Alþýðublaðið - 23.02.1944, Síða 6
HÉJÞTPUB LADIP
Miðvikudagur 23. febrúar 1944
REGLUR
um innheimtu útsvara í Reykjavík árið 1944.
1. gr.
Sérhver útsvarsgjaldandi í Reykjavík, sem gjaldskyldur
er við aðalniðurj öfnun árið 1944 skal greiða upp í útsvar
þessa árs 40% af útsvarsuphæð þeirri, er honum bar að
greiða árið 1943, með gjalddögum 1. marz, 1. apríl og 1. maí,
sem næst 13% af útsvarinu 1943 hverju sinni.
2. gr.
Allar greiðslur skv. þessum reglum skulu standa á heil-
um eða hálfum tug króna og þannig jafnað á gjalddagana, að
greiðslurnar þrjár verði sem næst 40% af útsvarinu 1943.
3. gr.
Nú eru greiðslur skv. reglum þessum ekki inntar af hönd-
um 15 dögum eftir gjalddaga og skal gjaldþegn þá greiða
dráttarvexti af því sem ógreitt er, 1% á mánuði eða hluta
úr mánuði, er líður frá gjalddaga uns greitt er.
Þó verður sá gjaldþegn ekki krafinn um dráttarvexti,
sem greiðir að fullu 40% af útsvarinu 1943 fyrir 20. apríl
1940.
4. gr.
Nú er sýnt, að tekjur gjaldanda árið 1943 skv. skatta-
framtali hafi verið minni en árið 1942, svo að muni 30% eða
meira, og skal þá lækka greiðslur hans skv. reglum þessum
hlutfallslega ef hann krefst þess.
5. gr.
Kaugreiðendum ber skylda til að halda eftir af kaupi
starfsmanna til útsvarsgreiðslu skv. þessum reglum á sama '
hátt og með sömu viðurlögum og gilda um almnena útsvars-
innheimtu, með þeim breytingum, sem leiða af ákvæðum
2. greinar.
Kaupgreiðeridum er skylt að halda eftir útsvarsgreiðsl-
um gjaldskyldra starfsmanna, sem þeir hafa greitt fyrir út-
svör ársins 1943, án þess að tilkynna þurfi þeim sérstaklega,
á annan hátt en með birtingu þessara reglna.
6. gr. /
Nú verður ljóst, eftir aðalniðurjöfnun 1944, að greiðslur
gjaldþegns á 40% útsvari 1943 skv. reglum þessum, nema
hærri fjárhæð en álagt útsvar 1944, og skal þá endurgreiða
það sem ofgreitt hefir verið með % vöxtum fyrir hvern
mánuð eða hluta úr mánuði, sem upphæðin hefir verið í
vörslu bæjarsjóðs, eftir rétta gjalddaga, að meðtöldum 15
daga frestinum skv. 3. gr.
7. gr.
Að lokinni aðalniðufjöfnun árið -1944 skal dregið frá út-
svarsuphæð hvers gjaldþegns það sem honum ber að greiða
skv. reglum þessum og jafna því sem umfram verður á lög-
ákveðna gjaldaga, að viðlögðum gildandi sektarákvæðum um
dráttarvexti.
Það, sem vangreitt kann að vera skv. reglunum, má inn-
heimta þegar í stað, hjá kaupgreiðanda, eða á hvern annan
löglegan hátt, og ber að greiða af því dráttarvexti frá gjald-
dögum skv. reglum þessum.
8. gr.
Lögtak má gera fyrir vangoldnum útsvarsgreiðslum skv.
reglum þessum, eftir þeim ákvæðum, sem gilda um lögtök
fyrir vangoldnum opinberum gjöldum.
9. gr.
Bæjarstjóm auglýsir reglur þessar í dagblöðum bæjar-
ins, auk þess, sem þær verða birtar í Lögbirtingarblaðinu, en
aðrar tilkynningar eða auglýsingar þarf ekki að birta gjald-
endum eða kaupgreiðendum.
Framangreindar reglur voru settar af bæjarstjórn 10. þ.
mán., skv. lögum nr. 100, 1943, og staðfest af ráðherra 17.
þ. mán.
Reykjavík, 21. febrúar 1944
Borgarstjórinn í Reykjavik.
Minniggarorð
Ásgrimnr Sigfússon
útgerðarmaður.
IDAG verður til moldar bor-
inn Ásgrímur Sigfússon út-
gerðarmaður. Hann ándaðíst að
heimili sínu í Hafnarfirði 15.
þ. m. eftir langvarandi van-
heilsu.
Dag nokkurn í ágústmánuði
1941 brast heilsa Ásgríms heit.
svo að hann bar þess aldrei
bætur til dánardægurs. Hann
var þá staddur í Reykjavík í
starfserindum. Ég hitti hann að
máli um miðjan dag og við
ræddumst við stutta stund. Ás-
grímur var eins og hans var
venja, broshýr, hress og kátur.
Engin kvörtun um vanlíðan og
engin veikleikamerki mátti
greina í framkomu hans og fasi.
Allt var svo glæsilegt um Ás-
grím.
En, síðla sama dag barst sú
harmafregn, að Ásgrímur hefði
fengið heilablæðingu; áfall,
sem varð fjötur um fót fram-
kvæmdamanninum, sem svo
miklu hafði áorkað í blóma lífs-
ins. Hann var þá aðeins 44 ára
og nú er Ásgrímur dáinn að-
eins 46 ára að aldri.
Ásgrímur var fæddur í Nýja-
bæ í Njarðvíkum 10. ágúst 1897.
Foreldrar hans voru Sigríður
Jóhannesdóttir og Sigfús Jóns-
son útvegsþóndi. Á þriðja árí
missti Ásgrímur föður sinn.
Voru systkinin þá þrjú og öll
ung. Efni voru ekki mikil og
geta má nærri að ekkja með
þrjú ungbörn hafi átt erfiða
daga og áhyggjusama framund-
an að sjá sér og þeim farborða.
En Sigríður var alkunn dugn-
aðarkona, og henni tókst að
korna börnum sínum vel til
manns, enda voru þau sívinn-
andi henni til aðstoðar og stuðn
ings frá barnsaldri.
Þegar Ásgrímur var 9 ára
fluttist hann með móður sinni
til Hafnarfjarðar. Þar hefir
hann síðan alið aldur sinn.
Það var ekki auðvelt, á upp-
vaxtarárum Ásgríms, fyrir
fátæka unglinga að sækja skóla
nám og sízt frá þeim heimil-
um þar sem fyrirvinnan var fall
in frá. En Ásgrími duldist ekki
að mennt væri máttur, og hon-
um þótti enginn vinnudagur of
langur til þess að afla fjár til
menntunar og engin vinna of
erfið. Skipti engu hvort hann
bæri kola- eða saltpoka á bak-
inu frá höfninni í Hafnarfirði
eða ynni beykisstörf á síldar-
plönum Siglufjarðar á sumrum.
Hin nánu kynni er Ásgrímur
á þennan hátt aflaði sér í æsku
um störf og kjör daglauna-
manna, hafa eflaust átt sinn
þátt í vinsældum, er hann alla
tíð naut meðal verkafólks í
Hafnarfirði. Hann þótti og hann
var r^ttsýnn og sanngjarn í
þess garð, velviljaður, hjálp-
samur og góður húsbóndi.
Ásgrímur fór eftir fermingu
í Flensborgarskólann og lauk
þaðan prófi 1914. Frá Verzlun-
arskóla íslands lauk hann brott
fararprófi 1918. Ásgrímur var
góðum námsgáfum gæddur og
ávallt í fremstu röð skóla-
systkina sinna.
Að verzlunarnámi loknu vann
Ásgrímur um hríð skrifstofu-
störf í Hafnarfirði hjá David-
son & Hobbs.
Ásgrímur ætlaði sér aldrei
að verða lengi í annarra þjón-
ustu. Honum var forusta nær
skapi en að standa í bakröðum.
Hann ólst upp við sjávarsíðu
og hann sá og skildi hvílík
auðlegð landsins börnum til
handa gat borizt úr þeirri djúpu
námu, ef rösklega væri að geng-
ið. Það hlutverk að eiga þátt
í slíku gullnámi var Ásgrími að
skapi. Þar var ekkert smágert,
ekkert sem þurfti lítið fyrir að
hafa, ekkert sem ekki krafðist
þreks og krafðist vits.
Ásgrímur Sigfússon.
Árið 1923 stofnaði Ásgrímur á
samt Proppebræðrum og Gunn-
ari og Þórarni Egilsonum s.f. Ak
urgerði. Það félag hóf fiskverk-
un og sölu á útgerðarvörum í
ekki stórum stíl í fyrstu. Sam-
tímis eignaðist þetta ný-
stofnaða félag hlut í togaranum
Walpole, sem hafði alla af-
greiðslu í Akurgerði. Þrem ár-
um síðar urðu þeir Ásgrímur
og Þórarinn Egilson einkaeig-
endur Akurgerðis og hafa rekið
fyrirtækið síðan af dugnaði og
miklum myndarskap.
Akurgerði færðist brátt í
aukana, þótt ekki væri mikið
færst í fang í upphafi. Þar hjálp
aðist að hagsýni og örugg
stjórn, enda aflaði félagið sér
mikils traust og álits hjá þeim
er við það skiptu.
Akurgerðisfélagar fengu góða
liðsmenn í Hafnarfirði til að
kaupa nýjan togara í flota Hafn
firðinga. Tögarinn Sviði kom
til Hafnarfjarðar 1928 og var
hann í eigu og stjórn Akur-
gerðismanna til ársbyrjunar
1941.
Einn mesti þáttur í starfi Ás-
gríms var að afla markaða
fyrir sjávarafurðir landa sinna.
íslendingar áttu löngum í vök
að verjast um markaði í sam-
keppni við stærri og voldugri
nágranna. Það var ekki á allra
færi að koma ár sinni þar fyrir
'borð á því mikla tafli um kaup
og sölu, en Ásgrímur telfdi þar
vel, ekki djarft en örugglega.
Um mörg ár, þegar erfiðast
var, var Ásgrímur annar mesti
útflytjandi íslenzks saltfisks og
átti drjúgan þátt í að auka
hróður íslenzkrar framleiðslu.
Maður með viti Ásgríms og
vilja gat ekki komist hjá því
að honum væri víða skipað rúm
í stafni. Traust starfsbræðra
hans á honum var svo mikið,
að þar sem til Ásgríms náðist
voru fá ráð ráðin án hans. Hann
var í stjórn Félags íslenzkra
botnvörpuskipaeigenda, stjórn
samtryggingarinnar og Lands-
sambands íslenzkra útgerðar-
manna. Þegar nýbyggingarsjóð-
ur var stofnaður samkvæmt
lögum var Ásgrímur tilnefnd-
ur af útgerðarmönnum í stjórn
sjóðsins, sem fulltrúi þeirrar
stéttar.
Hafnfirðingar gengu ekki
fram hjá Ásgrími um bæjarmál
sín og sat hann í bæjarstjórn
í 8 ár. Þótti öllum hans ráð
góð og vildu þeim hlýta.
Ásgrímur haf ði mikinn áhuga
á bæjarmálum Hafnfirðinga.
Hann lét sig ekki eingöngu
skipta það sem horfði til efna-
legrar velgengni, hann gleymdi
ekki því sem gat orðið til þess
að prýða bæinn og gera hann
vistlegri. Þegar málfundafélag-
ið Magni var stofnað en það
sér fyrir ræktun Hellisgerðis
var Ásgrímur einn af áhrifa-
mestu og dujgmestu möimum
þess félagsskapar. Hann lét
sér alltaf annt um Magna og
þann reit sem það félag gróð-
ursetti. Reiturinn óx hægt og
hægt. Það mátti sjá á hverju
ári hvemig hann dafnaði og
blómgaðist. Þessi gróður var að
Ásgríms skapi.
Það sem hér hefir verið sagt,
að framan hefir sérstaklega lot-
ið að framkomu Ásgríms út á
við. En því má ekki gleyma,
þegar hans er minnst, hvílíkur
höfðingi Ásgrímur var heima
fyrir. Glæsimennska Ásgríms
setti svip á umhverfið. Hann
var hinn glaðasti með glöðum
og þeir sem gestrisni hans nutu
minnast hennar.
Ásgrímur átti sér skamma
ævi, en svo segir í gömlum
sögum, að konung skuli hafa
til frægðar en ekki til langlífis.
Þeir, sem þekktu ötulleika Ás-
gríms og starfsþrek fara nærri
um það hve veikindin — afl-
leysið — voru honum þung
byrði. Ásgrímur var maður, sem
ekki hliðraði sér hjá átökum.
Hann vildi reyna krafta sína og
beitti þeim. Slíkum manni var
það flestum fremur þungbært,
að verða að lúta örlögum, sem
sviptu hann hinu gamla fjöri,
en færðu honum aflleysi í stað-
inn. Sál Ásgríms hafði ekki
rúm í aflvana líkama. í þraut-
um hinna síðustu ára átti Ás-
grímur sér félaga, sem bar
byrði hans með honum. Kona
Ásgríms, frú Ágústa, stóð við
hlið hans og studdi hann og
styrkti og yfirgaf aldrei nokkra
stund.
Þeir sem þekktu Ásgrím
gleyma honum aldrei.
Samtíðarmenn hans í Hafn-
arfirði munu ætíð minnast hans
sem eins af þeim, sem „settu
svip á bæinn“.
Milli okkar Ásgríms var ekki
nema einn garðveggur en mörg
ár að aldri. Ég þekkti hann
snemma og ég leit upp til hans
Vinátta hans var mér dýrmæt
og hans ráð voru mér góð.
I dag er Ásgrímur kvaddur
af vandamönnum og af öllum,
sem þekktu hann. Það er sárt
að þurfa að skilja við hann svo
fljótt — löngu áður en komið
er á þann stað, sem ætla mætti
að ferðinni væri heitið.
Minning hans mun lifa.
Aðr^ - ■ .....
UppniBi Roosevelís.
(Frh. af 5. síðu.)
byrgðina af því, sem var og er
að gerast í heiminum. .Hann
hefir lært af þeirri Irapslllf,
sem fengizt hefir á því tímabili,
sem liðið er, eftir að hann var
í heiminn borinn. Annar þjóð-
höfðingi hefði ekki getað kom-
ið honum betur til liðs við
Evrópu. Roosevelt er líka jafn-
framt því sem hann er hundrað
prósent Bandaríkjamaður af
evrópisku bergi brotinn. Öll
rök hníga að því, að hann geri
sér ljósar skyldur sínar við
heimsálfu þá,' sem hefir valdið
hann fyrir forustumann sinn og
beri í brjósi mikla ræktarsemi
til hennar og einnig heinisálfu
þá, sem ól forfeður hans. Það
eru einmitt þessar skyldur, sem
Roosevelt hefir verið að rækja
hin síðustu ár.
(Niðurlag á morgun.)
25. pjiðrækmsMnaið.
Frh. af 4. síðu.
andi ánum. Aðeins eitt varnar-
orð: Sú hjálp má ekki koma of
seint.
En nú mundi ef til vill ein-
hver hafa gaman af að skyggnast
með mér inn í þingsalinn í Góð-
templarahúsinu við Sargent
Avenue, sjá hvað þar fer fram
á venjulegu Þjóðræknisþingi og
minnast um leið ýmsra einstakra
manna. Sú lýsing verður raun-
ar mest tengd minum eigin minn
ingum, en aðrir sem kunnugir
eru, gætu síðar fyllt í skörðin
eftir vild.
(Niðurlag á morgun.)