Alþýðublaðið - 24.08.1944, Blaðsíða 6
«LÍ9TÐUBl^:r
Fimmtudagur 24. águst S944
Frá höfninni í Le Havre
Mynd þessi er af höfninni í Le Havre í Frakklandi og var birt í tilefni þess, er Dwight D. Eisenhower gaf út tilkynningu
um það að hersveitir bandamanna 'hefðu gengið þar á land.
málefnum og vér óskum fslandi
farsældar og velmegunar.
Hin siríSandi Danmörk
Frh. af 5. siöu
Christmas Möllers, en ágengni
og áukin afskipti Þjóðverja af
málum Danmerkur færði brátt
dönsku þjóðinni heim sanninn
um það, að landar hennar í
Lundúnum fluttu satt mál og
rétt, og að 'hún hlaut að grípa
til þeirra vopna, sem hendi voru
næst. Hins vegar hafk hvorki
hinir útlægu Danir né Danir
heima fyrir viljað hverfa að því
ráði að veita danska ráðinu víð
tækara vald og endi skipn
leggja það sem útlæga ríkis-
stjóm Danmerkur. Jafnvel
straumhvörfin, er áttu sér stað
hinn 29. ágúst, þegar Þjóðverj-
ar fangelsuðu konunginn og
bönnuðu ríkisstjórnina og þing
ið, hafa ekki verið talin nægi-
legt tilefni til þess að horfið
yrði að þessu ráði. Hins vegar
munu þau ummæli Per Möllers
hafa* við rök að styðjast, að
talið verði nauðsynlegt að
mynda útlæga danska stjórn, ef
danskir föðurlandssvikarar
skyldu mynda ríkisstjórn eins
og raun' heifur á orðið í Noregi.
En þess hefur lítt orðið vart,
að þýzku valdhafarnir legðu
sig fram um það að styðja
danska - föðurlandssvikara til
valda, og ef til vill orsakast. sú
tregða þeirra eigi hvað sízt af
því, að foringjaefnunurn mun
ekki vera fyrir að fara meðal
dönsku nazistanna. En þó kunna
önnur viðhorf að korna til sögu,
er valdi því, að talið verói nauð
syn til þess bera, að Danmörk
eigi sér fulltrúa erlandis, sem
, hafi heimild til þess að. taka á-
kvarðanir í nafni þióðar sinn-
ar, er máli skipti. Ef til vill
verða tilmæli Ohristmas ivTöll-
ers um það, að .bandamenn veiti
Dönum tækifæri til þess að eiga
hlut í viðreisnarstarfinu eftir
stríð til þess. Nauðsyn brýtur
lög svo sem álkunna er. Enda
þótt Kristján konungur sé
fangi og löglega forfallaður frá
því að segja Þjóðverjum stríð
á hendur, sem er þó efalaust
ótvíræður vilji hans og þjóðar
hans, kann svo að fara áður en
úrslit stríðsins verða ráðin, að
að hin stríðandi Danmörk eign-
ist stríðsstjórn erlendis, sem
skipi 'bekk með ríkisstjórnum
hinna sameinuðu þjóða.
Chicago
Frh. aí 4. síöu
hefi ekki getað bolað Sun burt.
Stúdent einn kallaði Marshall
Field „Ragnar í Smára Chica-
go“ af því að hann er kaupsýslu
rnaður mikill og styður listir
og frjálslyndi.
Meðal hinna mörgu borgara
Chicago, sem eru ek'ki eins
hræddir við glæpamenn og sum
ir virtust stundum vera heima
er þeir töluðu um Chicago, eru
allmargir íslendingar. Fyrstan
iþeirra heimsótti ég konsúl
Árna Helgason, sem er forstjóri
fyrir stórri verksmiðju hér í
borg. Heima hjá honum bar
bona hans fram kaffi og jóla-
köku og afbrágðsgott skyr, sem
hún býr til sjálf. Skyr hafði ég
ekki fengið síðan ég fór að heim
an, svo að það var vel þegið,
en mér varð hugsað heim til
þess, hversu margar húsmæður
í Reykjavík gætu gert eins gott
skyr og þessi kona, sem er fædd
og_ uppaldin í Norður-Dakota.
íslendingar 1 Chicago hafa
með sér félagssamtök góð. Að-
alfélag þeirra er Vísir, en for-
maður hans er Sigurður Árna-
son, trésmiður, sem fæddUr er
og upp alinn í íBorganfirði eystra
en ékki hefir verið á Æslandi í 40
ár. Þá hafa þeir faflfélag og
þykja taflmenn góðir og loks
hafa þeir með sér málfundafé-
lag.
Chicago er horg öfganna. Þar
búa Pólverjar, Rússar, Þjóðverj
ar og blökkumenn auk ótelj-
andi annarra þjóða. Þar er fram
leitt allt frá flugvélahreyflum
j til skyrs. Þar eru aðalfundir
stjórnmálaflokkanna haldnir og
menn kosnir/til að berjast fyrir
forsetastöðunni. Það er engin
furða að Bismarck skyldi segja,
að hann langaði til að fara til
Ameríku til að sjá Chicago. Það
er þess virði.
V iSskiptamáiaráðuney tið
heíir ákveðið að veittur verði
3ja kg. aukaskammtur af sykri tii
sultugerðar handa hverjum manni.
Sykur þennan mega verzlanir at-
henda til 1. ototóber n. k. Lögleg
innkaupsheimild fyrir þessu sykur
magni, er stofnauki nr. 6 af nú-
gildandi matvælaseðlí.
HVAÐ SEGJA HIN BLÖÐIN
Framhald af 4. síöu.
Þjóðviljinn skrifaði m. a. á
þessa leið:
, jsland hefur samning við
Bandaríkin um að þau hverfi á
brott með allan sinn her héðan
þegar stríðinu er lokið.
íslendingar hafa treyst því að
Bandaríkin héldu öll sín loforð
gagnvart Islandi.
Framangreind ummæli Connall-
ys brjóta hins vegar þvert í bág
við gefin loforð og samning
Bandaríkjastjórnar.
íslenzk stjórnarvöld verða tafar
laust að fá það upplýst hvort um-
mæli þessi eru sönn og hvort hér
er raunverulega að ræða um stefnu
Bandarfkjastjórnar, jafnframt því
að þau geri Bandaríkjastjórn það
ljóst í eitt skipti fyrir öll, að ís-
lenzka þjóðin krefst þess að Banda
ríkin haldi gefin loforð um að virða
hlutleysi íslands.
Það er engin éstæða til að leyna
því, að nokkur kvíði hefur gripið
almenning út af því að saman skuli
fara Ameríkuför utanríkismála-
ráðherrans og þessi kaldrifjaða
yfirlýsing formanns utanríkismála
nefndar öldungadeildar Bandaríkja
þings. Menn spyrja: Hvað er að
gerast? Hvað kemur út úr för Vil-
hjálms Þórs?
Við munúm'nú bíða nokkuð á-
tekta og sjá hvað aðrir aðilar segja
um þessi síðustu tíðindi, en um
það erum við sánnfærðir að það
sé vilji þjóðarinnar að gripið sé í
taumana áður en það er orðið of
seint.‘“
Þessi ummæli hins ameríska
stjórnmálamanns koma áreiðan
lega illa við íslendinga, enda
er það rétt 'hermt hjá Mbl., að
íslendingar 'hafa ekki vantreyst
því, að stjórn Bandaríkjanna
myndi í hvívetna halda þau lof
orð, sem íslendingum hafa ver-
ið gefin. Ummæli Tom Conn-
ally gefa hins vegar til kynna,
að í Bandaríkjúnum sé að
minnsta kost; rætt allmikið um
'þessi mál um þessar mundir, og
ýmsar hugmyndir uppi.
Aðalfundur Læknafélags íslands.
verður settur á morgun, föstudag
26. ágúst kl. 4 e. h. í Háskóla ís-
lands.
Arnaðaróskir amer-
ískra áhrifamanna til
lýðveldisins íslands
T TILEFNI af stofnun Iýð-
veldis á íslandi 17. júní s.l.
fluttu ýmsir þingmenn og á-
hrifamenn í Bandaríkjunum
ræður, þar sem þeir fara vin-
samiegum orðum um ísland og
íslendinga og óska þjóðinni
allra heilla í framtíðinni. Með-
al ræðumanna var James V.
Forrestall, flotamálaráðherra.
Honum fórust meðal annars
orð á þessa leið:
Ég fagna því, að íslenzka
þjóðin skuli hafa markað sér
stefnu í framtíðinni í samræmi
við þær hugsjónir, sem Banda-
ríkin og hinar sameinuðu
þjóðir berjast. nú fýrir. Um
margra mánaða skeið hafa am-
erísk herskip, sem hafa bæki-
stöðvar á íslandi, fylgt amer-
ískum herflutningaskipum til
hafna hinna sameinuðu þjóða.
Frá íslenkum höfnum hafa
herskip okkar haldið uppi ár-
angursríkri baráttu gegn
þýzkum kafbátum á Norður-At-
lantshafi.
Ég met mikils hina vinsam-
legu samvinnu íslenzku þjóð-
arinnar og ameríska sjóhers-
ins, sem nú hefur um stundar-
sakir bækistöð á íslandi. Ég
flyt lýðveldinu íslandi og ís-
lenzku þjóðinni einlægar árn-
aðaróskir mínar.
Harold C. Hagen, þingmaður
Minnesotafylkis, mælti á þessa
leið: Um 35 þúsund manns af
íslenzkum ættum búa nú í
Bandaríkjunum og Kanada.
Það er nær 30% af íbúum ís-
lands, sem éru yfir 120 þús-
undir. Verulegur hluti þeirra
býr í mínu fylki, Minnesota.
Þetta er næg ástæða til þess
að sá hluti Bandaríkjanna fylg-
ist af hjarta með íslenzkum
Sol Bloom, þingmaður frá
New York-fylki, minntist á
þjóðaratkvæðagreiðsluna 20.—
23. maí og bar fram ályktun,
þar sem Bandaríkjaþing flytur
alþingi árnaðaróskir í tilefni
af lýðveldissfofnuninni og býð-
ur íslenzka lýðveldið velkomið
sem yngsta lýðveldið í hópi
hinna frjálsu þjóða. Bloom
4
þingmaður minntist einnig á
frelsisást íslendinga, sem hefði
lifað með þjóðinni um margar
aldir. Hann sagði m. a.: ís-
lenzka þjóðin er vel undir
fullt sjálfstæði búin, er hún
nú í dag (17. júní) stígur loka-
sporið. Böndin milli Islands
og Bandaríkjanna, sem eru
forn, munu enn styrkjast, er
það nú tekur sér stöðu meðál
lýðvelda heimsins. Við Banda-
ríkjamenn bjóðum ísland
hjartanlega velkomið sem
systurlýðveldi.
Elbert D. Thomas, öldunga-
deildarþingmaður frá Utah-
fylki, gat þess, að fyrsta ís-
lenzka nýlendan í Bandaríkj-
unum var sett á stofn í Utah
árið 1849 og íslendingar hefðu
sýnt atörku, dugnað og heiðar-
leik í hinu nýja föðurlandi.
Loks minntist Thomas þing-
maður á hinn ómetanlega skerf,
sem íslendingar hefðu lagt til
heimsbókmenntánna.
William Langer, öldunga-
deildarþingmaður frá Norður-
Dakota, flutti íslendingum
kveðjur frá íbúum fylkisins,
en þar er margt manna af ís-
lenzkum ættum, eins og kunn-
ugt er. Hann lofaði íslendinga
fyrir þrautseigju og dugnað og
kvað þá hafa reynzt hinir nýt-
ustu borgarar þar vestra.
Dr. John W. Studebaker,
sem er háttsettur maður í
fræðslumálastjórn Bandaríkj-
anna, gat þess, að nær 300 ís-
lenzkir piltar og stúlkur stund-
uðu nú nám í Bandaríkjunum,
en á hinn bóginn hefðu amer-
ískir hermenn á íslandi haft
tækifæri til þess að sækja
námskeið í Háskóla íslands.
Hann kvaðst þess fullviss, að
með aukinni þekkingu og
auknum samskiptum myndi
vináttuböndin styrkjast.
Vatnspeyinisvilimi
losnkni á
Sjémannaskólann
VITIInN, sem 'var á Vatns-
geymisihæð, hefir nú verið
fluttur í turn Sjómannaskóla-
byggingarinjnar. í tilkynningu
frá vitamálstjóra segir, að ljós
(horn, ljóí magn og einkenni vit-
ans, sé óbreytt frá því, seni var
ið hefir, hinsvegar er staða hans
ofurlítið önnur en láður var og
hæð hans er nú 71 m. yfir sjó.
Nú hefir verið kveikt á Pap-
eyjarvita aftur en á honum hef-
ir verið slökkt sökum bilunar
frá 7. þ. m.
Flutningur mun fonáðlega fara
fram á Garðskagavita og verður
siökkt 'á honum til 30 ágiúst. .
Einingin
8. tölublað 2. árgangs er nýkom
in út fjölbreytt að efni.