Alþýðublaðið - 08.12.1944, Qupperneq 3
t ••’ú "1"2^'1 ''''1 J,‘’
¥%etaá&gút & desemJber 1H4.
3 BaSBBJBBTir.;
—r
ALWiMKJWP
Kommúnisfauppreisnin íGrikklandi:
Götubardagar ennþá í Aþenu og
nú sverfur einnig hungrið að
Brefar og gríski sfjórnarherinn bæftu að-
siöðu síria mjög í gær
Vopnaðyr fBokkur ver&ur ekki þolaður, þar
sem lýSræði er, segir Papandreou
GÖTUBARDAGAR héldu enn áfram 1 Aþenu, ‘þegar
myrkur skall 4 í gærkveldi, segir í fregn frá London
skömmu fyrir miðnætti í nótt. En hersveitir Breta og grísku
stjómarinnar höfðu þá mjög bætt aðstöðu sína bæði í borg-
inni sjálfri og í úthverfum hennar. Spitfireflugvélar tóku
þátt í bardögunum við skæruliðasveitir kommúnista um-
\ hverfis hina fomfrægu Akropolishæð.
Talið er /að um tíu jþúsund vopnaðir jskæruliðar taki þátt í
uppreisniuni í Aþenu, en allmargir hafa þegar verið teknir til
fanga. I»ar á meðal ler þýzkur liðsforingi.
Grískur þjóðbúningur.
Þjéðverjar að undir-
búa brotfför sína
úr
TJ1 REGN frá Oslo hermir, að
Þjóðverjar séu nú hættir
við að stækka hinn mikla Rygge
flugvöll við Moss í Noregi, seg
ir í tilkynningu frá norska
blaðafulltrúanum í Reykjavík í
gær.
Búið var að fullgera nokkr-
ar renni'brautir, en nú lítúr út
fyrir að ekki verði gert meira.
Flesti Þjóðverjarnir eru farnir
burt af staðnum og allur útbún
aður, sem hægt er að flytja,
hefir verið sendur til Þýzka-
iands.
Þá eru Þjóðverjar nú einnig
byrjaðir að fjarlægja allan út-
búnað, sem unnt er, frá flug-
velliinum við Kellelr, skammt
frá Osló. Vélar og verkfæri
eru einnig send þaðan til
Þýzkalands. Og flestir norsku
verkamennirnir, sem verið
hafa í nauðungarvinnu þar,
hafa verið fluttir burt.
Ástandið í Aþenu er hörmu-
legt. Auk þess, að harizt hefir
verið í borginni með skriðdrek-
um, fallhyssum og vélbyssum í
nokkra daga, hefir öll vinna
’legið niðri vegna allsherjarverk
fallsins og matvælahúðir verið
lokaðar. Brauð hefir þó verið
hakað og selt þar til í gær, en
þá var því einnig hætt, þannig
að hungursneyð má heita í horg
inni.
Verkfall er einnig í hafnar-
horg Aþenu, Piræus, þannig að
Bretar geta ekki skipað matvæl
um á land, sem þar híða í flutn
ingaskipum, til þess að úthluta
meðal almennings.
Papandreou forsæt-
isráMxerra ákveðinn
Norskir presiar bafa
ekki iekíð iaun sín
tvö og háifí ár
PRESTAR NORSKU ÞJÓÐ-
KIRKJUNNAR hafa ekki
tekið laun sín síðan í april 1942,
þegar áreksturinn varð milli
þeirra og stjórnarvalda Quisl-
ings, segir í fregn frá norska
blaðafullirúanum í Reykjavík í
gær.
Papandreou forsætisráðherra
grísku stjórnarinnar kallaði
blaðamenn á sinn fund í gær
og lýsti yfir þeim óbifanlega
ásetningi sínum, að bæla nið-
ur uppreisnina og afvopna
skæruliðana. Hann sagði, að
hlutverki skæruliðahersins væri
lokið og því yrði að afvopna
hann. Uppivaðsla þeirra væri
ógnun við frelsið og lýðræðið;
það væri ekki hægt að þola
neina vopnaða pólitíska flokka
þar sem lýðræði ætti að ríkja.
„Ég er jafnaðarmaður og lýð
ræðissinni“, sagði Papandreou,
„og ég skírskota til lýðræðis-
þjóðanna um allan heim, hvort
þær myndu þola það, að vopn
aður 'hér og lögregla væri í
höndunum á pólitískum flokki.“
Papandreou sagði, að gríska
þjóðin stæði í mikilli þakkar-
skuld við Breta. Hjálp þeirra
bæri ekki að skoða sem neina
íhlutun í venjulegum skiln-
ingi; þeir hefðu komið til að
frelsa grísku þjóðina.
TilEaga brezka Al-
þýðuflokksins
Tilkynnt hefir verið, að við
burðirnir í Grikklandi muni
verða gerðir að umtalsefni í
neðri málstofu brez'ka þingsins
í dag, og er talið víst, að Churc
hill muni taka til máls.
Heyrst hefir, að brezki Al-
þýðuflo<kkurinn ætli að leggja
fram tillögu til þingsályktunar
þess efnis, að brezka stjórnin
beiti sér fyrir því, að mynduð
verði í Grikklandi samstjóm
allra þeirra flokka, sem barizt
hafa á móti Þjóðverjum, og
verði hún látin fara með völd
í landinu þar til frjálsar kosn-
ingar geti farið fram.
Bonomí myndar nýja
ifjórn á Íialíu
D ONOMI, hinn ítalski for-
A—' sætisráðherra, sem baSst
lausnar fyrir sig og stjórn sína
fyrir nokkrum vikum, hefir nú
tek,ið að sér að jnynda nýja
stjórn.
Sagt er að •fjótrir af þeim
flokkum, sem sæti áttu í fyrri
stjórn hans, hafi heitið þátt-
töku sinni í hinni nýju stjórn.
Eru það Kristilegi lýðræðis-
flokkurinn, frjálslyndi flokkur
inn, kommúnistar og lýðræðis
sinnaði verkamannaflokkurinn
svokallaði. Óvíst er hvort jafn
aðarmenn taka sæti í stjórn-
inni.
Rússar nélgasl Buda-
pest veslan vi$ Dóná
REGNIR FRÁ MOSKVA í
gærkveldi sögðu, að Rúss
ar værú nú búnir að ná á sitt
vald öllum suðurbakka Balaton
vatns í Ungverjalandi og héldu
sókn sinni áfram þaðan hæði í
norðaustur til Budapest og í
vestur til landamæra Austur-
ríkis. Voru þeir á þessum slóð-
um aðeins 30 km. frá Buda-
pest.
Grikkland
(EVVOIA
IS%
^CorinthAs^v5 'ÁTHENS
{) <s {S3 l
|irws” V
Q
P J «
ia.
fe IGREECE
Kort af Grikklandi: Aþena (Athens) sést neðarlega á kortinu t. h.
Yaxandi þungi í sókn þriðja
hersins inn í Saar
Hann er nú aðeins 6 km. frá Saarbrúchen
\T AXANDI ÞUNGI er nú í sókn þriðja hers Bandaríkja-
* manna inn í Saarhéraðið, segir í fregn frá London i
gærkveldi og er hann kominn norður yfir Saar aðeins 6
km. vestan við Saarbrucken.
Hafa hersveitir Pattons nú náð öruggri fótfestu norðan við
ána á þremur stöðum imilli Saarlouis og Saarbriicken, en auk
þess allvíða fyrir ofan, eða vestan, Saarlouis.
Jafnframt nálgast hersveitir*'
úr þriðja hernum hina mjklu
iðnaðarborg Saarhéraðsins úr
suðri og tóku á þeirri leið í gær
bæinn Forbach, sem er Frakk-
lands megin við landamærin.
Suður í Elsass standa aðal-
bardagarnir enn um bæinn Colm
ar, sem bæði Frakkar og Banda
ríkjamenn sækja að, en barizt
er einnig á götunum í Schlett-
stadt eftir því sem sagt er í
þýzkum fregnum.
í síðustu fregnum frá London
í gærkveldi voru nokkur teikn
talin sjáanleg til þess, að Þjóð
verjar væru í þann veginn að
hörfa frá Colmar og af öllu
svæðinu milli Colmar og Miil-
hausen í áttina til Rínar, þar
sem þeir hafa enn brú yfir hana
á sínu valdi, við Breisach.
Engar meirihátta fregnir bár
ust af bardögunum á Aachen
vígstöðvunum. En brezkar Mos-
quitoflugvélar gerðu ægilega
loftárás á Köln í gær og vörp-
uðu niður á hana sprengjum,
sem vógu 2000 kg. hver
Amerísk risaílugvirki
yfir Mukden
U REGN FRÁ WASHING-
*• TON í gærkveldi hermir,
að amerísk risaflugvirki hafi í
Arciszewski vill góða
samvinnu við Rússa
TJ* INN nýi forsætisráðherra
pólsku stjórnarinnar, Ar-
ciszevpski, Iét í gær í ljós þá
ósk sína, að góð samvinna mætti
takast milli stjórnar hans og
Rússlands.
En samtímis bairst sú fregn
frá Moskva, að þangað sé nú
komin hin svokallaða þjóð-
frelsisnefnd pólskra kommún-
ista í Lublin, sem gerir kröfu
til þess að verða viðurkennd
bráðabirgðastjórn Póllands í
stað pólsku stjórnarinnar í
London, og hafi meðferðis hin-
ar og þessar samþykktir frá
þeim héruðum landsins, sem
Rússar hafa hertekið og hún
hefir aðgang að, þar sem þess
sé beðið, að hún verði bráða-
birgðastjórn.
gær gert mikla loftárás á Muk-
den, höfuðborg Mansjúríu, og
skotið niður eða laskað um 60
japanskar flugvélar í Ioftbar-
dögum, sem þau lentu í.
Aðrar fregnir frá Washington
hermdu, að Bandaríkjamenn
hefðu nú komið liði á land á
vesturströnd eyjarinnar Leyte.