Alþýðublaðið - 05.06.1945, Blaðsíða 7
MJÞYBUBUmm
7
I»riðjadagur 5. júai 1945
Bœrinn í dag.
Næturlæknir er í Læknavarö-
stafunni, sími 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúðirani
,lðunn.
Næturakstur annast Hreyfill,
sítni 1633.
ÚTVARFIÐ:
8.30 Morgunfréttir.
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
lð.25 Hljómplötur: Dönsk tónlist.
20.00 Fréttir.
20.30 Danskt kvöld: a) frá Dan-
mörku. b) Þættir úr dönsk
um bókmenntum (Villhj- Þ.
Gíslason, Sdgurður Einars-
son o. fl.). c. Einsöngur (jErú
Guðrún Sveinsdóttir). d)
Dönsk tónlist.
'222.00 Fréttir.
Dagskrárlok.
'Nýlega
voru gefin saman í hjónaband
af séra Friðrik Hallgrímssyni,
Indiana Garibaldadóttir, Grettis-
götu 72 og Sgt. Ross Moon jnr.
U. S. Army.
Nýlega
var verzlunin Fram, Klappar-
stíg sektuð um kr. 3000.00 fyrir
að selja vefnaðarvöru liærra verði
en verðlagsékvæðin heimila.
I tílefni
af sj ómannadeginum kom út sér
prentaður sjómannasálmur og
kvæði um sjómaranafánann, sem
gefið er út til ágóða fyrir heimili
aldraða sjómanna og verður selt.
4 götunum. Höfundur er Sigfús
Elíasson.
Bifreiðaskoðunin.
f dag, þriðjudaginn 5. júní, eiga
bifreiðar, sem 'hafa skáningamúm
. erin R 2301—2400 að koma til
skoðunar í Bifreiðaeftirlitið, Amt
anannsstíg 2.
Sænski flngkapleinn-
inn.
Frh. af 2. síðu.
Svía og íslendinga. Eg. er full-
trúi sænskrá iðjufyrirtækja og
útflytjenda og mun ræða við
islenzk stjórnarvöld, iðnrek-
e_dur og kaupsýslumenn. Við
Svíar leggjum mikla áíherzlu
á, að auka viðskiptin við ís-
land og ekki aðeins efnaleg
viðskipti heldur og hin menn-
ingarlegu. Við munum gjarnan
kaupa útflutningsvörur ykkar
cg þá ekki hvað sízt síldina.
Margir töluðu við mig um ,,ís-
L>nds-síld“ áður en ég fór. —
i>á mun ég einnig rannsaka:
möguleikana fýrir því, að hægt
vtrði að taka upp beinar sam-
göngur milli íslands og Sví-
þjóðar á sjó, en það mái hefur
nokkuð verið rætt um' áður.
Eg hef aldrei komið fyrr til
ís:ands,“ segir flugkapteinninn
að lokum, ,,en mig hefur lengi
langað til að koma hingað. Eg
vona líka, að ég fái tækifæri
til að kynnast þjóðinni og
heimsækja ýmsa staði, ekki
öízt Siglufjörð — í blóma mik-
ix.a athafna. — Eg vil geta þess
að formaður sænska Alþýðu-
f.'okksins og forsætisráðherra
okkar, Per Albin Hansson, bað
mig fyrir kærar kveðjur til
Alþýðuflokksins hér og for-
manns haris, Stefáns Jóhanns
S;efánssonar.“
Sven Erik Cornelius er fer-
tugur að aldri. Hann hefur um
15 ára skeið verið flugmaður
og starfað að flugmálum. Hann
var um tíma flugmálaráðu-
nautur sænska sendiherrans í
Ijöndion. Fjölskylda hans og
hann sjálfur hafa lengi verið í
vináttutengslum við fjölskyldu
sænska forsætisráðherrans.
Blaðamenn kveðja samsfarfs-
menn á ófriðarárunum
Vegfegf samsæfi fyrir Vestur-íslendingana
Dóra Hjálmarsson offursta og Valdimar
Björnsson sjéHðsforlngja
Konan min,
Þorbjörg Mensaldursdóttir,
til heimilis við Bergstaðastræti 46, andaðist í Landsspítalanum
þann 4. þessa mánaðar. * .
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda.
Eyjólfur Jónsson.
Blaðamannafélag
ÍSLANDS hafði síðast
liðið lau'gardagskvöld sam-
isæti fyrir þá Dóra Hjá'lm-
arsson ofursta og Valdimar
Björnsson liðsforingja í til-
efni þess, að þeir munu þá
og þegar verða kvaddir héð-
an, en þeir hafa á undanförn
um árum, eins og kunnugt
er, haft á hendi samvinnu-
starff hersins við blöð og
blaðamenn, en Dóri Hjálm-
arsson hefur verið yf irmaður
þeirrar deildar hersins og
Valdimar. starfsmaður hans.
Samsætið sátu flestir blaða-
menn í Reykjavík og auk þess
þrir eða fjórir aðrir, sem hafa
haft nökkuð samstarf við þá.
Var samsætið haldið í Oddfell-
owhúsinu og fór það hið foezta
fram. Formaður Blaðamanna-
félagsins, Jón Magnússon frétta
stjóri, stýrði hófinu og bauð
gestina velkomna með ræðu-
Minntist hann hins ánægulega
samstarfs blaðamanna við her-
inn og fullyrti að það mætti
ekki sízt þakka þeim, ofurstan-
um og liðsforingjanum, hversu
vel samstarfið hefði tekizt og
eftirlitið með fréttaflutningi á
þessum viðsjálu og hættulegu
tímum hefði reynst létthært fyr
ir íslenzka blaðamenn, sem ekki
væru vanár því að þola nokkur
höft eða vera undir eftir-liti í
starfi sínu. Kvað hann og aldrei
hafa komið til mála að heri.nn
seildist til neinna áhrifa á skrif
blaða eða. frásagnir útvarps
nema í þeim efnum, • sem bein-
línis snertu hernaðarlegt öryggi
á sjó og landi. Jón Magnússon
kvaðst vilja fullyrða, að það
væri næsta einsdæmi að blaða-
menn í nokkru landi héldu full
trúum herveldis annars lands
samsæti og skilnaðarhóf eftir
nokkurra ára hernám, er þeir
færu og hernáminu væri lokið.
Sagið hann að þetta væri dæmi
um það, hve léttbært hernám
ið hefði verið, eða réttara sagt
herverndin og vildi hann láta
þá skoðun íslenzkra blaða-
manna .í ljós, að ólíklegt væri,
að starfið-hefði. tekizt jafn vel
af hálfu hersins og raun væri
á, ef ekki hefðu valizt til starf
ans þeir tveir ágætismerin, sem
valdir voru. Báðir væru þeir,
þó að þeir væru Bandaríkja-
þegnar, af íslenzku bergi brotn
ir og 'hefðu þvi haft betri skil-
yrði til að skilja þjóðina, sem
þeir gistu hjá. Kvað hann alla
íslenzka blaðamenn hylla þá
Dóra og Valdimar og þakka
þeim fyrir góða og heilladrjúga
samvinnu-
í lok ræðu sinnar tilkynnti
formaður Bl’aðamannafélagsins,
að 'blaðamenn hefðu ákveðið að
færa þeim gjöf til minningar
um þetta samstarf við íslenzka
blaðamenn. Myndi þeim verða
afhent gjöfin innan skamms,
en hún væri, til hvors um sig,
hin nýja útgáfa af Njálu og
myndu eintökin verða útbúin á
sérstakan hátt af þessu tilefni,
með -sérstöku titilblaði, sem
'bl'aðamenn myndu rita kveðjur
sínar á, og yrðu eintökm bund
in í sérstakt skrautband. Teldu
blaðamenn að þeir gætu yarlá
valið gjöf, sem væri betur við-
eigandi, þar sem hér væri um
að ræða perlu Lslenzkrir bók-
merinta, en af engu væru íslend
ingar jafn stoltir og af bók-
menntum sínum, en auk þess
væri hér um að ræða eina feg-
urstu útgáfu, sem hér hefði ver
ið gefin út. — —
Einnig tóku til máls Bjarni
Guðmundsson, Valtýr Stefáns-
son, Stefán Pétursson, Guð-
brandur Magnússon, Jón H.
Guðmundsson, Thorolf Smith
og Valdimar Jóhannsson. Þökk
uðu þeir þeim Dóra og Valdi-
mar samstarfið og árnuðu þeim
allra heilla- Sungin voru tvö
gamankvæði. er Ragnar Jóhann
esson hafði ort til heiðursgest-
anna, en Kristján Guðlaugsson
flutti þeim drápu. Að lokum
löluðu heiðursgestirnir báðir og
lýstu dvöl sinni hér. Þökkuðu
þeir blaðamönnunum fyrir skiln
ing þeirra á aðstöðu herliðs
Bandarikjanna hér og stuðning
þeirra og skilning á baráttu
bandarísku þjóðarinnar. Kváð- 1
ust þeir vomi að herverndin
hefði fremur orðið tiiL þess að
auka vináttu milli íslendinga og
Bandaríkjamanna en hins gagn
stæða. Sögðust þeir og alltaf
hafa reynt að hafa 'það sjónar-
mið í erfiðu starfi sínu að gæta.
hagsmuna og velferðar beggja
þjóðanna, enda hefði þeim
reynst það léttara, þar sem 'það
hafi komið fljótt í ljós, að mál
staðurinn var sameiginlegur.
Enn er ekki vitað með vissu,
hvenær þeir Dóri Hjálmarsson
og Valdimar Björnsson fara
héðan, en það getur orðið þá og
þegar úr þessu- Blaðamenn
höfðu fengið margar áskoranir
um að gangast fyrir almennu
samsæti. fyrir þá, en þeir gátu
það ekki, óskuðu heldur eftir
því að geta eytt einni kvöld-
stund með þeim einir að skiln-
aði, svo náið hefur samstarfið
verið'undanfarin ár.
Sjómannadagurínn
Frh. af 2. síðu.
sjómannadeginum. Barnatíminn
var og á vegum sjómannadags-
:ns undir stjórn Jóns Oddgeirs
Jónssonar, en á eftir flutti Sig-
urjón Á. Ólafsson, form. Sjó-
mannafélags Reykjavíkur erind1
um Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna.
Á skemmtununum um kvöld
ið var alls staðar húsfylli. Blað
og merki dagsins seldust vel, og
þátttaka almennings á allan
hátt mjög mikil í hátíðum sjó
rnanna þennan dag.
Öll atriði hátíðahaldanna
voru kvikmynduð
liiEFLAVÍK.
í Keflavík hófust hátíðahöld
sjómannadagsins með guðs-
þjónustu kl. 11 f. h. á sunnud.
Kl. 1.30 var safnast saman
við Ungmennafélagshúsið og
þar flutti Ragnar Guðleifsson
formaður Verkalýða- og sjó-
mannafélags Keflavíkur ræðu,
en Lúðrasveitin Svanur lék. —
Þaðan var farið í hópgöngu að
hafskipabryggjunni. — Knatt-
spyrnukeppni milli Keflvík-
inga og Sandgerðinga. Unnu
Keflvíkingar með 2 mörkum
gegn 1. Um kvöldið voru
Jarðarför konunnar minnar,
Sélveigar Jónsdóttur,
fer frarn á morguip miðvikudaginn 6. júní frá Dómkirkjunni og
heifst með bæn á heimili .okkar, Bergstaðastræti 25, kl. 2 e. h.
Það var ósk hinnar látnu, að kransar yrðu ekki gefnir, en ef
einhver vildi minnast hennar, þá að láta „Spítalasjóðinn Ástríðar-
minning" á Eyrarbakka njóta þess. —- Minningarspjöld sjóðsins
fást í Bókaverzlun Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg 2, Reykjavík.
Gísli Halldórsson.
------------------------------------------------
ÞAKKA HJARTANLEGA
heimsóknir, gjafir, heöllaskeyti og hvers konar vin-
semd á áttræðisafmæli mínu.
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON
frá Sandhólaferju.
skemmtanir í samkomuhúsun-
um.
AKRANES.
Á Akranesi hófust hátíða-
höld sjómanna með því, að
menn gengu fylktu liði til
kirkju, en þar var guðsþjón-
usta kl. 10 árd.
Kl. 1.30 fór fram sund-
keppni, bæði í stakkasundi og
50 metra bringusundi. Enn-
fremur var reiptog, knatt-
spyrnukeppni og pokahlaup. Um
kvöldið var inniskemmtun í
Bíóhöllinni. Þar flutti ræðu af
hálfu útgerðarmanna, Ól. B.
Björnsson, en af hálfu sjó-
manna talaði. Hallfreður Guð-
mundsson. Ennfremur var kór-
söngur. Síðar um kvöldið var
dansleikur í íþróttahúsinu og
fór hann mjög vel fram.
Þar fór og fram Keppni í eft-
irtöldum greinum: Stakkasundi
og varð bar hlutsKarpastur Sig.
Jónsson. Boðsundskeppni milli
sjómanna og landmanna og
sigruðu sjómennirnir. Þá fór
fram sundkeppni milli drengja
úr Höfnum og jafnaldra þeirra
úr Keflavík og báru drengirnir
úr Höfnum sigur úr býtum. —
Auk þess synti runddrottning
Suðurnesja, Guðbjörg Þórhalls
dottir, skriðsund, 100 m. á 1
mín. 27.2 sek. og má það heita
méð afbrigðum góður tími. Að
lokum var sýnt kafsund og
dýfingar. Séra Eiríkur Brynj-
óifsson minntist drukknaðra
sjómanna. —
Banaslys í gær.
Framhald af 2. síðu
Rannsóknarlögreglan biður
þá er kynnu að hafa séð er kon
ah féll fyrir bifreiðina og með
hvaða hætti það bar til, að
koma til viðtals hið fyrsta.
Eins og áður var sagt var
Ingileif 69 ára að aldri. Hún
vann hjá rikisféhirði en átti
heima á Sóleyjargötu 23.
Skógarbruni á Þing-
völlum.
Framhald af 2. síðu.
vatni og að Vatnskoti.. Þegar
slökkviliðið hafði lokið starfi
siínu um kl. 1 um nóttina, gaf
að líta svart flag á um 3 hekt-
ara landsvæði-
Á sunnudaginn fór enn að
loga við furulundinn á Þing-
velli, upp á gjábrúninni, en for
manni Þingvallanefndar, Jónasi
Jónssyni, sem var fyrir aust-
an með fjölskyldu sinni, tókst
ásamt henni að ráða niðurlög-
um eldsins.
Mun Þingvallanefnd nú hafa
í 'huga að fá slökkvitæki aust-
ur, enda virðist ekki veita af,
að allar varúðarráðstafanir séu
gerðar í þessu skyni, en vitan-
lega eru þær haldbeztar með
því móti að allur almenningur
sem þarna dvelur gæti fyllstu
varúðar með eld, einkanlega í
þurrkatíð eins og nú hefur geng
ið að undanförnu.“
LandsliÓskeppni á föstudagskvöld:
Urval úr knattspyrnufélögunum
keppir við lið úr brezka hemum
NÆSTKOMANDI föstudags-
kvöld kl. 8.30 fer fram
ilandsliðskeppni i knattspyrnu
hér á 'iþróttavellinum- Reyna
þar með sér úrvalsmenn úr
knattspyrnufélögunum í Reykja
vík og úrval úr brezka hernum
hér, landher, flugher og flota.
Lokaæfing íslénzku knatt-
spyrmimannanna fer fram í
kvöld. Hefur knattspyrnuráð
tilnefnt 22 menn, aðalmenn og
varamenn og verður aðalliðið,
11 manns, valið úr eftir æfing-
una í kvöld.
Má vænta skemmtilegs leiks
á föstudagskvöldið, því valdir
verða 'b^ztu mennirnir sem völ
er á hjá báðum aðilum.