Alþýðublaðið - 05.06.1945, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 05.06.1945, Blaðsíða 2
ALÞYOUBLAÐIP Þriðjudagur 5. júní Í945 Glæsileg Mannfjöldinn á Arnarhóli á sjómannadaginn. Fyrsti Sfíinnr sem ílogið hefur beint frá Svíþjóð fil Islands - - 4» - ■ Það er Cornelius flugkapleinn, sem kom í , fyrradag fil að ræða hér viðskipfa- og samgöngumál FYRSTI SVÍINN. sem flogið 'hefir beina leið frá Sví- þjóð til íslands er kominn hingað. Þetta er Sven Erik Oornelius flugkapteinn og er hann kominn hingað í erind- um sænskra iðjufyrirtækja og útflytjenda, sem vilja auka viðskipti víð okkur íslendinga. Hann ætlar að dvelja hér í nokkrar vikur og ræða við íslenzka útfiytjendur. Cornelius flugkapteinn kom hingað í fyrradag með fyrstu amerísku farþegaflugvélinni, sem flogið hefur hingað frá Sví- þjóð á leið til Ameríku. Alþýðublaðið átti í gær við- tal við flugkapteininn að Hó- tel Borg, en þar ætlar hann að búa meðan hann dvelur hér. ,,Eg kom híingað 'á sunnu- daginn kl. 3,“ segir flugkap- teinninn, „eftir 7 klukkustunda ílug frá Stokkhólmi. Við flug- um beina leið í góðu veðri, — yfir Svíþjóð og yfir Noreg, við fórum yfir Færeyjar í sól- skini. Eg beið í mikilli eftir- væntingu að sjá fyrstu land- sýn hér —■ ég ann íslandi, — eins og flestir Svíar gera, því að nám okkar í sögu Norður- landa byggist á íslendingasög- únum — og við ferðafélagarn- ir fengum líka að sjá bláar og fagrar Vestmannaeyjar rísa úr sæ, en Vatnajökul, sem ég hafði mest þráð, sá ég ekki, því að þoka læddist yfir land- ið. Annars vona ég, að ég fái að sjá sem mest af þessu sögu ríka landi meðan ég dvel hér.“ — Eru að hefjast fastar flugferðir frá Svíþjóð um ís- lánd til Ameríku? „Þær eru í undirbúriingi. Eg kom hingað með amerískri flugvél. Ameríkumenn, • sem hafa fengið leyfi til flugbæki- síöðva í Svíþjóð eru byrjaðir að fljúga þessa leið með far- þega, en eftirspurnin er ákaf- iega mikil, og ég var sá eini, sem fekk að fljúga híngað að- eins; því að sjálfsögðu er hag- kvæmast að fá farþega alla leið. Hins vegar hafa Svíar nú í undirbúningi fastar flug- ferðir frá Svíþjóð um ísland til Ameríku og mun ti'lrauna- flugið hefjast þá og þegar. — Cornelius flugkapteinn. Með fyrstu ferðinni kemur hingað Carl Flormann kap- teinn, en hann er forstjóri helzta flugfélags okkar. Mun hann athuga hér aðstæður og ganga frá ýmsurn málum, sem lúla að þessu. Nú er dýrt að fljúga þessa leið. Eg borgaði um 2300 ísl. kr. í fargjald og um 23 kr' fyrir kgr. af farangri mínum að auki, en betta mun lækka -mikið þegar tímar líða. Hafa íargjöld rnilli Bretlands og Svíþjóðar til dæmis lækkað geysimikið síðustu tvær vik- urnar. Hins vegar tel ég, að okki muni borga sig að flytja aðrar vörur, en þær, sem eru mjög léttar og dýrmætar loft- leiðis. Eg kem hingað til að vinna að auknum viðskiptum milli Frh. á 7. síðu. Mikill mannf jöldi safnaðisf saman á Arnarhóli og gífurleg aðsókn að kvöldskemmtununum. HÁTÍÐAHÖLD SJÓMANNADAGSINS á sunnudaginn fóru í alla staða prýðilega fraim 'hér í bænum, enda var vel til þeirra vandað af sjómannaismtöikunum. Þá bafa borizt fréttir af hátíðaihöldunum víða um land, og var dagsins hvar vetna minnst með samkomum sjómanna. Hér í Reýkjavík hófust há-4, tíðahöldin kl. 13.30 með hóp- göngu sjómanna. Var gengið um miðbæinn og staðnæmst á Arnarhóli, en þar söfnuðust þúsundir manna saman til að taka þátt í hátíðahöldunum. Fánar blöktu við hún hvar- vetna um bæinn og á skipum við höfnina frá þyí snemma á sunnudagsmorguninn. Kappróður sjómannadagsins — sem fara átti fram á laug- ardaginn, gat ekki orðið fyrr en á sunnudagsmorguninn, sök- um hvassviðris, en þá fór róð- urinn fram á innri-höfninni og var leiðln sem róið var 500 m. 17 skipshafnir tóku þátt í róðr- inum og báru skipverjar af bv. Helgafelli sigur úr býtum á 2:20,1 mín., og er það í þriðja sinn, sem sú skipshöfn vinnur róðrarkeppnina, og verðlauna- grxpirnir, sem er Fiskimaður (Morgunblaðsins) og róðrar- fáni Sjómannadagslns. Önnur varð skipshöfnin á ms. Braga, á 2:20,8 mín. og vann þar með June-Munktell bikarinn, sem er verðlaunagripur fyrir beztu kappróðrarsveit skipa undir 150 smálestum. í stakkasundi varð fyrstur Valur Jónsson á 2:45.7 mín. og hlaut hann að verðlaunum stakkasundsbikar Sjómanna- íélags Reykjavíkur og merki sjómannadagsins. Annar varð .íóhann Guðmundsson á 3:01.1 og þriðji varð Pétur Eiríksson á 3:27,6 mín. í björgunarsundi varð fyrstur Jóhann GuðUaundsson á 1:03.9 mín. Annar varð Valur Jónss. á 1:08.1 mín. og þriðji Pétur Eir. á 1:35.5 mín. Verðlaunin var bikar útgerðarmanna. í reiptogixxu tóku þátt fjórar skipshafnir, af Esju, Súðinni, Helgafelli og Skutli. Kömu skipshafnir af Esju og Súðinni til úrslita og vann skipshöfn Súðarinnar. Hátíðahöldin á Anarhólstúni hófust kl. 2 e. h. og var þeim útvarpað- Þar flutti Sigur- geir Sigurðsson biskup minning arræðu um drukknaða sjómenn, en Lúðrasveit Reykjavíkur lék bæði á undan og eftir minning- arathöfninni. Að minningarat- höfninni lokinni fluttu ræður: Emdl Jónsson siglingamálaráð- herra, Ólafur H. Jónsson fram kvæmdastjóri og Hallgrímur Jónsson vélstjóri. Um kvöldið voru samkomur sjómanna í Hótel Borg, Alþýðu húsinu við Hverfisgötu, Iðnó, Oddfellow og í Röðli. Á Hótel Borg fór fram verðlaunaaf- hending frá íþróttaafrekum dagsins, og þar var Jóni Björns- syni frá ísafirði afhent verðlaun fyrir björgunarafrek, sem hann vann s.l. vetur, er hann barg félaga sínum frá drukknun þar við höfnina. Einnig voru þar fluttar ræður af þeim Lúðvík Kristjánssyni, ritstjóra, og Bjarna Benediktssyni borgar- stjóra, en Guðmundur Jónsson söng einsöng.. Var þessum at- riðum útvarpað, en á eftir var fluttur leikþáttur sjómanna- dagsins, ,Úr lífi Jóns Indíafara,‘ eftir Dagfinn bónda. Mest all- an daginn var útvarþið helgað Frh. á 7. síðxi. Tundurdufl springur í vörpu logarans Þor- finns Skipi$ skemnnist mikið, en ekkert siys varð á mönnum. T UNDURDUFL sprakk í vörpu togarans Þor- finns, þar sem hann var að veiðum á Halamiðum síðast liðinn laugardag og rigndi sprengjúbrotum yfir þilfarið en það fylltist af sjó. Alþýðublaðið átti í gær við- taí við útgerðarmann skipsins, Magnús Andrésson og sagðist honum svo frá: „Þorfinnur var hálfrxaður að að veiða á laugardaginn og var þá á Halamiðum að veiðum. Verið var að hala upp vörpuna og er hún var komin upp í gálga kvað skyndilega við mik- il spl’enging við súð skipsins, svo að það lék allt á reiði skjálfi.. Sjór gekk yfir skipið og sprengjubrotum rigndi, ljós slokknuðu, skipið möibrotnaði og ýmislegt annað gekk úr skorð xxm t. d. í boxunum, og kvarn- aðist úr borðstokknum, en leki komst þó ekki: að skipinu. Ekkert slys varð á mönnum og má kalla það hreina mildi-“ Skipið mun nú fara í viðgerð og verður sá afli, sem það hafði fengið, seldur hér. Kona verSur fyrir brezkri bifreið og bíður bana T GÆRDAG kl. 1.30 varð 69 ára gömul kona, Ingi- leif Þórðardóttir að nafni, fyr- ir brezkri herbifreið í Ingólfs- stræti, á nióts við hliðið inn á Arnarhól. Fóru hæði vinstri hjól bifreiðarinnar yfir konuna og lézt hún samstundis. Bifx-eiðcistjórinn á brezku bif reiðinni skýrði svo frá, að fyr- ir framan sig hefðu staðið nokkrir bílar í röð, stöðvaðlr af umferð og virtist honum bif reiðin næst sér ætla að aka aft- ur á ba!k svo hann ók einnig aft rxr á bak. Mun konan þá hafa verið að ganga yfir götuna fyrir áftan bifreiðina, en sjónarvott ar, sem voru á Arnarhóli sáu ekki er húxi féll á götuna, en sáu er vinstra aflurhjól bif- reiðarinnar ók yfir Ingileifi og svo síðar framhjólið líka- Höfðu hjólin runnið yfir konuna ofan við mitti og var hún örend á sömu stundu. Framhald á 7. síðu. Þrír hekfarar af skóg- ar- og mosagróðri brenna á Þingvelli ViStal við Hákon Bjarnason, skóg- ræktarstjóra IJ.NDANFARIÐ hafa orð- ið nokkur spjöll af eldi í skógar- og mosagróðri- í ná- grenni Þingvailla, og síðast- liðið laugardagskvöld brunnu þar þrír hektarar lands. í gærmorgun kallaði Hákon Bjarnason skógræktarstjóxi á blaðamexm á sinn fund og skýrði þeim nánar frá þessum þruna, og bað þá jafnframt um að aðvara fólk um að fara gæti lega með eld á víðavangi í þeirri þuxrkatíð sem nú gengL Um helgina, ,27- mai, kom upp eldur í mosa skammt fyrir ofan Nikulásargjá og urðu þar nokk ur spjöll, en siðastliðið laugar- dagskvöld kom upp eldur í hrauninu við Kieifhóla vestan við Vellanikötlu. Hákon Bjarnason skýrði m. a. svo frá: „Klukkan rúmlega 6 á laug- ardagskvöldið komu þrír menn sem fengið höfðu veiðileyfi í Þingvallavatni, á þessar slóðir, en áður höfðu þeii- veitt eftir- tekt bifreið sem staðið hafði við Klifhóla. Sáu þeir, að tvær stúlkur og tveir ungir menn fóru inn í .bifreiðina og óku af stað. í sömu mund sáu menn- irnir reyk nokkurn og bmgðu þeir óðra við og gerðu aðvart Thor Brand umsjónarmanni á Þingvelli. Fór hann þegar af stað við annan mann og ikom á brunastaðinn um kl. 7,30, Var riú byrjað að grafa umhvérfis eldsvæðið, en vegna þess að vindur var mikiil breiddist eld- urinn mjög ört út. Guðmundur Ásbjörnsson, sem dvaldi á Þingvelli í sumar- bústað sínum, sá reykirm og sendi þrjá menn á staðinn und ir forustu Guðmundar Jónsson ar birgðavarðar hjá Rafmagns- veitu Reykjavíkxu-; ennfremur fór Símon í Vatnskoti, sem.sá brunann, ásamt dóttur sirmi og syni til aðstoðar, en eldurinn var svo magnaður, að við ekk- ert var ráðið- Fór þá Guðmundur Jónsson í liðslbón heim til Valhallar, því þar var margmenni um kvöldið, en ekki einum einasta manni af gestunum þar fannst það vera hluiverk sitt, að vinna slökkvistarf á þjóðgarðinum. Hafði sendimaður því ekkert upp úr för sinni utan nokkur á'höld. Um klukkan 9 kom Hnraldur Árnason stórkaupmaður þama á veginn og hringdi hann til slökkvistöðvarinnar í Reykja- vík, en slökkvistöðin hringdi, lil mín og sagði nxér frá eldin- um. Ég hringdi strax til Har- aldar Guðmundssonar, en hann er einn í Þingvallanefndinni, og mælti hann svo fyrir, að slökkviliðið væri ferigið austur. Fór ég síðan með slökkviliðiriu, en úr því fóru átta menn ásamt slökkviliðsstjóra, og var komið austur um kl- 11, en þá var að mestu búið að grafa i kringum eldsvæðið, en enniþá lifði í mos anum og kjarrinu og var vatni dælt yfir það. Um kl. 9,30 hafði vindinn lægt og auveldaðist iþá slökkvi starfið miki.ð. Töldu þeir, sem þarna voru fyrir austan frá byrjun, að 'hefði vindinn ekki lægt þetta snemma, myndu tug ir hektara hafa torunnið; senni- lega allt niður að Þingvalla- Franahaid á 7. síðui

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.