Alþýðublaðið - 01.06.1945, Síða 3
Föstradagur 1. júní 1945.
ALÞYÐUBLADIÐ
Ffi@rd Haw Haw"
laumana í
stieilunm
P LESTIR ÞEIR, sem hér
hlusta á erlendar útvarps-
stöðvar að staðaldri, munu
eirihvern tíma háfa heyrt í
Berlínarútvarpinu brezka
útvarpsfyrirlesarann William
Joyce, sem gekk jafnan und-
ir nafninu Lord Haw Haw.
Maður þessi mun áður hafa
verið blaðamaður í Bretlandi
og fylgismaður Sir Oswald
Mosleys • eða svartstakka
hans. Hann fluttist til
Þýzkalands fyrir stríð og
mun hafa sótt um að verða
þýzkur ríkisborgari, en ekki
er vitað, hvort hann var orð-
inn það, er hann var hand-
tekinn á dögunum, eins og
getið var í fréttum.
ÞJÖÐVERJAR TEFLDU Haw
Haw mikið fram í útvarpi
sinu, töldu áróður hans væn-
legan til árangurs í Bret-
landi og Bandaríkjunum.
Bretar hlustuðu mikið á
Haw Haw. Ekki svo að
skilja, að áróður hans ’hafi
haft nein áhrif á hugarfar al-
mennings í Bretlandiy heldur
! vegna hins, að Bretum mun
hafa þótt hann skemmtileg-
ur og hlustað með athygli,
blandinni kátínu, á firrur
þær, sem hann reyndi að
bera á borð. Enda var Haw
Haw meistari í því að snúa
við staðreyndum, segja svart
hvítt og hvítt svart.
HAW HAW var óvenju drýld-
inn og letilegur fyrirlesari.
Hann var næsta leikinn í því
að tala í hæðnislegum um-
! vöndunartón, rétt eins og
hann væri að benda löndum
sínum heima á Bretlandi á
það, að, þeirn væri fyrir
beztu að hætta þessari til-
gangslausu styrjöld, sem
væri töpuð hvort sem væri.
Hann ávarpaði Breta eins og
böm á skólabekk, benti
þeim á, að Bandaríkjamenn
vœru nú í þann veginn að
verða alls ráðandi í heimin-
um, bæði fjármálalega og
stjórnmálalega, annan dag-
inn, en hinn daginn ávarp-
aði hann Bandaríkjamenn
og benti þeim á hættuna,
sem Bandaríkjamönnum
stafaði af hinu brezka „Gyð-
ingaauðvaldi“. Þannig reyndi
Haw Haw dag eftir dag að
1 koma af stað misklíð milli
vesturveldanna og stundum
tók hann sér einnig fyrir
hendur að vara Breta og
Bandaríkjamenn við bolsé-
víkahættunni, en Þýzkaland
væri eini varnargarðurinn
gegn hættunni frá Moskva.
ALTjAR þessar TILRAUNIR
Haw Haw mistókust með
öllu eins og kunnugt er.
Bahdamenn sáu alltaf í gegn
um lævíslegan áróður hans,
sem oft á tíðum var engan
veginn heimskulegur. Haw
Haw hafði á sér talsverðan
menntamannsbrag, hann tal-
aði eins og sá, sem veit
flesta hluti, og í eihhverjum
: góðlétlegum kímnitón reyndi
. hann að sá eitri sínu meðal
Churchill
Norska sfjórnin kom fif Qsio í gær
og var fagnaS af gífurfegum
Brezkl bafskip flufti stjórnina og aðra emb-
æfíismenn, samfals um 800 mawis
TyT OESKA stjómin kom til Oslo um hódegi í gær og var
fagnað af gífurlegum mannfjölda, sem safnazt hafði
saman' við hafn arbafckann. Aður vona nokkrir ráðherrar
komnir, eins og kunnugt er af fréttum áður.
Norska stjórnm og fylgdar-
lið, svo og ýmsir aðrir emb-
ættismenn og starfsmenn ráðu-
neytanna í London og fjöl-
skyldur þeirra, komu til Oslo
frá Liverpool með hafskipinu
„Andes“, sem er 25 þús. smá-
lestir að stærð. Álls munu
þetta hafa verið milli 700 og
800 manns.
Er skipið lagðist við bryggju
í Oslo ávarpaði Sverre Iversen,
einn af borgarstjórum Oslo,
ríkisstjórnina og bauð hana
velkomna. Síðan flutti Paal
Berg, hæstaréttai'dómari og
einn af forustumönnum leyni-
hreyfingarinnar í Noregi á her-
námstímanum, ávarp.
Johan Nygaardsvold þakkaði
fyrir hönd norsku stjórnarinn-
ar og lauk máli sínu með því
að hafa yfir kvæði Björnsons:
Norge, Norge,
blidt eller haardt,
du er vaart,
du er fremtidens land.
Að þvá búnu söng mann-
fjöldinn, sem var saman kom-
inn til þess að fagna stjórn-
inni, norska þjóðsönginn.
(Frá norska blaðafulltrúanum.)
Tveggja daga kesn-
ingar í Breliandi f júlí
HURCHILL liefur lýst yfir
því, að sennilega verði
kosið á tveim dögum á Bret-
landi, 5. júíí og 12. júlí næst-
komandi. Þetta cr þó bundið
samþykki þingflokkanna.
Tilkynnt er í London, að
brezki Alþýðuflokkurinn hafi
hafnað tilmælum hins óháða
yerkalýðsflokks (Independent
Labour Party) um samvinnu í
kosningum þeim, sem í hönd
fara í júlí.
np EDBER flugmarskálkm',
hægri, hönd Eisenhowers,
sagði frá því gær í viðtali
i.vð blaðamenn í Oslo, að Há-
kon konungur myndi koma til
Noregs 7. júní n: k: Sagði flug
marskálkurinn meðal annars,
að vegna þess, hve allt væri
rólegt í Noregi eftir uppgjöfina
og vegna starfsemi heimahers-
sveitanna, hefði yfirherstjórn
bandamanna getað ábyrgzt
heimkomu konungsins sve
snemma-
almennings í heimalandi
sínu. En Bretar höfðu ekki,
þrátt fyrir styrjöldina og
ógnir þær, sem fylgja loft-
árásum, gleymt meðfæddri
kímnigáfu sinni. Þeir gerðu
gys að Haw Haw, en það
getur verið skæðara vopn
en stóryrði og vonzka, eins
og kunnugt er. Menn sögðu
hverir við aðra á götum úti:
Hefui-ðu hevrt nýjasta
„brandarann“ hans Haw
Haw? Og svo var skopazt að
honum.
NÚ HEFUR Willam Joyce,
alias Haw Haw, verið hand-
tekinn og' verður sennilega
sakaður um landráð. Hsétt
er við, að drýldnin geri síð-
ur vart við sig þessa dagana.
Breiki herinn við ausfanvert Nið-
jarðarhaf láfinn skakka leikinn
—.............-.. ■' ♦' --
Churchii! skorar á de Gaulle að íentia franska
hermenn líl herbúða sinna
"O NN hafa horfurnar versnað í Sýrlandi. Hafa brezk
*--1 stjórnarvöld tilkynnt, að þau hafi falið yfirmanni brezka
hersins við austanvert Meðjarðarhaf að skakka leikinn til
þess að koma í veg fyrr frekari blóðsúthellingar. Eden utan-
ríkismálaráðherra Breta sagði frá þessu á fundi í neðri mál
stofunni í gær.
Jafnfram skýrði Edén frá þvi, að Churehiíl forsætis-
ráðherra hefði sent de Gaulle, forsætisráðherra Frakka
skeyti, þar sem 'hann er beðinn að 'gefa 'skipun um, að fransk
ar hersveitir í Sýrlandi hverfi til herbúða sinna, til þess að
ekki skerist í odda með brezkum og frönskum hermönnum.
Eden saigði einnig frá því, að brezka stjórnin væri í nánu
sambandi við ríkisstjórnir þeirra landa, sem hagsmuna hefðu
að gæta í þessum málum og í Washington er tilkynnt, að
Truman forseti hafi sagt, að Bandaríkjastjórn sé fyllilega
sammála aðgerðum Breta í þessum málum. Þingmenn Al-
þýðuflobksins brezka haf a iýst yfir því, að þeir séu fylgjandi
Öllum aðgerðum, sem miði að því að stöðva blóðsúthelling-
arnar í Sýrlandi.
Ástndið í Sýriandi fer enn
versnandi og í gær sikutu Frakk
ar á Damaskus af fallbyssum
og gerðu loftárásir á borgina.
Víða loga miklir eidar þar, en
landsmenin þyrpast saman til
þess að láta skrá s.ig sem sjálf-
boðaliða til baráttu gegn
frönsku hersveitunum-
Bretar og Bandaríkjamenn
hafa látið flytja 'borgara landa
sinna á brott úr landinu í bryn
vörðum bifreiðum. Annars eru
fregnir næsta óljósax, þar sem
símalínur eru rofnar til Sýr-
lands og fregnir þær, sem bor-
izt hafa til London um viðsjár
þar, hafa borizt með ioftskeyt
um.
Það er tilkynmt í London, að
Sýrlendingar haf-i snúið sér til
Breta og beðið um hjálp og að-
stoð til þess að varðveita sjláf
stæði landsins, ei.ns og það er
orðað. Og nú hefir Churchill
snúið sér til de Gaulle, eins og
fyrr getur og falið brezka hern
um í hinum nálægari Austur-
löndum að skakka leikinn.
Varautanríkismálaráðherra
Bendaríkjanna hefír upplýst í
samlbandi, að Truman forseti sé
samiþykkur aðgerðum Breta,
til þess að forðast frekari blóðs
úthellingar og eiras hafa Banda
ríkjamenn hvatt frönsku stjórn
ina til þess að virða fullveldi
Sýrlands- Ekkert svar hafði bor
.izt frá de Gaulle i gærkvöldi,
en hann mun hafa hafa tilmæli
Churchills til athugunar.
Leon Blum, hinn kuraná
franski jafnaðarmaður og einn
ábrifamesti stjórnmálamaður
Frakka fyrir stríð hefir látið
svo um mælt, að viðburðirnir
í Sýrlandi bygglst á hörmuleg
um misslkilningi og vonast hann
til þess, að Bretar geti stuðlað
að því, að koma þessum mál-
um í lag.
í gær var allsherjarverk-
fall (í Beyrouth, einná mestu
borg Sýrlands.
Fjögurra flokha stjórn
áfram í Noregi!
ASþýSnfi©lkkyriRii
hefyr styygH
ypp á því
IÐSTJÓRN Alþýðuflokks-
ins norska hefur snúið
sér til hinna þriggja stóru
stjórnmálaflokka Norfegs (í-
haldsflokksins, vinstrimanna og
Bændaflokksins) og spurzt fyr-
ir mn, hvort halda beri áfram
samvinnu þeirri, sem hófst
milli flokkanna sumarið 1940.
Alþýðuflokkurinn hefur þeg-
ar kosið fulltrúa til viðræðna
um þetta mál, sömuleiðis í-
haldsflokkurinn (hægrimenn).
Svar hefur enn ekki borizt frá
vinstri mönnum og Bænda-
flokknum.
í fyrradag kaus miðstjórn
Alþýðuflokksins norska Einar
Gerhardsen formann flokksins.
Auk hans eiga sæti í miðstjórn
flokksins Eugen Johannesen,
varaformaður, Tryggve Bratte-
lie, Martin Tranmæl ritstjóri,
Oscar Torp ráðherra, Konrad
Nordahl, forseti Alþýðusam-
bandsins norska, Johannes
Hansen, Ingvald Haugen, for-
seti norsku sjómannasamtak-
anna, Fi'ank Hansen, Arnfinn
Vik og Alfred Ljöner. Mið-
stjórnin samþykkti tillögur um
stefnuskrá, sem stefnuskrár-
nefndin hafði lagt fram. Verð-
ur stefnuskráin birt einhvern
næstu daga.
(Frá norska blaðafulltrúanum.)