Alþýðublaðið - 27.04.1944, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 27.04.1944, Blaðsíða 8
8 »TÐUBUtflia Fimmtutiagur 27. apríl 1944. rMRNARBtOSS | • Fjórar dælur (Foux Doughters) Amerísk músikmynd Prascilla Lane Bosemary Lane Lola Lane Gale Page Jeffrey Lyrua John Garfiels Claude Kains Síðar verður sýnd myndin Fjórar mæður, sem er áfram hald þessarar og leikin aí sömu leikurum. Sýnd fcL 5, 7 og 9. MAMMAN: „Og mwndu það nú Nonni minn, að það er Ijót- ur og svartur draugur inni í skápnum, þar sem ég geymi kökumar.“ Nonni: „ÞaS var merkilegt. Af hverju kennir þú þá ekki draugsa um, þegar þú sáknar einhverrar kökunnar, heldur elltaf mér.“ * * * FÍLLINN Á STRÖNDINNI. Gráskeggjaður karl, sem átti álitlegan fjölda af gangandi fé t hökutoppnum og ung stúlka urðu samskipa yfir Atlantshaf- ið. Karlinn var oft uppi á þíl- fari með sjónaúka og kom þá venjulega til hans unga stúlk- an og spurði hvort hann sæi til lands. Karlinn var nú orð- inn leiður á öllum þessum spumingum og hugsaði sér að gabba stúlkuna. Næst þegar stúlkan kemur og spyr hvort hann hafi land- sýn, svarar karlinn því játandi, og býður stúlkunni að líta í sjónaukann. Stúlkan horfir nú í sjónauk- ann, en karlinn rífur hár úr hökutoppnum og leggur fyrir sjónglerið og spyr ungfrúna: „Sjáið þér ekki ströndina, hún er eins og .strik % sjónauk- anum.“ „Jú, víst sé ég .ströndina“, segir ungfrúin, „og meira jað segja stóran fíl, sem þrammar eftir henni.“ í straumi örlaganna Iborg fyrstu tvær vikurnar, með- an lækningatilraunir hans stæðu yfir, og senda hann síðan til Alpenhof, heilsuhælis hans í Alpaf jöllum í um það bil tveggja tíma ferð frá Vínarborg. Þess- ar tvær vikur skiptust á alls konar tilraunir og aðgerðir. Mik ael var alltaf upptekinn við þetta, og að fáum dögum liðnum var svo komið, að hann var orðin óþolinmoður eftir því að fara til læknisins. Konrad var gædd- ur sérstakri tegund kímni, sem Mikael féll vel í geð, enda var hann Gyðingur að fimmtíu 'hundraðshlutum ög læknanemi að auki. Konrad sá ekki per-s sónur eða gerði sér grein fyrir sérkennum þeirra. Hann tók að eins eftir sjúkclómsauðkennum þeirra og nefndi fólk eftir þeim en ekki með nafni. Mikael 'var óblandin ánægja í þessum sér- stæðu skýrgreiningum, og allt fór vel fram. Florian Rieger nefndi Klara mann sinn, enda þótt hún væri ekki raunverulega gift honum. Þetta var grannvaxinn, glæsileg ur og kyrrlátur maður, sem minnti mig að nofckru leyti á hinn romantiska frænda minn, Theódór. Hár hans var ekki bein línis grátt, en það var ryklit- að. Hann var mjór í öllu tilliti; andlit hans, herðar, hendur hans og fætur — jafnvel hugur hans í vissu tilliti. Ást hans á Austurríki orkaði fremur óþægi lega á mann, líkt og þegar ein- hver f jölyrðir um of um yndis- iþokka konunnar sinnar. Ég varð óþolinmóð, þegar hann stöðya- aði vagninn sinn og bomst í við- kvæma stemningu yfir ein- hverju, sem fyrir augu hans bar. — Er þetta ekki fagurt, Mar- ion? spurði hann, og rödd hans skalf af vikvæmni og augun ljómuðu af hrifni. — Horfðu á það — aðeins andartak. Gerðu svo vel að gera mér þann greiða að horfa á það. Jafnvel þótt smékkur þinn hafi eyðilagzt, af að horfa á þessa amerísku skýja kljúfa, hlýturðu að viðurkenna, að þetta er fagurt! — Það er f allegt Flori, svaraði ég. — En þú hefir ekki enn séð sólsetrið frá Manhattan. Og auk þess, ef ég má benda þér á það, þá erum við orðin tíu mínútum of sein á áfangastaðinn. Þá andvarpaði Flori og setti bílinn í gang aftur. — Fljótur, fljótur! Alltaf að flýta sér. Eng- inn tími til að eta, engin tími til að njóta lífsins. Osvikinn Ameríkumaður! sagði hann. Ég leit á klukkuna og gladdist, þeg- ar hann tók um stýrið á ný En i von bráðar sleppti hann því aft- I ur og nam staðar til að virða fyrir sér eitthvað annað, sem fyr ir augu hans bar. — Þetta er of fagurt til að láta Hitler kasta sprengjum á það, tautaði hann. Floridan Riege gat ekki kvænzt Klöru af sérstökum aust urrískum, sérstökum katólsk- um ástæðum, er eitthvað snerti páfann, sem ekki gat fallizt á að ógilda fyrra hjónaband Flori og ryðja þar með brautina fyrir það næsta. Smám saman komst ég að raun um það, að kona Flori hafði bilazt á geði og dvald ist nú í einhverri stofnun, þar sem hann heimsótti hana af mik illi trúmennsku á hverjum mið vikudegi og færði henni sætindi og blóm. Hún gæddi sér á sæt- indunum og reif niður blómin án Iþess að bera nokkur kennsl á Flori. Klara Oig hann bjuggu hins vegar saman eins og hjón og hún var hætt að dansa og sinnti nú því einu að ala upp dóttir Flori, Renate. — Vildirðu ekki óska, að þú værir sanntrúaður katólikki eins og Flori? spurði Klara mig einu sinni af tilviljun. — Hugs- aðu þér, hvað það mundi vera skrýtið að finnast maður vera að drýgja dauðasynd með því að halda heimili fýrir hann. Ef ég á að segja iþér mína skoðun, barn, þá erum við alltof víðsýn ar. Það tekur allan keim af líf- inu. — Jæja, þú ert nú að minn- ast kosti ekki orðin eins virðu- leg og ég er, svaraði ég. — Þú ættir að sjá mig sem frú Sprar gue við hátíðleg tækifæri. Drott inn minn, hvað við vorum upp- reisnargjarnar í gamla daga gagnvart öllum siðum og venj- um. Þú giftist Flori, þegar páf- inn segir sitt orð, og ég er lög- leg eiginkona með öruggan sjóð að bakhjarli. — Sjóður? Það hljómar ekki vel, sagði Klara rugluð. — Hvað er nú það? — Ég veit það ekki gerla. Það er eitthvað, sem Jön er mjög stoltur af. Hvenær sem við getum ekki leyft okkur eitt, eða annað, er það af vegna sjóðs ins. Ég ihugsa mér hann sem eins konar hjáguð, vandlega falinn í skrifstofu Jóns, og það verði að fórna honum fé og gulli alltaf öðru hvoru. Klara leit á mig og ljómaði ibæði kæti og áhyggjur í augum hennar. — Já, litli munkur. Svona endaði þetta allt saman. Ég er orðin afturhaldsmann- eskja og þú giftist mik'lum pen- ingum. Við hefðum eins vel get að látið vera að 'fara nokkru sinni að heiman. — Hvers vegna hættirðu að dansa? spurði ég 'hana. — Hvers vegna hættir þú við NYJA BIO Skæruheratenn (Chetniks) Anna Ster Philip Dorn Bönnuð bömum innan 14 ára Sýnd kl. 9. g Æfintýrið í flug- bálnum. William Gargan Maria Montes Sýnd kl. 7 og 9. Bönnuð fyrir böm yngri en 14 ára. 6AMLA Blð Vaskir drengir (Gallant Sons) Jackie Cooper Bonita Granville Gene Reynolds Sýnd kl. 7 og 9. að leika á fiðlu? Og hvers vegna hættirðu við að skera út? — Ég þarf að fylgjast með því, hvort Mikael fær bata. Það er þýðingarmeira, er það ekki? — Auðvitað. Sama máli gegn ir um Flori. Sama máli gegnir um Renate. IRenate var grönn og smá- vaxin, fimmtán ára gömul. Hún hafði stór, blá augu, svartar, sér kennilegar augnabrýr og svar- blátt hár — skrýtileg samsetn- ing, sem gerði hana mjög að- laðandi. — Renate er eins og góð hljómlist, sagði Mikael um hana, og lika: —< Renate er eins og ískrem með heitri súkkulaði- sósu. Heit og hressandi. Renate eyddi mörgum stundum í félags skap Mikaels, og það gladdi mig mjög, að hún skydi hafa komið inn í líf okkar á hinu rétta augna bliki, þegar hann varð að liggja í rúminu lengst af og þarfnaðist tilbreytingar. Renate, sem gekk undir hinu skrýtna gælunafni Bummerl, las fyrir hann blöð og tímarit ásamt bréfunum, sem Jón og Martin skrifuðu honum. AH-» COME 0M» SCORCH/ [ TH15 MAY TURN OUT TO MEÐAL BLAMANNA EFTIR PEDEKSEN-SEJERBO — En ferðin mun taka marga daga, við munum verða izt að orði. — Það deyja alltaf margir þeirra, sem leggja að þola mikinn sult og margar þjáningar, hafði stúlkan kom- á eyðimörkina. Hún hafði komizt lífs af vegria þess eins, að höfðinginn, sem hafði numið hana brott, hafði skipt mat- föngum sínum rnilli þeirra vegna umhyggju þeirrar, er hann aðsýndi henni, enda þótt margir manna hans væru örmagna af hungri. Vinir vorir höfðu ákveðið, þegar hér var komið, að senda Talvoana aftur heim. Búatýra myndi vera þeim jafn- snjall leiðsögumaður og auk þess var tveim færri munnum fyrir að sjá, ef beir hyrfu heim. En það var enginn hægðarleikur að fá Talvoana til þess að fara heim án þess að móðgast. Wilson ræddi mál þetta við Kaliano. Þeir ákváðu, að Talvounum skyldi látin reykj- arpípa Wilsons í té sem greiðsla fyrir fylgdina. Þetta kom að tilætluðum notum. Þeir félagar gerðust alls hugar hrifnir yfir þessari raunsnarlegu gjöf, kvöddu vini vora með hinum mestu virktum og héldu heirn á leið. Burtför þeirra hafði borið að höndum sama daginn og vinir vorir stóðu á brún fjallsins og horfu út yfir eyðimörk- ina sem fyrr um getur. Þá sáu þeir Wilson og Páll Hjálmar allt í einu koma hlaupandi, sveittan og móðan. Hann hélt á einhverjum hlut í hendinni, sem var áþekkur dúfueggi að stærð. — Getur það verið, að þetta sé gimsteinn? spurði hann flaumósa. EATINK? NOU^tCWHYI WOítRlED ABOUT THE BLIND DATE5 APTER, T0NIGHT5SH0W; N0-0/ JUST 1 HOPIN&THEWAR- TIME HEART-THROB | DOESN’TTURN INTO HEART-ACHE/ ¥NDA SAGA FLUGSTJÓRINN: ,,Þarna kem ur Sammy. Hann hefur náð í fjóra miða.“ SAMMY: „Hank kenndi mér allt sem ég kann. Binn færð þú og einn færð þú ag ÖRN: „Nei, góði, teldu mig ekki með. Mig langar eingin- lega ekkert til að . . . . “ FLUGSTJÓRINN: „Æ, vertu ekki að þessu Örn —það get- ur vel verið að nú loks hittir þú ástina þíná.“ MEÐAL STÚLKNANA: „Hvað gengur eiginlega að þér Kata. Kvíðirðu fyrir stefnumótinu í kvöld á eftrá skemmtuninni?” KATA: „Nei, en ég er bara að vona að hjartslátturinná þess um stríðstímum verði ekki að hjartveiki.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.