Alþýðublaðið - 23.02.1944, Blaðsíða 7
Miðvikudagnr 23. febrúar 1944__ _ ALÞYtlUBLAÐlS
®0000000<>&<3>0<Í>0<><3><>0<><J^^
| Bœrinn í dag.|
00000O00000O000000000000®*
Næturlæknir er í nótt í Lækna-
varðstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki.
Næturakstur annast Bifröst,
sími 1508.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30^—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenzkukennsla, 1. fl.
19.00 Þýzkukennsla, 2. fl.
19.25 Þingfréttir.
19.50 Auglýsingar.
20.20 Föstumessa í Dómkirkjunni
(séra Bjarni Jónsson).
21.15 Kvöldvaka: a) Kvæði kvöld
vökunnar (V. Þ>. G.). b)
Kristín Jakobsdóttir hús-
freyja, Símonarhúsi, Stokks
eyri: Ferð til Reykjavíkur
og Akraness fyrir 50 árum
(H. Hjv. flytur).
~1.50 Fréttir.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir ,,Vopn guðanna“ annað
kvöld í tuttugasta sinn, en nú fer
sýningum að fækka vegna annarra
viðfangsefna. ■— Aðgöngumiðasal-
an að sýningunni annað kvöld
hefst kl. 4 í dag.
Helgi Briem heiffursfélagi.
Utanríkismálaráðuneytinu hefir
borizt frétt um það, að „Com-
merce and Industry Association of
New York“ (Verzlunarráð New
York borgar) hafi kjörið aðalræð-
ismann íslands dr. phil. Helga P.
Bríem heiðursfélaga í viðurkenn-
ingarskyni vegna góðrar samvinnu
við menn í New York, sem hafa
haft viðskipti við ísland, og að-
stoðar til þeirra.
Stefán Þorvarðsson sendiherra,
tók í gær formlega við forstöðu
sendiráðs íslands í London.
Bandalag íslenzkra Farfugla
minnist fimm ára afmælis síns
með samkomu í Golfskálanum
n. k. fimmtudag. Hefst samkoma
þessi með sameiginlegri kaffi-
drykkju kl. 8V2. Verður þar margt
til skemmtunar, svo sem: ræðu-
höld, söngur og hljóðfærasláttur.
Verður efalaust fjölmennt á
skemmtun þessari, enda er hér um
merkan félagsskap að ræða.
Tillaga m nefstíina
ræM i alÍiBgi.
Frh. af 2. síðu.
von, að nefndin mundi hafa átt
þess nokkurn kost að gera upp
á milli allra þeirra aðferða, er
hér kæmi til greína á svo skömm
um tíma, sem henni væri ætl-
aður til starfa. Og sízt væri þess
að vænta, að nefndin mundi á
þeim stutta tíma komast að sam
éiginlegri niðurstöðu. Tillagan
væri þ.ví líklegri til að tefja mál
ið og skapa um það aukinn giund
roða en flýta framgangi þess,
enda vær hún þá fyrst borin
fram, er búið væri að leggja til,
að fé væri veitt til skjótrar úr-
lausnar í þessum efnum með því'
að hraða nú lagningu Krísuvík
urvegarins.
Umræðunni varð ekki lokið
í gær, og var henni frestað.
Skíðaferðir K.R.
Innanfélagsmót KR verður
næstkomandi laugardag og
sunnudag. Á laugardaginn kl.
4 e. h. verður keppt í göngu, en
á sunudaginn í bruni og svigi
í öllum flokkum. Keppni í
stökkum fer fram síðar.
Rabbfundur Skíðamanna KR
verður á fimmtudagskvöld kl.
9 á V. R. efstu hæð. Skíða-
menn og konur KR komið á
fundinn til skrafs og ráðagerða
um mótið. Göngumenn verða
að tilkynna þátttöku sína þá.
Banða kross íslands
Frh. af 2. síðu.
Hjúkrunarkona hefur haldið
hjúkrunarnámskeið víða um
land við góða aðsókn og lengi
veitti hún forstöðu forskóla
hjúkrunarnema Landsspítalans.
Undanfarin haust hafa verið
haldin námskeið í hjálp í við-
lögum hér í Reykjavík, þar sem
bæði læknar og hjúkrunarfólk
önnuðust kennslu. Voru nám-
skeið þessi vel sótt. Helztu
námsgreinar voru: heilbrigðis-
fræði, um slysfarir, beinbrot og
meðferð þeirra, sár og sárameð-
ferð, blæðinga, eitranir, lost,
lífgun úr dauðadái, umbúða-
tækni, hjúkrun siúkra og
sjúkraflutningur. Fýlega hefur
Ameríski Rauði Krossinn fær
Rauða Krossi íslands að gjöf
mjög góða kvikmynd um hjálp
í viðlögum, svo og sýningarvél.
Mun kvikmyndin verða sýnd á
námskeiðum félagsins.
í Sandgerði hefur Rauði
Kross íslands komið á fót
sjúkraskýli. Hefur það verið
starfrækt, mánuðina janúar til
maí ár hvert. Hjúkrunarkona
veitir skýlinu forstöðu, hjúkrar
hinum sjúku og veitir þeim, er
til skýlisins leita nauðsynleg-
ustu hjúkrunaraðgerðir. Lækn-
ir í Keflavík hefur eftirlit með
sjúklingunum og rannsakar þá
svo oft, sem nauðsynlegt þykir.
I sjúkraskýlinu eru almennings
böð, þ. e. steypiböð og auk þess
finnsk baðstofa. Almennings-
böðin eru ágætlega sótt af sjó-
mönnunum. Auk þess hafa
skólabörnin haft aðgang að böð-
unum. Hefur hjúkrunarkonan
einnig haft nokkurt eftirlit
með hreinlæti almennt meðan á
vertíðinni stóð. Finnska bað-
stofan hefur verið notuð mjög,
bæði af þorpbsúum og sjómönn
um enda reynist hún hin prýði-
legasta.
Árið 1943 voru þannig látin
í té tæp tvö þúsund böð á
sjúkraskýlinu, þá 4V2. mánuð,
sem það var starfrækt. Sama ár
dvöldu 29 sjúklingar á skýlinu.
Legudagar voru 224. Iijúkrun-
arkonan framkvæmdi um 1200
hjúkrunaraðgerðir og fór í 254
hjúkrunarvitjanir í sjóbúðir og
hús í nágrenninu. Er óhætt að
fullyrða, að sjúkraskýlið eigi
miklum vinsældum að fagna í
Sandgerði og meðal sjómanna
þar, enda sýna þeir oft vináttu-
hug sinn til þess og reyna að
styrkja það í hvívetna.
Hefur félagið hug á að auka
þessa starfsemi. Er verið að
rannsaka hvort eigi væri þörf
fyrir smá sjúkraskýli á Raufar-
höfn, og yrði það þá starfrækt
yfir síldveiðitímann, en þá safn
ast þar saman fjöldi fólks eins
og kunnugt er.
Fjögur síðastliðin sumur hef-
ur Rauði Kross íslands annast
framkvæmdir á sumardvölum
Reykjavíkurbarna í sveitum
landsins. Hefur starfsemi þessi
verið víðtæk einkum þrjú síð-
astliðin sumur. En þar sem ríki
og bær hafa að mestu borið
kostnað sumardvalanna, skulu
þær eigi raktar nánar hér.
Rauði Kross íslands hefur
nokkra útgáfustarfsemi með
höndum. Eins og vikið var að
áður, gefa Ungliðadeildir Rauða
Kross íslands út barnablaðið
„Unga ísland“. Árið 1941 byrj-
aði Rauði Kross íslands að gefa
út tímaritið „Heilbrigt líf“. Eru
3 fyrstu árgangar þessa rits
komnir út í tveim tvöföldum
heftum hvor. Ritstjóri tíma-
ritsins er dr. med. Gunnlaugur
Claessen. Virðist rit þetta, eins
og vænta mátti undir ritstjórn
bans, þegar vera að ná tilgangi
sínum, en hann er sá, að fræða
lesendurna um ýmis efni, er að
heilbrigðismálum láta. Hefur
tímaritinu verið ágætlega tek-
ið. Þó er ’ áskrifendatala þess
mjög mismunandi í ýmsum
sveitum landsins og þarf að
aukast enn til mikilla muna,
einkum þó þér í Reykjavík.
Fyrir nokkrum dögum kom út
3. og 4. hefti þriðja árgangs og
mun mönnum verða gefinn
kostur á, að gerast áskrifendur
að ritinu jafnframt því, sem
þeim verður boðið að gerast
meðlimir í Rauða Kross ís-
lands.
Ptörf Rauða Kross íslands
hafa verið rakin hér stuttlega.
Ber yfirlitið með sér, að starf-
semin er all víðtæk, enda ört
vaxandi undanfarin ár. Er ná-
lega ailt, sem félagið hefur af-
rekað, unnið í sjálfboðavinnu.
Eru flestir þeirra, er mest hafa
unnið að málefnum R. K. hér,
auk þess mörgum öðrum störf-
um hlaðnir. Érlendis er þetta
öðruvísi. Þar vinnur fjöldi
fólks í hverju ríki, að Rauða
Kross málum eingöngu.
Rauði Krcss íslands er fá-
tæk og ung stofnun, sem tæp-
lega enn hefur náð því valdi
og þeirri aðstöðu, sem samsvar-
andi félög hafa í öðrum lönd-
um. Hann hefur þrátt fyrir
þetta síðustu ár leitazt við að
taka upp að vinna að málefn-
um, sem ótvírætt miða til al-
menningsheilla, meðal þjóðar-
innar, þó í smáum stíl sé enn þá.
Einu sinni á ári, á öskudag-
inn, hefur hann snúið sér til
þjóðarinnar og heitið á hana
sér til stuðnings og fulltingis,
og þetta hefur eigi brugðizt,
einkum á hinum síðari árum.
Félagatala Rauða Kross íslands
hefur farið ört vaxandi, og
merkjasalan á öskdaginn hefur
margfaldazt.
Og nú er öskudagurinn kom-
inn. Merki Rauða Kross íslands
munu verða seld í dag nálega
um land allt. Börnin, sem til
yðar kunna að koma og bjóða
merki hans, eru mörg meðlimir
í Ungliðadeildum hans. Þau
hafa kynnzt hugsjónum Rauða
Krossins og bjóða fram fórnar-
lund sína.
Rauði Kross íslands hefur
fjársöfnun fyrir sig þennan
eina dag ársins. Hann væntir
þess, að hver og einn og þjóðin
öll, kunni að meta það starf,
sem hann leitast við að inna
af hendi. Viðurkenning þess
felst í árangri fjársöfnunarinn-
ar í dag.
Styrkið Rauða Kross íslands.
Gerist meðlimir Rauða Kross
íslands. Kaupið tímaritið ,,Heil-
brigt líf“. Skrifstofa Rauða
Kross íslands er í Hafnarstræti
5, Mjólkurfélagshúsinu.
„Skál fyrir Stalln
mikla."
Frh. af 3. síðu.
og Kai Munk, þegai- fréttist
um lát hans. Þó er vitað, að
í tímariti Máls og menning-
ar var nánast gert gys að
honum á sínum tíma fyrir
leikritið „Orðið“, að vísu
ekki af hálfu kommúnista-
flokksins, heldur af einum
snjallasta og mikilvirkasta
rithöfundi hans, Halldóri
Kiljan Laxness.
ÞAÐ er undarlegur hlutur, að
þurfa æ ofan í æ að reyna
að slá sig til riddara á hinum
og þessum erlendum forystu
mönnum. Meira að segja hef
ir de Gaulle ekki fengið að
vera í friði fyrir þessum
átroðningi, að maður tali
ekki um forsætisráðherra
Breta og forseta Bandaríkj-
anna. Einhverntíma hefir
þeim „Þjóðviljamönnum“
þótt viðurkvæmilegra að
slá mynt á einhverjum öðr-
um mönnum. Tilgangurinn
helgar meðalið sögðu Jesú-
ítarnir hér áður fyrr, og það
virðist vera kjörorð, sem
kommúnistarnir hafa valið
nú um stundarsakir.
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlutteknmgu
við andlát og jarðarför
Ingveldar Erlendsdóttur.
F. h. barna, tengdabarna og bamabarna,
Magnús Jónsson.
Konan mín,
EVIaría Jónsdóttir,
andaðist á heimili okkar, Ránargötu 9, hixm 21 þ. m.
Stefán Filippusson frá Brúnavík.
Skrifsfofum vorum
verða lokaðar eftir kl. 1 í dag vegna jarðar-
farar.
Hrafnaflóki H. F.
Skrifsfofum vorum
verða lokaðar eftir kl. 1 í dag vegna jarðar-
farar.
Bæjarútgerð Hafnarfjaróar.
Skrifsfofum vorum
verða lokaðar allan daginn í dag vegna jarðar-
farar Ásgríms Sigfússonar framkvæmdastjóra.
H.F. Vífill.
Uppboð.
verður haldið í Sundhöllinni í dag kl. 2 e. h.
Seldir verða ýmsir óskilamunir, svo sem úr,
sundbolir, handklæði og margt fleira.
Borgarfógetinn í Reykjavík
Frönskunámskeió Alliance Francaise.
í Háskóla íslands fyrir tímabilið marz—maí, hefjast
bráðlega. Kennarar verða frú de Brézé ‘ög Magnús G. Jóns-
son. — Kenslugjald 90 krónur fyrir 25 stundir, sem greið-
ist fyrirfram. — Væntanlegir þótttakendur gefi sig fram
á skrifstofu forseta félagsins Péturs Þ. J. Gunnarssonar,
Mjóstræti 6, sími 2012, sem allra fyrst.