Alþýðublaðið - 13.02.1944, Page 3
Sunnudagúr 13. febrúar 1944.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Indland.
Eftir loftárás.
Mynd þessi er fná Milano á Norður-Ítalíu, en sú borg hefir, ásamt Torino og fleiri borgum orðið
hart úti í loftárásum bandamanna, en tiltölulega er lítið um loftvarnir eða orrustuflúgvélar af
Þjóðverja hálfu. Húsarústirnar á myndinni eru ta'landi tákn þess, sem verður í skæðri loft-
aras.
Herskip skjóta á stöðvar Þjóðverja,
IGÆR hömluðu illviðri, rigningar, snjóbyljir og slydda hern-
aðaraðgerðum við Anzio. Þjóðverjar gerðu ekki nema eitt
gagnáhlaup og var því hrundið. Engir loftbardagar voru háðir
í gær, svo teljandi séu, veðurs vegna. í tilkynningum frá aðal-
bækistöðvum Alexanders hershöfðingja var sagt, að skotið hafi
verið iir fallbyssum herskipa á stöðvar Þjóðverja sunnan Rómaborg
ar. Að öðru leyti er fátt tíðinda af þessum vígstöðvum.
AÐ HEFIR oft verið sagt
fyrr á öldum, að Indland
væri einhverskonar skatt-
kista hins menntaða heims,
og skal það ekki rengt. Lít-
ið hefir samt frétzt af þessu
mikla landi að undanförnu’,
þótt það sé keppikefli ófrið-
araðilanna. Þetta land, sem
virðist vera í þjóðbraut hinna
japönsku herja til íran, Ara-
bíu og Suez, er mönnum enn
sem komið er, harla ókunn-
ug.t Það er eitt undarlegasta
land heimsins, ekki af því,
hversu stórt það er, né við-
áttumikið, heldur vegna and
stæðnanna, sem þar ríkja.
ÞAR MÁ LÆRA dýpstu speki
lífsins og þar má líka finna
mestu örbirgð og volæði,
sem til er í þessum heimi.
Þar búa menn, sem geta
skreytt hallir sínar gimstein
um og þar máTíka finna fá-
tæklegustu hreysi, sem get-
ur að líta á 20. öldinni. Sum-
um Indverjum er nógur
klæðbúnaðúr Gandhis, lenda
klæðið eitt, en aðrir klæðast
á Evrópuvísu. í þessu landi
‘ munu búa um 350 milljónir
manna, sem tala svo til ó-
teljandi tungumál. Geta má
nærri, hvort Japönum væri
ekki fengur í því, að snúa
j, öllum þessum aragrúa á sitt
band. „ .
EN ÞAÐ hefir reynzt þeim erf-
itt, ef ekki ókleyft, því að
sanníeikurinn er sá, þrátt fyr
ir allan áróðurinn, að ný-
lendustjórn Breta þar, hefir
reynzt sanngjörn, eftir því,
sem yfirstjórn annarra getur
verið. Mannfjöldinn, víðátt-
an, sértrúarkreddur og ótal-
margt annað hafa tórveldað
framfaraviðleitni þar til mik
! illa muna. Sums staðar hafa
íbúarnir bókstaflega unnið á
móti því af pllum mætti, að
lagðir yrðu vegir, gerð vabis
ræsi, að maður tali ekki um
rafmagn og annað það, sem
til meningarauka má telja.
í bók, sem Katherine Mayo
hefir ritað um Indland fær
maður nokkuð glögga hug-
mynd um þetta töfraland.
Maður kynnist hinum ferlegu
andstæðum, fáfræðinni, dul-
úðinni og hinni djúpu lífs-
speki, sem læra má þar, sem
fræðimenn allra alda hafa
glímt við.
INDLAND hefir jafnan þótt
perlan í brezka heimsveld-
inu, allt frá, að Clive og aðr
ir frumherjar urðu að berj-
ast þar harðri baráttu við ó-
vinveitta íbúa og erfitt lofts
lag. Þaðan hafa Bretar sótt
hinar margvíslegustu vörur
bæði til heimilþarfa og, til
vinnslu og flutt síðan út.
EINHVER mesta virðingar-
staðan, sem mönnum getur
hlotnast í Bretlandi er vara-
konungsstaðan í Indlandi. í
bili er Sir Archibald Wavell
forsvarsmaður Breta þar í
landi, höfuð og heili hinna
fjölmörgu kynþátta, sem
landið byggja.
Sumir hafa litið svo á,
að Wavell, sem er kunnur
[ Frh. á 7. síðu.
Bardagar eru háðir bæði á
vígstöðvum 5. og 8. hersins,
einkum þó á stöðvum 5. hersins
Skammt frá Cassino hafa Banda
ríkjamenn hrundið skæðri á-
rás Þjóðverja. Þeim tókst einn
ig að hrekja Þjóðverja úr nokkr
um vel víggirtum stöðvum á
þessum slóðum. Enn er barizt
á götum Cassino, sem nú eru
rústir einar. Þjóðverjar gerðu
tvær gagnárásir austanmegin á
Ítalíuskaga, en þeim var báð-
um hrundið við allmikið mann
tjón í liði þeirra. Yfirleitt hafa
illviðri hamlað öllum hernaðar
aðgerðum á Ítalíu. Flugvélar
Þjóðverja gátu heldur ekki
haft sig í frammi.
Fyrir suðvestan Cisterna
hrundu Bandaríkjamenn einu
skæðu áhlaupi Þjóðverjá.
Sprengjuflugvélar bandamanna
tóku nokkurn þátt í átökum
þessum, áður en veður spilltist i
um of. Ýmis herskip banda |
manna skutu af fallbyssum á
stöðvar Þjóðverja við Anzio.
Flutningur vista frá skipum
og í land tafðist nokkuð vegna
mikillar undiröldu í gær
Opinber tilkynning frá aðal-
bækistöðvum bandamanna herm
ir, að Castelgandolpho, þar
sem Þjóðverjar hafa safnað all
miklu liði, verði fyrir stórskota
hríð. Þar var áður sumargisti-
hús og bandamenn segjast ekki
munu hlífa mannvirkjum þar
meðan sýnt er, að Þjóðverjar
hafi bækistöðvar þar.
Hersveitir Vatutins halda enn
áfram sókninni eftir fall borgar
innar Shepetovka, sem lýst var
í gær. Leitast þeir við að rjúfa
járnbrautina milli Odessa og
Lvov í Póllandi. Þjóðverjar
hraða liðsauka frá Odessa og
Bessarabíu til gagnárása á Rússa
en verður lítið ágengt. Þjóðverj
ar gera árangurslausar tilraunir
til þess að veita hinum innikró-
uðu herjum í Dniepr-bugnum
liðsauka og hefir áhlaupum
Iþeirra í því skyni verið hrundið
við mikið manntjón í liði þeirra.
Samkvæmt skeytum fréttarit-
ara, sem eru í fremstu víglínu
Minningarúlvarp
frá Reykjavík.
¥ GÆR tók útvarpið í Reykja
'*■ vík þátt í einhverjum stór
kostlegasta útvarpsflutningi í
sögu útvarpsins. Útvarpað var
í tilefni af því, að 135 ár eru lið
in síðan Abraham Lincoln fædd
ist. Allar útvarpsstöðvar Banda
ríkjanna og brezka útvarps-
félagsins BBC tóku þátt í afmæl
isútvarpinu.
Þessir menn tóku þátt í af-.
mælisdagskránni: Henry A.
Wallace, varaforseti Bandaríkj-
anna, erkibiskupinn af Canter-
bury, Herbert Agar, einkaráð-
gjafi John G. Winants, sendi-
herra í London og söngvarinn
og leikarinn, Paul Robeson. Af-
mælisdagskránni var endurvarp
að frá útvarpsstöðunni í Reykja
vík kl. 13,00.
Rússa er sagt, að þess muni ekki
langt að bíða, að 8. her Þjóðverja
verði tortímt. Einstakar deildir
hans reyna án árangurs að brjót
ast gegnum aurbleyturnar, sem
nú eru þarna, en Kósakkaher-
sveitir veita þeim jafnan eftir-
för og fella þær.
Berlínarfregnir herma, að
Rússar hafi nú byrjað nýja sókn
á Krivoirog-svæðinu. Er sagt, að
Rússar séu nú í úthverfum borg
arinnar Korsum, norðvestur af
Dniepr-ibugnum. Engar fregnir
hafa borizt af norðurvígstöðvun
um, en Rússar munu þar enn í
sókn.
__________________*________S
íslenzkur hlaðamaður
flytur ræðu í al-
þjóðaveizlu. f
T FYRSTA sinn í ár var full-
trúi frá íslendingum við
hinn árlega alþjóða Goodwill-
miðdegisvérð, sem efnt var til
af kirkjuráði Bostonborgar
Þessi miðdegisveizla er sú tutt-
ugasta í röðinni. íslenzki full-
trúinn var ^enedikt Gröndal,
blaðamaður, sem stundar nám
við Harvard-háskólann.
Meir en 200 manns frá tuttugu
og einni þjóð voru í veizlunni.
Fulltrúar frá Kína, Argentínu,
íslandi og Indlandi voru valdir
til að halda ræður. Gröndal lagði
áherzlu á það, að ísland væri
eitt af elztu lýðveldisþjóðum
heimsins, og að íslendingar
tryðu nú á lýðræðið meir en
nokkru sinni fyrr.
Gröndal sagði meðal annars:
„Brezkar hersveitir hertóku ís-
land og seinna meir komu am-
erískar hersveitir. Mér þykir.
vænt um að geta sagt að þeir
fóru í einu og öllu eftir hinum
göfugu kenningum sem þeir eru
að berjast fyrir, með því að
halda hernum algjörlega út af
fyrir sig og á engan hátt að
skerða frelsi íslands, öfugt við
það sem Þjóðverjar hafa-gert á
meginlandinu.
„Íslendingar háðu frelsisbar-
áttu sína án vopna. Þeir héldu
fram hinum sögulegu og menn
ingarlega rétti til að vera sjálf-
stæðir og Danir viðurkenndu
þenrian rétt. Allt sem ísland
krefst er að fá að vera í friði. Og
íslendigar trúa loforðum for-
ingja Bandamanna um að allur
herafli verði fluttur úr landinu
að stríðinu loknu.“
Þjóðverjar hefia út-
komu ieyniblaða í
Noregi.
JÓÐVERJAR í Noregi hafa
nýlega gert róttækar ráð-
stafanir til þess að hefta út-
komu hinna leynilegu blaða,
sem gefin eru út af frelsisvin-
um- í banni Quislings. Hefir
þeim tekizt að stöðva útkomu
5 þeirra. Samtímis handtóku
þeir um 200 manns, sem taldir
ir eru í sambandi við blöð þessi
Þjóðverjar segja, að flestir
hinna handteknu séu í hópi
hinnar norsku borgaralegu and
spyrnu, sem þeir kalla. Meðal
hinna handteknu eru 10 stúd-
entar.
Undanfarna þrjá daga hafa
Þjóðverjar gert húsleit á hin-
um minni veitingahúsum í
Oslo til þess að hafa hendur
í hári þess fólks, sem ekki hef
ir látið skrá sig til hinnar þjóð
legu vinnu, sem svo er kölluð,
þ.e.a.s. þýzkra herstöðvarbygg-
inga. Lét lögreglan loka ýms-
um götum Osló og athugað skil
ríki vegfarenda. Um 100 manns
voru handteknir og verða þeir
sendir til þess að byggja víg-
girðingar í Norður-Noregi.
Sókn Riíssa ernú hægari en áður.
Þeir reyna að rjúfa braytiBia Odessa-Lvov.
O ÚSSAR sækja enn fram á um 320 km. breiðu svæði
beina þeir árásum sínum á hlið hinna þýzku herja í -
Suður-Rússlandi, sem verja leiðina til Rúmeníu. Reyna Þjóð
verjar einkum að hindra frmsókn Rússa þar vegna olíu-
lindanna í Ploesti. Framsókn Rússa er hægari en áður, en
Kósakkahersveitir eru mjög athafnasamar og valda miklum
usla í liði Þjóðverja.