Alþýðublaðið - 21.03.1944, Blaðsíða 3
M8}tidagnr 21. marz 1944.
*i,eUMZ®IAfii»
Anerískif ódrengir.
EINS og kunnugt er hafa aU-
inargir menn og konur frá
i| löndum bandamanna látið
i!hafa sig .til iþess að ganga í
þjónustu öxulríkjanna með
ýmsum hætti. Flest af þessu
fólki hefir gert það á þann,
v ihátt, að það hefir tekið þátt'
í ýmislegri útvarpsstarfsemi
Sá, sem kunnastur er fyrir
þess háttár starfsemi er Bret-
inn William Joyce, sem nefn-
ist Haw-Haw lávarður í þýzka
útvarpinu. En ýmsir Banda-
ríkjamenn og konur 'hafa
einriig tekið þátt í slíkri iðju,
þótt þeir hafi ekki getið sér
jafn mikillar frægðar og téð-
'Ur Haw-Haw.
'í' VTÐLEiSNU amerísku tíma-
riti var nýlega grein um þessi
má'l, sem ætla má, að íslenzk
ir lesendur hafi áhuga fyrir
að kynnast nokkru nánar, og
það, sem hér fer á eftir, er
samkvæmt heimildum þessa
tímarits. Það, sem fyrir Þjóð
verjum vakir með því að nota
ÍBreta og Bandaríkjamenn í
útvarpi sínu til áróðurs er að-
allega fólgið í eftirfarandi: Að
, útbreiða vantrú á sigur banda
. manna og vonleysi um hag
þeirra. Að reyna að skapa ó-
einingu og sundrung milli
hinna sameinuðu þjóða, sér í
lagi Bretlands og Bandaríkj-
anna. Að reyna að útbreiða
misskilning milli Bandaríkja
þjóðarinnar og stjórnarinn-
ár. Að efla einangrunarstefn
una innan Bandaríkjanna og
loks að gera sem mest úr
v riynþáttadeilum, verkföllum
• Og öðru slíku í Bandaríkjun-
um.
DÓMSM ÁLA RÁÐH ERHA
BANDARÍKJANNA, Francis
Biddle, hefir látið undirbúa
landráðamál á hendur 8
Bandaríkj amönnum, þar af
tveim konum, sem starfað
hafa á þennan hátt í þágu
Þýzkalands og Ítalíu. Þetta
fólk mun verða leitt fyrir lög
og dóm að styrjöldinni lok-
inni, að því er segir í hinu
ameríska tímariti. Sá, sem
kunnastur er þessara hand-
benda möndulveldanna er
vafalust skáldið Ezra Loomis
Pound. Hann hafði aflað sér
nokkurra vinsælda bæði í
Bretlandi og Bandaríkjun-
um, en leit jafnan á Banda-
ríkin sem „ómenntað og ó-
þroskað“ land. Hann flutt-
ist til Ítalíu árið 1924 og
gerðist mikill aðdáandi
Mussolinis. Árið 1940 hóf
hann útVarpsáróður til Banda
ríkjanna frá Ítalíu. Sama dag
og Mussolini hrökklaðist frá
völdum, flutti Ezra Pound
útvarpserindi, þar sem hann
hóf fasismann til skýjanna.
ANNAR MAÐUR, sem Þjóð-
verjar hafa notað allmjög til
áróðursverka í útvarp sitt,
heitir Robert H. Best. Hann
er einnig innfæddur Banda-
ríkjamaður og vann um tíma
fyrir fréttastofuna United
Frti. á 7. siðu.
Stalin tilkynnir 1 töku borganna Mogilev-
Podölsk og Vinnitsa.
Rússar stefsia siú Siil sínu fið borgarisinar
Balfi og fara hratf yfir.
STALíN marskálkur hefir enn tilkynnt í dagskipan tvo
mikla sigra Rússa. Hafa þeir tékið borgina Mogilev-
Podölsk á austurbakka Dniestr, en sú borg gekk úr greipum
Þjóðverja í fyrradag. Þá hafa Rússar einnig tekið borgina
Vinnitsa, sem mikið hofir verið barizt um að undanförnu.
Hefir oft legið við borð, að Þjóðverjar misstu þá borg úr
höndum sér, en það var ekki fyrr en í gær, að það gerðist.
Rússar hafa nú brotizt ýfir Dniestr-fljót inn í Bessarabíu í
Rúmeníu á breiðu svæði og virðist sókn þeirra óstöðvandi.
Stefna þeir meginliði sínú til borgarinnar Balti, eftir að hafa
tekið bæinn Soroca, vestan við Dniestr. Þá halda þeir áfram
sókninni í Póllandi og sækja að borginni Brody, suður af
Dubno, sem nú er á valdi þeirra.
Ifalías
Enn er barizi um
Cassino.
ENN hefir bandamönnum
ekki tekizt að hrekja
Þjóðverja að fullu úr rústum
Cassino-borgar og geisa enn
harðir bardagar í einum hluta
hennar. Mikið hefir verið bar-
izt um Continental-gistihúsið í
borginni, en þar nutu Þjóðverj-
ar stuðnings tveggja skrið-
dreka. Járnbrautarstöðin
skammt frá borginni er enn á
valdi bandamanna, þrátt fyrir
heiftarleg áhlaup Þjóðverja.
Sumir fregnrita-rar segja, að
bardagar séu skæðari nú en
nokkru sinni síðan barizt var
við E1 Alamein.
Við Anzio eru einnig háðir
skæðir bardagar og eiga þar
kanadiskar hersveitir í höggi
við Þjóðverja. Af vígstöðvum
8. hersins er lítið í fréttum og
hefir allmörgum áhlaupum
Þjóðverja verið hrundið.
Flugvélar, sem höfðu bæki-
stöðvar á Ítalíu, hafa gert á-
rásir á borgirnar Klagenfurt og
Graz í Austiirríki. Voru það
stórar amerískar flugvélar, sem
árásirnar gerðu. Til mikilla
loftbardaga kom og misstu
Þjóðverjar 30 flugvélar við
það tækifæri. Þá var og ráðizt
á borgina Monfalcone, sem er
mikilvæg kafbátastöð í grennd
við Trieste fyrir botni Adría-
hafs.
LÖGREGLUSTJÓRI quisl-
inga, Askivig að nafni var
nýlega fluttur í sjúkrahús í Osló
vegna taugaáfalls. Hann var yfir
kominn af hræðslu og taugaó-
stýrk. Frá Oslo berast þær
fregnir, að hann muni ekki get
að tekið við stöðu sinni aftur.
Er hann sagður gersamlega bil-
aður omaður og lifi í eilífri ang-
ist um, að einhverjir muni hafa
sig á brott frá heimili sínu. Hann
var þrekinn maður, sem vóg yfir
100 kg., en nú er hann sagður
vega aðeins 70 kg.
Hin hraða sókn Rússa 'hefir
vakið feykilega athygli í lönd-
um bandamanna, en Þjóðverj-
um heima fyrir er tæpast ljóst,
Ihversu alvarlegt ástandið er.
Borgin Mogilev-Podolsk er
mjög mikilvæg samgöngumið-
stöð og féll hún í hendur Rúss-
um eftir skæðar árásir 2. ukra-
inska 'hersins. Má vænta þess,
að hersveitir Rússa eigi erfitt
um undankomu úr þessu. Mik-
ið hefir verið barizt um borg-
ina Vinnitsa og var hún loks
tekin eftir heiftarlegar árásir
rússnéskra urvalshersveita. Enn
sækja Rússar fram í Póllandi,
en þeim hefir enn ekki tekizt
að brjóta á bak aftur mót-
spyrnu Þjóðverja í Tarnopol,
og geisa þar enn harðir bar-
dagar á götunum.
Hafa Þ|o@ver|ar her-
tiymsð Ungverjaland?
Samkvæmt fregnum frá An-
kara, sem enn eru óstaðfestar,
hafa Þjóðverjar nú hertekið
Ungverjaland. Er sagt, að
Horthy ríkisstjóri Ungverja og
ráðherrar úr stjórn hans séu
staddir í aðalbækistöð Hitlers.
Hins vegar þykir það styrkja
gruninn um, að fregn þessi sé
sönn, að útvarpið í Budapest
hefir einkum flutt þýzkar til-
kynningar, þar á meðal her-
stjórnartilkynningu Þjóðverja
í heilu lagi.
Þá var og sleppt dagskrárlið,
sem fjalla átti um Kossuth,
frelsishetju Ungverja. Ribben-
trop hefir verið spurður að
því, hvort Þjóðverjar mundu
ekki auka vigbúnað sinn á næst
unni og kvað Ribbentrop svo
myndi vera. Eru ummæli þessi
talin stinga mjög í stúf við
•hínar síðustu hrakfarir Þjóð-
verja bæði á austurvígstöðvun-
um og í loftbardögum
SAMKVÆMT fregnum frá
Algier var Pucheu, fyrr-
verandi innanríkisráðherra Vi-
chy-stjórnarinnar, skotinn í
gær. í Lundúnafregnum var
sagt, að hann hefði brugðizt
mjög karlmannlega við dauða
sínum og beðið um að fá sjálf-
ur að gefa hermönunum skip-
un um að skjóta. Var það veitt.
Myndin sýnir austurvígstöðvarnar, sunnan til. Kortið er allgamalt,.
en gefur þó nokkra hugmynd um staði þá, sem mest hefir verið
barizt um’að undanförnu. Neðarlega til hægri er borgin Nikolaev,
sem nú er umkringd af Rússum. Á miðju kortinu er Dniestr-fljót,
sem skilur Rússland og Bessarabíu. 'Þá má og sjá bæinn Vinnitsa
sem Rússar hafa tekið.
Bandamenn ráðast á V.-Þýzkaland
Samtímis var ráðizt á stöðvar Þjóðverja í
N.-Frakklandi og víðar i hertekny löndunum
STÓRAR amerískar flugvélar hafa enn ráðizt á ýmsar stöðvar
í vestanverðu Þýzkalandi. í tilkynningu amerísku yfirvald-
anna í Bretlandi var sagt, að álitlegur hópur flugvirkja og Liber-
ator-flugvéla hefðu verið að verki. Veður var óhagstætt, en þó
féllu margar sprengjur á hin fyrirhuguðu skotmörk. í gær fórn
svo Thunderboltvélar, sem höfðu sprengjur meðferðis til árása á
ýmsa staði í herteknu löndunum handan Ermarsunds.
I árásunum á Þýzkaland voru
mjög óhagstæð skilyrði til loft
árása og lágskýjað mjög. Þó
tókst flugmönnum Bandaríkja-
manna að hæfa skotmörkin með
hinum fullkomnu miðunartækj
um. í árásum Thunderbolt-flug
vélanna voru fjölmargar brezk-
ar flugvélar til verndar, svo og
hollenzkar, pólskar og belgískar
orrustuflugvélar.
Áður höfðu amerískar Mar-
auder-flugvélar gert harða hríð
að Calais-svæðinu í Norður-
Frakklandi. Var einkum ráðizt
á járnbrautarskýli og örinur
járnbrautarmannvirki. Mót-
spyrna af hálfu þýzkra orrustu
flugvéla var mjög óveruleg.
Þýzkar flugvélar réðust á
ýmsa staði í Austur- og Norð-
austur-Englandi og ollu nokkru
tjóni. 7 árásarflugvélanna voru
skotnar niður, þar af 1 yfir flug
velli í Hollandi.
Frá Noregi.
FRÁ Noregi berast þær fregn
ir, að s. 1. föstudag hafi
Þjóðverjar fangelsað allmarga
Norðmenn í Oslo. Var hafizt
handa snemma morguns og hald
ið áfram langt fram á dag. Voru
vegabréf manna og skilríki at-
huguð mjög kyrfilega. Er talið,
Samningar Finna og
Rissa halda mtíl-
aniega áfram segir
Cordell Hull.
AMKVÆMT norska útvarp
inu frá London 1 gær hefir
Cordell IIull, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, lýst yfir því, að
horfur séu á, að samningaum-
leitunum Finna og Rússa verði
haldið áfram. Rússar munu nú
hafa svar Finna til athugunar,
en það hefir enn ekki verið gert
opinibert.
í fregn frá Moskva er mót-
mælt þeirri fregn frá Berlin, að
Rússar hafi enn gert loftárás á
Helsinki og er sagt, að enginn
fótur sé fyrir þeirri fregn.
að þýzka lögregan hafi verið að
leita að Norðmönnum, sem þátt
taka í leynistarfseminni.
Áður hafði lögreglan þýzka
gert húsrannsóknir í bæjunum
Sandef jord, Tönsberg og Horten.
Allmargir menn voru teknir
höndum og símasamband var
rofið. Hinir þýzku lögreglumenn
voru þarna að leita að vopnum
og' útvarpsviðtækjum.