Alþýðublaðið - 27.04.1944, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 27.04.1944, Blaðsíða 6
\$ Á myndinni .sjást frú George C. Marshall (til vinstri) og' frú Mark W. Clark, kona yfirmanns alls Bandaríikjahersins og kona yfirhershöfðingja 5. hersins á Ítalíu, á samkomu í New York, sem haldin var til að hvetja til þátttöku í fjórðá stríðsláninu. Þær eru að gæða sér á hnetum, sem öllum voru gefnar eftir að þeir höfðu skrifað sig fyrir hinu nýja stríðs- láni Skélamál Frakblands. Tundurspillir og kafbátur. Frh. af 4 síðji éftir sem áður. Aðalstuðnings- tmaður Falloux-laganna, Thiers, óttaðist líka jafnaðarstefnuna. Hann taldi, iþegar öllu var á botn in hvolft, hyggilegast að kirkjan an hefði eftirlit með skólunum, af því að ihún 'boðaði mönnum hina réttu lífsspeki: „Maðurinn er í heiminn borinn til að þjást.“ Á stjórnarárum Napoleons III. héldust yfirráð kaþólsku kirkjunnar yfir skólunum. Keis arinn lét, eins og Petain mar- skálkur, alla prófessora og kenn ara sverja sér hollustueið. Marg ir neituðu því t. d. Taine og Michelet, eh þeim var þá vikið frá. Yfirmönnum kirkjunnar var fengið vald til að skipa barnakennara og einnig að reka þá frá störfum. Frjálslyndur ráðherra, hinn ixiikli sagnfræð- ingur, Victor Duruy, kom þó til leiðar ýmsum veigamiklum end urbótum. Hann gekkst fyrir því, áð stofnaðir voru barnaskólar fyrir telpur, og að við mennta- skólana voru stofnaðar nýjar deildir, þar sem forntungurnar, latína og gríska, voru ekki kenndar, en í þess stað aukin kennsla í náttúruvísindum. Eftir fall Napoleon III. hafði kirkjan enn um hríð ráð skól- anna í hendi sér. Þá voru stofn- aðir hinir svonefndu „frjálsu" háskólar, sem hefðu verið rétt- ar nefndir kaþólskir háskólar. Þeir eru enn til *í París (Kaþ- ólska stofnunin), Lyons, Lille, Augiers og Toulose. Þeir höfðu ekki prófréttindi á sitt eindæmi eins og háskólar ríkis- ins, en prófnefndir voru settar á laggirnar skipaðar bæði pró- fessorum frá ríkisháskólunum og prófessorum hinna kaþólsku skóla. Þetta var síðasti sigur kirkjunnar þar til í júní 1940. Því leitaðist hún við að koma lýðveldinu á kné í bandalagi við konungssinna, en lýðveldissinn ar báru sigur af hólmi. Arangur þess sigurs var sá, að opinber- um menntastofnunum var veitt hið fyllsta frelsi sem auðið var, án þess að háskólakerfi Napo- leons væri algjörlega sundrað. Þessar endurbætur voru verk mikils manns, Jules Ferry. Hann kom á skólaskipan lýð- veldisins á árunum 1879—82. Meginreglúrnar í þeirri skóla- skipan voru þessar: algjört skoð anafrelsi skyldi ríkja í kennslu og uppeldi, og því skyldu ríkis- skólarnir leystir undan öllum yfirráðum kaþólsku kirkjunnar, klerkastéttin skyldi ekki hafa neinn fulltrúa í háskólaráðum eða prófnefndum, uppfræðsla í trúarbrögðum í barnaskólun- um yrði engu eftirliti háð; hið eina skilyrði, sem barnakenn- ara skyldi sett, væri, að hann hefði lokið kennaraprófi, en ekki að hann skyldi skipaður í starfið af biskupi. Jules Ferry setti á stofn barnaskóla í hverjú þorpi. Skólaskylda var leidd í lög og engra skólagjalda kraf- izt. Ekki var skólunum gert að skyldu að annast, trúarbragða- fræðslu. Hann setti einnig á stofn framhaldsskóla, sem urðu vísirinn að iðnskólunum, þar sem unglingum úr alþýðustétt gafst færi á að stunda nám. í hverju umdæmi kom hann á fót kennaraskóla, og loks stofnaði hann menntaskóla fyrir stúlM ur. Öll þessi fyrirmæli sættu harðri gagnrýni af hálfu klerka stéttarinnar, sem „háði stríð um barnssálina“ gegn skólum „gUðleysingjanna“. En skólar þesslr urðu sigursælir, og lands lýðurinn tók þeim sæmilega, úr því að öllum var eftir sem áður iheimilt að senda börn sín í kaþólska skóla. En stjórnmálabaráttan átti enn eftir að láta til sín taka í skólamálunum. Ferry hafði lok að skólum Jesúítanna, og 1904, eftir Dreyfus-málaferlin, lokaði Combes öðrum kennslustofnun- um munka og nunna. Margt þessa fólks lagði leið sína til nágrannalandanna, en sumt bjó sig á leikmanna vísu og hélt starfi sínu áfram. Á síðustu árum þriðja lýðveld isins voru gerðar stórfelldar ráð stafanir til þess að endurbæta skólaskipanina: í fyrsta lagi var dregið úr hinni ríku miðstjórn, sem hald- izt hafði frá Napoleonstímun- um. í lok ntjáhdu aldar hafði r íkisháskólanum, sem voru 17 að tölu í Frakklandi og Algier, veriö veitt mjög aukið sjálf- ræði. Þeir höfðu sérstakan fjár hag, hver deild kaus sér forseta (decanus), háskólaráð var skip- að prófessorum, námsefni var ekki framan alls staðar hið sama en var lagað eftir þörfum lands hlutanna. I öðru lagi var reynt að sam- ræma námsefnið kröfum tím- ans, kennsla í náttúruvísindum og hagnýtum greinum aukin, iðnskólar settir á stofn og lík- amsrækt efld. í þriðja lagi. Stjórnmálamenn lýðveldisins stefndu ætíð að því að gera hugsjónir lýðræðisins (Trh. «f 5. sí5u.) Finder Carl Banks, sem jafnað- arlega var hæglátur og háttprúð ur, hvatti félaga sína sem kröft uglegast til þess að ganga millf bols og höfuðs á Þjóðverjunum. Richard W. Wenz fann hvergi lykilinn að klefanum, þar sem skotvopnin og skotfærin voru geymd. — Hann tók þá það ráð að brjóta upp hurðina til þess. að geta náð í byssur handa félögum sínum. Allir gengu sem vasklegast fram í orrustunni. Þegar einhver Þjóðverjanna birtist sýn á þil- fari kafbátsins, var hann þegar í stað hæfður skoti. David F. Southwick, sem stóð úti við borðstokk tundurspillis- ins, sá Þjóðverja hlaupa út úr turninum áleiðis að einni byssunni. Hann þreif hníf sinn úr slíðrum og skutlaði honum í áttina til Þjóðverjans. Hnífur- inn hæfði manninn í kviðinn, og Þjóðverjinn féll fyrir borð. Walter C. Kurz þreif sprengju- hylki í hönd sér og beið þess, að einhver kafbátsmannanna kæmi út úr turninum. Þegar af því varð, kastaði hann sprengju hylkinu að honum með þeim árangri, að maðurinn féll í haf- ið. Edward N. Malaney hélt uppi linnulausri skothríð úr skammbyssu sinni. Það hafði verið næsta örðugt að koma vélbyssunum við, en eigi að síður héldu skyttur þeirra að minnsta kosti sumar hverjar uppi harðfengilegri skot hríð. Christopher Columbus Shepard, sem var blökkumaður, fannst ekki skotfæri borin til sín eins greiðlega og hann vildi. Hann hljóp því sjálfur eftir þeim og fór margar ferðir, sem hann taldi engan vegirm eftir sér. Viðureign þessi stóð yfir í tíu mínútur. Þá urðu skipin laus hvort við annað. Að minnsta kosti þrjátíu og fimm menn höfðu fallið af á- höfn kafbátsins. Enginn hafði fallið af áhöfn tundurspillisins, en nú bárust þau boð, að leki vræri kominn í vélarúminu. r— Það var þó fárviðrið en ekki Þjóðverjarnir, sem því hafði valdið. Kafbáturinn varðist á- föllum hafgangsins mun betur en tundurspillirinn sem við ,var að búast, því að hann var byggð ur með hliðsjón af því að verj- ast miklum þrýstingi, er hann væri í kafi, Sjórinn í vélarúminu hækkaði óðum, unz hann náði mönnum þeim, er þar voru, að beltis- stað. Þegar skipið tók dýfur, hreif sjórinn allt það með sér, sem laust var í vélarúminu. — Brátt var illmögulegt að hafast við þar niðri. Morrison R. Brown yfirvélstjóri bauð þá undirmönnum sínum að hverfa upp á þiljur. Sjálfur varð hann eftir til þess að gera sitt bezta. Kafbáturinn freistaði þess að snúa sér iþannig, að hann gæti skotið tundurskeytum að tund- spillinum. En Borie gerði þá hið sama og kom í veg fyrir allt slíkt með því að fylgja kafbátn- um fast eftir. Þegar þessu hafði farið fram um hríð, ákvað Hut- chins að freista þess að knýja að- veruleika í skólamálunum. Einn þeirra, M. Herriot, reyndi að koma á fót sameiginlegum skóla fyrir börn úr alþýðustétt og miðstéttunum. Hann barðist einnig fyrir því, að skólagjöld menntaskólanna yrðu afnumin. í fjórða lagi var gert risa- átak til að koma á almennri fræðslu í nýlendunum. Vitaskuld var þetta hvergi nærri fullkomið. Of stór hópur barna komst hjá skyldunámi, reyndust t. d. allmargir ungir menn óskrifandi og jafnvel ó- læsir, er þeir voru kvaddir til herþjónustu. Háskólastúdentar voru nærri eingöngu úr éfná- stéttunum. ; Námsefni mennta- skólanna var sums staðar með úreltu sniði, uppeldi skapgerð- fram úrslit. Hann lét slökkva qII ljós og gerði ráð fyrir, að kafbáturinn myndi þá freista þess að laumast brott. — Sú varð og raunin. Hutchins bauð þá, að ljósin skyldu kveikt að nýju. Kafbáturinn reyndist hafa tekið stefnu í norðaustur og hraða sér brott sem mest hann mátti. Hutchins gaf þá fyrirskip ún, er varð til þess, að sigur fékkst í viðureigninni. Hann bauð, að djúpsprengjum skyldi varpað að kafbátnum. Tundurspillirinn brunaði að jkafbátnum, og djúpsprengjun- um ringdi niður. Kafbáturinn nam staðar og lét ekki að stjórn. Þeir, sem voru á þilfari tundur- ispillisins, kváðu minnstu hafa paunað, að árekstur yrði á nýj- án leik. En einhvem veginn tókst þó kafbátnum að halda för sinni þfram. Hann minnti á spanskt naut, sem lætur sér ekki til hug ar koma að gefast upp, þótt það sé ofurliði borið. Áhöfn hans freistaði þess meira að segja ennþá að halda uppi skothríð gegn Borie. En skyndilega varð turn kafbátsins fyrir skoti með þeim afleiðingum, að hann hrökkrfyrir borð með stjórnvöl og öðru tilheyrandi. Sjórinn streymdi inn í kafbátinn, og 'hann lyftist upp að framan. Hann sökk í djúpið og tættist sundur af völdum sprenginga í sama mund. Orrustan hafði staðið yfir í eina klukkustund log fjórar mínútur. I En nú var Borie í mikilli hættu. Aðeins ein vél skipsins ivar í gangi. Það rak fyrir stormi fog straumi. Hutchins freistaði ; þess að ná til annarra tundur- spilla, er voru skammt undan, en allar slíkar tilraunir voru fyr jir gýg unnar. Hann gaf þá skip- . 'un um, að akkerum, keðjum, skotfærum, tundurskeytum, djúpsprengjum, vélbyssum og öðrum slíkum hlutum skyldi varpað fýrir borð til þess áð létta skipið. Loks rann dagur. Það myndi taka flugvélar flugvélamóður- skips tundurspillanna alllangan tíma að finna Borie. Talstöð skipsins var óstarfhæf. Þá var það ráð tekið að gefa neyðar- merki. Ein flugvélin, sem send hafði verið á vettvang, sá það og fann skipið. Annar tundurspillir kom svo á vettvang um hádegisbilið. Hutchins gerði sér jafnvel von pm, að unnt myndi að bjarga Borie. En hann sannfærðist þó brátt um það, að slíks myndi enginn kostur. Tunduspillirinn, sem komið hafði á vettvang, átti þess engan kost að leggjast að hinu sökkvandi skipi. Áhöfn þess varð því að kasta sér í sjó- inn og halda sér uppi á hvers konar rekaldi, unz henni hefði verið 'bjargað. Sjórinn var ískaldur, og tutt- ugu og sjö menn af áhöfninni létust áður en björgun yrði við komið. Hutchins yfirgaf skip sitt síðast ur allra. Hann gekk um vistar- verur þess með ljósker í hendi og sannfærðist um það, að eng- inn hefði orðið eftir. Því næst Fimjmtudagur 27. apríl 1944. Kvenveski nýjar gerðir. H. TOFT. Skólavörðust. 5. Sími 1035. gekk hann aftur upp á þiljur og hafði oiTustufána skips síns meðferðis. Hann klifraði upp á öldustokkinn og kastaði sér í hafið. Skömmu síðar hafði honum verið bjargað um borð í tund- urspillinn, sem fyrr um getur. Hann stóð á stjórnpalli hans og sá skip sitt lyftast upp að fram- an og því næst síga hægt og virðulega í djúp hafsins. Sigrar Rnssa. Frh. á 6. síðu. EN ÞÁ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ, sem líka hefir haft ómetan- lega þýðingu í orrustunumí á austurvígstöðvunum, en það er aðstoð Bandarikjamanna við Rússa, samkvæmt láns- og leigulögunum. Má til dæmis geta þess, samkvæmt opinberum skýrslum, að á 27 mánuðum fengu Rússar 7800 flugvélar frá Banda- ríkjunum, 4700 skriðdreka, 170 000 vörubifreiðar, 35 000 smábíla (Jeeps) og 25 000 farartæki annarra tegunda. Þá fengu Rússar 177 000 smá lestir af skotfærum, 2 250,000 smálestir matvæla, 6 milljón- ir para af stígvélum, ógrynni kornvara allskonar, 1 350 000 smálestir af aluminíum, feiki smálestir af aluminíum, feiki legar birgðir af benzíni, á- höldúm til olíuhreinsunar og alls konar vélar og verkfær- um. Námu sendingar þessar í dollurum yfir 4200 milljón- um. AÐ ÞVÍ ER BEST VERÐUR VITAÐ, hafa hergögn Bandaríkjanna reynst mjög vel á austurvígstöðvunum og eiga vafalaust mikinn þátt í sigursælum h ernaðaraðgerð- um Rússa. Það var miklum erfiðleikum bundið fyrir bandamenn að koma vörum þessum á vettvang. En samt tókst það. Þrátt fyrir sífelld- ar árásir kafbáta og flugvéla voru flutt ógrynni hergagna og annaxra nauðsynja til Murmansk, og nutu flutn- ingaskipin þar vemdar brezkra, amerískra og ann- arra herskipa bandamanna. Mikið var flutt til hafna við Persaflóa og þaðan með járn brautum og bifreiðum til Kákasus og Suður-Rússlands. arinnar var vanrækt og nem- endum íþyngt með gagnslaus- um fræðatíningi. Síðan Petain-stjórnin settist að völdum, hefir kaþólska kirkj an náð sér niðri á andstæðing- um sínum. Skólar hennar hafa aldrei fyrr notið styrks frá rík- j inu, og ef trúarbragðafræðsla er I ekki veitt í barnaskólunum , verða kennararnir að tilkynna [ það prestunum og taka til stað bg stund, er sú kennsla geti far ið fram. Frelsi verða skólar vorir að öðlast að nýju. Vandamál kaþólsku skólanna verður að leysa í eitt skipti fyrir öll — vitaskuld á grundvelli frelsis, en ekki óskorðaðs sjálfræðis þeim til handa. ENN HALDA birgðaskipin á- fram að flytja flugvélar og skriðdreka til Rússlands og á þessu ári er ekki ósennilegt, að skriðdrekar, smíðaðir í Bandaríkjunum, mannaðir rússneskum hermönnum, muni birtast við borgarhlið þýzkra borga, samtímis því að hersveitir Eisenhowers sækja inn í Þýzkaland úr vestri. tásít&kíktkt Úfbreððið WMIaffið. ktkíkáváefkíkiMúfekiteh:

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.