Alþýðublaðið - 04.05.1944, Page 6
6
á Hótel Borg. UppL á skrifstofunnL
Bankastræti 14
Nýkomið mikið úrval af
Geriiblómum
í óskilum
eru hjá rannsóknarlögreglunni reiðhjól og ýmsir aðr-
ir munir.
Það sem ekki gengur út, verður selt á opinberu upp-
boði bráðlega.
Uppl. daglega kl. 3—7 e. h.
ASahafnaðarfundur
Laugarneskirkju verður haldinn sunnudaginn 7. maí n. k.
og hefst kl. 3., eftir messu í Laugarneskirkju — salnum niðri.
Dagskrá: 1. Reikningar sóknarinnar. — 2. Tillaga sóknar-
nefndar um að kirkjugjaldið verði óbreytt fyrir þetta ár. —
3. Kosnir tveir menn í sóknarnefnd. — Önnur mál.
Eftir fundinn verður kirkjan til sýnis.
SÓKNARNEFNDIN
Flokkaglíma Armanns
Guðmundur Ágústsson, Guðmtindur Guð-
mundsson Sigurður Hallbjörnsson báru
sigur af hóími.
' »■■■
Flokkaglíma ár-
M A N N S var háð á
sunnudagkvöld í íþróttahúsi
Jóns Þorsteinssonar. Skráðir
keppendur voru fjórtán úr
fimm félögum, en einn mætti
ekki til leiks. — Úrslit urðu
þau, að Guðmundur Ágústsson
úr Ármanni sigraði í þyngsta
flokki. Guðmimdur Guðmunds-
son úr ungmennafélaginu
Trausta í miðflokki, en Sigurð-
ur Hallbjörnsson úr Ármanni í
léttasta flokki. Húsfyllir var,
og voru glímumennirnir ákaft
faylltir af áhorfendum.
í þyngsta flokki voru fjórir
keppendur. Guðmundur Ág-
ústsson, glímukóngur bar þar
glæsilegan sigur af hólmi. Virð-
ist hann vera í ágætri æfingu.
Lagði hann alla keppendur sína
að velli með miklum yfirburð-
um. Annar varð Haraldur
Guðmundsson úr KR. Hann er
sterkur maður og hinn þéttasti
á velli, en hins vegar ekki fjöl-
hæfur glímumaður. Lagði hann
alla að velli nema Guðmund
Ágústsson. Þriðji varð Einar
Ingimundarson úr UMF. Vöku.
Einar er kornungur maður, en
stór og sterkur og virðist eiga
góða framtíð sem glímumaður.
Fjórði keppandinn í þessum
AUBtPIIPIAPW
Fimmtudagör 4. maí 1944
flokki var Kristinn Sigurjóns-
son úr KR. Hann er góður
glimumaður, en átti ekki sig-
urgengi að fagna að þessu sinni,
erida var vöskum keppinautui..
að mæta.
í öðrum flokki voru 6 kepp-
endur. Guðm. Guðm. úr UMF.
Trausta undir Eyjafjöllum varð
þar hlutakrpastur og lagði
hann alla keppinauta sína að
velli, þótt góðum glímumönn-
um væri að mæta. Hann er ung-
ur sem glímumaður, en gat sér
mikinn orðstír á Ármannsglím-
unni í vetur. Annar í þessum
sama flokki varð Davíð Hálf-
dánarson úr KR. Framganga
Davíðs sem glímumanns er hin
drengilegasta. Þriðji varð
Rögnvaldur Gunnlaugsson úr
KR. Hann hefur tekið miklum
framförum sem glímumaður á
skömmum tíma. Sýndu kepp-
endurnir í þessum flokki jafn-
beztar glímur á keppni þessari.
í þriðja flokki voru keppend-
ur aðeins þrír, þar eð Þorkell
Þorkelsson úr KR.. mætti ekki
til leiks. Þar varð hlutskarpast-
ur Sigurður Hallbjörnsson úr
Ármanni, annar varð Ingólfur
Jónsson, einnig úr Ármanni.
Sigurður er sterkur og sókn-
djarfur glímumaður, en hins
vegar er framganga hans fjarri
því að vera með glæsibrag og
var viðureign hans \rið Ingólf
Jónsson vart sæmandi slíkum
glímumanni sem Sigurði. Ing-
ólfur er liðlegur glímumaður,
en skorti afl og kapp á við
Sigurð Hallbjömsson.
Flokkaglíman fór í heild far-
vel fram, og virðast öll rök að
því hníga, að glíman sé í auk-
inni framför, en því ber vissu-
lega að fagna. Mun mega vænta
þess, að Islandsglíman í sum-
ar verði með glæsibrag og von-
andi mæta hinir ágætu kepp-
endur flokkaglímunnar heilir
og sókndjarfir til þess leiks.
H. S.
Nei, Eggerf og Dags-
brún eru sitt hvað
Frh. af 4. síBu.
galað óábyrgur, nú hefir hann
ábyrgðina og verður hann að
gera sér það að góðu, meðan
enn ríkir mál- og ritfrelsi, að
sannleikurinn í hverju máli
komi í ljós — jafnvel þó hans
eigin vanrækslu eða sviksemi
sé um að ræða.
í næstu grein skýrir hann
væntanlega frá hversu mikið
verkalýðssamtökin :— Dags-
brún, Iðja, Skjaldborg, Félag
járniðnaðarmanna og önnur fé-
lög eiga í Skólavörðustíg 19 og
hvenær þau eignuðust það eða
ef þau ekkert eiga, hvers
vegna þau ekki fengu að vera
með í því félagi. Hvers vegna
hann borgaði fyrir Dagsbrún
þær 5000,00 krónur í H.f. Al-
þýðuhús Reykjavíkur, sem
Héðinn neitaði að greiða. Var
það kannske af einskærri ást
til mín og annarra, er eiga sem
svarar kýrverði í þessu ágæta
félagi? Varla hefir það verið
til þess að eignast stærri hlut
í eignum, er að 'hans dómi
voru ranglega seldar? Áður en
að vörn minni kemur verður
kempan Eggert að þora í mál
á meðan getur hann haldið iðju
sinni áfram, að naga, naga,
nætur og daga.
Málshöfðanir og fyrirhuguð
tugthúsvist mér til handa að
hans undirlagi bíður síns tíma,
verst af öllu ef handarbök
skoðanabræðra hans verða öll
uppnöguð áður en sá dagur
*pp rennur.
Ég hefi átt í mörgu mála-
þrasi við andstæðinga verka-
lýðssamtakanna. Það hefir
veitt mér aukinn þrótt og styrk
og svo mun enn.
Já, það kemur alltaf maður
manns í stað. Satt er það hjá
Eggert, „Dagsbrún kemst af
án Jóns Axels" hér eftir eins
og hingað til — en jafnvíst er
það, að hún kemst af án Egg-
Jafnaðarmannasijórn
in á Nýja Sjálandi
Frh. af 5. sföu.
í samninguim um kaupkröfur og
vinnuskilyrði og bætti þegar úr
öngjþveiti því, er mál þessi voru
í komin. Eftir að 40 stunda
vinniuvikunni hafði verið á kom
ið, óx atvinna í landinu þegar,
og þess varð skammt að bíða,
að atvinnuleysi var úr sögunni.
Jaifriðanmannastjórnin lét þess
skammt að bíða að bætt yrði úr
skerðingu iþeirri, sem gerð hafði
verið á eftirlaunum hermanna,
ellistyrkjum, ekknastyrkjum
og fj ö'lskyldustyrkj um. Meðan
unnið var að setningu löggjafar-
innar um almennar tryggingar,
sem á komuist árið 1938, voru
hinir fyrrgreindu styrkir meira
að segja hækkaðir enn að
nokkrum mun. Auk þessa voru
sett lög um örorkustyrki, sem
hljóta að teljast hin brýnasta
nauðsyn í sérfaverju þjóðfélagi.
Þessi hækkun téðra styrkja
■faafði svp þau áfarif, að eftir-
spurn neytenda eftir nauð-
synjum sínurix óx, einkum eftir
spurnin eftir matvöru, fötum
og faúsnæði. Það má öllum vera
ljóst, að þessi viðfaorf hafi ver-
ið til aukinna heilla fyrir alla
aðila, þegar að því er gætt, að
hér er um að ræða vörur, seip
framleiddar voru í landinu
sjálfu, og hin aukna eftirspurn
hafði sem gefur að 'skilja þau
áhrif, að framleiðslan óx að
miklum mun, sem varð svo aft-
ur til þess, að atvinna manna
varð meiri en áður var.
Mjög fáir höfðu ráðizt í það
að festa kaup á húsum, meðan
kreppan og atvinpuleysið var
mest. En eftir að velmegun og
farnaður almennings óx á ný,
urðu þúsundir manna það efna-
lega sjálfstæðir, að þeir gátu
eignazt bús, og flestir fjölskyldu
feður faöfðu það viðunanlegar
tekjur, að þeir gátu greitt leigu
fyrir húsnæði, sem þeim hæfði.
Þess varð brátt vart, að húsa-
skortur á Nýja-Sjálandi gerðist
tilfinnanlegur, og ríkisstjórnin
samdi þá áætlun, þar sem ráð
var fyrir því gert, að 5 þús-
undir húsa yrðu reistar að með-
altali ár favert. Stefna ríKisstjórn
arinnar var sú, að ríkið skyldi
sjálft hafa forustu um fram-
gang þessa máls í stað þess að
fela hana faverjum Mutaðeig-
andi einstaklingi. Það hefir líka
komið glögglega í Ijós, að þessi
ráðstöfun stjórnarinnar var hin
framisýnasta og faeppilegasta.
Ríkisstjórnin réði fjölmarga er-
lenda byggingarmeistara í þjón-
ustu sína, og áfaerzla var 4 það
lögð, að húsin væru sem vönd-
uðust og haganlegust. Einnig
var lögð áherzl aá, að hin nýju
hús væru af sem flestum gerð-
um og sem mests af efni þeirra
væri aflað heima á Nýja-Sjá-
landi, en það varð til þess að
auka enn framleiðsluna og at-
vinnuna innan lands. Árangur
þessarar stefnu stjórnarinnar í
húsbyggingarmálunum hefir orð
ið sá, að þúsundir manna hafa
eignazt nýtízku íbúðir fyrir
sanngjarnt verð, sem þeim er
engan veginn ofvaxið að ann-
ast afborganir af. En þrátt fyrir
það, sem þegar hefir á unnizt í
þessum efnum, fer því fjarri,
að fullnaðarlausn sé enn fengin.
Húsnæðisvandræða hefir meira
að segja gætt að nýju hin síð-
ustu ár á Nýja-Sjálandi vegna
þess, að flestir verkamannabú-
staðir og aðar stórar sambygg
ingar faafa verið teknar til af-
nota fyrir herinn og þá, er vinna
í þjónustu faans.
Niðurlag á morgun.
Hjálp til danskra flóttamanna.
Kr. 52,00 frá G. S.
erts, en hinu er afíur ósvarað:
„Kemst Eggert Þorbjarnarson
nú af án Dagsbúnar eins og
áður?“
Jón Axel Pétursson.
Sumarbúdaðor
til sölu.
Uppl. gefur
BALDVIN JÓNSSON hdl.
Sími 5545. Vesturg. 17.
fer til ísafjarðar í byrjun
næstu viku. Flutningi til ísa-
fjarðar, Súgandafjarðar, Flat
eyrar, Þingeyrar, Bíldudals,
Patreksfjarðar og Stykkis-
hólms veitt móttaka í dag.
Athygli skal vakin á því,
að Esja fer ekki næstu hrað-
ferð vestur og norður.
Félagslíf.
ÁrmennKngarl
Myndakvöld frá Páskunum
verður í Oddfellowhúsinu, uppi
í kvöld kl. 8.30. Myndatöku-
riienn eru beðnir að hafa mynd-
irnar uppsettar á spjöld, eftir
því sem hægt er.
Í.R.-ingar
Skemmtkvöld heldur félagið,
fyrir félaga og gesti, föstudag-
inn 5. maí kl. 9 e. h. í Tjarnar-
kaffi.
Stjórnin.
Í.R.-ingar
Æfing £ frjálsum íþróttum á
íþróttavellinum kl. 8 e. h. í
kvöld. Mætið stundvíslega.
SÁLARANNSÓKNARFÉLAG
ÍSLANDS
heldur fund í kvöld í Guð-
spekifélagshúsinu kl. 8.30 e. h.
Fundarefni:
I. Umræður um húsmálið.
II. Forseti félagsins flytur
erindi.
\ Stjórnin.
St. FREYJA nr. 218
Fundur í dag kl. 8.30. Inn-
setning embættismanna.
Telpnakór syngur og fleiri
skemmtiatriði.
Æðstitemplar. .
3
ÚMið Albýðublaðið.