Alþýðublaðið - 27.04.1944, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 27.04.1944, Blaðsíða 3
' TOíNIR GLÆSILEGU sigrar Rússa, bæði í fyrra og þaS sem af er þessu ári hafa að sjálfsögðu vakið aðdáun í öll- um löndum bandamanna. Það er því fróðlegt að velta því fyrir sér, hvernig á þeim stendur, hvers vegna hin ægilega stríðsvél nazismans hefir verið nærri stöðvuð á þessum vígstöðvum. Hvernig stendur á því, að Þjóðverjar hafa orðið að gefast upp í hverri borginni af annarri og látið hrekja sig óravegu vest- ur á bóginn? SJÁLFSAGT ERU MÖRG svör við þessum spurningum og ekkert þeirra með öllu tæm- andi. Það er í fyrsta lagi vit- að, að Rússar hafa sýnt af- burða þrek, fórnfýsi og karl- mennsku. Þeir hafa fylgt • skipun Stalins út í yztu æsar um að skilja eftir „sviðna jörð“ og eyðilögð mannvirki. Þjóðverjum urðu lítil not af hinum miklu aflstöðvum Rússa og verksmiðjum, þau voru í rústum, en þeir héldu innreið sína í mestu borgir Vestur-Rússlands, en Rússar höfðu flutt með sér flestar þær vélar, sem unnt var að færa úr stað, austur á bóginn og komið þeim fyrir í nýjum verksmiðjubyggingum. RÚSSAR HAFA BEÐIÐ óhemju manntjón í þessum hrika- legu átökum. Edgar Snow, sem er kunnur blaðamaður og fregnritari ameríska tíma- ritsins „The Saturday Even- ing Post“ greinir frá þyí, að Rússar muni hafa misst 6—8 milljónir fallinna og særðra Qg sé hér varlega áætlað. Þá segir Snow frá því, að ótrú- lega margir óbreyttir borgar- ar hafi beðið bana, og nefnir hann ýmis dæmi, þessu til sönnunar. í borginni Rzhev voru um 65 000 íbúar fyrir stríð. Um það bil þriðjungi íbúanna tókst að komast á hrott áður en Þjóðverjar tóku borgina herskildi. Þeg- ar Rússar tóku borgina aftur voru þar aðeins um 200, tvö hundruð sálir, Tugir þúsunda höfðu orðið hungurdauðanum að bráð og borgin sjálf var í TÚstum á sama hátt og Stalin- grad. í Kharkov bjó um það bil 1 milljón manna fyrir stríð. Þegar Rússar tóku foorgina aftur, hafði helming ingur íbúaanna látið lífið eða horfið með dularfullum hætti. Talið er, að um þriðj- ungur íbúa Leningrad hafi látizt af hungri. SIN SENNILEGASTA skýring- in á frammistöðu Rússa er kjarkur hinna óbreyttu borg- . ara sem aldrei brást, hvað sem yfir dundi. Andinn frá 1812 er enn við líði. Þá má líka gera ráð fyrir að hinar rússnesku hersveitir hafi haft í ríkum mæli það, sem Frakk ar hafa nefnt esprit de corps, sem gæti á íslenzku heitið foaráttukjarkur, hvernig sem allt virðist ætla að fara. Þeir sem vörðu Stalingrad sýndu hvað bezt, hvað í orðunum esprit de corps félst. . Framhald af 3. síðu. sprenginguna f Bergen 20. þ.m. Ferðir sporvagna hafa víða fallið niður, afgreiðsla pósts og skólahald. Aimenningséldhús í leikhúsunum. [ ' ENN HAFA borizt lítarlegri fregnir af hinni óskaplegu sprengingu, sem ’ýarð á höfninni í Bergen 20. þ. m. Blaðið „Bergens Tiden&e,“ sem er á valdi nazista, lýsir at- burðinum á þessa leið, sþmkvæmt fréttum, sem norska blaða- fulltrúanum í Reykjavík hafa borizt: Að morgni þess 20. apríl kom upp eldur í litlu gufuskipi, sem lá við Festningskaien. Eldur breyddist mjög skjótt út og tókst ekki að hindra það, að hann bærist í lest skipsins. Mikil eldsúla gaus upp og skipiðj sprakk í loft upp með ógurlegum hvelli. Miklar skemmdir urðu af sprengingunni. Á skömmum tíma komu upp margir eldar báðum megin Vogsins. Tvö smáskip þeyttust upp á bryggjuna af völdum sprengingunnar (áður hafði aðeins eitt skip verið nefnt í fréttum). Jafnvel bæjarhverfi, sem eru fjarri sprengingarstaðnum urðu fyrir miklum skemmdum. ----------— * Gaflar Hákonarhallarinnar og Miklar viðsjár í Danmörku: i Skriðdrekar á göfum Kaupmannahafiíar ENN er ekkert samband milli Svíþjóðar og Dan- merkur. Skipaferðir hafa verið lagðar niður, svo og sírqasam- band. Fáar fregnir hafa þýí bor ist um ástandið í Danmörku, en þó segir í sænskum fréttum að miklar viðsjár séu með mönnum í Danmörku. Þýzkir skriðdrekar eru á ferð ,.um göt- ur Kaupmannahafnar og vél- byssum hefir verið kömið fyrir á götuhomum og við mikil- vægar byggingar. Þjóðverjar gera húsrann- sóknir hjá Dönum. Leita þeir að þeim, sem. unnið hafa . að skemmdarverkum svo og fall- hlífahermönnum. Dauðarefsing liggur nú við því að hafa vopn í fórum sínum. Mikill sægur skipa liggur nú í höfnum Suður-Svíþjóðar. Neita skipstjórar þeirra að láta úr höfn vegna tundurdufla- lagna bandamanna að undan- förnu. Sjóorrusta á Ermarsundi: Þýzkum fundurspilli sökki undan Brefagne-skaga. BREZKA flotamálaráðu- neytið tilkynnti í gær, að snemma í gærmorgun hefði komið til átaka milli brezkra og þýzkra herskipa undan Bretagne-ströndum. Brezk og kanadisk herskip, þar á meðal beitiskipið „Black Prince“ Lagði til atlögu við þýzka tund- urspilladeild. Þýzku skipin reyndu að komast undan og huldu sig reykskýi. Einn hinna þýzku tundurspilla varð fyrir mörgum slcotum og sökk. Brezku skipin löskuðust lítil- lega og manntjón var lítið. Hin þýzku skip komust undan. WaLkendJorfsturnsins standa enn þá, en ibústaður yfirmanns Bergenfoúskastala og eftirlits- manns eru í rústum. Enn hafa ekki verið birt nema nöfn fimm, sem fórust. Mörg iþúsund manns eru hús- næðislausir. Hefir þeim verið komið fyrir til ibráðabirgða í safnaðarhúsum, gistihúsum ut- arbæjar og víðar, en almenn- ingseldhúsum foefir verið kom- ið á fót í mörgum af hinum stærri leikfoúsum og foljómleika sölum foæjarins. Leikhúsið Den Nationale Scene hefir foætt sýn- ingum, sömuleiðis kvikmynda- húsin. Húsakynni Bergenska gufu- skipafélagsins eru gereyðilögð. Miklar skemmdir urðu á skrif- stofum Hardanger-Sunnhord- landske, sem eru hinum megin Vogsins og hefir félagið orðið að draga úr áætlunarferðum af þessum sökum. Ferðir sporvagna foáðum meg in vogsins foafa lagzt niður og á sumum stöðum er ekki unnt að vita, hvort sporvagnaferðir geti hafizt á ný fyrr en gengið hefir verið úr skugga um, að hús, sem laskazt foafa, þoli hristing af völdum umferðarinn ar. Póstafgreiðsla foefir fallið niður í póststofum á Norður- nesi og í sandvíkur-hverfi. Skólafoaldi er foaldið áfram í nokkrum af skólum þeim sem Þjóðverjar foafa ekki tekið til sinna afnota, en sums staðar hefir kennsla fallið niður vegna sprengingarinnar. í fregnum til norska blaða- fulltrúans hér segir enn frem- ur á þessa leið: Samkvæmt fregnum frá Noregi, sem bor- izt hafa yfir Svíþjóð, hafa norsk blöð ekki fengið leyfi til þess að foirta nákvæmt yfirlit og upp lýsingar um hinar gífurlegu skemmdir, en samkvæmt þeim fregnum, sem þegar liggja fyr- ir, geta þeir, sem kunnugir eru í Bergen, gert sér í fougarlund, hvílíkt tjón hefir orðið þar í borg. Engar meiriháttar breyting- ar hafa orðið á Burma-vígstöðv unum. Bandamenn hafa enn bætt nokkuð aðstöðu sína. Nær 1000 amerískar flugvélar réðust á Braunschweig í björtu í gær Þessi mynd sýnir, talið frá vinstri, þá Dwight D. Eisen- •hower, yfirmann innrásarherja bandamanna, Cfourchill for- sætisráðherra og Omar N. Bradley hersfoöfðingja, yfirmarm landfoers Bandaríkjamanna á Bretlandi, véra að reyna nýja vélbyssu, einhvers staðar á Englandi. Það fylgir sögunni, að skotfimi þeirra hafi verið í bezta lagi. Engra þýzkra orrustuflugvéla varð varf. "D ANDAMENN héldu áfram loftsókninni á hendur Þjóð- verjum í björtu í gær. Um 250—500 stórar amerískar sprengjuflugvélar réðust enn á iðnaðarstöðvar í og við Braunsdhweig, Ekki varð vart þýzkra orrustuflugvéla. Rússar byrja nýja sókn við Dniesfr, segja Þjóðverjar. í Braunschweig eru sem kunnugt er miklar flugvéla- smiðjur og hafa þær orðið fyrir morgum og hörðum árásum bandamanna áður. Loft var skýj að, en þó tókst flugmönnum bandamanna að finna staði þá, sem ákveðið hafði verið að AMKVÆMT Berlínar- fregnum hafa Rússar enn byrjað sókn neðarlega við Dniestr-fljót. Fregnir þessar hafa ekki verið staðfestar 1 Moskva. ráðast á. Skothríð úr loftvarna- byssum var all-hörð, en að þessu sinni komu orrustuflug- vélar Þjóðverja ekki á vett- vang. Allar sprengjuflugvélarn Á Krímskaga reyna Þjóð- verjar að bjarga því, sem bjargað verður. Freista þeeir að koma her sínum frá Sevasto- pol til hafna í Rúmeníu, en verður lítið ágengt. í fregnum frá London í gær- kveldi var sagt, að pólskir skæruliðar hefðu eyðilagt þrjár járnbrautir, sem liggja til aust- urvígstöðvanna. Sænskar kúluiegur tii Þýzkaiands: Svar Svía ófullnægj- andi segir Eden. \ NTHONY EDEN upplýsti í neðri málstofunni í gær, að svar Tyrkja við þeirri mála- leita Breta, að þeir hættu að senda 'hráefni til hergagnafram leiðslu til Þýzkalands hafi verið vinsamlegt. Þá sagði Eden, að Bretar myndu hafa nánar gæt- ur á útflutningi Portúgala til Þýzkalands. Hins vegar er því lýst yfir opinberlega í London, að brezka stjómin geti ekki skoð svar Svía fullnægjandi og í svip ar komu aftur til bækistöðva sinna, en 6 orrustuflugvélar týndust í árásunum. Einnig var ráðizt á staði í Vestur- Þýzkalandi, einkum Osnabruck í fyrrinótt réðust hinar hrað- fleygu Mosquito-flugvélar Breta á Köln við Rín. í gærmorgun byrjuðu stór- hópar sprengjuflugvéla af meðalstærð að fljúga yfir Erm- arsund til árása á Norður- Frakkland. Var árásum þess- um haldið áfram allan daginn í gær. Ekki hafði verið tilkynnt í gærkveldi, hver skotmörkin voru. aðan streng hefir Cordell Hull tekið, að því er Lundúnafregn- ir hermdu í gærkveldi. Er og gefið í skyn, að Rússar hafi einn ig látið í veðri vaka, að þeir séu ekki ánægðir með afstöðu Svía í þessum málum. Er sagt, að stjórnir Bretlands og Bandaríkj anna hafi til yfirvegunar, hvað skuli taka til bragðs og megi vænta nánari frétta um þessi mál nú á næstunni. Það eru eink um kúlulegur, sem Þjóðverja vanhagar um, en Svíar hafa flutt mikið af þeim til Þýzka- lands að undanförnu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.