hún kveikti sér í öðrum vind'lingi og .kallaði aftur. En það er fagurt hér niðri. Það var slæmt, að ég skyldi ekki hafa með mer myndavél.. ManS'tu eftir ævintýri Ander- son um Snjódrottninguna? Þetta er það. íshóli. Heliir fuliur af smarögðum og demönturr. Eg er mjög ánægð yfir þvi, að ég skyldi hrapa niður í þessa jök- ulsprungu. Það er reynsla^ sem mjög fáir geta státað af. Ég er eins ánægð yfir því og Kata var yfir tréfætinum sín- um. ,Ég er bara að vona að ég frjósi ekki föst viö hásætið mitt. Ég undrast, hvernig Snjódrottn- ing Anderson hefir ráðið þessu erfiða vandamáli til iykta. Mér er orðið kalt, en ég er hvorki óróleg né óhamingjusöm og vissulega ekki hrædd. Það er eðlilegt, að manni sé kalt, þegar maður er niðri í hvítri, blárri og grænni jökulspmngu. Ég er eitt hundrað og tuttugu pund af frosnu kjöti, hefir nokkur not fyrir það? Þetta er það skemmti legasta, sem skeð hefir í öllu mínu skemmtilega lífi. Ég vildi óska, að ég gæti gengið núna eins og ég gekk í morgun. Gættu þín nú, Marion, gættu þín, ann- ars gelurðu mnnið . . . . Jæja, það er ekki um annað að gera en sitja og bíða og bíða. Kristó- fer kemur hingað von bráðar. Marion sat og beið og reykti og kallaði með reglulegu milli- bili og ibeið svo. Hún reyndi að rifja upp fyrir sér öll þau ráð, sem Max Wilde hafði ráðið henni. Max Wilde hafði vérið mikill f jallgöngumaður, og hann hafði kennt henni allt, sem hún vissi um fjallgöngur og jökul- ferðir. Hún hafði ekki minnzt hans árum saman en nú'minnt- ist hún hans. Hugur hennar var þrásækinn á hans fund meðan hún sat og beið og virti fyrir sér vegg jökulsprungunnar og sólargeislann, sem þokaðist æ ofar og nálgaðist meira og meira brún jökulsprungunnar. t. Max Wilde kom til okkar í einhverju mesta hvassviðrinu, sem kom meðan við bjuggum uppi á hálendinu. Þetta var sáð- asta vorið okkar þar uppi. Það hafði gert asahláku af suðri og óvenjumikinn snjó tekið af jökí inum og áin flæddi yfir bakka sína. Vatnið kom fossandi í stríð um straumum og skolaði með sér timbri og alls konar bráki, sem rak upp á nesið. Storma ský hrönnuðust um loftið og áð- ur en nokkurn varði var skollið á óskaplegt fárviðri. Vatnið kraumaði og vall og skrúfaðist upp í loftið. Það var ekki hægt að róa yfir það í þessum veð- urofsa og ekki heldur hægt að fara meðfram ströndinni. Þegar ég brauzt upp að Gabel eftir mjólkinni um morguninn, taut- aði bóndinn eitthvað um það, að skriða hefði hlaupið og runnið yfir stíginn lengra niður frá. Húsið okkar stóð á hæð og var öruggt fyrir flóðinu, en að öðru feyti var það ekki vel á sig kom ið. Það væri villandi að segja, að þakið hefði lekið. Það voru iþó fáeinar smáeyjar, þar sem ekki lak, og ég reyndi að búa um börnin í þeim hornum, sem virt ust vera þurr og örugg. Martin og Milky voru önnum kafnir við að leggja ' gangbrú úr borðum 3 NYJA BIO Sögur frá Han- haftari. Rita Hayworth. Ginger Rogers. Henry Fonda. Charles Laughton. Paul Robeson. Edward G. Robinson. Og 46 aðrir þekktir leikarar. Sýnd klukkan 6.30 og 9. Fimmtudagur 27. janúar 1944. GAMLA BIO S Afbrýðissamar konur (The Feminine Touch). Rosalind Russell. Don Ameche Kay Francis. Sýnd klukkan 7 og 9. Eliery ræður gátuua.. Leynilögreglumynd með Ralph Bellamy og Margret Lindsay. Sýnd klukkan 5. FLOTTI UM NÓTT. Fly by night). Richard Carlson, Nancy Kelly. Sýnd kl. 5. Börn innan 14 ára fá ekki aðgang. yfir herbergið, frá eldstónni að borðinu, frá borðinu og að skápnum, þar sem ég geymdi borðbúnaðinn. Smánin sat á stól og buslaði í vatninu með berum fótunum. ‘Hún lék uppáhaldsleikinn sinn. Litlu, svörtu tærnar hennar voru dýr. Anky, Panky, Lanky, Manky og Sanky, og þau voru að baða sig. Regnið buldi á þekj- unni og náttmyrkrið gekk í garð, og mér fannst vera líkt ástatt fyrir mér og Nóa í örkinni. Það var kalt og við vorum búin að brenna öllum viðnum, sem inni var. Það var ékki um annað að gera fyrir mig en taka mér ljós ker í hönd og fara út eftir við í eldinn. Martin og Milky höfðu lengst af síðustu viku verið að hlaða við upp með húshliðinni, þar sem þakskeggið varði hann að jafnaði fyrir regnvatni. Ég tók af mér. skóna eins og Smán in, kastaði yfir mig regnkápu og fór út í rigninguna. Garðurinn var botnlaus eðja og ég varð MEÐAL BLAMANNA EFTIR PEDERSEN-SEJERBO isskútans, en hvað myndu þeir geta staðizt langt umsátur? Og féllu beir í hendur hinna innfæddu, hvaða dauðdagi myndi þá bíða þeirra? Myndi holds þeirra verða neytt við viðbjóðlega fórnarhátíð? .... Páli sortnaði fyrir augum, er honum varð hugsað um allt þétta, en brátt harkaði hann þó af sér. — Drottinn hefir allt vort ráð í hendi sinni, hugsaði hann. Vel gat svo verið, að þetta væru alls ekki mannætur. Vel gat svo verið, að alls engin hætta væri á ferðum. Því fór f jarri, að allir blökku menn Ástralíu væru mannætur, Páli varð litið á Wilson. En Englendingurinn dustaði moldina af fötum sínum, án þess að láta sér bregða hið minnsta í brún. — Eigum við að gera eitthvað spurði Páll, en hann fann sjálfur, að þetta var frámunalega heimskuleg spurning. — Já, við höfum auðvitað auga með þeim, svaraði Wil- son jafnframt því, sem hann gekk þangað, sem útsýn af höfð- anum var bezt. Hjálmar var þegar kominn þangað. Páll fylgdi þeim brátt eftir. Bob virtist hafa hugboð um það, að eitthvað ó- venjulegt var á seiði. Hann hljóp géltandi um og lét mikið. — Sko, nú stíga þeir á land, hvíslaði Hjáimar eins og hann óttaðist, að orð hans myndu heyrast langar leiðir. Þeir skipta mörgum hundruðum. Nú eru þeir skamrnt þaðan, sem tjaldið stóð áður. — Þeir eru hér miklu nær, svaraði Englendingurinn. BEFORE YOU DIE X TMINK VOU'LL TELL ME WWERE THE PASSPORT |S/BU-r ' ANV CASE VOLJ ' LEAVE MF' YNÐA- SAG A ÖRiN: „Hvað er svona dýrmætt í þessu dularfulla vegabréfí, sem þér váljið fá?“ TOÍDT: ,J>að varðar yður ekk- ert um.“ ÖRN: „Jæja, Todt. Þór rnunið aldrei ná því án iþess að lenda í 'kasti við mig.“ TODT: ;,Það stendux mér á sama um. í fyrsta lagi stend ég í dá- lítilli ókvittri skuld við yður. í öðru lagi þá vitdð þér nú þeg- ar aUt of mikið. En áður en þér hverfið burt af þessu tilveru- sviði hugsa ég að ég muni fa yður til þess að segja mér hvar vegabréfið er. — En samt sem áður, hvað sem því Mður, þá munið iþér ékki foomast héð- an láfandi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.