Alþýðublaðið - 08.02.1945, Blaðsíða 6
M
Nýr stfll í píanéleik
Amjeráíkit ítJÓn'sikáldið, Hie'nny 0oweE, sem sést hér á mynd-
itoini '(ifrteimtsitiur), Étafir fundið uipp nýjan sitál í píanfóleik. Er
tónisikáldið á miyn.dir.,ni að sýna Joisleph Szigeti, hinium heiims
íræga fiíðiu.leikara þestsa nýjiu aðÆecrð sína.
Um effirlif og vernd
ALÞTÐUBLAÐIÐ
I;v <s V' • r; , ■< . ;■ ■ *_
Trygging ffriðar og öryggis
Frh. af 4. síðu.
inga. Alþingishátiðin 1930 kost
ar 120 kr., engin nafnaskrá,
fitublettir og stórfelldir gallar
prýða bókina, en það er ekki
auglýst. Samt stæra íslending-
ar sig af bókmenntum, oft með
réttu, en óskandi væri að iðn-
aðurinn og umbúðirnar um þær
væru vandaðri, pappír og band
íburðarminna.
En um afköst fólks, þá fara
•þau oft eftir aðbúnaði þess og
það er staðreynd að ofdrykkja
byrjar oft af því að fólk reynir
að hressa sig upp með víni, í
stað þess að hvílast og ömurleg
þrengsli í heimahúsum, lasinn
barnahópur og lasin og þreytt
kona hvílir ekki lúinn mann,
sem kemur heim og þarf hvíld
og þá er stundum gripið til ráða,
sem ekki eru óskaðleg, og gera
illt verra. Nákvæmar skýrslur,
rannsóknir og eftirlit með
þessu mundu vera fróðlegar og
veigameiri en ýmislegt annað,
svo aðeins séu nefnd dæmi.
Ameríka getur , verið okkur
til fyrirmyndar í mörgu. öll við
skipti eru þægilegri vegna tækn
innar o. fl.; en frú Simpson
margksilin glamourgirl líkt og
Guðrún Ósvífursdóttir, var
kona, sem Englendingar vildu
ekki gera að drottningu Eng-
lands; húii var flutt af Bahama
eyja.
En sérhver þjóð verður að
finna sig í sinni eigin sögu.
Matthías sagði um móður sína:
Engin kenndi mér eins og þú,
hið eilífa sanna, göfgi og trú
©g gaf mér svo guðlegar mvnd-
ir.
Eftirlit og vernd eru ekki
skaðlaus þingum í höndum lítt
þroskaðra einstaklinga, þar þarf
diskretion, en ekki agression,
og svo er um fleira. Hér er tal-
að Um frelsi þótt eftirlit hins
opinbera sé raunar oft þrösk-
uldur i vegi eðlilégrar þróun-
ar; um það ætti framkvæmda-
valdið íslenzka að hugsa. Rúss
ar höfðu fyrir stríð vandaræða
kvennaheimili, en með bættum
lifsskilyrðum og þegar atvinna
jókst þurfti þess ekki.
Fróðlegt er að sjá, hvernig
ólíkir menn ólíkra þjóða tala
og rita um kynferðismálin. Til
eru menn, sem aldrei varitar
orð til að lýsa þeim. Nýlega var
um slíkt rætt d énsku lækna-
blaði, og þar voru þau ummæli,
að fólk, sem fara ætti með þau,
þyrfti að vera: „pepole af fairly
high academic status; they must
be pepole af vide vision and
human undirstanding, they
must be people intellech-
ally alive and emotionally bala-
need.“
Bæjarmenningin íslenzka er
ung, og enn með þorpsbrag,
sem setur sinn svip á háskól-
ann, meðan heimalningurinn,
sem lítið hefur séð af umheim
inum ræður þar nokkru, það
getur verið millibilsástand. Þeg
ar háskólinn var stofnaður
völdust þangað greinar af stofni
góðrar bændamenningar, sem
tekið höfðu erlend háskólapróf,
fulltíða menn, sem settu sinn
svip á háskólann. Það var feng
ur, að fá að alast upp í skjóli
slíkra stofna, sem með vand-
aðri framkomu í orði og verki
voru til fyrirmyndar. Þeir eru
ógleymanlegir, og menning
þeirra stingur mjög í stúf við
ýmislegt annað; og hafi maður
í hug ummæli læknablaðsins
enska og lesi t. d. embættisbréf
nokkur í Heilbrigðisskýrslum
1940, þá finnst manni það væg
ast dálítið unglingsleg fram-
koma, og vafasamt með hverj-
um raunar ætti að hafa eftir-
lit.
María Hallgrímsdóttir.
Tveir ungir piifar upp-
vísir aS innbroti og
þjéfnaði
np VEIR UNGIR MENN, inn
an við tvítugt hafa verið
teknir fastir fyrir innbrot og
þjófnað fyrir nokkru í skart-
gripaverzlun Jóns Sigmunds-
sonar, Laugavegi 8. •
Brutu þeir þar rúður og stálu
12 armbandsúrum, 2 armbönd-
um og steinhring. Höfðu þeiv
selt þetta og veðsett, að minnsta
kosti sumt af því, en flestu hef
ir verið hs^gt að hafa upp á.
Báðir voru piltarnir drukknir
,-er þeir frömdu innbrotið og
þjófnaðinn.
Framh. af. 5. síðu
sóknuni. „Sérhver stjórnmála-
stefnia" sögðu blöðin „verður
að nokkru leyti að hafa öflugt
vald að baki sér, ef því er að
skipta. Munu Bandaríkin einn-
ig fara þessa leið í Evrópu.“
Þessi blöð héldu því fram, að
áhrifasvæði væru einungis ör-
yggi öðru landi, og að þau væru
sömu tegundar, en þau væru
nauðsyníeg vegna öryggis ann-
ars lands sökum mismunandi
hnattstöðu Bandaríkjanna og
Bretlands. Blaðið „Economist“
sýndi fram á, hversu óréttmæt
s;ík gagnrýni væri, gagnvart
landi, sem hefði svo að segja
fórnað öllu, meira að segja eitt
saman um stund, vegna frelsis
heimsins.
Raunverulega eru það ekki
deilumál augnabliksins sem
valda kunna slæmri sambúð
meðal tveggja engissaxneskra
þlóða, heldur framkoma og
starfsaðferðir einstakra manna.
En þegar á allt er litið, er það
hreinsandi fyrir hið pólitíska
andrúmsloft, að hver segi mein
ingu sína hreint út. Það er til
góðs eins, að þessar deilur hafa
komið fram nú þegar, en ekki
að fengnum sigri. Því einmitt
þessháttar deilur hafa svo oft
áður eyðilagt fenginn frið að
lokinni styrjöld.
Fyrir skömmu síðan var í
London haldin frumsýning á
kvikmyndinni um Vilson for-
seta. Hún kom á réttum tíma,
því hún skýrði svo vel frá hinni
einbeittu baráttu hans fyrir því,
sem hann hélt vera mannkyn-
i'nu til bjargræðis — hinni öfga
fuliu hugsjónastefnu hans.
Myndin sýnir, hvernig starf
hans fyrir sameiningu þjóð-
anna var hindruð af ýmsum
þjó'ðernissinnuðum stjórnmála-
leiðtogum í Evrópu. En að lok-
um endar myndin á því, að Vil-
son heldur því fram, svo að
segja að dauða kominn, að afl
hugsananna muni hljóta sigur-
inn að lokum.
Óefað gefur myndin frekar
einhliða myn'd af Vilson og veit
ir ekki minnstu skýringu á því,
hvers vegna honum tókst ekki
ætlunaryerk sitt. Ótvírætt var
Vilson merkur stjórnmálamað-
ur, sem horfði fram í tímann.
En hann var ekki nógu lipur,
ekki nóg* mikill herkænsku-
maður í stjórnmálabaráttu
sinni, og hann gerði ekki nógu
mikið til þess að hugsjónir bans
yrðu jafnframt hugsjónir fólks-
ins. Hann kom eklri í veg fyrir
þrætutilefnin. Hann neyddi hin
ar sameinuðu bjóðir til þess að
samþykkja sérfriðar-skilmál-
ana. Þess vegna komu þrætu-
efnin fram eftir á og spilltu
friðinum. Hann hafði ekki
meirihlutafylgi á þingi; og
hafði leiðtoga * lýðræðissinna
ekki í ráðum með sér eða kom
fram sem flokksfylgismaður.
Þess vegna snerust andstæðing
ar hans svo eindregið gegn hon
um; en sjálfur vann Vilson
ekki nógu eindregið að því að
koma sameiningu þjóðanna í
örugga höfn.
Þess vegna var það, að Roose
velt sagði, að Bandaríkin vildu
heldur alþjóðlegt stjórnleysi
heldur en alþjóðasamvinnu, við
þjóðir, sem voru svipaðrar skoð
unar. „Við gáfum upp vonina
vegna þess, að við höfðum ekki
kjark til þes-s að rækja skyldur
okkar í ófullkomnum heimi.
Við rnegum ekki láta þetta end
urtaka sig, annars kemur þriðja
heimsstyrjöldin.“
Roosevelt er lærlingur Vil-
sons; hann var meðlimur stjórn
ar hans; og hann er eftirmaður
hans. Hann hefur sömu hugsjón
ir og hann hefur lært af mistök
um fyrirrennara síns. Hann hef
ir eins og Vilson, sér fyrir sér,
að maður getur ekki þegar í
stað, gert endurbætur á skipan
alþjóðamála. En Roosevelt veit,
að hann verður að hafa þingið
að baki sér.
Þess vegna hefur hann lagt
áherzlu í boðskap sínum til
þingsins, á núverandi örðug-
leika og aðferðir til þess að
leysa þá.
Roosevelt bendir á það,
hversu bandamönnum varð vel
ágengt í fyrra. „En, við megum
ekki,“ segir hann „láta okkur
lienda þá firru, að halda, að
Þýzkaland sé sigrað fyrr en
hinn síðasti nazisti hefur gefizt
upp.“
Roosevelt forseti varar mjög
við hinum gífurlega áróðri Þjóð
verja, sem gæti rekið illilega
fieyg í raðir bandamanna. Á
það hefur hann lagt mikla á-
herzlu í ræðum sínum. Hann
endurtekur, að bandamenn vilji
gjarnan reyna að gera grund-
vallaratriði Alantshasfssátt-
málans að veruleika. Hann er
einnig mjög harðorður í garð
allra þeirra, sem mest vinna að
ýmiskonar flokkadráttmn í hin
um herteknu löndum og segir
méðal annars, að vandamál
varðandi Grikkland og Pólland
séu ekki jafn auðleyst eins og
svo margir hafi viljað vera láta.
Hann leggur líka áherzlu á það,
að hver þjóð fái notið réttar
síns í smáu sem stóru, — og
fyrst og fremst, að þær fái að
ráða stjórnarfari sínu eftir eig
in vilja. En hinsvegax er hon-
um vel ljóst, að það er mjög
erfitt fyrir þær þjóðir, sem ver
ið hafa undir yfirráðum Þjóð-
verja undanfarin ár, að ráða
ráðum sínum á heppilegan hátt,
fyrst um sinn.
Forsetinn er þess meðvitandi
að í þessu millibilsástandi er það
skylda okkar allra, að neyta á-
hrifavalds okkar, til þess að
koma í veg fyrir það, að hinir
og þessir pólitískir spákaup-
menn grípi völdin í sínar hend
ur. Hinsvegar viljum við á eng
an hátt trufla sjálfsákvörðunar
rétt néinnar þjóðar, sem í hlut
á.
„En fyrst og fremst,“ segir
hann „verður starf okkar að
miða að því að viðhalda friðn-
um, — við verðum að koma á
varanlegu samstarfi þjóða í
millum. Það kunna að verða á
vegi okkar viðskiptaörðugleik-
ar, en við verðum að ráða fram
úr þeim, — og fyrst er að
tryggja áframhaldandi öryggi.“
Fyrir þessum málstað hafa
milljónir manna barizt og látið
lífið.
Það ríður á miklu, að við för
um eftir orðum Roosevelts for-
seta. Fundur Roosevelts, Ctiur-
chills og Stalins (sem nú stend-
ur yfir) mun að líkindum leysa
mörg þau vandamál, sem nú
eru efst á baugi. Vonandi er, að
Bandaríkjaþing sé einhuga um
stefnu Roosevelts og verði það
framvegis. En það er ekki hvað
sízt áríðandi, að þjóðir þær,
sem nú leysast undan okinu inn
an skamms, viti, hvað til þeirra
friðar heyrir.
RIKISINS
„Esja"
austur um Land til Siglufjarð
ar og Akureyrar um næstu helgi
Flutningi til hafna frá Húsavík
til Hornafjarðar veitt móttaka
í dag og fram tií hádegis á morg
un. Pantaðir farseðl^ óskast
sóttir á sama tíma.
Fimmtudagrir 8. fébrúar 1945.
Vefrarfízka
Það er ameríska kvikmynda-
stjarnan Marjorie Reynolds,
sem hér er að sýna vetrarbún
inginn sinn.
HTVAÐ SEGJA HIN BLÖÐIN
Frh. á 4. síðu.
unum. í þessum leiðurum er farið
dólgslegum orðum um bandamenn
og það stjómskipulag, sem þjóðirn
ar er nú berjast fyrir frelsinu í ver
öldinni, smáþjóðanna ekki síður
en sjálfra sín, hafa valið sér og
hafa lýst yfir að þær vilji búa
við í framtíðinni.
Það er í mesta máta athyglis-
vert, að íslendingar, eitt minnsta
þjóðfélag heimsins, sem tala meira
en flestir aðrir um frelsi, skuli
ala slíkan snák sem kommúnism-
ann til svo mikils gengis við brjóst
sér. Það ber tæplega vi-tni um, að
þjóðin skilji alveg hvað hún mein
ar, þegar hún talar uin frelsi.
Þannig kemst Vísir að orði,
en víst xnun mörgum finnast,
að honum farist illa siðapré-
dikunin, því að löngum hefir
Sjálfstæðisflokkurinn, sem Vis
ir hefir veitt að málum að
minnsta kosti til þessa, alið snák
inn við brjóst sér og alið upp
kommúnistum til handa menn á
borð við Hermann í Hafnar-
firði.
Haðwfan sem hvarf
En sást sððast hér í
bænmn Eangardag-
inn 3 þ. m.
O.ALDUR GUÐMUNDSSON,
■*-* maðurinn, sem rannsóknar
lögreglan auglýsti eftir og hvarf
1. þessa mánaðar er ennþá ó-
komínn fram.
Þegar lögreglan auglýsti
fyrst eftir Baldri, hafði ekkert
til hans frétzt frá þvi aðfaranótt
2. fébrúar, en þá hafði bann
sést niður við Lækjartorg. Síð
an hafa rannsóknarlögreglunni
borist upplýsingar frá tveim
mönnum að þeir hafi séð Bald
ur hér í bænum eftir hádegi á
laugardag 3. febrúar, og höfðu
menn þessir séð hann sinn á
á hvorum tima og sitt á hvor-
um stað, en síðan hefir enginn
gétað gefið neinar upplýsingar
um manninn og enginn gefið
sig fram sem orðið hefir hans
var eftir þann tíma.